Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Blaðsíða 21
 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 21 DV Tilvera Pierce Brosnan 50 ára Það er enginn annar en Bondarinn sjálfur, Pierce Brosnan, sem verður fimmtugur, hvorki meira né minna, í dag. Hann er vafalaust önnum kafinn við gerð nýj- ustu James Bond-myndarinnar, Die Another Day, þessa dagana, en eins og kunnugt er veu- hluti myndarinnar tekinn hér á landi þó svo að kappinn sjálfur hafi ekki séð sér fært að mæta á svæðið sjálfur. Það er þó aldrei að vita hvort hann mæti ekki á frumsýn- inguna hér í Reykjavík, en sögusagn- ir hafa verið uppi um að myndin verði heimsfrumsýnd hér á landi. Gildir fyrir föstudaginn 17. maí Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l: I Hugsaðu um að fá ' næga hvfld. Þér hættir til að fara of geyst þegar eitthvað spennandi er við að fást. Happatölur þínar eru 7, 9 og 29. Fiskarnimn febr.-20. marst Þetta verður fremur Irólegur dagur hjá þér og þú fagnar því þar sem þér finnst heldur harður snúningur á tilverunni um þessar mundir. Hrúturinn (21. mars-19. apriO: Eitthvað sem hefur beðið ^■^ai^afgreiðslu í langan tíma ^ær afereiðslu í dag. Ein- hver ágreiningur kemur upp varðandi lausn málsins en allir verða þó sáttir við málalok. llflUUU IZU. cU x* CF ekki í skapi Nautið (20. apríl-20. maí): Það er skynsamlegt að láta hendur standa fram úr ermum fyrri hluta dags. Þú verður ekki í skapi til að gera mikið þegar líður á daginn. Tvíburarnir (21. mai-2i. iúníi: 'v Ástvinir eiga góðar s tundir saman og / leggja drög að fram- tíðinni. Lifið virðist brosa við þér um þessar mundir. Happatölur þínar eru 4, 13 og 22. Krabbinn (22. iúní-22. íúit>: Þeim sem stimda nám | finnst þeir þurfa að ' leggja ansi hart að sér. Geri þeir það uppskera i góðan árangur. Happatölur þínar eru 1, 33 og 38. Liónið (23. iúlí- 22. áeúsú: , Þú ættir að gera eitthvað þér til skemmtunar í dag þar sem erilsamt hefur verið hjá þér undanfarið. Happatölur þínar eru 7, 18 og 28. Mevian (23. ágúst-22. sept.l: Ef þú þarft að koma einhverjum verkefhum ^^^tfrá er skynsamlegt ^ ! að láta hendur standa fram úr ermum. Kvöldið verður ánægjulegt. Vofiin (23. sept-23. okt.): Þér finnst eins og þú sért hafður út undan hjá félögum þinrnn. Er ekki hugsanlegt að þú þurfir að leggja meira til málanna sjálfur? Sporðdrekinn (24. nkt -21. nfivö: V Kannaðu alla mögu- \ leika áður en þú tekur jafstöðu í máli sem gæti haft mikil áhrif á lif sitt Sjálfstraust þitt er gott þessa dagana. Bogmaðurinn (22. nóv.-2i. des.): .Þetta verður vægast rsagt óvenjiflegur dagur hjá þér. Þú ferð í stutt ferðalag og kannar alveg nýjar slóðir og hefur virkilega gaman af. Steingeitin (22. des.-19. ian.): Gættu þess að imgvið- 1 ið fái næga athygli frá þér. Það lítur út fyrir að einhver eða ein- hveijir innan fjölskyldunnar séu heldur afskiptir þessa dagana. Vogin [23. se ý að þú þurf Þungvopnaðar löggur á NATO-fundi: Hrollur og prótókollur Reykjavík hefur verið nánast á hvolfi síðustu dægur. Utanrikisráð- herrar NATO-ríkjanna og samstarfs- ríkja þeirra, alls 46 ráðherrar, hafa fundað i borginni - og fóruneyti þeirra er heilt herfylki embættis- manna. Semja á um heimsfrið. Fund- inum lauk í gær og gestir hans eru að halda til síns heima. Flestir þegar famir. Fundurinn var haldinn í Há- skólabíói og nærliggjandi byggingum. Því hafa Hagatorg og nágrennið þar í kring verið afgirt. Þungvopnaðir hafa þjónar réttvísinnar gengið um götur og gætt öryggis fundargesta. Islend- ingar eiga ekki að venjast vopnuðum löggum og að sumum hefur sett hroll. Hrollur og prótókollur En nú er vor í Vesturbænum, sagði skáldið. Hrollurinn fer úr fólki og vora tekur þegar lögregluþjónar leggja niður vopn. Og sælt verður lif- ið þegar Orion-flugvélin sem sveimað hefur yfir borginni síðustu nætur er komin á jörðina aftur. Lífið er alltaf best þegar það rúllar eftir þvi prógrammi sem við þekkjum best. Öll þráum við öryggi en vopnlaust verður lífið þá að vera. í utanríkisráðuneytinu hefur mikið starf verið unnið síðustu mánuði við undirbúning fundarins. Hannes Heimisson skrifstofustjóri hefur verið i eldlínunni. Hann sagði i samtali við DV í gær að dómur manna væri al- DV-MYND ÞÖK. Samkvæmt stífustu reglum Framkvæmdastjóri NATO og utanríkisráðherra ísiands fyrir miðju, hinir í stafrófsröð eftir upphafsstöfum heimalandsins. Dagskrá Listahátíðar á morgun, 17. maí: Salsatónlist og sýningar Hádegistónleikar og heimild- armynd Chalumeaux-tríóið ásamt Ólafi Kjartani Sigurðarsyni baríton kemur fram kl. 12.30 í Listasafni Reykjavikur - Hafnarhúsi í tengslum við sýninguna Mynd - íslensk samtímalist. Chalumeaux-tríóið er skipað klar- ínettuleikurunum Kjartani Óskars- syni, Óskari Ingólfssyni og Sigurði Ingva Snorrasyni. Meðal annars verð- ur frumflutt verkið Trio trionfante eft- ir Páll P. Pálsson. Ókeypis er inn eins og á aðra hádegistónleika Listahátíðar. Heimildarkvikmynd Þorfinns Guðnasonar um Guðjón Bjamason verður svo frumsýnd í Hafnarhúsinu kl. 20 en Guðjón er einn listamann- anna sem eiga verk á sýningunni Mynd. Fyrsta talmyndin Enginn getur lifað án Lofts er yftr- skrift kynningar á Ijósmyndum og kvikmyndum eftir Loft Guðmundsson (1892-1952). Sýning með ljðsmyndum hans verður opnuð í Hafnarborg í Haftiarfirði kl. 17 og verður síðan opin alla daga nema þriðjudaga til 3. júní. Kl. 18 verður svo fýrsta íslenska tal- myndin, Milli fjalls og ftöm, sýnd i Bæjarbíói í Hafnarfirði, ásamt Hnatt- fluginu, sem var fyrsta íslenska heim- ildarmyndin sem gerð var árið 1924. Báðar eftir Loft. Sá er verðugur síns kets Hringleikur er örverk eftir' Guð- rúnu Evu Minervudóttur og Birtu Guðjónsdóttur sem flutt verður á Rás 1 kl. 17.05. „Sá er verðugur síns kets er sitt kál át“ eru einkunnarorðin. Um beina útsendingu er að ræða frá Portinu að Laugavegi 21, að viðstödd- um áhorfendum. Leikstjóri er Ásdís Thoroddsen. Hringleikur fellur inn í verkefnið Níu virkir dagar sem er Vocal Sampling Kúbverska sveitin sem kemur fram á Broadway á föstudags- og laugar- dagskvöld. samstarfsverkefni Útvarpsleikhúss- ins, Listahátíðar, Rithöfundasam- bandsins og hóps ungra myndlistar- manna. Salka Valka og salsasveit Síðasta sýning á dansverkinu Salka Valka eftir Auði Bjamadóttur verður í Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 20. Það hefur fengið afar góða dóma gagn- rýnenda. Kl. 21 er komið að lokaatriði kvöldsins, kúbversku salsasveitinni Vocal Sampling á Broadway. Þetta eru sex ungir tónlistarmenn sem búa til öll hljóð með röddum, höndum og fótum svo um stórhljómsveit virðist að ræða. Sveitin hóf feril sinn í af- mæli Harrys Belafontes og hefur síð- an farið viða. Þetta eru fyrri tónleikar hennar af tvennum á Listahátíð. Þeir síðari em annað kvöld. -Gun. Umsátursástand Laganna verðir að störfum við Hagatorg mennt sá að vel hefði tekist til. Kvaðst Hannes hafa það einnig eftir þeim fjöl- mörgu erlendu blaða- og fréttamönn- um sem fundinn sækja. í gær bauð Halldór Ásgrímsson fundargestum til hádegisverðar. Segir Hannes að þar hafi verið komnir sam- an fulitrúar þriðjungs aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna. Bætir því við að margt í framkvæmd fundarins sé einnig í samræmi við þær siðareglur sem gildi í utanrikisþjónustunni. Prótókollinn sem svo er nefndur. Þar megi nefna myndina af ráðherrunum sem sóttu fundinn þar sem fyrir miðri mynd voru framkvæmdastjóri NATO og utanríkisráðherra íslendinga, en að öðru leyti röðuðu þeir sér upp sam- kvæmt starfrófsröð, það er fyrsta staf í nafni heimalanda þeirra. Hvalreki friðarhreyfinga Við vitum að engin rós er án þyma. Skuggi er ekki án ljóss. Enginn fund- ur er án mótmæla. Þeir sem helst mót- DV-MYND HARI mæla hemaði heimsins hafa látið í sér heyra og stóðu vaktina við Haga- torg í eftirmiðdaginn á þriðjudaginn. Stefán Pálsson sagnfræðingur, sem er formaður Samtaka herstöðvarand- stæðinga, sagði: „Ég tel að hluti af svona fundum sé einfaldlega sá að mótmælendur láti í sér heyra. Og það höfum við líka gert. Samstarf okkar við lögregluna hefur verið gott, enda þótt þeir hefðu reyndar ekki getað stillt sig um að ljúga niður tölu þeirra sem mættu á mótmælafundinn okkar á þriðjudag." Hann bætti við að satt að segja væri þessi utanríkisráðherra- fundur NATO hvalreki ffiðarhreyf- inga á íslandi. Fundurinn hefði orðið til að vekja athygli á málstað þeirra, enda ofbyði mörgum; gapandi byssu- kjaftar á götum úti, óstarfhæfir grunnskólar í vesturborginni og sprengjuflugvélar sem sveimuðu yfir borginni - á þeim tímum þegar rétt- látir svæfu. -sbs "the t >erfect pizza" John Baker 520 3500 Gnoðavogur Jjfö: Brekkuhús L

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.