Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 Tilvera I>V 1 1 f 1 ft í ~—-■“—■— Nordlenskt handverk Opnuð verður sýning á list- og handverki í Ketilhúsinu á Akureyri í kvöld kl. 20. Þar getur að líta fjölbreytt verk m.a. skraut og nytjamuni úr hinum ýmsu efnum. Sýningin verður opin alla hvítasunnuhelgina og fram til 20. maí á milli kl. 13-18. Aðgangur er ókeypis. #Krár ■ Byff á Vidalín Súperbandiö Buff verður á Vídalín í kvöld og er hægt að treysta á firnagóða skemmtun. • Listir ■ Glæsileg tangósvning Cenizas de tango er glæsileg tangósýning beint frá Argentinu. Tólf dansarar taka þátt í sýningunni en þeir skipa danshópinn El Escote. Sýnd í íslensku óperunni kl. 20.30. A. ■ Leikrit i Banka Örleikverkið Norrænt samstarf verður sýnt í Landsbankanum við Austurstræti kl. 17.05. Verkiö er eftir Kristján Þórð Hrafnsson og Guðlaug Valgarðsson •Klassik ■ Lifandi tónlist á Kiarvalstöðum Kl. 12.30 flytja Marta Guðrún Halldórsdótt- ir sópransöngkona og Örn Magnússon pi- anóleikari verkiö Appartion eftir bandaríska skáldiö George Crumb í Listasafni Reykja- víkur á Kjarvalstöðum. ■ Raddir þjóóar Kl. 12 bjóða tónlistarmennirnir Siguröur Flosason og Pétur Grétarsson upp á tón- > listardagskrá þar sem tónlistararfur ís- lensku þjóöarinnar er tekinn til skoöunar á nýstárlegan hátt. Tðnleikarnir eru í Lista- safni Reykjavíkur Hafnarhúsi. ■ Tríé Cracovia í Salnum Tríó Cracovia er með tónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld. Gleðin hefst upp úr kl.20. • Böll ■ TangóballJJjafnarhúsjnu Það verður dansaður tangó frá kl. 22 í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, í kvöld. Suðræn sveifla með gítarspili og öllu tilheyrandi. • Sveitin ■ KK í Revkianesbæ Hinn þjóðþekkti tóniistarmaður KK verður með tónleika á Kaffi Duus í Reykjanesbæ í kvöld. Þar mun hann flytja mörg af sínum þekktustu lögum ! bland viö aðra góða slagara. • Leikhús ■ Dansandi Salka Valka Salka Valka verður sýnd í Borgarleikhúsinu kl. 20. Dansarar eru úr íslenska dans- flokknum en miðaverð er 2400 kr. ^ ■ Veislan í kvöld sýnir Þjóðleikhúsið leikgerö af Veisl- unni eftir Bo hr. Hanssen. Sýnt er á Smíða- verkstæðlnu og hefst sýningin kl. 20. ■ SeHófon Hafnarfjarðarleikhúsið sýnir í kvöld einleik eftir Björk Jakobsdóttur að nafni Sellófon. Sýningin hefst kl. 21 en leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Leikfélag Akureyrar frumsýnir leikrit með langan titil: Ástarsaga úr engri veröld - eftir rúmenskan höfund Bíógagnrýni Sambióin - The Wlajestic: ★ ★ ^ Aftur til fortíðar Sif Gunnarsdöttir skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Leikstjórinn og leikarahjónin Lengst til vinstri á þessari mynd er Siguröur Hróarsson leikhússtjóri en svo leikarahjónin Þorsteinn Bachmann og Laufey Brá Jónsdóttir. Verkiö hefur heimspekiiega dýpt og vekur spurningar meðal áhorfenda. Er í öllu falli ótrúlega vel skrifaö leikrit, segir Þorsteinn. spumingar sem liggi til ailra átta. HT svioinu „Þetta leikrit sem viö erum nú meö á fjölunum er gullfalleg ástarsaga, vel skrifuð ogjafnframt áleit- in, “ segir leikstjórinn Siguröur Hróarsson. enska höfundinn Matéi Visneiec, en hann býr nú í París. Þar í borg sett- ist hann að árið 1987 eða tveimur árum fyrir byltinguna sem gerð var í heimalandi hans. Fyrir tíma henn- ar var hann á svörtum lista stjóm- ar Ceausescus og var því ekki vært í Búlgaríu. 1 Frakklandi blómstrar Visneiec hins vegar, að sögn Sigurð- ar Hróarssonar, og er afar framsæk- inn höfundur. „Þetta leikrit sem við erum nú með á fjölunum er gullfalleg ástar- saga, vel skrifuð og jafnframt áleit- in. Og umhverfið sem það gerist i á sér kannski ekki neina beina sam- svörun í neinni veröld. Það gerist á eins konar brú milli heima,“ segir Sigurður. Hann segir jafnframt að verkið sé óvenjulegt að efnistökum og efnisuppbyggingu. Óráðiö og opið og veki meðal áhorfenda Laufey og Þor- steinn Leikritið „Saga af pandabimi, sögð af saxó- fónleikara sem á kærustu í Frankfurt" var skrifað árið 1994. Hefur það á síð- ustu árum verið fært upp allvíða og fengið góða dóma gagnrýnenda og áhorfenda. Leikarar í þessari uppfærslu Leikfé- lags Akureyrar á þessum leikriti eru hjónin Laufey Brá Jónsdóttir og Þor- steinn Bachmann, en hann tekur einmitt við starfi leikhússtjóra LA nú á haustdögum. Sigurður Hróarsson segir þau standa sig vel í þeim hlut- verkum og það meini hann alveg frá hjartanu. Jafhvel þótt skylda sin sé að lofa leikaralið sitt. En hvað segja leikar- arnir sjálfir? „Mér flnnst Sigurður vera afburða- góður leikstjóri og það er lærdómsrikt að starfa með honum,“ segir Þor- steinn Bachmann og bætir við að verkið hafi heimspekilega dýpt sem þannig veki spumingar meðal áhorf- enda. Þetta sé í öllu falli ótrúlega vel skrifað leikrit. Þorsteinn Bachmann tekur form- lega við starfi leikhússtjóra þann 1. september á hausti komanda. Hann segir enn of snemmt að greina frá því hverjar áherslurnar í starfi sínu verði, en i öllu falli sé verkefnið sem sín bíði spennandi. Það sé þó ætlun sín að færa á fjalimar leikrit og segja þá hluti sem hreyfi við áhorfendum. Að öðru leyti kveðst Þorsteinn munu kappkosta að hafa efnisskrána fjöi- breytta þannig að enginn telji sig af- skiptan hjá Leikfélagi Akureyrar, hvorki þeir fuliorðnu né þeir sem yngri eru. -sbs í kvöld, fimmtudagskvöld, frum- sýnir Leikfélag Akureyrar leikritið „Saga af pandabimi, sögð af saxó- fónleikara sem á kærustu í Frank- furt“. Verkið verður jafnframt sýnt á föstudags- og laugardagskvöld. „Ég velti fyrir mér hvort ekki væri hægt að fá leyfi höfundarins eða rétthafa til þess að fmna verkinu nýjan titil annan en þennan ofur- langa, en féll frá því. Af anda og inn- taki verksins má greina að titillinn sé höfundinum býsna kær,“ sagði Sigurður Hróarsson leikshússtjóri í samtali við DV um leikritið. Sem hann einmitt bæði þýddi og leik- stýrir. Þetta er jafnframt svanasöng- ur hans hjá leikfélaginu þar sem hann er nú að láta af störfum eftir þrjú ár í þessari síðustu lotu. Vel skrifuð ástarsaga Þetta leikrit er hið fyrsta sem Sig- urður leikstýrir, enda þótt hann sé þaulvanur leikhúsmaður og hafi starfað á þeim vettvangi um ára- langt skeið. Verkið er eftir rúm- í The Majestic leikur Jim Carrey handritshöfundinn Peter Appleton sem er á barmi heimsfrægðar; nýjasta myndin hans er í bíó, hann á ljóshærða kærustu og er á föstum samningi hjá kvikmyndaveri. Þetta er sjötti áratugurinn og kommún- istaveiðar i fullum gangi, ekki minnst í þeirri syndum spifitu borg Hollywood. Peter hafði einu sinni farið á sellufund til að ganga í aug- un á stelpu og hann er kallaður til yfirheyrslu. Þótt hann sé allur af vilja gerður að koma upp um allt og alla til að hvitþvo sjálfan sig er hann rekinn úr vinnunni, hætt er við nýjustu myndina hans og kærastan segir honum upp. Peter bregst karlmannlega við. Hann dettur í það og ekur bílnum út af brú og ofan í á. Hann vaknar minnislaus næsta dag á strönd sem hann þekkir ekki. íbúar í nærliggjandi smábæ eru hins vegar ekki í vafa um hver hann er - hann heitir Luke Trimble, einn af 62 sonum bæjarins sem börðust í heimsstyrjöldinni síðari og sneru ekki aftur. Lík Lukes hafði aldrei fundist og bæjarbúar taka honum opnum örmum. Luke þessi var hlýr maður og vænn og öllum þótti ofurvænt um hann og Peter minnislausi verður að sjálfsögðu betri maður í lífi Luke, hann finnur hjarta sitt og heiðarleika og kemst að því að hin gömlu gildi um rétt- læti, bræðralag og náungakærleika rista dýpra en óskir um skjótfeng- inn frama og vasa fulla af pening- um. En ekki trúa allir á upprisu Luke og einhvers staðar eru and- kommúnistar að leita dyrum og dyngjum aö Peter Appleton. The Majestic hefði hæglega getað verið gerð fyrir fimmtíu árum og þá hefði kannski Frank Capra setið í leikstjórastólnum og James Stewart leikið Peter/Luke. Darabont sýnir okkur smábæjarheim sem varla hef- ur nokkurn tíma verið til. Allir eru vinir, treysta hver öðrum og hjálpa orðalaust. Gagnvart þessum heimi verður yfirborðskennt glanslíf Hollywood innantómt og ómerkilegt. Að sjálf- sögðu gerir Peter/Luke sér grein fyrir þessum mun í lokin og stend- ur með hinum gömlu gildum í væmnu atriði sem gengur skrefi of langt. Darabont hefur áður leikstýrt myndunum The Shawshank Redemption og The Green Mile sem daðra líka við væmni en handritin þar eru þó þéttari en hér og standa betur undir tilfinningaríkum loka- atriðum. En leikurinn í Majestic er óaðfinnanlegur. Carrey geiflar sig aldrei og gerir ekkert til að sníkja fliss og það kemur í ljós að hann er sannfærandi dramatískur leikari. Holden, sem leikur kærustuna, er eins og klippt út úr kvikmynda- heimi sjötta áratugarins og ég er viss um að Hitchcock hefði elskað hana, myndarleg og ljóshærð sem hún er, og ágætisleikkona líka. The Majestic er rómantísk mynd um mann sem kemst óvænt að því að hann er betri en hann hélt um leið og hann verður ástfanginn af góðri stúlku og heilum smábæ af fólki sem elskar sitt foðurland af ástríðu. Sem útlendingi finnst manni dálítið nóg um foðurlands- ástina en ef tO vill er þetta nákvæm- lega það sem amerískir bíógestir hafa þörf fyrir eftir 11. september. The Majestic minnir okkur á að þótt kommagrýlan sé dauð er önnur komin í staðinn og aðrir þjóðfélags- hópar ofsóttir eins og vinstri sinn- aðir voru fyrir 50 árum. Leikstjóri: Frank Darabont. Handrit: Michael Sloane. Kvikmyndataka: David Tattersall. Tónllst: Mark Isham. Aðalleik- arar: Jim Carrey, Martin Landau, Laurie Holden, David Ogden Stiers, Jeffrey DeMunn, Hal Holbrook, James Whitmore o.fl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.