Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Blaðsíða 4
Fréttir FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 DV Mikill viðbúnaður fíkniefnalögreglu á Austurlandi eftir hleranir íslendinga á Spáni: Skúta átti að koma með hundruð kílóa af hassi - lagði af stað frá Ibiza en komst ekki alla leið - íslendingar héldu áfram að reyna íslenska fikniefnalögreglan átti von á að skúta kæmi til eyðifjarðar á Austurlandi með hundruð kilóa af hassi, jafnvel tonn, í ágúst 1998. Lög- reglan hafði vissu fyrir því að skút- an lagði af stað frá Ibiza - fyrir til- stilli íslenskra manna. Lögreglu- menn komu sér því fyrir við strand- lengjuna, meðal annars í Loðmund- arfirði, og dvöldu þar svo dögum skipti, á meðan komu skútunnar var beðið. Reiknað var með að hún kæmi að næturlagi, samkvæmt sim- hlerunum. Þetta kom fram við rétt- arhald í Héraðsdómi Reykjavíkur 1 gær. Óttar Sveinsson blaöamaöur Um þetta leyti fylgdust fíkniefna- lögreglumenn frá Reykjavík með ferðum íslendings á Ibiza en einnig á meginlandi Spánar. Lögreglan hleraði síma hans í á annað ár. Maðurinn átti í viðræðum við tvo aðra íslendinga um mál sem fikni- efnalögreglan taldi greinilega tengj- ast hassinnflutningi til íslands, ekki síst á umræddri skútu. íslendingur átti aö fara með Fíkniefnalögreglumaður sem kom fyrir dóm í gær í svokölluðu hurðamáli í Barcelona, þar sem sömu íslendingar eru ákærðir, sagði að skútan hefði farið af stað frá Ibiza. Raunar liggja upplýsingar fyrir um að fjórði íslendingurinn fór til Ibiza og átti að vera í áhöfn hennar til íslands. Af því varö þó ekki því spænskir aðilar treystu honum ekki til ferðarinnar. En skútan lagði af stað frá Ibiza, sagði fíkniefnalögreglumaðurinn, en síð- an var henni snúið við. Hvers vegna hafði lögreglumaðurinn ekki vissu fyrir. Á skútunni var hins vegar er- lend áhöfn að því er talið er - menn á vegum eigenda efnanna. Eigend- urnir voru grunaðir um að hafa ætl- að að markaðssetja hassið hér á landi. Lögreglan og ríkissaksóknari hafa undir höndum upptökur af símtölum þar sem fram kemur að skipstjóri skútunnar var talinn hafa veikst er hún var á móts við norð- anverðar Bretlandseyjar. Því hefði rvrMt 01 ^SALUR DVJHYND HARl Skútumáliö varð að hurðamáli / á annaö ár hleraöi fíkniefnalögreglan síma manna sem eru ákæröir fyrir ýmsa aöild aö því aö reyna aö smygla hurö fullri af hassi til íslands. Áöur en þaö geröist haföi veriö rætt um aö flytja hundruö kílóa, ef ekki tonn, til ís- lands meö skútu. Frá Ibiza Lögreglan fylgdist meö meintum fíkniefnasmyglurum á eyjunni. þurft að sigla henni í land þar sem maðurinn komst undir læknishend- ur. Ekki er talið að skútunni hafi verið siglt lengra norður á bóginn að sinni en ekki liggur fyrir hvað varð um hassið. Héldu áfram að hlera „Við héldum svo áfram að fylgjast með,“ sagði lögreglumaðurinn. Hleranir stóðu yfir svo mánuðum skipti, einkum á síma mannsins sem hafði verið fylgst með á Ibiza og annars staðar á Spáni. í febrúar 1999 var haldinn „fundur" í Hegn- ingarhúsinu. Lögreglan fylgdist þá með þegar maðurinn fór að hitta vin sinn sem þá var í afplánun en er nú ákærður með hinum í hurðamál- inu. Eftir að manninum var sleppt út barst leikurinn m.a. til Frakk- lands. Þar áttu íslendingamir tveir í miklum samskiptum sem íslenska lögreglan fylgdist með. Hún taldi alltaf víst að mennimir myndu halda áfram að reyna að smygla miklu magni af hassi til íslands. Hundruð kílóa eða tonn „Það var talað um hundruð kílóa, ef ekki tonn.“ „Þetta voru einhver mannalæti - eitthvert bull,“ sagði einn sakbominganna í gær. „Það var alltaf talað um að efnin kæmu með skútu," sagði fikniefnalögreglu- maðurinn og vísaði í símhleranirn- ar. Lögregumaðurinn rakti síðan þegar hurðamálið svokallaða varð til. Haustið 1999 stöðvaði flutnings- miðlun í Barcelona hurðasendingu sem stíluð var til íslands um megin- land Evrópu. Ágalli var á tollpappír- um. Spænsk yfirvöld höfðu sam- band við fyrirtækið sem reikningur- inn virtist kominn frá. Þar kannað- ist enginn við hurðir sem áttu að fara til íslands. Þegar spænska lög- reglan skoðaði hurðimar kom ekk- ert í Ijós. íslenska lögreglan hafði þá samband við aðila í Evrópu sem sáu til þess að hurðimar yrðu betur skoðaðar - líklegast væri hass í þeim. Þaö kom svo á daginn, í einni hurðinni voru 32 kíló af hassi. A.m.k. tveir erlendir menn em tald- ir tengjast málinu ytra. Þeir voru handteknir en hefur verið sleppt. Þrir íslendingar vora svo hand- teknir hér heima, mennimir tveir sem höfðu fundað í Hegningarhús- inu og þriðji maðurinn sem hafði fengið kunningja sinn til að lána nafn fyrirtækis sins fyrir hurðainn- flutninginn sem aldrei varð af. Clinton lítill í samanburði... Maður sem nefndur hefur verið höfuðpaur í huröamálinu, sá sem lögreglan telur að hafi komið meintu skútumáli á, jTnist neitar sök í hurðamálinu eða kveðst ekki muna eftir ýmsum símtölum sem leikin vora fyrir dóminum. Hinir tveir neita einnig sök. í málinu, sem nú hefur verið frestað, verður m.a. tekist á um það atriði hvenær brot telst fullframið, ekki síst þegar haft er í huga að efnin komust aldrei frá Spáni og hefðu að óbreyttu ekki gert það vegna ágalla pappíra. Málið kostaði lögregluna í Reykjavík margar milljónir króna á meðan rannsóknin stóð, i rúmt heilt ár. Þegar Guðrún Sesselja Amardótt- ir, fulltrúi ríkissaksóknara, spilaði símtal í dóminuro í gær sagöi meintur höfuðpaur við félaga sinn að hann væri kominn í samband við stórmenni þar sem hann var stadd- ur ytra. Hann sagöi að Clinton væri smákarl miðað við þann mann. Allt vaðandi í hundaskít á útivistarsvæðum í Reykjavík: Kvörtunum vegna hundahalds fjölgar - meira en ein kvörtun á hvern hund að meðaltali á ári 1.125 kvartanir bár- ust til Heilbrigðiseftir- lits Reykjavíkur vegna hundahalds í höfuö- borginni árið 2000 og er útlit fyrir að kvartanir í fyrra hafi verið ná- lægt 1.500. Útgefin hundaleyfi i höfuðborg- inni eru nálægt 1.300 og því berst meira en ein kvörtun á hvern hund að meðaltali á ári. Drjúgur hluti kvartana er vegna óþrifa s.s. hundaskíts á víðavangi og segir Hrannar B. Arnarsson, formaður umhverfis- og heil- brigðisnefndar Reykja- víkurborgar, aö hugar- farsbreytingu þurfi til hjá hluta hundaeig- enda. „Við fáum talsvert af kvörtunum bæði vegna sóðaskapar og hunda- halds að öðru leyti. Sleðamir í hundaeigendastéttinni hafa mikil hópur sem gerir það að verkum að ekki er meiri sátt um hunda- hald,“ segir Hrann- ar. Geirsnefið og hluti Öskjuhliðarinnar eru sérstök hunda- svæði og kannast Hrannar við að mik- ið álag sé á þeim stöðum. í nýjasta blaði Hundaræktar- félags íslands, Sámi, kemur fram að svo mikill himdaskftur sé í Öskjuhlíðinni að ef hundur skíti þar viti enginn hvaða hrúgu hann eigi. Þórdís Sigurðardótt- ir hundaeigandi lýsir hvemig hundaeig- endur hafi ekki einu sinni getað þrifið upp eftir hundana sína þegar farið var í skipulagða göngu niður Laugaveg- inn sl. haust. „Við áorkuðum engu í Sóöaskapur í Oskjuhlíöinni Hluti hundaeigenda kemur óoröi á stéttina alla aö sögn formanns umhverfisnefndar Reykjavíkurborgar. áhrif á orðspor hundaeigenda og ég er ekki í vafa um að það er þessi þeirri göngu nema að sýna fram á að hundaeigendur era sóðar og þess vegna er hundahald eðlilega bannaö í Reykjavík," segir Þórdís í blaðinu. Þarf hugarfarsbreytingu „Við höfum reynt að grípa til þeirra úrræða sem við höfum í sam- vinnu og sátt viö fulltrúa hundaeig- enda en til að veruleg breyting verði hjá almenningi þarf hugar- farsbreytingu til. Ég leyfi mér að vona að hún muni eiga sér stað,“ segir formaður umhverfisnefndar. 149 sinnum var kvartað til lög- reglu árið 2000 sem er svipaður málafjöldi og árið 1999. Þá bárust 1.127 kvartanir til heilbrigðiseftir- litsins og 160 til lögreglu. Flestar kvartanir eru vegna lausagöngu hunda og voru á annað hundrað hunda færðir í geymslur. 276 kvart- anir bárust vegna óskráðra hunda, 267 vegna ónæðis, 108 vegna óþrifa og 43 vegna áreitni. 21 kvörtun barst á árinu 2000 vegna illrar með- ferðar en 11 kvartanir vegna hunds- bita. Fjögur hundsbit voru kærð til lögreglu. -BÞ Komur skemmtiferðaskipa: Hryðjuverkin hafa áhrif Vegna hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin 11. september sl. hafa þónokkur skemmtiferðaskip afbók- að komur sínar til íslands þetta sumar. Að sögn Péturs Ólafssonar hjá Akureyrarhöfn hefur verið erfitt að fá Bandaríkjamenn til að ferðast eftir þennan atburð. Skipa- komum til Akureyrar fjölgar frá ár- inu 2001 um sex en hefði fjölgað um 12 ella. Alls eru 36 skip væntanleg í sumar. Reikna má með að farþegar verði um 20.000 með skemmtiferðaskipum í sumar en í fyrra komu 17.542 far- þegar með 28 skipum. Þjóðverjar eru fjölmennastir en næst koma Bretar. Von er á fyrsta skemmtiferða- skipinu 25. maí nk. og verða ýmsar uppákomur vegna komu skipanna í sumar. -BÞ Lögleiðing ESB-reglna: ísland í 4. sæti í nýrri skýrslu frá Eftirlitsstofn- un EFTA kemur fram að ísland er í 4. sæti EES-ríkjanna 18 við að lög- leiða reglur sem koma frá ESB í samræmi við ákvæði EES-samn- ingsins. ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, gaf i gær út 10. samanburðar- skýrsluna um lögleiðingu gerða frá ESB sem gilda eiga á EES-svæðinu. Þar kemur fram að EES-ríkin standa sig að mörgu leyti betur en ESB-ríkin sjálf. Þegar ríkin 18 era skoðuð kemur í ljós að Noregur stendur sig best við að lögleiða regl- ur en síðan koma Sviþjóð, Danmörk og tsland. Samkvæmt upplýsingum frá Sam- tökum iðnaðarins þurfa íslendingar aðallega að bæta sig á sviði vinnu- markaðsmála. Hins vegar standa þeir sig best allra EES-ríkjanna 18 við að greiða úr ágreiningsmálum um lögleiðingu þegar á upphafsstigi og án þess að mikinn málatilbúnað þurfi til af hálfu ESA. -BÞ Kópavogur: Herferð gegn tóbakssölu Samstarfshópur um forvarnir í Kópavogi er að fara af stað með her- ferð gegn því að bömum undir 18 ára aldri sé selt tóbak. Herferðin hófst formlega í Snælandsvídeói við Furugrund í gær þegar bæjarstjóri og fulltrúi lögreglunnar aíbentu fyrstu eintökin af veggspjöldum, hilluspjöldum og límmiðum sem setja á upp í verslanir í Kópavogi. Á þessum veggspjöldum verða skila- boð þess efnis að viðkomandi versl- un hafi hreina samvisku, fari að lögum og selji ekki unglingum yngri en 18 ára tóbak. í framhaldinu munu lögregla og forvarnarfuUtrúi bæjarins fara í þær verslanir sem vilja vera með í þessari herferð og afhenda þeim þessi skilaboð. -HI Síldarvinnslan: Hlaut hvatningar- verðlaun Þróun- arfélagsins Sildarvinnslan í Neskaupstað hlaut hvatningarverðlaun Þróunar- félags Austurlands í ár. Verðlaunin voru veitt á aðalfundi Þróunarfé- lagsins sem haldinn var á Hótel Framtíð á Djúpavogi á miövikudag. Voru verðlaunin veitt „fyrir for- ystuhlutverk sitt í íslenskum sjáv- arútvegi og stórhuga verkefni á sviði fiskeldis", eins og segir í um- sögn dómnefndar. Þar segir einnig: „Sildarvinnslan hf. er um þessar mundir eitt af stærstu og öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og ein af skrautfjöðrum atvinnulífs- ins á Austurlandi og því vel að því komin að hljóta hvatningarverð- laun Þróunaifélags Austurlands árið 2002.“ -GG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.