Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Blaðsíða 15
15 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002_________________________________________ DV ___________________________________________________Menning Týnd mamma, beinagrind og dreki - Bára Lyngdal Magnúsdóttir kemur með eigin barnasýningu fyrir yngstu listahátíðargestina Bára og beinagrindin talandi Peter nauöaöi í henni aö prófa aö skrifa leikrit, hún neitaöi, hann baö, hún fór í fússi út í garö og kom ekki inn fyrr en fyrsta uppkast var komiö á blaö! fara þau að hafa gaman af að koma upp um mann - „ég veit nú af hverju þú gerir þetta!“ Flestar bamasýningar í Teater Pero eru gerðar fyrir fimm ára böm og eldri en Peter hefur í mörg ár langað til að gera smábamasýningu. Margir reyndu en þær urðu alltaf fyrir eldri böm. Það er svo gaman að skapa að sýningarnar vilja verða ílóknari en lagt var upp með. Stóru spurningarnar verða vissulega að vera með og hið listræna líka en mað- ur verður að muna að þetta eru litlar manneskjur. Þau eru engir asnar en þau eru ung og þurfa ákveðinn einfaldleika." Meira en að segja það Engum hafði tekist að búa til sýningu handa litlu krökkunum en þegar Bára varð að hætta að leika vorið 1999 af því hún átti von á sínu þriðja bami gerði Peter úrslitatilraun til að fá konu sína til að reyna. „Ég færðist undan en hann heimtaði og ég fór að skæla og vildi fara heim til mömmu,“ segir Bára hlæjandi. „í fússinu settist ég út i garð og skrifaði handrit að leiksýningu! Leikrit um litla risaeðlu sem týnir mömmu sinni og hittir bæði dreka og beinagrind við leitina að henni. Inn í þetta bland- aðist svo bæði rjómaþeytari og fyrannisaurus rex og ýmislegt fleira. Þessu henti ég í Peter, hæst- ánægð með afrekið. Peter las handritið og sagði: „Já, hér er ýmislegt sem má nota en það þarf að vinna þetta betur." Ég varð auðvitað sármóðguð, en komst að því smám saman í þeirri vinnu að það er meira en að segja það að skrifa leikrit. Til dæm- is er lítill vandi að tina til nýjar hugmyndir en meiri vandi að þróa það sem er - þróa aðstæðum- ar, leyfa þeim að lifa, láta einstaklinginn þroskast í þeim. Dýptin er vandinn." Á meðan Bára var heima með yngsta soninn Frey var verkið í vinnslu og á þeim tíma hurfu bæði tyrannisaurus rex og rjómaþeytarinn úr þvi, svo dæmi séu tekin. Þá eru eftir risaeðlumamman og eggin hennar. Einu þeirra liggur svo mikið á út í heim að það rúllar á undan henni en mamma elskar öll eggin sín jafnmikið og leggur af stað að leita. Meðan hún leitar kemur unginn úr egginu á allt öðrum stað og leitar að mömmu. Verkurinn er bara sá að hann veit ekkert hvemig mamma lítur út! Bára er eini leikarinn en hefur með sér selló- leikarann Katrin Forsmo þannig að það er lifandi tónlist undir sýningunni. Svo hefur hún leikfong og brúður sem Helga Amalds hefúr gert. Leikritið hefur verið sýnt í Stokkhólmi og víðar um Svíþjóð og það er ekki bara Bára sem sýnir heldur æfði annað par leikara og tónlistarmanns verkið á sama tima og sýnir það á landsbyggðinni. Svo skemmtilega vill til að hin leikkonan er líka íslendingur, Anna Borg, sem búsett er í Söderköp- ing. Sýningar eru þegar orðnar tæplega þrjú hund- ruð og ekki hættar enn. Og nú er Bára að æfa nýtt verk sem hún semur upp úr vinsælli bók eftir Bar- bro Lindgren. Það verður frumsýnt í haust. Grunnurinn er frásagnartæknin „Þessar sýningar byggjast í rauninni á listinni að segja frá,“ segir Bára, „segja söguna hreint og beint þannig að hún verði nálæg áheyrendum. Ekki breyta röddinni mikið - margir sem leika fyr- ir börn freistast til að láta kjánalega, ýkja og skrumskæla en orðin standa fyrir sínu, það þarf ekkert að leggja sérkennilegar áherslur á þau til að þau skiljist. Svo kemur líkamsbeiting og tónlist inn í en grunnurinn er frásagnartæknin: að standa á gólfl og segja sögu. Það hefúr verið mjög lær- dómsríkt að leika „Mömmurnar" svona oft fyrir alls konar böm. Yfirleitt gengur það mjög vel, þau sitja bara, horfa og hlusta. Ef þau verða hrædd þá grípa þau kannski fyrir augu eða eyru en svo fara þau heim og fara undir eins að leika leikritið með risaeðlunni sem þau fá með sér úr leikhúsinu. En skrýtið var að ég þurfti fimmtíu sýningar til að átta mig á að það er ég sem stjóma sýningunni - þetta er mín saga. Einu sinni fór rafmagnið þegar ég var að leika í bæ sunnan við Stokkhóhn. Við stoppuðum sýninguna og brátt kom í ljós að þetta varð ekki lagað í hvelli. Þá spurði ég bömin hvort ég ætti að draga frá gluggunum og halda áfram. Þau vildu það endilega og það gekk prýðilega - af því að þetta er fyrst og fremst saga. Og ef bam verður hrætt þá get ég sinnt því þangað til málið er leyst; ég stjórna og það gefur bömunum örygg- istifftnningu. Og mér líka.“ - Er þetta framtíðin - að skrifa og leika fyrir böm? „Já, alla vega í bili,“ segir Bára og tekur yngsta drenginn sinn í fangið. Hann er orðinn svolítið óþolinmóður undir þessu langa samtali. „En mað- ur veit náttúrlega aldrei hvað gerist." Við vitum þó að 21. maí kl. 15 verður Bára í Gerðubergi og sýnir okkur leikritið sitt um litlu risaeðluna sem fæddist langt í burtu frá mömmu sinni og sá hana í hverju kvikindi sem hún mætti... -SA Týndar mömmur verða sýndar í Geröubergi þriðjudaginn 21.5. kl. 15, laugardaginn 25. 5. kl. 14 og 15 og sunnudaginn 26. 5. kl. 14 og 15. Sýningin kl. 14 25. mai verður meö heyrnleysingjatúlki. Miðinn kostar 500 kr. og fullorðinn fær frítt inn með barni! Barnaleikritiö á Listahátíó, Týndar mömmur og talandi beinagrindur, kemur að þessu sinni frá Svíþjóó. Samt veröur þaö leikiö á íslensku og þaö er af því aö leikarinn - sem líka er höfundur verksins - er íslensk leikkona. Verkiö var frum- sýnt í Pero-leikhúsinu í Stokkhólmi haustiö 2000 og hefur fengiö afar lofsamlegar umsagnir gagn- rýnenda og geysimikla aösókn allar götur síðan. Bára Lyngdal Magnúsdóttir fluttist til Sví- þjóðar fyrir nokkrum árum og hefur leikið þar bæði í sjónvarpi og á sviði. Hún er heldur ekki alveg týnd okkur hér því síðast sáum við hana í kvikmyndinni Mávahlátri. Um tíma var Bára á samningi í þjóðleikhúsi þeirra Svia, Dramaten, en undanfarin þrjú ár hefur hún unnið við leik- hús manns sins, Peters Engkvists leikstjóra, Teater Pero við Sveaveg í miðborg Stokkhólms. Það er fyrst og fremst bamaleikhús en hefur líka sett upp sýningar fyrir fullorðna, til dæmis Ormstungu, sem Engkvist stýrði eftirminnilega fyrst á íslandi og síðan í Svlþjóð þar sem Bára lék einmitt kvenhlutverkið - lék Halldóru Geir- harðs, eins og hún kemst sjálf að orði! Sú sýn- ing hefur gengið prýðilega. Það er Peter Eng- kvist sem leikstýrir Báru i Týndum mömmum... Engir asnar - bara lítii Við Bára hittumst í leikhúsinu þar sem Týndar mömmur hafa aðallega verið sýndar. Þetta er afar skemmtilegt gamalt kvikmyndahús sem hefur ver- ið lagað að þörfum leikhúss og bama. í Pero eru tvö svið, annað stórt með sal fyrir um 100 gesti, hitt minna með um 60 manna sal. Leikið er linnu- laust allan veturinn, oft nokkrar sýningar á dag, en yfirleitt frí á sumrin. Gestasýningar utan af landi og erlendis frá eru allt árið, stundum svo margar að heimamenn verða að púsla saman tíma í eigin æfingar. En gestimir borga með sér og pen- ingar eru dýrmætir, ekki síst nú þegar leiga á hús- næði í miðborginni hækkar upp úr öllu valdi. „Það er eins og peningamennimir vilji drepa miðborg- ina því þeir láta húsnæði heldur standa autt en lækka leiguna," segir Bára. „Öll litlu leikhúsin eru að flýja miðbæinn." Sýningin Týndar mömmur og talandi beina- grindur er hugsuð fyrir þriggja til fimm ára börn og til að skýra stöðugar vinsældir hennar þessi tvö ár segir Bára að það vanti sýningar fyrir svo lítil börn. „Það gerist svo margt í barnshöfðinu þegar þau verða þriggja ára,“ segir Bára, „skilningurinn vex og þau fara að tengja meira saman. Við fimm til sex ára aldur kemur lógíkin til sögunnar og þá Bára Lyngdal Magnúsdóttir á litla sviði Pero-leikhússins Grunnurinn er frásagnartæknin: aö standa á gólfi og seg/'a sögu. Laxness ekki leikinn „Við eigum ekki marga einstak- linga á heims- mælikvarða," sagði Hrafnhildur Hagalín í fyrir- lestri sínum á þriðjudaginn í Norræna húsinu, „Snorra Sturluson, Halldór Laxness - and Björk of course!" Erindi Hrafnhildar var í fyrirlestra- röð Vöku-Helgafells vegna aldarafmælis Halldórs Laxness og hét því ögrandi nafni „Var Laxness vont leikskáld?" Fljótlega komst hún að því að við gætum alls ekki metið stöðu hans sem leik- skálds vegna þess að hann er ekki leik- inn, rétt einstaka verk tekið upp með áratuga millibili. Af þessu mætti ráða að þjóðinni þyki lítið til hans koma sem leikritaskálds en þegar nánar er að gætt hafa sýningar á verkum hans flestar ver- ið ágætlega sóttar og þaðan af betur. Leikritaskrif HKL voru afleiðing af vangaveltum hans um skáldsöguformið, sagði Hrafnhildur, en ætlun hans var líka að búa til nýjan leikhúsheim, m.a. úr að- ferðum Brechts, austurlenskri speki og absúrdisma. Leikrit hans komu beint inn í absúrdismann sem þá stóð i blóma í Evrópu og Halldór reyndi að skrifa inn í hann en sjálfsagt má færa rök fyrir því að hann hafi alltaf verið of raunsær og haft of mikla löngun til að koma ákveðnum hugmyndum eða boðskap á framfæri til að geta gengist absúrdismanum á hönd. Silfurtunglið? Hrafnhildur nálgaðist leikrit Halldórs út frá minningu um atvik þar sem hin merka leikkona og leikstjóri Bríet Héð- insdóttir hafði ákveöið hvert væri besta leikrit hans. Niðurstöðu Bríetar mundi Hrafnhildur ekki en reyndi að hugsa sig inn í hugsanagang Bríetar með því að fara yfir leikritin. Að því loknu fannst Hrafnhildi nokkuð ljóst að Bríet hlyti að hafa valið Silfurtungliö. Það hafði Hrafn- hildur lesið sér til ánægju þó ekki væri það nýstárlegt verk. Einfold saga en vel haldið utan um hana, nútímaharmleikur með víða skírskotun. Eins konar „Taktu lagið Lóa“ með harmrænum endi. Þetta verk hefur vinninginn í fjölda uppsetn- inga og ein þeirra er eftir Brieti sjálfa og Svein Einarsson. Mat Hrafnhildar var að Halldór hefði vissulega gert merkar leikhústilraunir og þar að auki hefði komið út úr vanga- veltum hans breytt skáldsaga eins og sjá mætti á Kristnihaldi undir Jökli en leik- rit hans skiptu ung leikskáld núna ekki máli. í umræðum eftir erindið rifiaði Pétur Gunnarsson það upp að Halldór hefði sagt í viðtali að það væri enginn vandi að skrifa leikrit: Leikrit er bara formúla og ef þú hefur hana geturðu skrifað leik- rit. En það er ekki til formúla fyrir skáldsögunni, þar verður maður alltaf að byrja eins og idíót. Þetta fannst Pétri þýða að Halldór hefði aldrei tekið eins mikið á við samningu leikrita og skáld- sagna - auk þess sem hann vantar hinn bráönauðsynlega Plús X í leikritunum. Líkamlegt samband Hverjum getur leiðst undir slíkum gjömingi? spurði Jónas Sen í lok um- sagnar sinnar um tónleika Kammer- sveitar Reykjavíkur á þriðjudagskvöldið. Þetta er gott dæmi um stílbragðið „úr- drátt“ því satt að segja var téður gjörningur, flutningur Signýjar Sæmundsdóttur og Kammer- sveitarinnar á verki Atla Heimis Sveins- sonar við texta myndlistarmannsins Þórðar Ben Sveinssonar algert æði og frábær endalok á finum tónleikum. í ljóðabálkinum telur Þórður upp heimil- istækin, ísskápinn, eldavélina, þvotta- vélina, ofninn, sjónvarpið, öll þessi dá- samlegu tæki sem gera líf okkar auð- veldara og skap okkar betra. Svo flytur hann sig út í geiminn, sér í sjónhending billjónir afstæðna, ómælisvíðáttur og til- veru sjálfs sín í ljósi hennar. Slíkum bálki hæfir ekkert venjulegt lag enda búa í tónverki Atla Heimis eins miklar víðáttur og mannsröddin getur framleitt. Og Signý skilaði þeim öllum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.