Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Blaðsíða 26
26 MIÖKlKMMttlMUS. MAÍ 2002 Semb velur norska hópinn Nils Johan Semb, landsliðsþjálfari Norðmanna í knattspyrnu, hefur valið þá leikmenn sem mæta íslendingum í Bodo í næstu viku. Markverðir: Thomas Myhre, Besiktas, Ivar Ronningen, Brann, Christer Basma, Rosenborg, Henning Berg, Blackbum, Andre Bergdolmo, Ajax, Erik Hoftun, Rosenborg, Ronny Johnsen, Manchester United, John Ame Riise, Liverpool, Trond Andersen, Wimbledon, Martin Andresen, Stabæk, Eirik Bakke, Leeds, Steffen Iversen, Tottenham, 0yvind Leonhardsen, Tottenham, Sigurd Rushfeldt, Austria Vin, Ole Gunnar Solskjær, Manchester United, Bengt Sæternes, Bodo/Glimt, Jan Derek Sorensen, Bomssia Dortmund, Jo Tessem, Southamton, Fredrik Winsnes, Hammarby. -ósk Kvennalandsliöið i knattspyrnu: Guölaug, Katrín og Erla fastar í Helsinski íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er komið til Rúss- lands þar sem liðið spilar við heimastúlkur í undankeppni heimsmeistaramóts kvenna- landsliða en leikurinn fer fram á morgun og hefst klukkan 11:00 að Islenskum tíma. Liðin gerðu 1-1 jafntefli þegar þau áttust við á KR-vellinum síðasta haust en síðan þá hefur rússneska liðið náð góðum úrslitum og er nú á toppi riðilsins. DV-Sport heyrði í Jör- undi Áka Sveinssyni þjálfara í gær en hann var þá nýkominn til Moskvu en var þó ekki búinn að fá allar sínar landsliðsstelpur á staðinn. „Þetta hefur gengið ágætlega hingað til nema Guðlaug Jóns- dóttir, Katrín Jónsdóttir og Erla Hendriksdóttir em fastar í Helsinki í Finnlandi. Það var verkfall í Danmörk og það féll niður flug til Moskvu og við ætl- uðum að koma þeim í gegnum Helsinki í kvöld (í gær) en svo rétt misstu þær af fluginu og koma því ekki til Moskvu fyrr en á morgun (i dag). Þær ná al- veg í tíma en það er slæmt að geta ekki haft þær með hópnum í dag og á morgun. Það fer ann- ars ágætlega um okkur hin í Moskvu og við ættum að geta náð einni æfingu á morgun þeg- ar stelpurnar koma,“ sagði Jör- undur Áki. Eru efstar í riðlinum „Okkar biður mjög erfitt verk- efni, þær eru fyrir fram taldar sigurstranglegri en við erum staðráðin í að gera vel og reyna að koma héðan með eitt eða fleiri stig. Þær eru efstar í riðlin- um og fara langt með að tryggja sig með því að vinna okkur. Þær hafa spilað 4-4-2 hingað til og eru með vel mannað lið. Liðið hefur mjög fljóta framherja og sterka vængmenn en vömin hefur ver- ið þeirra veikasta hlið til þessa. Það verða örugglega miklar kröf- ur geröar til þeirra í þessum leik gegn okkm-,“ sagði Jörundur Áki sem tilkynnir byrjunarlið ís- lenska liðsins í kvöld. Staðan í riðlinum Rússland 4 2 117-4 7 Ítalía 4 2 0 2 6-5 6 Spánn 5 2 0 3 8-8 6 ísland 3 1114-8 4 Þetta erfjóröi leikur islenska liðsins i keppninni en fram undan eru síðan heimaleikur við Spán 30. maí og úti- leikur við Ítalíu 8. júní. íslenska liðið gerði 1-1 jafntefli við Rússa á heima- velli, vann Ítalíu 2-1 á heimavelli og tapaði 1-6 fyrir Spáni á útivelli. Olga Fœrseth hefur skorað þrjú marka íslenska liðsins en Margrét Ólafsdóttir gerði það fjórða. -OÓJ Guöjón Þóröarson var bæöi sár og svekktur yfir framkomu stjórnarmanna Stoke í sinn garö á blaöamannafundi sem hann hélt á Brittania leikvanginum í Stoke í gær. DV-mynd The Sentinel Guðjón Þórðarson hélt blaðamannafund á Brittania leikvanginum í gær: - á meðan hann sagði fyrrverandi vinnuveitendum sínum til syndanna Guðjón Þórðarson, fyrrverandi knattspymustjóri Stoke, vandaði stjómarmönnum Stoke ekki kveðj- umar á blaðamannafundi sem hann hélt á Brittania leikvanginum í Stoke í gær, í kjölfar frétta þess efnis að stjóm Stoke ætlaði sér ekki að endur- ráða hann. Guðjón hefur löngum lýst því yfir að hann hafi mikinn hug á því að stýra Stoke áfram en hann sagði á blaðamannafundinum að stjórnin teldi sig ekki hafa þörf fyrir hann. Þessi ákvörðun stjómarinnar virtist hafa mikil áhrif á Guðjón því sam- kvæmt blaðamanni The Sentinel, Martin Spinks, þá barðist Guðjón við tárin á meðan hann jós skammyrðun- um yfir fyrrverandi vinnuveitendur sína. „Það er hægt að segja að ég hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum með ákveðna einstaklinga. Ég hélt að ég ætti vini héma en þegar allt kom til alls þá voru þeir ekki nógu sterkir til að styðja mig. Þeir halda að hagsmun- um sínum sé betur borgið á þennan hátt og það er ekki hægt að ásaka þá fyrir það því að þeir em að reyna að gera sitt besta,“ sagði Guðjón á blaða- mannafundinum. Ekkert meö fótbolta aö gera „Mín tilfinning er sú að þessi ákvörðun hafi ekkert haft með fót- bolta að gera. Ég held að stjórnarfor- manninum hafi þótt það erfitt að hann gat ekki ráðskast með mig og því hafi hann viljað losna við mig,“ sagði Guðjón. Guðjón sagði jafnframt á fúndinum að samband sitt og stjórnar Stoke hefði beðið hnekki þegar ljóst var að stjómin deildi ekki sama metnaði fyr- ir hönd Stoke og hann sjálfur. „Ég vildi gera stóra hluti með Stoke og vildi að gengið yrði frá hlut- um strax til að hægt væri að hefjast handa við að undirbúa liðið fyrir 1. deildina. Því miður virðist það starf ætla að falla í hendur annars manns og ég held að þeir séu þegar byrjaðir á því að tala við aðra menn og að stjómarformaðurinn hafi viljað mig út i nokkurn tíma,“ sagði Guðjón. Mjög einfaldur leikur „Knattspyman er mjög einfaldur leikur. Það er bara fólki sem tekst að flækja hann og allt of oft erum við umkringdir fólki sem heldur að það viti um hvað þetta snýst. Það hefur litla sem enga reynslu og það versta er karmski að það hefur ekki hug- mynd um hvað liðsandi og samstaða er,“ sagði Guðjón. Guðjón Þórðarson sagðist ekki vita hvað framtíðin bæri skauti sér. Hann sagðist hafa áhuga á því að starfa áfram í Englandi því að sér og fjöl- skyldu sinni liði mjög vel þar. -ósk Ívar til Sheff. Wed? ívar Ingimarsson, sem er með lausan samning hjá enska 2. deild- arliðinu Brentford, mun, sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum DV-Sports, ræða við 1. deildar lið- ið Sheffield Wednesday eftir leik Noregs og íslands í Bodo 22. maí næstkomandi. ívar vakti mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu með Brent- ford í vetur og hefur hann verið orðaður við nokkur félög að undanfórnu, þar á meðal Stoke og Ipswich. Sheffield Wednesday er forn- frægt félag sem má muna sinn fifil fegri. Liðið hefur verið illa statt fjárhagslega undanfarið eins og reyndar mörg önnur lið í neðri deildum Englands og var aðeins einu stigi frá því að falla i 2. deild. Knattspymustjóri Sheffield Wed- nesday er Walesverjinn Terry Yor- ath en hann er gamall refur sem hefur meðal annars stjórnað welska landsliðinu. -ósk Engir leikir við Svía Ekkert verður af þrem- ur vináttulandsleikjum íslendinga og Svía í handknattleik sem fara áttu fram í byrjun næsta árs þar sem Handknatt- leikssamband Evrópu hefur sett upp fjögurra landa mót á sama tíma þar sem Svíar, Frakkar, Þjóðverjar og Danir munu etja kappi saman. Guömundur Guð- mundsson. Guðmundur Guðmundsson, Svialeikina. landsliðsþjálfari íslands, sagðist að vonum vera mjög svekktur yfir því að missa af þessum leikjum við Svía og undraðist mjög ákvörðun sambandsins að setja á mót á þessum tíma, rétt fyrir HM í Portúgal. Guðmundur sagði að unn- ið væri að því hörðum höndum að fá aðra leiki fyrir liðið í staðinn fyrir -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.