Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Blaðsíða 28
FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 28 Sport DV ISport - spáin í úrvalsdeild karla í sumar: Lokaröð liðanna |f|| Grindavík Markið 0 Vörnin 0 Miðjan 0 Sóknin 0 Bekkurinn 0 Þjálfarinn 0 Að auki 0 Stig 30 ÍA 0 0 0 0 0 0 0 29 Fylkir 0 0 0 0 0 0 0 29 w FH 0 0 0 0 0 0 0 26 KR 0 0 0 0 0 0 0 26 Fram 0 0 0 0 0 0 25 m ÍBV 0 0 0 0 0 0 24 KA 0 0 0 0 0 0 0 19 Keflavík 0 0 0 0 0 0 0 18 íw 1^1 Þór Ak. 0 0 0 0 0 0 16 Úrvalsdeild karla hefst á mánudaginn: Grindavíkursókn- in með fulla gjöf DV-Sport hefur í síöustu átta tölu- blöðum talið niöur að úrvaisdeild karla í knattspymu heíjist með því að birta spá blaðsins, lið fyrir lið. Fyrsta umferðin fer fram á mánudaginn, annan í hvítasunnu, og stefnir í jafnt og galopið íslandsmót. Blaðamenn DV-Sports hafa spáð og spekúlerað í styrkleika og veikleika liðanna og út úr þeim rannsóknum var búin til spá DV-Sports fyrir sum- arið. Spána og einkunnagjöfma má sjá í heild sinni í töflunni hér að ofan. Við metum nokkra þætti hjá hverju liði og gefum einkunn á bilinu 1 til 6 eins og sjá má sem hlið á teningnum hér að ofan. Lokaröð liðanna er byggð á heildarstigum þeirra í mati blaða- manna DV-Sports. Aðeins sex stig á milli fyrsta og sjöunda sætis Það munar aðeins sex stigum á lið- inu í fyrsta og sjöunda sæti og fjögur af þeim sjö liðum eru jöfh að stigum. Þetta ætti að lýsa vel þeirri almennu skoðun að mótið er og verður mjög jafnt í sumar. Grindvíkingum var spáð efsta sæt- inu af þjálfurum, fyrirliðum og for- ráðamönnum á dögunum og þeir skipa einnig þann stall í mati DV- Sports. Grindvíkingar fara langt á gríðar- lega sterkum sóknarleikmönnum sem fá fulla gjöf eða sex stig af sex mögu- legum en hvergi annars staðar hafa blaðamenn DV-Sports metið að lið eigi skilið fulla gjöf fyrir ákveðinn þátt í leik sínum. Ef litið er á hvaða lið skara fram úr á ákveðnum stöðum samkvæmt mati DV-Sport þá er markvarslan í bestu máli hjá liðum ÍBV, ÍA og KR sem öll fá fimm stig af sex mögulegum fyrir markverði sína. Vömin er sterkust hjá Fylki og ÍA sem bæði fá þar fimm stig og miðju- menn FH-inga skara fram úr. Þegar kemur að sóknarleiknum fá Grindvík- inar eins og fyrr sagði sex stig en Kefl- víkingar eru þar í öðru sæti með fimm stig. Mesta breiddin er hjá Fylki að mati blaðamanna DV-Sports og þeir Bjarni Jóhannsson, Grindavík, og Ólafur Þórðarson, ÍA, fá hæstu gjöf af þjálfurunum eða fimm stig hvor. Síðasta atriðið sem er metið hjá lið- unum er þáttur sem ber nafnið að auki en þar er komið inn á þætti í um- gjörð hvers liðs. Þar eru þættir eins og hefð, stemning á staðnum, aðstöðu liðsins, fjármagn og liðsanda og fá fjögur lið þar fjögur stig en það eru KR, Fylkir, Grindavík og ÍA. -ósk/ÓÓJ Gunnlaugur Jónsson, fyrirli&i íslandsmeistara Skagamanna, sést hér til vinstri með íslandsbikarinn, þann hinn sama og tíu liö hefja keppni um á mánudaginn. Gunnlaugur átti frábært tímabil á síöasta ári og auk þess aö taka viö íslandsbikarnum sem fyrirliöi ÍA var hann valinn besti leikmaður mótsins af leikmönnum úrvalsdeildarinnar. DV-mynd Hilmar Þór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.