Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002
DV
Fréttir
Fimm sakborningar svara til saka fyrir 28 ákæruliði í máli Árna Johnsens:
Árni játar fjárdrátt upp
á 2,6 milljónir króna
- neitar ákæruliðum um 4ra milljóna fjárdrátt og 1,5 milljóna mútuþægni
Stuttar fréttir
Býður út brautina
Vegagerðin býð-
ur i sumar út fram-
kvæmdir við tvö-
földun Reykjanes-
brautar. Þetta er
fyrsti áfangi fram-
kvæmda, það er frá
Straumsvík; alls
um 8 km. Áætlaður
kostnaður er 900 millj. kr. Þetta
kom fram á blaðamannafundi sam-
gönguráðherra í Keflavík í gær.
dv-myndir gva
Sakborningurinn og sækjandinn
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari, til hægri, sækir máiiö fyrir hönd
ákæruvaldsins gegn Árna Johnsen og fjórum öörum mönnum. Myndin er
tekin skömmu áöur en réttur var settur f gær.
Mat manna er að Ámi Johnsen hafi
komið vel út úr fyrstu umferð réttar-
haldanna í máli ríkissaksóknara gegn
honum, þremur mönnum sem tengd-
ust Þjóðleikhúskjallaranum og verk-
fræðingi hjá ístaki í gær. Við þingfest-
inguna, sem stóð yfir 1 um klukku-
stund, svaraði Ámi skýrt og skil-
merkilega fyrir hvert ákæruatriðiö á
fætur öðru.
„Það er rétt“, „það er játað“, „því
er neitað", það er ekki rétt“, sagði
Árni yfirvegað þegar Guöjón St. Mart-
einsson spurði hann út í hina 27
ákæruliði sem varða fyrrverandi
þingmanninn sjálfan. í sumum tilfell-
um svaraði Árni því til að það sem
stæði í ákæruliðum væri rétt hvað
varðaði tölur og gjörninga en að hann
hefði ekki brotið af sér. Niðurstaðan
hvað þetta varðar er að Árni neitar að
hafa gerst sekur um sakargiftir í 16
ákæruliðum en játar að 11 atriði séu
rétt.
Samkvæmt þessu viðurkennir Ámi
fjárdrátt upp á um 2,6 milljónir króna
en neitar ákæmliðum sem snúa að
rétt samtals tæplega 4ra milljóna fjár-
drætti. Hann viðurkennir umboðssvik
upp á 32 þúsund krónur en neitar um-
boðssvikum upp á tæplega 1,3 milljón-
ir. Hann þvertekur fyrir mútuþægni
upp á 1,5 milljónir.
Ég lýsi mig saklausan
„Ég vísa til lögregluskýrslu og lýsi
mig saklausan," sagði Björn Leifsson,
fyrrum eigandi Þjóðleikhúskjallarans,
við dómarann þegar spurt var um
ákæru á hendur honum fyrir að hafa
lofað að greiða Árna 650 þúsund
króna þóknun fyrir að samþykkja 3,1
mOljónar króna reikning Kjallarans á
hendur byggingarnefnd Þjóðleikhúss-
ins.
„Þetta er rangt, ég óska eftir að tjá
mig ekki frekar um þetta ..." sagði
Gísli Hafliði Guðmundsson, sem er
ákærður fyrir sömu sakargiftir og
Björn en einnig hlutdeild hans með
Árna í umboðssvikum.
Stefán Axel Stefánsson, sem einnig
tengdist Kjallaranum, sagði: „Þetta er
rangt, ég neita allri sök,“ þegar dóm-
arinn spurði hann um afstöðu gagn-
vart hlutdeild að umboðssvikum.
Ákæruvaldið átti að...
Dómarinn frestaði málinu í gær án
þess að ákveða hvenær sjálf réttar-
höldin verða, það er yfirheyrslur yfir
sakborningum og vitnum. Ástæðan er
sú að dómarinn telur að ákæruvaldið
hafi ekki útvegað öllum verjendunum
fimm öll þau gögn sem lögð voru fram
við þingfestinguna. Lögmennirnir
voru með mismikið af gögnum. Þetta
vill dómarinn lagfæra og gaf Braga
Steinarssyni vararíkissaksóknara
frest til að útvega það sem á vantar.
Annað þinghald, væntanlega stutt,
verður í næstu viku en þá mun dóm-
arinn ákveða í samráði við verjendur
og sækjanda hvenær réttað verður.
Ekki er talið útilokað að það verði í
fyrri hluta júní en þó er ekki hægt að
slá neinu fostu í þeim efnum. Nokkrir
dagar eru svo ætlaðir í réttarhöldin
sjálf en að þeim loknum mun dómar-
inn taka sér um 3 vikur til að kveða
upp dóm. Gangi allt vel mun niður-
staða liggja fyrir jafnvel í fýrri hluta
júlí. -Ótt
Metsölubók um
merkileat efni
Bókin fjaliar um fjölgreinda-
kenninguna sem valdið
hefur byltingu í allri um-
ræðu og viðhorfi til kennslu
og uppeldis. Hún byggir á
að maðurinn búi yfir að
minnsta kosti sjö grunn-
greindum:
• Málgreind
• Rök- oq stærðfrædigrelnd
• Líkams- og hreyfigreind
• Tónlistargrelnd
• Samskiptagreínd
• Sjálfsþekkingargreind
• Umhverfisgreind
c dááóru
Thomís Armstrong
Erla Kristjánsdóttlr, lektor við Kennaraháskóla
Islands, þýddi og staðfærði.
Thomas Armstrong, útskýrir hér kenningar bandaríska prófessorsins Howard
Gardners og bendir á hvernig uppalendur og kennarar á öllum skólasdgum
geta nýtt sér fjölgreindakenninguna.Thomas Armstrong kom til íslands
árið 1999 og hélt eftirminnilegt erindi á þingi kennara i Reykjavik.
„Gömlu greindarprófin tröllum gefin f
byltlngarkenndu riti þar sem greindarhug-
takið er brotlð upp I margar greindir og
hinir síðustu verða fyrstir en þeir fyrstu
slðastir." Kiitan.n
Jpt
JPV ÚTQAFA
Bra?ðraborgar*tígur 7 • Sími S75 5600
OMISSANDI OLLUM UPPALENDUM
Blaðíö í dag
£ Framtíð
W‘ bandalagsins er
■ ( •'f í húfi
12 Erlent fréttaljós
Rolling Stones
þjóðlagakvöld-
anna
Ríó Trió
34
Barátta í
Byggðastofnun
Innlent fréttaljós
Franskt og
freistandi
Kræklingur
Helgarblað DV
í stórsókn
- samkvæmt nýrri skoðanakönnun DV
Helgarblað DV er i stórsókn eftir
umfangsmiklar breytingar á útliti
og efnistökum í blaðinu. Rúmlega
helmingur kjósenda í Reykjavík
sagðist hafa lesið Helgarblað DV
sem kom út laugardaginn 11. maí,
en það má lesa úr skoðanakönnun
blaðsins sem gerð var miðvikudag-
inn 15. maí og mældi m.a. fylgi
framboðslistanna í Reykjavík. Þar
var spurt þessarar spurningar:
Last þú stðasta Helgarblað DV?
51,4 prósent aðspurðra sögðust
hafa lesið helgarblaðið. Hlutfall óá-
kveðinna var 0,7 prósent og enginn
neitaði að svara. Svarhlutfallið var
því rúm 99 prósent. Úrtakið í könn-
un DV var 600 kjósendur í Reykja-
vik, jafnt skipt á milli kynja.
Könnun DV nær einungis til
reykvískra kjósenda en niðurstaða
hennar er mun jákvæðari en niöur-
staða lestrarkönnunar Gallups sem
gerö var í byrjun mars síðastliðins.
í þeirri könnun mældist lestur
Helgarblaðs DV sem kom út 3.
mars 38,2 prósent á höfuðborgar-
svæðinu og Suðumesjum. Á land-
inu öllu mældist lestur umrædds
helgarblaðs 44,2 prósent meðal
karla og 35,6 prósent meðal
kvenna.
Rétt er að taka fram að ekki er
hægt að bera þessar tvær kannanir
saman með beinum hætti.
Þessi mikli lestur á Helgarblaði
DV er ekki síst ánægjulegur í ljósi
þeirra breytinga sem geröar hafa
verið á útliti og efnistökum í blað-
inu. Forsíðunni var breytt, baksíð-
an fór undir auglýsingu í stað
frétta og allt umbrot miðaðist að
því að gera blaðið aðgengilegt og
skemmtilegt. Vinnsla efnis var efld
en mikið og fjölbreytt lesefni er að
jafnaði í blaðinu þar sem skiptast á
áhugaverð viðtöl og umfjallanir um
margvísleg efni, eins og mat, vin,
sakamál, ferðir, menningu o.fl.
-hlh
Lestur Helgarblaös DV
60 50 51,4% 38,2%
40
30
20
10
0
Könnun DV 11. maí Könnun Gallup 3. mars
Varði á
veginum
Grimur
Hákonarson
Forsendur fyrir lækkunum
Við núverandi aðstæður í efna-
hagslífinu eru engar forsendur til
hækkunar á vörum og þjónustu.
Hins vegar hníga öfl rök að þvi að
verðlag eigi að geta lækkað meira á
næstu mánuðum. Þetta segir
Samiðn sem vifl frekar vaxtalækk-
anir.
KÁ verður Nóatún
Verslun KÁ á Selfossi breytir um
nafn um komandi mánaðamót og
verður Nóatún. Þetta er hluti af
breytingum hjá Kaupási sem með
þessu fækkar verslunarkeðjum sín-
um. KÁ-nafnið hverfur úr notkun
en eftir verða Krónan, 11-11 og Nóa-
tún.
Kosið um nafn
íbúar í sameiginlegu sveitarfélagi
Biskupstungna, Laugardals og Þing-
vallasveitar kjósa um fjögur nöfn á
nýja sveitarfélagið samhliða sveit-
arstjómarkosningunum um næstu
helgi. Nöfnin eru Gullfossbyggð,
Þingvallabyggð, Skálholtsbyggð og
Bláskógabyggð.
Metur stækkun í Straumsvík
Skipulagsstofnun hefur hafið at-
hugun á mati á umhverfisáhrifum
stækkunar ÍSAL í Straumsvík.
Stækkunin er lögð fram I tveimur
áfóngum. Meginniðurstaða matsins
er að losun mengunarefna verði
innan viðmiðunarmarka utan þynn-
ingarsvæðis álversins
Stefnir í hreinan meirihluta
Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi
fengi sex bæjarfulltrúa af ellefu eða
hreinan meirihluta samkvæmt
könnun Talnakönnunar fyrir
heim.is. Sjálfstæöisflokkurinn fengi
liðlega 48% atkvæða, Samfylkingin
um 22%, Framsóknarflokkurinn
21% og Vinstri grænir 9%.
Fimmtán þúsund
Lögreglan á Sel-
fossi reiknar með
að allt að fimmtán
þúsund manns
dveljist í sumarbú-
stööum i héraðinu
um helgina. Mikil
umferð var á veg-
um austan fjalls síð-
degis í gær - og gekk hún vel fyrir
sig. Viðbúnaður verður hjá lögreglu
á þessari fyrstu feröahelgi sumars-
ins.
Fundaö meö CANTAT
Síminn hefur óskaö eftir fundi
sem fyrst í framkvæmdastjóm
CANTAT 3 til að tryggja óbreyttan
rekstur sæsímastrengsins en
stærsti eigandi strengsins, Tele-
globe, sem á 70%; er kominn í
greiðslustöðvun. RÚV greindi frá.
-sbs
DV kemur næst út þriðjudaginn
21. maí. Smáauglýsingadeild DV er
lokuð, sunnudaginn 19. maí. Opin
verður mánudaginn 20. maí, frá kl.
16-20. Þaö er hægt að panta og
skoða smáauglýsingar á dv.is