Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR IS. MAÍ 2002 Helcjctrblað DV 43 er bygging spennu. Hvernig á aö byrja, hvað eigi aö gerast í fyrsta, öðrum og þriðja þætti og hvar eigi að koma upplýsingunum að. Hitchcock er reyndar minn mað- ur í spennumyndum því hann er alltaf húmorískur. Ef þú leitar að Hitchcock í mínum hókum þá get ég bent þér á fyrsta kaflann i Graf- arþögn þar sem lítiö barn er að leika sér með rifbein úr manni og fer að naga það. í næsta grunni liggur líkið. Þetta eru dæmigerö áhrif frá Hitchcock." - Það hlýtur að vera gaman fyr- ir þig sem kvikmyndaáhugamann að sjá verk þín verða að kvikmynd eins og nú virðist ætla að gerast með Mýrina. „Auðvitað verður mjög spenn- andi ef Mýrin verður að kvik- mynd. Mér leist vel á hvernig Baltasar Kormákur tók höfundar- verk Hallgríms Helgasonar, 101 Reykjavík, og gerði að góðri kvik- mynd. Ég ætla ekki að skipta mér af því hvernig hann gerir Mýrina að kvikmynd. Ég hef ekkert leyfi tfl að skipta mér af því hvernig aðrir menn móta sína mynd úr minni sögu. Vil bara að myndin komi mér á óvart.“ Skrifar uppi á stígapalli - Faðir þinn, Indriði G. Þor- steinsson, var rithöfundur og menn tengdu ykkur í upphafi en þú hefur farið í allt aðra átt en hann og sannað þig á eigin for- sendum. Er það ekki viss léttir? „Jú, vissulega. Faðir minn var að mínu mati feikilega góður rit- höfundur en hann var að fást við allt aðra hluti. Ég sæki hins vegar mikið í skáldskap hans og hann er fyrirmynd mín í vinnubrögðum." - Skrifarðu á hverjum degi? „Ég reyni að vinna átta tíma á dag. Byrja milli átta og níu á morgnana og er í friði til tvö - þrjú á daginn þegar krakkarnir koma úr skólanum og allt verður vit- laust. Þá tek ég hlé en byrja svo aftur síðdegis. Þetta hefur reynst mér mjög vel. Þetta eru ekki bara skrif, heldur líka alls kyns athug- anir og lestur og ég er alltaf að gera meira af slíku. Ég hef reyndar ekki merkilega aðstöðu til að skrifa, ég er uppi á stigapalli en það hefur gengið ágætlega. Mér liður illa ef ég næ ekki að vinna átta tíma og það fer í taug- arnar á mér ef ég næ ekki að skila einhverju á hverjum degi. Ég geri eins og Hemingway, þurrmjólka ekki alveg það sem ég er að fást við heldur reyni að koma að því aftur daginn eftir. Það er svo gott að geta komið sér í skriftarstuð á ein- hverju sem virkar frá deginum áður.“ - Verðurðu ekkert gramur þegar þú hugsar til þess að sennilega verðurðu aldrei tilnefndur til ís- lensku bókmenntaverðlaunanna, sama hversu góða spennubók þú munt skrifa? „Ég velti því ekkert fyrir mér. Ég er alveg nógu ánægður með mín verk til að þurfa ekki að gráta bókmenntaverðlaunin. En það er langt í frá að það sé sanngjarnt að litið sé á spennusögur sem annars flokks bókmenntir. Þú hefur lesið mikið af fagurbókmenntum og veist að mikið af þeim er drasl. Mikið af spennusögum eru mjög bókmenntalegar en af því þær eru flokkaðar sem annars flokks eiga menn erfitt með að leyfa þeim að njóta sannmælis. Ég held að þetta viðhorf sé að breytast." - Segðu mér og forvitnum les- endum eitthvað frá næstu bók þinni. „Ég get ekki sagt mikið um næstu bók en hún er langt komin og fyrsta setningin í henni hljóðar svona: „Elínborg beið þeirra á hót- elinu.“ - Og byrjun á bók sem mjög lík- lega verður enn ein metsölubók Arnalds Indriðasonar. -KB Ektafiskurehf. J S. 4661016 J Utvatnadur saltfiskur, ánbeina,tilaðsjóða. Sérútvatnaður saltfiskur, án beina, til að steikja. Saltjisksteikur (Lomos) jyrirveitingahús. Húsgögn eftir þínum þörfum hornsófar stakir sófar stólar hvíldarstólar svefnsófar veggeiningar borðstofuhúsgögn og fl Höfðatúni 12 105 Reykjavík Sími 552 5757 www.serhusgögn.is Avtsun a góða ferð Ferðaávísun MasterCard 5.000 kr. Ferðaávísun við stofnun korts Upphæð ávísunar tengd veltu kortsins innanlands síðustu 2 ár. ATLAS korthafar safna 4 kr. af hverjum 1.000 kr. og Gullkorthafar 5 kr. af hverjum 1.000 kr. Nánari upplýsingar á www.europay.is eða í síma 550 1500. 4 4 URVALUTSYN K4 ^ÁTERRA viv jWNOVA Ísól • ] Ferðaávísun MasterCard er hægt að nýta sem greiðslu inn á eina pakkaferð í leiguflugi með ferðaskrifstofum í samstarfi við MasterCard. Greiða þarf ferðina með MasterCard kortinu sem ávísunin er stíluð á.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.