Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Blaðsíða 58
58
Heiqarölctáf I>V LAUGARDAGUR IS. MAÍ 2002
>
Hókus Pókus_____________
Umsjón
MargrétThorlacius
VINNINGSHAFAR
4. maí:
Sagan mín: Jóhann Pálmar Harðarson,
Lyngrima 3, Reykjavík.
Mynd vikunnar: Ægir Þorsteinsson,
Borgarhrauni 1, Grindavík.
Matreiðsla: Karen Sveinsdóttir.
Þrautir: Baldur Logi Bjarnason, Hvann-
hólma 24, 200 Kópavogi.
Kristófer Aron Sverrisson, Gullengi 17,
112 Reykjavík.
Vinningshafi þessa vikuna
er Finnbjörn Már Þor-
steinsson, 5 ára, Mar-
bakkabraut 7 í Kópavogi.
Hann teiknaði og litaði
þessa líka glæsilegu
seglskútu sem siglir hér
seglum þöndum.
Til hamingju, Finnbjörn
Már!
SUNDKENNSLAN
Guðrún Lilja var í óðaönn að taka sig til.
Hún var að fara í sundkennslu. Guðrún
hafði alla tíð verið vatnshrædd en núna
ætlaði hún að sigrast á meininu.
Þegar komið var í sundhöllina kvaddi hún
mömmu sína og Aron litla bróður og gekk
inn í klefann. Þegar Guðrún Lilja var kom-
in í rauða sundbolinn sinn með bangsan-
um framan á setti hún á sig gulu sund-
hettuna og hélt út í sundlaug.
Henni var bent á að setjast ásamt öðrum
krökkum á sundlaugarbakkann. Hávaxin,
grönn kona gekk inn: „Ég heiti Lára og er
sundkennarinn ykkar. Núna ætla ég að
lesa ykkur upp: Signý, Bára, Dagur, Frey-
steinn, Már og Guðrún Lilja.“ Krakkarnir
kinkuðu kolli hvert af öðru.
Lára bað Signýju fyrst að koma til sín og
síðan hvert barnið á eftir öðru. Hún hjálp-
aði þeim að sigrast á hræðslunni við
vatnið. Eftir þennan sundtíma var Guðrún
Lilja ekki vatnshrædd. Hún kynntist
krökkunum á námskeiðinu mjög vel og
þótti gaman í sundtímum. Seinna meir
varð Guðrún Lilja fræg sundkona.
Tinna Jökulsdóttir,
Flögusíðu 1, 603 Akureyri.
HUS OG TRE
Falleg mynd sem Valur Gunnarsson,
Tjarnarlundi 76 á Akureyri, teiknaði. En
Valur heitir öðru nafni. Hvert er það?
A) Hvaða TVEIR fiskar eru alveg eins?
B) Hvaða TVEIR karlar eru alveg eins?
Sendið lausnir allra þrauta til
Hókuss Pókuss,
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík.
Hver gengur LENGSTU leiðina að lauginni?
Hver fer STYSTU leiðina að lauginni?