Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2002, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2002, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 Menning___________________________________________________________________________________________________________________________PV Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir silja@dv.is Margradda kór Á blómaskeiði módemism- ans fólst aðdráttarafl myndlist- arinnar ekki síst í bjartsýninni og framþróuninni sem menn töldu innbyggða í hana. Mynd- listin var sífellt að bæta við sig, jafnt aðferðafræðilega sem hug- myndalega, auk þess sem hún gaif sig út fyrir að vera hvort tveggja í senn, greining og skiljanleg einfoldun á samfé- lagsmyndinni og tilvistarlegum vanda mannsins. Með því að gaumgæfa myndlistina þótt- umst við öðlast nýjan skilning á sjálfum okkur og umhverf- inu. Verk eftir Onnu Líndal á sýningunni Mynd. Anna Líndal gerir þetta rými sérkennilega „heimiiisiegV meö sam- safni aöskotahiuta og tilbúinna hluta úr mjúkum efnum. Póstmódemisminn hefur kollvarpað þessari mjög svo þægilegu tálsýn. Nú lifum við í veröld þar sem myndlistin hef- ur smogið inn í hvem krók og kima mannlegrar upplifunar og hyggjuvits í leit að viðfangs- efnum; er raunar orðin hlut- gervingur eða staðgengill þeirra aðstæðna, hugsana og kennda sem við teljum af- marka hið „mannlega". Frómt sagt vitum við ekki lengur hvaða erindi hún á við okkur. Við þessar aðstæður - og hvort sem mönnum líkar betur eða verr - hefur sýningarstjórinn hafist til vegs og virðingar. Við ætlumst til þess af honum að hann grafíst fyrir um þær merkingar og auka- merkingar sem felast í verkum þess margradda kórs sem myndlistarmenn eru og láti þau kallast á opinberlega, þannig að óman og angan þeirra nái skilningarvitum okkar. í veröld þar sem allt hefur merkingu og allt er tengt er ekki lengur boðlegt að setja saman stórar sýningar undir merkjum einskærrar einstaklingshyggju og fjölbreytni. Ekki ofsögum sagt af fjölbreytninni f fyrra var óvenju sundurleitur hópur ís- lenskra myndlistarmanna samt sendur undir þeim merkjum til Henie-Onstad safnsins í ná- grenni Óslóborgar: Ómar Stefánsson, Jón Ósk- ar, Bjarni Sigurbjömsson, Svava Bjömsdóttir, Þorvaldur Þorsteinsson, Anna Líndal, Birgir Andrésson, Margrét Blöndal og Guðjón Bjamason. Sýningin kallaðist hvorki meira né minna en „Mynd - Islandsk samtidskunst“. Að valinu stóðu Gavin Jantjes, listrænn stjórnandi Henie-Onstad-safnsins, og Jón Proppé heimspekingur. Af viðbrögðum norskra fjölmiðla, þeirra fáu sem á annað borð sinntu þessari sýningu, mátti ráða að þeim kom sosum ekkert á óvart fjölbreytnin i myndlistinni á íslandi. Þarna fór sem sagt fyr- ir bí ágætt tækifæri til að stiUa saman strengi nokkurra íslenskra nútímalistamanna þannig að skapaðist heildarsýn með erindi við Norð- menn og okkur sem heima sitjum. Það kom því á óvart að Listasafn Reykjavík- ur skyldi hafa tekið þetta „sýningarkonsept" hrátt upp á arma sér og gert að helsta fram- lagi sínu til Listahátíðar í ár. Og þótt lista- mennimir hafi bætt við nýjum verkum frá Óslóarsýningunni er enn notast við hækling Henie-Onstad safnsins en bætt inn í hann fjöl- riti með íslenskum texta - sem mér þykir ekki samboðið þessari stofnun. Það er sem sagt engin leið að fá botn í það hvers vegna einn listamaður er tekinn fram yfir ann£m í þessari púllíu og þvi er sennilega affarasælast að lita á framkvæmdina sem samsafn niu einkasýninga. Mælikvarðinn er þá sennilega hvemig verkin gera sig í þessu erfiða sýningarhúsnæði. Af tilfinningaböndum Þar er Guðjón Bjamason á grænni grein. Að vísu era sprengingar hans löngu hættar að hreyfa við öðru en hljóðhimnunni í manni, en mikil lifandis ósköp taka járnin hans sig vel út í portinu. Þar er einnig i öndvegi risastórt pleximálverk Bjama Sigurbjömssonar. Inni í húsinu era það sennilega konumar sem best kunna að fara með rýmið. Einfaldar lágmynd- ir Svövu Bjömsdóttm:, með ljósi á röngunni, em með því allra áhrifamesta á sýningunni, ekki síst vegna þess að þær gera hvort tveggja í senn að vinna „með“ steypunni í sölunum og leysa hana upp í frumeindir sínar. Anna Lín- dal gerir þetta rými einnig sérkennilega „heimilislegt“ með samsafni aðskotahluta og tilbúinna hluta úr mjúkum efnum; í þessum verkum mætast hið einkalega og utanaðkom- andi þættir. Nýr sjónvinkill skapast á þrívíðu verkin með ljósmyndum listakonunnar sem em eins og mitt á miUi þessara tveggja póla. Mjúkir hlutir Margrétar Blöndal eru enn einkalegri en þeir sem Anna teflir fram; þeir virðast vísa bæði til æskuupplifana og undir- vitundarinnar. Ekki treysti ég mér til að segja hverju þeir vUja hvísla að okkur, en einkenni- lega ágengir eru þeir. Hvað Jón Óskar varðar þá tel ég mig skilja þær forsendur sem hann leggur til grundvall- ar bæði vídeóverki sínu og málverkum sínum, en verð að játa að mér tekst ekki að tengjast þessum verkum tilfmningaböndum. „ÓskUa- munir“ Þorvalds Þorsteinssonar eru líka æði kunnuglegt verk úr nýlegri myndlistarsögu. Ómar Stefánsson og Birgir Andrésson eru meiri einfarar en aðrir á þessari sýningu; Birgir brýtur undir sig rýmið með „íslenskum litum“ sínum en Ómar hristir af sér öU sýn- ingarkonsept með urrandi sköpunarkrafti. Aðalsteinn Ingólfsson Sýningin Mynd - íslensk samtímalist, stendur til 11. ágúst. Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús, er opið dag- lega kl. 11-18 en til kl. 19 á fimmtudögum. Bókmenntir Einstakt líf eða einfalt? Neónsería Bjarts hefur á undanfomum árum fært okk- ur margt af því athyglisverð- asta sem er á seyði í erlend- um samtímabókmenntum í ágætum íslenskum þýðing- um. Ein nýjasta Neónbókin heitir Sunnan við mærin, vestur af sól og er eftir jap- anska höfundinn Haruki Murakami sem á sér fjölda aðdáenda jafnt á íslandi sem annars staðar. Murakami er þekktastur fyrir ævintýraleg- ar póstmódemískar skáldsög- ur með vísindaskáldsögu- ívafi. Hér er eitthvað allt annað á ferðinni. Þrátt fyrir titilinn, sem leiðir hugann að ævintýrum og hinu framandlega eða exó- tíska, er heimur sögunnar lengi vel furðu kunnuglegur, og sagan sjálf einnig. Sögu- hetjan Hajime elst upp í dæmigerðri miðstéttarfjöl- skyldu. Hann gengur mennta- veginn með hangandi hendi og eftir nokkur ár í tilbreyt- ingarsnauðu starfi hjá bóka- útgáfu setur hann á stofn fyr- irtæki með aðstoð tengdafoð- ur síns. Hann er hamingju- samlega giftur, á tvær dætur, reksturinn gengur vel, í stuttu máli: kjarnafjölskyldu- líf, slétt og fellt á yflrborðinu. En það vantar eitthvað og minningar Hajimes um bemsku- vinkonu sína, Shimamoto, og vin- áttu þeirra í upphafi gelgjuskeiðs- ins leita á hann. Vinátta þeirra byggðist ekki síst á þeirri sér- stöðu þeirra að vera einbimi í umhverfi þar sem allir áttu systk- ini. Þau eru einstök og sameigin- leg reynsla þeirra sameinar þau. Þegar Shimamoto birtist aftur í lífi Hajimes taka þau upp stutt en ákaft samband sem einkennist af óvissu, dulúð og erótík. Sambandið við Shimamoto setur líf Hajimes úr skorðum, hann verður að velja milli hins einfalda og örugga lífs sem hann hefur byggt upp og óvissunnar og hættunnar sem líf með Shimamoto myndi færa honum. En sagan er ekki þar með orðin að hefðbundinni pælingu um miðaldrakrisu karlmanns. I endurkomu Shimamoto rætast fyrirheit titilsins um hið ævintýralega og óskiíjanlega. Fortíð hennar er leyndardómsfull og hegðun hennar vekur grun um heim að haki þessum, heim sem er í senn dularfullur og óhugnanlegur. Sunnan við mærin, vestur af sól er nær- göngul og opinská saga. Hún er frábærlega vel skrifuð, blátt áfram en svolítið ísmeygileg. Að sama skapi er íslensk þýðing Ugga Jónssonar fyrirtak. Jón Yngvi Jóhannsson Haruki Murakami: Sunnan við mærin, vestur af sól. Uggi Jónsson þýddi. Bjartur 2001. Stravinsky í Listasafninu Á morgun kl. 12.30 mun Eþos-strengja- kvartettinn flytja tvo strengjakvartetta eftir Stravinsky í Listasafni íslands á vegum tónlistarhátíðarinnar Fyrir augu og eyru á Listahátíð. Kvartettinn skipa Auður Hafsteinsdóttir, Greta Guðnadótt- ir, Guðmundur Kristmundsson og Bryn- dís Halla Gylfadóttir. Geysilega góð aðsókn hefur verið að þessari tónleikaröð sem fer fram á lista- söfcum borgarinnar í hádeginu. Geta gestir þá notið þess lika að sjá sýning- amar í sölum safnanna, en í Listasafni Islands hangir nú Hin nýja sýn - rúss- nesk list frá raunsæi til framúrstefnu. Til aö koma í veg fyrir misskilning ... Örleikritin á Listahátíð, sem leikin eru víðs vegar um borgina og útvarpað beint á rás 1 kl. 17.05 á virkum dögum, hafa líka vakið athygli og hefúr víða orð- ið örtröð kringum leikarana á óvæntustu stöðum. Á morgun verður leikið í einum af hitaveitutönkunum undir Perlunni og heitir verkið Til að koma í veg fyrir mis- skilning ákvað mamma að best væri að þegja. Það er eftir Árna Ibsen leikskáld og Rósu Sigrúnu Jónsdóttur myndlistar- mann og segist vera verk fyrir karla og konur, slatta af leirtaui, fortíð, nútíð, enduróm og Jim Reeves ... Harpa Amar- dóttir leikstýrir. Kynlífssiðferði Aðalefni nýútkom- innar Veru er kynlífs- siðferði ungs fólks. Meðal airnars segir Dagbjört Ásbjörnsdótt- ir frá niðurstöðum mastersritgerðar sinn- ar um efnið og ræðir við fjóra unglinga um afstöðu þeirra til kyn- lífs. Einnig er í heftinu viðtal við Hrönn Sveinsdóttur sem þekktust er fyrir heim- ildarmynd sem enginn hefur enn fengið að sjá um Ungfrú íslands.is, viðtal við Halldór K. Lámsson um nauðganir og „heilalausa tilla" og við Bjameyju Frið- riksdóttur, framkvæmdastjóra Alþjóða- húss, sem nýlega var opnað á Hverfis- götu 18 og er þegar orðiö áberandi í fé- lagslífi borgarinnar. Einnig er grein um konur í rappi, sOíkonfegurð, kvikmynd- ir, leikhús og barnleysi samkvæmt ákvörðun, viðtal við netskáldið Birgittu Jónsdóttur og fjölmargir stuttir pistlar og svipmyndir af frásagnarverðum ein- staklingum. Fjallræðufólkið Bjartur í Sumarhús- um og Ásta Sóllilja, Ólafúr Kárason, Salka Valka og Sigurlína, Jón Hreggviðsson, Snæfríð- ur íslandssól, Álfgrím- ur og séra Jón Prímus - stundum finnst manni þessar persónur og fleiri sem Halldór Laxness skapaði meira lifandi í íslensku þjóðlífi en ýmsir af holdi og blóði. Þær em sífelld uppspretta hugleiðinga og heilabrota um eðli tilver- unnar, hegðun mannanna, ástina, dauð- ann - og guðdóminn. I bókinni Fjallræðufólkið eftir Gunnar Kristjánsson, prófast á Reynivöllum í Kjós, sem Mál og menning hefur gefið út, eru nokkrar þekktustu persónumar í verkum Halldórs Laxness í brennidepli, einkum lífsviðhorf þeirra og lífsspeki. Gunnar varpar á þær nýju ljósi með því að sýna fram á hvemig kristin trúar- heimspeki, sem mótaði heimsmynd Hall- dórs Laxness á æskuárum, birtist í skáldverkum hans og setur mark sitt á persónusköpunina. Halldór bjó lengi að þeirri menntun og reynslu sem hann hlaut meðal kaþólikka snemma á þriðja áratug 20. aldar, og í verkum hans endur- ómar alla tíð samúð með lítilmagnanum og virðing fyrir lífmu - grundvallarþætt- imir í mótun svipmikilla og ógleyman- legra persónanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.