Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2002, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2002, Blaðsíða 22
22 ^Fréttir FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 DV Mikil óvissa í ísafjarðarbæ Kosningarnar í ísafiarðarbæ á laug- ardaginn hafa trú- lega sjaldan eða aldrei verið í jafii mikilli óvissu og nú. Ekkert eitt kosn- ingamál er öðru framar í sviðsljós- inu, en öll framboð- in tala meira og minna um að efla þurfi atvinnulífið. Fréttir nú í vikunni um að viðræður væru í gangi um að höfuðstöðvar Orku- bús Vestfjaröa flytj- ist til Akureyrar um næstu áramót við sameiningu þess við RARIK og Norður- orku, hafa þó hleypt nýju lífi í pólitíkina vestra. Hefur Valgerður '*-Sverrisdóttir stað- fest að viðræður séu í gangi um slíkan samruna. I samtöl- um við fólk vestra i gær mátti ráða að áhrifin af þessum tíðindum yrðu mik- il. Nefndi einn við- mælandi t.d. að á einni nóttu hefði fasteignaverð á Isa- fjarðarbæ fallið um >15% vegna þessa. Það myndi þýða tap fyrir fólk á svæðinu um 1.600 milljónir króna, sem er um 200 milljónum króna meira en bærinn fékk fyrir sölu á sínum hlut í Orkubúinu. Þótti mönnum því tákn- rænt að þegar tíð- indin voru tíunduð í Ríkisútvarpinu í há- deginu í gær - þá fór rafmagnið af bænum. Guðni Geir Jóhannesson. Halldór Jónsson. Lárus G. Valdimarsson. Halldór Hall- dórsson. Lilja Rafney iMoldvÍðrí Magnúsdóttir. óþarft Oddviti Fram- sóknarflokksins vestra, Guðni Geir Jóhannesson, sem einnig er forseti bæjarstjómar, segir óþarft að þyrla upp moldviðri út af þess- um tíðindum. Það séu samningar i gildi vegna sölu sveitarfélaganna á sínum hlutum í Orkubúinu. Menn þurfi því ekki að ótt- ast stórvægilegar breytingar þótt aðal- stöðvamar flytjist hugsanlega til Akur- eyrar. „Þótt einhveijar þreifingar séu í ..gangi, þá er þetta ekkert sem verður að veruleika á næstunni." Að öðra leyti Magnús Reynir Guömundsson. Fréttaljós segir Guðni að kosningaumræðan snú- ist almennt um atvinnumál og skóla- mál. Hann telur að þótt ágæt samstaða hafi verið um flest mál síðasta kjör- tímabil, þá óttist hann að „óánægju- framboð" kunni að hleypa illu blóði í stjóm bæjarfélagsins. Það sé ekkert fyrir sex framboð að slást um og hugs- anlega geti þetta leitt til skrýtinnar nið- urstöðu í kosningunum. „Þetta er það sem við þurftum síst á að halda.“ Orkubúsmálið er skelfilegt Halldór Jónsson, oddviti A-lista Nýs afls, lýsti því svo í samtali við DV í gær að með þessum fréttum af Orkubúinu þá hafi öll önnur kosningamál skyndi- lega sópast út af borðinu. Hann segir að hart verði barist á móti þessum áform- um. Það muni tapast þama fjöldi starfa og mest hjá fólki sem komið er um eða yfir sextugt. Það fái hvergi vinnu. „Þetta er því skelfilegt mál. Það sem stendur upp úr er sú lítilsvirðing sem rikisstjómarflokkamir sýna sinu fólki hér. Þeir fóma þeim fyrir hagsmuni flokkanna á Akureyri. Það sýnir að raddir okkar hafa ekki náð f gegn hjá flokkunum. Það er því miður valtað yfir þetta fólk, ég vildi ekki vera í þeirra spomm núna. Þetta er ömurlegt hlutskipti." Halldór Jónsson segir að sitt fram- boð hafi lagt til að farið verði yfir alla fyrirvara í samningunum og ef þar er einhver útgönguleið, þá verði að rifta sölunni á Orkubúinu og hugsa málið upp á nýtt. Að öðm leyti sagði harrn varðandi stöðu sveitarfélags- ins að þá væri alvarleg sú mikla skuldaaukning sem átt hafi sér stað á kjörtímabilinu. Meirihlutinn hafi hins vegar forðast að ræða það mál. Erfitt að spá um úrslit- in Lárus G. Valdimarsson, efsti maður á lista Samfylk- ingarinnar, segir skólamálin vissulega enn vera í deiglunni þótt meirihlutinn hafi ákveðið að setja málið í salt fram yfir kosningar. Það hafi mikið ver- ið deilt um framtíðar upp- byggingu grunnskólans fyrir siðustu kosningar og enn eigi eftir að klára það mál. Varð- andi Orkubúsmálið vísar hann fullri ábyrgð á núverandi meirihluta. „Flutningur aðalstöðvanna til Akur- eyrar er klárt brot á samkomulaginu sem gert var við sölu Orkubúsins, en sá samningur er samt með ólíkindum. Það er greinilegt að þetta mál liggur mjög þungt á fulltrúum meirihluta- flokkanna í bæjarstjóminni." Lárus segir mjög erfitt að spá í úrslitin á laug- ardaginn og líklegt sé að mikið af at- kvæðum falli dauð. Kemur ekkert á óvart Halldór Halldórsson, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir ekk- ert eitt mál standa upp úr í kosninga- baráttunni nú. Hins vegar óttast hann að erfitt geti orðið að mynda starfhæfa Frá höfninni á ísafirði. snúningur verði í sjávarútveginum. Því þurfi að leita fleiri tækifæra." Varðandi Orkubúsmálið segir Lilja Rafney að þar sé nú að ganga eftir ná- kvæmlega það sem VG hefur allan tím- ann haldið fram. Höfuðstöðvamar flytj- ist til Akureyrar og störfin í kjölfarið. Hún segir að menn hafi mátt vita að svona færi þegar ákveðið var að selja Orkubúið. Lilja segir varðandi úrslit kosninganna að öll framboðin fái einn mann og síðan verði hinum þrem skipt bróðurlega á milli flokka. Vilja kvótabanka Magnús Reynir Guðmvmdsson er oddviti Fijálslynda flokksins í ísafjarð- arbæ. Hann segir höfuðáherslu flokks- ins vera á atvinnumálin. „Það er grunnurinn að allri tilvem hér. Við viljum reyna að veijast svo við verðum ekki fyrir enn meiri áfóllum en orðið er og reyna síðan að sækja fram.“ Magnús segir að sala orkubúsins sé staðreynd þótt flokkurinn hafi verið á móti þeirri aðgerð. Því vilji þeir nýta um 20% af sölutekjum vegna Orkubús- ins, um 280 milljónir króna, og mynda með því kvótasjóð. Við hefðum verið að gæla við hugmynd að fá þar á móti framlag frá Byggðastofnun. Sjóðurinn gæti orðið um 400 milljónir króna og fýrir hann yrðu keyptar varanlegar aflaheimildir i smábátakerfinu. Það væm um 800 tonn sem ráðstafað yrði til útgerðarmanna á svæðinu sem leggðu þá jafn mikið á móti í sjóðinn. Aflanum yrði síðan öllum landað í bæj- arfélaginu til vinnslu. Magnús segir að fréttir af tilfærslu á höfúðstöðvum Orkubúsins til Akureyr- ar séu skelfilegar. Fyrir nokkrum vik- um svaraði Magnús spumingu blaðs- ins BB um sölu OV þannig að um væri að ræða skammsýni bæjarstjómar. „Orkubúið verður sameinað RARIK og RARIK rennt inn í Norðurorku hjá Kristjáni Þór Júliussyni. Við missum fjölda starfa ef af líkum lætur.“ - Þama virðist Magnús hafa verið æði forspár, en tíðindin komu fyrst fram í RÚV í fyrrakvöld þegar ísafjarðarframboðin héldu sameiginlegan kosningafund á Þingeyri. D- og B-listi mynda meirihluta bæjarstjóm ef bæjarfúlltrúamir skipt- ast niður á öll framboðin sex. Varðandi málefni Orkubúsins, þá hafi hann vilj- að fara aðra leið en nú virðist uppi á borðinu. Við sameiningu Orkubúsins og RARIK yrði nýju fyrirtæki skipt upp í einingar eftir nýju kjördæmunum með höfuðstöðvum á hverjum stað. „Ekkert sem kemur frá þessum ráð- herra byggðamála kemur mér þó leng- ur á óvart,“ sagði Halldór Halldórsson. Atvinnumálin á oddinn Lilja Rafney Magnúsdóttir, efsti maður á lista Vinstrihreyftngarinnar græns framboðs, segir atvinnumálin efst á baugi. ISAFJARÐARBÆR - úrslit kosninga 1998 mk „Við höfum sett það á oddinn í okk- ar baráttu. Við viljum að bæjarstjóm kalli til hagsmunaaðila á svæðinu í samvinnu við lánastofiianir og At- vinnuþróunarfélagið. Þar verði mynd- aður vinnuhópur sem komi með mark- vissa aðgerðaráætlun. Maður heyrir að almenningur vill fara að sjá eitthvað gerast. Fólk sér ekki að sérstakur við- Höröur Kristjánsson blaðamaður Ekkert sjálfgefiö í pólitíkinni vestra Pólitíkin í ísafjarðarbæ hefur löng- um þótt einkennast af mikilli hörku og hafa úrslit kosninga þar oft komið á óvart. Frægast er þar trúlega hægt að nefha stórsigur Fönk-listans um árið, sem var óánægjuframboð ungra menntaskólanema og kom tveim mönn- ^im í bæjarstjóm. Það þykir því ekkert sjálfgefið um úrslit í pólitíkinni vestra. Ibúafjöldi í ísafjarðarbæ var þann 1. desember sl. samtals 4.181. Hafði þeim þá fækkað úr 4.403 1. desember árið 1997. Fjöldi fulltrúa í sveitarstjóm er 9, en við kosningamar 1998 vora þrír list- ar í ffamboði. Þar fékk B-listi Fram- sóknarflokks 379 atkvæði og 1 fulltrúa í bæjarstjóm. D-listi Sjálfstæðisflokks fékk 936 atkvæði og 4 fúlltrúa og K-listi, Bæjarmálafélag Isafjarðarbæjar, fékk 858 atkvæði og 4 fulltrúa. Meirihluta- samstarf komst á með Framsóknar- flokki og Sjálfstæðisflokki. I stað þriggja framboða í kosningun- um 1998 em nú boðnir ffam sex listar í ísafjaröarbæ. Auk hefðbundinna fram- boða Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks ber það nú til tíðinda að A-listi Nýs afls býður ffam lista. Þar er um að ræða lista undir forystu eins fyrrver- andi fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Hall- dórs Jónssonar. Varlegt er þó að skil- greina þennan lista sem klofiiingsffam- boð úr Sjálfstæðisflokki eingöngu þar sem á listanum er lika fólk sem bendl- að hefur verið við aðra flokka á liðnum árum, eins og krata. I stað K-lista, sem var eins konar sambræðingur fólks úr gamla Alþýðu- flokknum og Alþýðubandalaginu, koma nú fram tveir listar. Það er S-listi Samfylkingarinnar og U-listi Vinstri- hreyfingarinnar, græns framboðs. Auk áðumefndra afla býður F-listi Frjálslynda flokksins svo ffam krafta sína. I forystu þessa ffamboðs er Magn- ús Reynir Guðmundsson, fyrrverandi framsóknarmaður. Mikill samdráttur Fækkun starfa í sjávarútvegi og fækkun ibúa hefur dregið tekjur bæjar- félagsins verulega saman og hefur því verið háð hörð vamarbarátta til að reyna að ná tökum á erfiðum rekstri. Þetta hefur einnig sett sinn svip á póli- tíkina og undanfarin ár hefur þótt gæta þar vissrar þreytu og stöðnunar. Virð- ist sem íbúar vilji nú hrista af sér slen- ið með því að tvöfalda framboð flokka í kosningunum á laugardaginn. ísafjaröarbær Framboðs- listar Nýttafl 1. Halldór Jónsson, fiskverkandi 2. Gylfi Þór Gíslason, lögreglumaður 3. Ingibjörg Snorradóttir, skrifstofumaður 4. Gróa Stefánsdóttir, fulltrúi 5. Albert Haraldsson, yfirverkstjóri 6. Eyrún Eggertsdóttir, flugnemi 7. Eirikur Jóhannsson, verkstjóri 8. Jóhanna Fylkisdóttir, hársnyrtinemi 9. Hermann Óskarsson, rafvirki Framsóknar- flokkur 1. Guðni Geir Jóhannesson, bæjarfulltrúi 2. Svanlaug Guðnadóttir, hjúkrunarfræðinemi 3. Björgmundur Öm Guðmundsson, byggingatækniffæðingur 4. Jón Reynir Sigurvinsson, aðstoðarskólameistari 5. Guðríður Sigurðardóttir, íþróttakennari 6. María Valsdóttir, húsmóðir 7. Sigríður Magnúsdóttir, forstöðukona 8. Þorvaldur Þórðarson, bóndi 9. Elías Oddsson, ffamkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokkur 1. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri 2. Bima Lámsdóttir, fjölmiðlaffæðingur 3. Ragnheiður Hákonardóttir, svæðisleiðsögumaður 4. Ingi Þór Ágústsson, sundþjálfari 5. Elías Guðmundsson, ferðaþjónn 6. Jón Svanberg Hjartarson, lögregluvarðstjóri 7. Áslaug Jóhanna Jensdóttir, ferðaþjónn 8. Jónas Þór Birgisson, lyfjafræðingur 9. Bryndís Ásta Bfrgisdóttir, ffamkvæmdastjóri Frjálslyndir og óhaðir 1. Magnús Reynir Guðmundsson, framkvæmdastjóri 2. Ásthildur Cecil Þórðardóttir, garðyrkjustjóri 3. Kristján Andri Guðjónsson, sjómaður 4. Sigríður Inga Sigurjónsdóttir, dýralæknir 5. Magnús Sigurðsson, verktaki 6. Vilhelmína H. Guðmundsdóttir, verslunarmaður 7. Magnús Sigurður Jónsson, skólastjóri 8. Kristin Auður Elíasdóttir, kennari 9. Þröstur Ólafsson, vélstjóri Samfylkingín 1. Láras G. Valdimarsson, bæjarfulltrúi 2. Bryndís Friðgeirsdóttir, bæjarfulltrúi 3. Sæmundur Kr. Þorvaldsson, bæjar- fulltrúi 4. Kolbrún Sverrisdóttir, verkakona 5. Bjöm Daviðsson, kerfisffæðingur 6. Jónína Emilsdóttir, sérkennsluráðgjafi 7. Sturla Páll Sturluson, tollvörður 8. Guðrún Anna Finnbogadóttir, sjávarútvegsfræðingur 9. Friðrik Hagalín Smárason, nemi Vinstrihreyfingin grænt framboö 1. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaforseti ASV 2. Elfar Logi Hannesson, leikstjóri 3. Dorothee Katrin Lubecki, ferðamálafulltrúi 4. Anton Torfi Bergsson, bóndi 5. Ágústa Guömundsdóttir, verkamaður 6. Kjartan Halldór Ágústsson, kennari 7. Herdís Magnea Húbner, kennari 8. Bjöm Birkisson, bóndi 9. Guðrún Snæbjörg Sigurþórsdóttir, húsmóðir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.