Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 10
10 Innkaup FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 DV Kjarval & 11-11 Tilboðin gilda til 29. maí. Maxwell House kaffi 368 kr. Emmess jógúrtís, allarteg. 11 399 kr. Ömmu heimshorn 439 kr. LU Prince súkkulaðikex 2x175 g 189 kr. LU Mikado kex 149 kr. LU Pims Orange 179 kr. Bónus Tilboðin gilda til 26. maí. Goða pylsur 30% afsl. 559 kr. kg Prins póló 30 stk. 999 kr. Maryland kex 33% extra 85 kr. Gold kaffi 500 g 179 kr. Frosin ýsa með roði 399 kr. kg Frosnir ýsubitar roð- og beinlausir 679 kr. kg Frosin útvatnaður saltfiskur 449 kr. kg Reykt ýsa 679 kr. kg Úrval & Samkaup Tilboðin gilda til 27. maí. I Kjarnagrautur jarðarberja 1 I 199 kr. 2 Kjarnagrautur sveskju 1 I 199 kr. 3 Kjamagrautur epla 1 I 239 kr. 4 Kjarnagrautur bl. ávextir 1 I 199 kr. S Nói bitar malta 200 g 189 kr. 6 Nói bitar hrís 200 g 189 kr. 7 Nói bitar smellir 200 g 199 kr. 8 Cadb. Diary milk 200 g 199 kr. 9 Cadb. Wholenut 200 g 229 kr. 10 Cadb. Fruit/Nut 200 g 229 kr. Skeljungur Tilboðin gilda til 29. maí. 1 Freyju rís stórt 85 kr. 2 Nóa kropp, 150 g 179 kr. 3 BKI kaffi 500 g 339 kr. 4 Lorenz kartöfluflögur 25 g 79 kr. S Lorenz kartöfluflögur í stauk 100 g 199 kr. 6 McVites Caramel kex 300 g 236 kr. 7 Drykkjarjógúrt, 2 teg. 250 ml 69 kr. 8 Pantene Cls sjampó 200 ml 379 kr. 9 Pantene Cls hárnæring 200 ml 379 kr. 10 Turtle wash & shine - sápubón 239 kr. Þín verslun Tilboðin gilda til 29. maí. Hamborgarar og brauð 20% afsl. Kryddlegnar svínakótilettur 20% afsl. Hunt's BBQ sósur 510 g 198 kr. Hunt's tómatsósa 680 g 139 kr. Orville örb. popp 297 g 169 kr. Freyju Rís kubbar 198 kr. Party mix 170 g 189 kr. 8 Swiss Miss 489 kr. Esso Tilboðin gilda til 31. maí. 1 Góa Lindubuff 50 g 49 kr. 2 Góa Æðibitar stórir 220 g 219 kr. 3 Hersheys Almond Joy 49 g 99 kr. 4 Hersheys Reese Stick 42 g 99 kr. Krónan Tilboðin gilda til 29. maí. 1 SS rauðvínslegin bógsteik 824 kr. kg 2 SS kryddlegin lambarif 326 kr. kg 3 Ritz saltkex 68 kr. 4 Pepsi 21 999 kr. 5 7-up 21 999 kr. 6 Smarties 199 kr. 7 Doritos 200 g 189 kr. _ Uppgrip-verslanir Olís Tilboðin gilda í maí. | i Freyju lakkrísdraumur, stór 89 kr. 2 Rolo kex 199 kr. 3 Toffy Crisp 85 kr. 4 Fresca 1/2 1 plast 109 kr. 5 Hjólreiðahjálmar 2499 kr. 6 Hjólreiðaahjálmar 1999 kr. Smáauglýsingar 550 5000 Hef hlegið síðan ég vann „Þetta kom mér svo sannarlega á óvart og ég er búin að hlæja síðan ég frétti af þessum vinningi," segir Gyða Ásgeirsdótt- ir sem vann matarkörfu DV og Bónuss þessa vikuna en í hverri viku er dreginn út einn skilvis áskrifandi DV og fær hann ávísun á úttekt í Bónus að upphæð 15.000 kr. Ágætis búbót þar. Gyða segir að hún hafi hingað til ekki verið heppin og hafi aldrei unnið neitt fyrr en nú. Hún segist kaupa inn í Bónus þegar gera þarf stórinnkaup, eins og fyrir afmæli og þess háttar en annars verslar hún í Hagkaupum. „Mér finnst gott að kaupa inn i Bónus, mín búð er i Spönginni þar sem ég bý í Grafar- vogi og hún er f!n.“ Matarreikningur heimilisins er ekki mjög hár að sögn Gyðu. „Maðurinn minn er sjó- maður þannig að yfirleitt erum við bara tvö heima, ég og sonurinn, og það fer ekki mikiö ofan í okkur. Þessi úttekt á því eftir að duga vel og lengi, en hún verður notuð til að fylla skápa heimilisins af góðum og hollum mat.“ Bónus hefur rekið lágvöruverðsverslan- ir í meira en áratug og hafa þær iðulega komið best út í verðkönnunum sem DV hefur gert á matvöru. -ÓSB Gyða Ásgeirsdóttir ásamt synl sínum Ásgeiri Páli. Alltaf grænna hinum megin Helga Hauksdóttir garöyrkjufræöingur segir aö lífrænn áburöur sé bestur þar sem hann byggi upp jarö- veginn til lengri tíma. Þeir sem ekki vilji hann geti þó notaö tilbúinn áburö. Grasið: Alltaf grænna hinum megin - en góð umhirða skilar sér í fallegri flöt, segir Helga Hauksdóttir, garðyrkjufræðingur í Garðheimum „Á þessum tíma er grasið að byrja að spretta og þá er rétti tíminn til að bera á,“ segir Helga Hauksdóttir, garðyrkjufræðingur í Garöheimum. Hún segir að lífrænn áburður sé bestur þar sem hann byggi upp jarðveginn til lengri tima og ör- verumar þar. Lífrænn áburður sem hentugt er að nota er vel staðinn húsdýraáburður, þörunga- mjöl eða kjötmjöl. „Þessi áburður hefur þó þann ókost að hann lyktar í nokkra daga eftir að hann er borinn á og ekki eru allir hrifnir af þvi. Þeir hafa þá annan kost sem er tilbúinn áburður sem líta má á sem eins konar skyndifæði fyrir flötina." Heppilegt er að hefja sumargjöfma á graskomi, sem á þessum árstíma hentar grasinu því það inniheldur meira af köfnunarefni sem eflir yfir- vöxtinn í grasinu. Þeir sem vilja einn áburð á all- an gróður í garðinum velja blákom í stað graskomsins. Hæfdegt magn er um 4 kg áburðar á hverja 100 m2.1 júní eða byrjun júlí ætti síðan að endurtaka áburðargjöf með 2 1/2 kg af blá- korni eða lífrænum áburði á hverja 100 m2. Aðspurð segir Helga að áburðarkalk megi nota allt árið meðan grasið er þurrt og að í lagi sé að gefa það samhliða öðrum áburði. „En best er að bera það á flötina á haustin. í áburðarkalkinu er örlítill áburður en aðalmark- mið þess er að gera súran jarðveg basískari og gljúpari." Mosinn Flestir sem bera áburðarkalk á grasflatir gera það vegna mosa. „En mosinn getur líka komið þótt jarðvegur sé ekki súr. Hann nær sér á strik á mildum vetrum því hann vex best þegar hitastigið er 0-4"C og grasið er visið. Þá hafa margir tekið það til bragðs að slá ekki grasið eftir 15. ágúst og eru kenningar um að mosinn nái sé ekki á strik um veturinn þar sem hann er kæfður undir grasinu. Einnig er ráð að slá grasið oftar og lítið, með sláttuvélina í hæstu stillingu þannig að það haldi meiri blaðmassa og geti þannig eflst og styrkt rót- arkerfið." Helga segir að það hjálpi einnig til að fjarlægja mosann með því að raka hann í burtu með hrífu eða nota til þess tætara. „Þegar það hefur verið gert er stungið í gras- flötina með gaffli, eins þétt og hver og einn nenn- ir og nokkuð grófum sandi stráð yfir. Ef jarðveg- ur er súr má nota skeljasand. Við þetta koma væntanlega skeflur í grasið og þá þarf að sá gras- fræi í þær og halda þeim rökum á meðan fræið spirar." Illgresið Fíflar, skriðsóley og einært illgresi hafa gert mörgum garðeigandanum lífið leitt. „Áhrifaríkast er að uppræta það jafnóðum, og fyrir alla muni áður en það blómstrar. Þá er kom- ið í veg fyrir að það sái sér i flötina og komi margfalt til baka eftir nokkrar vikur. Gæta skal þess að fjarlægja flflana eftir að þeir hafa verið slegnir því blómin halda áfram að þroskast og mynda fræ þótt þau hafi verið skorin af. Skriðsól- ey þarf einnig að fjarlægja um leið og blöð henn- ar fara að gægjast upp úr moldinni og alls ekki bíðá með það í t.d. viku. Með því er komið í veg fyrir að þær rætur sem e.t.v. verða eftir í mold- inni fái næringu til að dafna." Að lokum vifl Helga benda fóiki á að gott get- ur verið að sá stöku sinnum yfir flötina til að endumýja grasið. „Við erum afltaf að klippa af því og nær það því ekki að halda sér við nema með rótinni. En sé hugsað vel um grasið og iflgresi og mosa hald- ið í skefjum þá getur verið að engin þörf sé á því.“ -ÓSB Garðheimar Graskorn, 5 kg. 535 Blákorn, 10 kg 890 Áburðarkalk, 5 kg 465 Garðamjöl, 10 kg 1325 Blómaval 495 890 399 1386 Frjó 420 777 347 1295 MR búðin 795 400 1100 Byko 426 676 353 ekki til Húsasmiðjan j: 495 890 399_ ekki tilj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.