Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 22
22
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002
Tilvera DV
Samstiga leikskólakennarar á Sauðárkróki:
Vinkonurnar
útskrifuðust á
sama tíma
- og áttu allar böm á árinu.
Það verður ekki annað sagt en þrjár
ungar konur á Sauðárkróki hafi verið
ansi sarastiga á síðustu fimm árum.
Þetta eru þær Valbjörg Pálmarsdóttir,
Lilja Magnea Jónsdóttir og Anna María
Gunnarsdóttir, sem allar stunduðu fiar-
nám við leikskólaskor Kennaraháskóla
íslands. Og útskrifuðust i fyrravor sem
fullgildir leikskólakennarar. En það var
líka fleira sem þær tókust á við og upp-
skáru á síðasta ári. Þær áttu allar böm
á árinu, Lilja Magnea í júlílok og þær
Valbjörg og Anna María í nóvember-
mánuði, meira að segja sama daginn,
þann nítjánda.
Veittum hver annarri stuðning
„Þetta var fjögurra ára nám og þó
þetta væri talsvert mikið einstaklings-
vinna þá hittumst við reglulega og fór-
um yfir verkefni saman þegar hægt var
að koma því við. Þetta var frekar erfitt
Stunduðu fjarnám saman
nám og það hjálpaði okkm1 mjög að hitt-
ast og veita hver annarri stuðning, þótt
það væri ekki annað stundum en að
setjast niður yfir kaffibolla og ræða um
viðfangsefnin. Ég hefði að minnsta kosti
ekki viljað vera í þessu án þess að hafa
stuðning frá þeim Lilju og Önnu Maríu.
Við erum mjög góðar vinkonur og höf-
um haldið sambandinu, hittumst alltaf á
hálfsmánaðarfresti," segir Valbjörg
Pálmarsdóttir.
Fjamámið fór þannig fram að tekin
var mánaðartöm í skólanum syðra, í
ágústmánuði og í janúar. Á öðmm tím-
um var námsefnið sótt með hjálp heim-
ilistölvunnar og Netsins. „Fjamámið
gefur fólki möguleika á að vinna jafn-
hliða náminu, við vorum allar að vinna
á leikskóla á sama tíma. Það er mjög
gott að geta sannreynt fræðin á sama
tíma og maður er að læra þau í skóla,“
segir Valbjörg. Hún bætir því við að það
DV-MYND: Pi
Stöllur á Króknum
Þær útskrifuðust aliar sem ieikskóiakennarar úr fjarnámi og áttu ailar börn á
síðasta ári, Lilja Magnea Jónsdóttir með Karen Lind Skúladóttur, Anna María
Gunnarsdóttir með Gunnar Þorleifsson og Valbjörg Pálmarsdóttir með Berg-
lindi Björgu Sigurðardóttur.
hefði allt eins verið inni í myndinni í
sínu tilviki að flytja suður hefði fjamám
ekki verið í boði. Þar með sé þessi
kennslumöguleiki í raun góð byggða-
stefna. Hitt megi síðan nefha að fjarnám
sé nokkuð dýrt og þá sé gott að geta
haldið launum meðan það er stundað.
„Við þekktumst lítið áður en við byij-
uðum í þessu námi, en vissum svona
hver af annarri. Enda erum við allar
Skagfirðingar. Ég er frá bænum Egg i
Hegranesi og Lilja er frá Sleitustöðum í
Viðvíkursveit. Við vinnum báðar sam-
an á leikskólanum Furukoti sem er í
nýjasta hverfinu hér á Króknum og
erum líka í sama saumaklúbb. Og í
þeim klúbbi er hefðin sú að fara saman
í sumarferðalag. Anna María er síðan
héðan frá Króknum og hún starfar á
Glaðheimum, sem er leikskólinn hér
niðri í bæ,“ sagði Valbjörg.
Þegar vinkonunar þijár á Króknum
setast niður er það ekki síst bamaupp-
eldi sem ber á góma. „Þetta er allt mjög
á faglegum nótum, enda erum við allar
leikskólakennarar," segir Valbjörg sem
er tveggja bama móðir. Hún segir allar
aðstæður til að ala upp böm vera góðar
í höfuðstað Skagafiarðar. Umhverfið sé
rólegt og áhyggjulaust - sem vitaskuld
séu þær aðstæður sem foreldrar vilji að
böm sín alist upp við. -ÞÁ / -sbs
Fagotterí handa fjölskyldunni um helgina:
Aö mestu í léttum dúr
- segir Kristín Mjöll Jakobsdóttir fagottleikari
„Efnisskráin er að mestu í léttum
dúr, fiömg og hnyttin, en ský dregur
fyrir sólu öðru hvoru rétt eins og á
hlýjum og fögrum vordegi við sundin
blá,“ segir Kristín Mjöll Jakobsdóttir,
ein þefrra sem mynda kvartettinn
Fagotterí sem heldur tvenna tónleika
á höfuðborgarsvæðinu á næstunni.
Þeir fyrri verða í Mosfellskirkju á
sunnudaginn, 26. maí kl. 17 og hinir
síðari í Dómkirkjunni á mánudaginn,
27. maí kl. 20. Kristín Mjöll segir tón-
listina aðgengilega. „Lögin ættu að
henta allri fiölskyldunni og öllum
þeim sem kunna að meta tónlist," seg-
ir hún sannfærandi og nefnir tón-
skáldin sem við sögu koma, m.a.
Bach, Johann Strauss, Rossini og Ed-
vard Grieg.
Fagotterí er skipað fiórum fagott-
leikumm, Darra Mikaelssyni, Joanne
Ámason, Judith Þorbergsson og
Kristínu Mjöll Jakobsdóttur. Kvartett-
inn var formlega stofnaður haustið
2000 og var í fyrstu eingöngu skipaður
konum. -Gun.
•'thc perfect pizza"
Jolm Bakcr
^fckkuhós
Kór og stjórnandi
Raddböndin verða þanin í kvöld.
Vortónleikar
Karlakórs Eyjafjarðar
Hinir árlegu vortónleikar Karla-
kórs Eyjafiarðar verða haldnir í
Laugarborg, Eyjafiarðarsveit, í
kvöld, 24. mai og hefiast þeir kl.
21.00. Kórinn verður bæði með gam-
alt og nýtt efni sem margir kannast
við, bæði létt og fiörugt, ásamt vold-
ugum karlakórsverkum. Að venju
verður hljómsveit kórsins með í
nokkrum lögum, auk þess sem Dan-
íel Þorsteinsson leikur á píanó. Þá
munu einsöngvarar úr röðum kórfé-
laga stíga á svið á tónleikunum.
Kórinn stefnir á geisladisk í haust,
svona til að kpma sér betur á fram-
færi og kynna sig. Laugardaginn 11.
maí fór kórinn til Vopnafiarðar og
fékk glæsilegar móttökur hjá heima-
mönnum sem kunnu greinilega vel
að meta léttleikann og þéttleikann í
kómum. Félagar í Karlakór Eyja-
fiarðar voru 43 í vetur. Stjómandi
er Petra Björk Pálsdóttir og formað-
ur PáU E. Jóhann. -BÞ
Ghost of Mars
★ ★
Þreyttur
Carpenter
John Carpenter er
þreyttur leikstjóri.
Allur hans kraftur
er uppurinn og
nýjasta kvikmynd
hans, Ghost of Mars
er andleysið upp-
málað. Og satt best
að segja er ég orðin
úrkula vonar um að hann nái sér
nokkum tímann aftur á strik. Það er
ekkert í Ghost of Mars sem vekur upp
gamlar minningar.
Myndin gerist eftir tæp tvö hundruð
ár á Mars. Ung lögreglukona finnst ein
um borð í lest. Hún byijar að rifia upp
atburði síðustu daga. Hún hafði ásamt
sveit lögreglumanna verið fengin til að
fylgja hættulegasta glæpamanni á
Mars milli fangabúða. Þegar komið er í
fangabúðimar hafa flestir verið drepn-
ir af flokki manna sem virðast hafa í
fymdinni búið á Mars en síðan verið
útrýmt að því haldið var. í ljós kemur
að þetta em hinar mestu skaðræðis-
skepnur og hefst nú barátta upp á líf og
dauða.
Ghost of Mars er dæmigerð B-mynd
af dýrari gerðinni. Carpenter tekst
þrátt fyrir andleysið að halda sögunni
sæmilega gangandi og myndin er
aldrei leiðinleg en er heldur ekki kvik-
mynd sem vert er að muna eftir. Hvað
varðar hryllingin þá er bent á eldri
myndir Carpenter, Halloween, The Fog
og The Thing ef einhver vill fá gæsa-
húðina til að rísa. -HK
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: John Carpenter.
Bandarikin 2001. Lengd: 102 mín. leikarar:
Natasha Henstridge, lce Cube og Jason
Statham. Bönnuð bömum innan 16 ára.
Hie Order
★
Van Damme
í ísrael
Annar íbúí í
Hollywood, sem má
muna sinn fifil fegri
er Jean-Claude Van
Damme, sem er á
hraðri ferð út úr
kvikmyndabransan-
um ef einhverja ályktun má draga af
nýjustu afurð hans The Order. í mynd-
inni leikur hann fyrrverandi lista-
verkasmyglara sem verður að snúa til
fyrra lífemis þegar kemur í ljós að fað-
ir hans, sem er fomleifafræðingur, er
horfinn og með honum verðmæt skjöl
sem gætu sýnt hvar mikiU fiársjóður er
falinn. Leið Van Dammes liggur til ísr-
ael þar sem hann lendir í sundurlausri
atburðarás í leit að fóður sínum, at-
burðarás sem erfitt er að fá einhvem
botn í. Þegar sagan er komin i öng-
stræti þá er gripið til þess ráðs að
hressa upp á myndina með slagsmálum
og fær Van Damme mörg tækifæri til
að sýna slagsmálakunnáttu sina.
The Order er samtíningur úr ýms-
um áttum og lítt skemmtileg upplifún.
Það sem kemur á óvart er að Charlton
Heston bregður fyrir í fimm minútur
og hefði hann mátt að ósekju fá meiri
tíma því það er alltaf gaman að fylgjast
með þessu aldna hörkutóli sem á ekki i
erfiðleikum með taka athyghna frá
Van Damme þann stutta tíma sem
hann er á skjánum. -HK
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Sheldon Lett.
Bandarikin 2001. Lengd: 92 mín. Leikarar: Jen
Claude Van Damme, Ben Cross og Charlton
Heston. Bönnuö bömum innan 16 ára.
Setjum hjölíð í toppstand fqrir sumarið!
Vfirfarid reiöhjöl
flðeins 2.680 8f.
Vid gerum vió ctllar tegundir af hjólum
Faxafeni 14 (GÁP húsinv) 108 Reykjawik Simi: 568 7575 Opidi virka daga 10-19 laugard. 1 1-16