Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 28
* 28
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002
Sport
DV
Áhorfendur í
Jósefsdal
munu sjá
breyttan
framenda á
Mussonum
hjá Haraldi
Péturssyni en
í staö sjálf-
stæöu fjöör-
unarinnar
mun vera
komin heil
hásing. Þá
herma sögur
aö beygju-
geta Mus-
soins sé svo
mikil aö fram-
dekkin leggist
nærri þvers-
um þegar lagt
er á jeppann
aö fullu. Har-
aldur er
óhræddur viö
aö gera bylt-
ingarkenndar
tilraunir og
beitir öllu
hugviti sínu
til aö ná sigri
(mynd til
hægri).
Torfæran hefst um helgina:
Spennandi
frá upphafi
Hörkubarátta mun vafalaust
einkenna fyrstu torfærukeppni
sumarsins sem ekin verður í mal-
argryfjunum við Bolöldu, fyrir
minni Jósefsdals á sunnudaginn.
Þetta er fyrsta keppnin af átta
sem eknar verða í sumar og hvert
stig er mjög dýrmætt eins og sést
best á því að úrslitin í heimsbik-
arkeppninni í fyrra réðust á hálfu
stigi sem munaði á Gísla G. Jóns-
syni á Arctic Trucks Toyotimni
og Haraldi Péturssyni á Musso.
Þeir Haraldur og Gísli keppa í
flokki sérútbúinna bíla en keppn-
in í Götubílaflokknum er ekki síð-
ur spennandi. Þar munu Ragnar
Róbertsson á Pizza ‘67 Willysmun
og Gunnar Gunnarsson á Trúðn-
um berjast áfram ásamt fleirum.
Ellefu keppendm eru skráðir í
keppnina á sunnudaginn en hún
mun gefa stig til íslandsmeistara-
titils og heimsbikartitils. Allir
stefna þessir keppendur á sigur
og margir þeirra eru búnir að
gera breytingar á bílum sínum til
að bæta stöðu sína.
Sigurður Þór Jónsson (3. sæti i
fyrra) er búinn að setja stærri og
öflugri vél í Toshiba-tröllið auk
þess sem hann hefur bætt fjöðrun
bílsins.
Haraldur Pétursson er einnig
kominn með nýja NASCAR sex
cylendra stálblokkar keppnisvél í
stað álvélarinnar sem hann
steikti í lokapeppninni í fyrra.
Þessi á að skila 670 hestöflum með
Nitroi en viðamesta breytingin á
Mussonum hjá Haraldi er þó
framdrifið og stýrisbúnaðurinn. í
stað sjálfstæðu fjöðrunarinnar er
komin hásing og beygjuradius
bílsins hefur verið aukinn veru-
lega.
Gunnar Ásgeirsson er búinn að
setja öflugri vél í Örninn og Björn
Ingi Jóhannsson mætir með nýja
yfirbyggingu á Fríðu Grace en
hefur ekkert átt við gangverk
jeppans. Bjöm Ingi var ánægður
með Friðu Grace í lok keppnis-
tímabilsins í fyrra en hann end-
aði þá keppnistímabilið með sigri
í síðustu keppninni.
Daniel G. Ingimundarson geng-
ur þó lengst í breytingunum að
þessu sinni en hann er að ljúka
smíði á nyjum keppnisbíl og flyst
úr götubílaflokki yfir í þann sér-
útbúna.
Tveir gamalreyndir torfæru-
ökúmenn bætast í hópinn eftir
tveggja ára fjarveru en það eru
þeir Guðmundur Pálsson á Kríl-
inu og Einar Gunnlaugsson á
Venus drekanum. Þeir félagar,
sem koma báðir frá Akureyri
hafa áður tekið þátt í toppbaráttu
torfærunnar og verður fróðlegt að
sjá hvernig þeir standa sig nú, en
töluverð þróun hefur verið á
keppnistækjunum sl. tvö ár.
Torfæruáhugamenn eiga því
von á hörkuskemmtun í Jósefsdal
á sunnudaginn. -JAK
Daníel G. Ingimundarson var á kafi í jeppasmíöi á þriöjudagskvöldiö ásamt félögum sínum, þeim Óskari Haröar-
syni og Ólafi Þorsteinssyni (mynd að neðan). Ttöindamanni DV-Sport þótti þá ólíklegt aö þeim félögum tækist aö
klára Green Thunder 2 fyrir sunnudaginn en þeir voru hins vegar ekki í nokkrum vafa um þaö. Sögöu aö jeppinn
væri næstum tilbúinn. DV-myndir JAK
Gísli Gunnar Jónsson fór mikinn í keppninni í Kollafirði í fyrra en hann hreppti þá bæöi ísiandsmeistaratitilinn og
heimsbikartitilinn. „Arctic Trucks-Toyotan bíöur tilbúin og spennt," sagöi Gísii á miðvikudagskvöldið en Gísli ætlar
sér vafalaust aö bæta sjöunda íslandsmeistaratitlinum og sjötta heimsbikartitlinum í safniö í sumar.
- margir bestu keppendurnir mæta
til leiks með mikið breytta bila