Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002
29
Sport
Einar Hólmgeirsson leikur með IR.
Hann er nú þegar öflug
vinstrihandarskytta og er
tvímælalaust framtíðarmaður í
tslenska landsliðinu.
Snorri Steinn Guöjónssn leikur
meö Val. Hann hefur nú þegar
sannað sig sem einn besti leik-
stjórinn í íslenskum handbolta
þrátt fyrir ungan aldur.
Guðlaugur Þór Hauksson,
leikmaður Víkings. Hann átti
marga mjög góða leiki í vetur og
er mikil hægrihandarskytta.
Framtíöarmaöur í landsliðinu.
Halldór Sigfússon, leikmaöur KA.
Hann sannaöi þaö í nýafstaðinni úr-
slitakeppni hversu efnilegur hann
er. Arkitektinn í landsliði framtíöar-
innar ásamt Snorra Steini.
Jónatan Magnússon, leikmaður
KA. Einn af mörgum leikmönnum
KA sem eiga bjarta framtíö fyrir
sér í íslenskum handknattleik ef
ekki erlendis.
Framtíðin er björt í íslenskum handknattleik verði rétt á málum haldið:
„Guttarnir" eru góðir
og framtíðin er björt
íslenska þjóöin fylgdist af mikilli
athygli með árangri íslenska lands-
liðsins í handknattleik á Evrópu-
mótinu í Sviþjóð. Árangurinn var
afar glæsilegur og betri en um
langt skeið. Margir leikmanna ís-
lenska liðsins áttu frábært mót og
sýndu og sönnuðu að þeir eru i
fremstu röð í heiminum.
Það gleður íslenska íþróttaunn-
endur fátt meira en að eiga hand-
knattleikslandslið i fremstu röð.
Þjóðin stendur á öndinni af hrifh-
ingu þegar vel gengur. Allt snýst
um handbolta. Mikilvægt er að
gera sér grein fyrir því að til að
eiga landslið og leikmenn í fremstu
röð í heiminum þarf að hugsa vel
um starf yngri flokka. Uppeldið hjá
félögunum er afar mikilvægt. Hjá
félögunum er unnið það starf sem
öll framtíðin byggist á. Og þetta
starf virðast félögin hafa innt vel af
hendi síðustu árin.
„Guttarnir" eru góðir
Þeir sem hafa fylgst með hand-
boltanum hér heima á síðasta vetri
hafa séð mikinn fjölda af efhilegum
leikmönnum. Hver af öðrum koma
þeir fram í sviðsljósið og margir
famir að bera sin lið uppi þrátt fyr-
ir ungan aldur og litla reynslu. Hér
má nefna Snorra Stein Guðjónsson
og Markús Mána Mikaelsson hjá
Val, Amór Atlason, Halldór Sigfús-
son, Jónatan Magnússon og Einar
Loga Friöjónsson hjá KA, Guðlaug
Hauksson hjá Víkingi og Ásgeir
Þór Hallgrímsson í Haukum. Upp-
talning sem þessi verður aldrei
tæmandi og marga fleiri leikmenn
mætti nefha tO viðbótar. Bjarka
Sigurðsson í Val, Róbert Gunnars-
son í Fram, Ragnar Óskarsson sem
leikur í Frakklandi og marga fleiri.
Eftir stendur að „guttamir“ em
góðir og framtíðin til handa ís-
lenskum handknattleik er björt
sem aldrei
fyrr.
Stefán
Kristjánsson
íþróttafréttamaður
Þjálfararnir
Mér er til efs
að fleiri efni-
legir hand-
knattleiks-
menn hafi
komið fram á
sjónarsviðið á svo til sama tíma en
á undanförnum misserum. Hver
leikmaðurinn á fætur öðmm hefur
skundað fram á sjónarsviðið og
vakið undrun og áhuga þeirra sem
séð hafa.
Mikill er hlutur þjálfara liðanna
sem hér eiga hlut að máli. Atli Hilm-
arsson hefur til að mynda gert ótrú-
lega hluti með KA og undir stjóm
Geirs Sveinssonar hjá Val hafa ung-
ir leikmenn orðið mun betri. Ekki er
amalegt fyrir félögin og leikmenn
sem em að byrja að fóta sig á hálu
svelli meistaraflokkanna að eiga
slíka meistara að. Margreynda lands-
liðsmenn og atvinnumenn með lið-
um erlendis. Nýliöin vertíð hand-
knattleiksmanna var mikill sigur
fyrir báða þessa þjálfara.
Makedónía
Fram undan eru mjög mikilvægir
landsleikir gegn
liði Makedóníu.
Liðið sem betur
stendur sig í
tveimur leikjum
öðlast keppnis-
rétt á næsta
heimsmeistara-
móti sem fram
fer í Portúgal.
Efstu sjö þjóðirnar á HM öðlast síðan
sjálfkrafa keppnisrétt á næstu
ólympíuleikum í Aþenu 2004.
Skýr markmiö
Markmið HSÍ og landsliðsins er að
komast í eitt af sjö efstu sætunum í
Aþenu. Slíkum árangri fylgja mjög
myndarlegir styrkir sem HSÍ munar
mikið um. En árangurinn er það sem
öllu máli skiptir enda styrkirnir
tengdir árangri og hækka í samræmi
við góða getu.
Það að komast á ÓL í Aþenu er
afar mikilvægt. Þá ættu margir af
þeim leikmönnum sem hér eru
nefhdir að verða í sviðsljósinu, orðn-
ir fastamenn í landsliðinu og
lykilleikmenn í sínum liðum.
Allir þessir ungu leikmenn verða
að halda vöku sinni. Margir íþrótta-
menn hafa lent i því á sínum ferli að
þykja efnilegir 'og síðan verið það
alla sína tíð í íþróttunum. Vonandi
hafa þessir ungu handknattleiks-
menn skilning og þroska til að verða
enn betri þegar fram líða stundir. Þá
þarf forysta handboltans hér á landi
ekki að kvíða framtíðinni.
Markús Máni Mikaelsson í Val er
orðinn einn af máttarstólpum
liðsins. Hann er framtíðarmaður í
landsliðinu.
Ásgeir Örn Hallgrímsson í
Haukum heur vaxið mjög undir
stjórn Viggós Sgurösson. Ótrúlega
efnilegur leikmaður.
Síkin í Ferjukoti:
Sáu yfir hundrað
fiska við brúna
„Veiðin hefur tekið
verulegan kipp eftir að
hlýna tók aftur og veiði-
menn sem voru héma í
gærkvöld af Akranesi
veiddu fimm fiska á
stuttum tíma. Þetta voru
fískar frá hálfu pundi
upp í þrjú, mjög góður
fiskur," sagði Þorkell
Fjeldsted í Ferjukoti í
Borgarfirði í gærdag, en
mikið hefur verið af sjó-
birtingi í veiðiám eins og
Hvítá, Þverá og Grímsá
núna í byijun sumars.
„Ég fékk nokkra fiska
héma í netin í fyrradag
og það vom allt sjóbirt-
ingar. Laxinn er örugg-'
lega byrjaður að ganga
núna, vatnið er gott í
Hvítánni og hans tími er
aðkoma. Stærsti sjóbirt-
ingur sem hefur veiðst í
Síkjunum núna er 3
pund. Veiðimenn hafa
mikiö orðið varir við sjó-
birting í veiðiánum eins
og í Þveránni. Fyrir
nokkrum dögiun töldu
veiðimenn yfir hundrað
fiska við brúna yfir
Þverána. Þetta er óvenju-
leg sjón að sjá svona
mikið af sjóbirtingi, en
það er verst að hann
gæti étið laxaseiðin. í
Grímsá sáust líka sjó-
birtingar, svo hann er
víða þessa dagana. Það
væri kannski rétt að
leyfa veiði á þessum
fiski, nota veiðihúsin
sem era mörg héma á
svæðinu og taka hrollinn
úr veiðimönnum. Núna
er þurrt veður og vatn
aðeins að aukast í ánum,
eftir að það hlýnaði, svo
þetta lítur vel núna,“
sagöi Þorkell.
Ekki er ólíklegt að lax-
inn sé að hellast inn í
ámar. Netaveiði hófst á
þessum tíma héma áður
fyrr og þá veiddust alltaf
einhverjir laxar.
ÞorkeO hefur veriö
ófeiminn við að koma
með nýjar hugmyndir,
fjósalykt á flöskum og
safn í Ferjukoti, þar sem
allt snérist um netaveiði
og laxa fyrir tíu árum.
Núna snýst allt um að
finna nýjar hugmyndir
og koma þeim í verk.
- G.Bender
Veiðivon
Þrátt fyrir aö kjósa eigi á laugardaginn ætla
veiðimenn ekki að setja það fyrir sig og ætia að
fjölmenna upp af Norðurá og Grímsá í Borgarfiröi
til að kíkja eftir fiski. Veiðin hefst í Norðurá á
laugardaginn eftir viku.
Veiöimenn hafa mikið kíkt og einn var þama um
daginn og sá ekki neitt, sama hvað hann rýndi í
strauminn á Norðurá fyrir nokkrum dögum. Hann
labbaði upp í bQ og aftur til baka, en sá enn ekki
neitt. Og aftur labbaði hann niður að ánni en sá
ekki neitt. Hann gafst ekki upp þó hann sæi ekki
neitt. Daginn eftir mætti hann snemma og ekki sá
hann neitt. Hann er búinn að fara nokkrum sinn-
um en hefur ekki séð neitt. Þetta kallar maður
hörku.
Margir cetla að leggja leiö sína að Fiskilækjar-
vatni í Landssveit þegar vatnið verður opnað form-
lega fyrir veiðimenn 1. júní um leið og Noröurá,
Þverá og Straumarnir í Borgarfirði. Veiðin í vatn-
inu hefur oft byrjað vel fyrstu dagana.
Veiöimenn sem fóru í Skógá undir Eyjafjöllum fyr-
ir skömmu veiddu vel af silungi og þá sérstaklega
í lóninu. Þeir sem voru með fiugtma veiddu lítið en
mest þeir sem voru með maðk og spún. Veðrið var
mjög slæmt og erfitt að hemja fluguna.-G. Bender