Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2002, Blaðsíða 26
26 MfiIÐIKmMHIHS8. MAÍ 2002 H Þriðja umferð Símadeildar karla í knattspyrnu hefst í kvöld: Þurfum að laga margt - segir Njáll Eiðsson, þjálfari ÍBV, sem mætir Fram í kvöld 3. umferð Símadeildar karla í knattspyrnu hefst í kvöld þegar Framarar taka á móti ÍBV á Laugar- dalsvelli og hefst viðureignin klukk- an 19.15. Fram hefur hafið mótið ágætlega og gert jafntefli í leikjun- um tveimur á útivelli en ÍBV hefur ekki byrjað vel og tapaði óvænt á heimaveÚi fyrir Keflvikingum í síð- ustu umferð. Njáll Eiðsson þjálfari sagði ýmsar ástæður fyrir ekki betra gengi í byrjun mótsins en menn væru að koma inn eftir meiðsli og það tæki einfaldlega tíma að púsla liðinu saman. „Síðari hálfleikurinn gegn Kefl- víkingum sagði okkur það að við þurfum að laga ansi margt í okkar leik, bæði hvað lýtur að vöminni og sókninni. Mig grunaði fyrir mótið að byrjunin gæti reynst okkur erfið eins og koma er á daginn. Ég er að vona að við náum að rétta úr kútn- um en við erum ekki að missa af neinu enn þá. Eitt er víst að það kemur enginn okkur til hjálpar nema við sjálfir. Ég sagði fyrir mót- ið að það yrði jafnt og það hefur sýnt sig nú þegar það eru allir að vinna alla. Ég á von á erfiðum leik en jafnframt hörkuleik gegn Fram í kvöld. Framarar hafa á að skipa vel spilandi liði og þar innanborðs eru sterkir einstaklingar," sagði Njáll Eiðsson í samtali við DV, - Hvað hefur komið þér einna mest á óvart fram að þessu í Síma- deildinni? „Mér flnnst KR-ingar hafa verið hvað sprækastir til þessa og þeir hafa verið að leika bestu knatt- spymuna. Ósigur íslandsmeistar- anna frá Skaganum gegn nýliðum Þórsara var mjög óvæntur," sagði Njáll. Þrír leikir verða annað kvöld og leika FH-KR, Keflavik-Fylkir og ÍA- Grindavík. Umferðinni lýkur á fimmtudagskvöldið með leik KA og Þórs á Akureyri. -JKS Keane Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði og leikmaður írska landsliðsins í knatt- spyrnu sagðist í gær vilja leika áfram með írska landsliðinu. McCarthy, þjálf- ari tra, rak hann heim frá Japan og er ólíklegt að hann breyti ákvörðun sinni. „Ég vil spila fyrir írland og held að spila það þrái enginn meira að leika fyrir Ir- land en ég,“ sagði Keane í gær. Þegar Keane var spurður hvort það kæmi til greina að hann léki á HM sagði hann: „Kannski er það möguleiki, kannski. En það er stutt í fyrsta leik.“ -SK vill Knattspyrnufélagiö Augnablik ( Kópavogi fagnar 20 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni mættust Augnablik og leikmenn sem skip- uöu landsliö íslands árið 1982 í vináttuleik á dögunum. Þar voru margir frægir kappar á ferö en landsliöiö sigraði örugglega, 3-0. í landsliöinu léku meðal annarra Ásgeir Elíasson, Ómar Torfason, Arnór Guöjohnsen og margir frægir kappar aörir. Á myndinni heilsast fyrirliöar liöanna. Til vinstri er Þórólfur Árnason, framkvæmdastjóri Tals og fyrirliöi Augna- bliks og til hægri Ásgeir Sigurvinsson, fyrirliði landsliðsins. Á milli þeirra er Magnús V. Pétursson, dómari leiksins og besti og frægasti dómari íslands. Á minni myndinni er Ellert B. Schram, forseti íþrótta- og Ólympíusambands íslands og heiöursgestur á leiknum að heilsa Andrési Þéturssyni. DV-myndir E.ÓI. Afturelding lagði Sindra 0-1 Þorvaldur Guðmundsson (42.) Leikur Sindra og Afturelding- ar í 1. deild í knattspymu á Homafirði í gærkvöld var frek- ar tilkomulítill að horfa á. Sindramenn voru heldur meira með boltann framan af og fengu gott færi er Kristinn Þór Guð- laugsson komst einn inn fyrir vörn gestanna en gott skot var vel varið. Afturelding skoraði svo á 42. mínútu og var Þorvaldur Már Guðmundsson þar að verki eftir slæm mistök í vöm Sindra. Fátt markvert gerðist í siðari hálfleik og fór svo að gestimir fögnuðu vel góðum sigri. Maður leiksins: Nihad Hasecic, Sindra. -GHa Jí 2. DEILD KARLA Víðir-Skallagrímur...........2-0 Haraldur Einarsson, Atli Hólmbergs- son. Leiknir R.-Selfoss...........1-3 Gissur Jónasson - Sigurður Andrés Þorvarðarson 2, Ingþór Guðmunds- son 2. DEILD KARIA Ægir-KFS .....................0-3 Árborg-Bruni .................2-2 HSH-Fjölnir...................1-1 Reynir S.-Grótta..............4-1 Magni-Neisti H................6-0 Vaskur-Eiling.................4-1 -JKS Jón Arnór og Logi til Frankfurt Tveir af bestu leikmönnum ts- lands í körfuknattleik, þeir Jón Amór Stefánsson úr KR og Logi Gunnarsson úr Njarðvík, eru á leið til Þýskalands og munu æfa með Frankfurt Opel Skyliners sem leikur í efstu deild þar í landi. Þetta boð kom í kjölfarið á góðri frammistöðu þeirra á móti i Frakklandi sem íslenskt ungmennalið tók þátt í. Skyliners er eitt sterkasta lið Evrópu og lék í „Euroleague“ 1 vetur sem eru eins konar meist- aradeild körfunnar. Jón Arnór og Logi halda út 7. júní og verða þar yfir helgi ásamt Friðriki Inga Rúnarssyni landsliðsþjálfara. Skyliners eiga einnig tvö lið i 2. deúd og hugs- anlegt að ef samningar nást að þeir leiki með öðru hvoru liðinu í 2. deild og verði síðan fluttir yf- ir í aðalliöið ef þeir standa sig vel þar. Jón Amór sagði í sam- tali við DV-Sport að þetta sé eitt- hvað sem gaman væri að prófa. „Það er gaman að fara þama út og sjá hvernig þetta er. Mað- ur er bæði að spá í Bandaríkjun- um og einnig Evrópu fyrir næsta vetur. Eftir þessa helgi sér mað- ur svo bara til hvemig manni list á þetta.“ -Ben NBA í nótt Úrslitaleikur á vesturströndinni: Boston-New Jersey . . .92-94 (2-2) Pierce 31 (9 frák.), Walker 30 (9 frák.), Rogers 12, Anderson 11 - Kittles 22, Van Hom 21 (10 frák.), Kidd 19 (9 frák., 9 stoðs.), Harris 12. Fimmti leikur er í New Jersey á morgun. -EK Gunnar Þór Gíslason, stjórnarformaður Stoke: „Steve Cotterill er mjög metnaðarfullur" Steve Cotterill var í gær ráðinn nýr knattspymustjóri hjá Stoke sem vann sér sæti í 1. deild í vor. Cotterill tekur við starfinu af Guðjóni Þórð- arsyni en ákveðið var á dögunum að framlengja ekki samningi hans við félagið. í yfirlýsingu Gunnars Þórs Gíslasonar, stjórnarformanns Stoke, á blaðamannafundi í gær segir m.a. að Cotterill sé metnaðarfuflur þjálf- ari sem stefnir að því að komast enn lengra í sínu fagi. Geröur var þriggja ára samningur við Cotterill, sem er 37 ára gamall, og þykir hann einn efnilegasti knattspymustjóri Bretlandseyja nú um stundir. -JKS Tryggvi skoraði og lagði upp eitt Tryggvi Guðmundsson skoraði eitt marka Stabæk sem vann stórsigur, 5-0, á efsta liðinu, Molde, í norsku úrvalsdeildinni í knattspymu í gær- kvöld. Tryggvi gerði þriðja mark leiksins og hefur þar með skorað fimm mörk í deildinni en markahæstur er Harald Brattbakk hjá Rosenborg með sex mörk. Marel Baldvinsson lék ekki með Stabæk vegna meiðsla sem hann hlaut i landsleiknum við Norðmenn í síöustu viku. Jóhann B. Guðmundsson var i byrjunarliði Lyn en var skipt út af á 72. mínútu. Lyn er í efsta sætinu með 21 stig, Molde hefur 17 stig, Odd Grenland 16 stig og Stabæk 15 stig. -JKS keppni í hveriu orði Rafpostur: dvsport@dv.15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.