Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2002, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002
Fréttir DV
Stuðmenn að
halda í víking
Stuömenn, hljómsveit allra iands-
manna, lætur ekki staðar numið
frekar en fyrri daginn og ætlar sér
stóra hluti í sumar. Auk þess að
fara í stuttar ferðir um ísland í sum-
ar og leika á dansleikjum er stefnan
tekin til Þýskalands í júní. Að sögn
Jakobs Frímanns Magnússonar
verður farið í tvær ferðir til
Þýsklands og leikið á tónleikum.
Sumrinu lýkur síðan á því að boðið
verður til mikillar hátiðar um versl-
unarmannahelgina þar sem auk
Stuðmanna koma fram Jón Gnarr,
XXX Rottweiler hundar, Helga
Braga, í svörtum fótum, Spaugstofu-
menn og fleiri. -HK
Kjaradeila á LSH:
Deildum hugsan-
lega lokað
„Kjaradeilan er í hnút eins og
er,“ sagði Jóhannes M. Gunnarsson,
framkvæmdastjóri lækninga hjá
Landspítalanum, i samtali við DV í
morgun.
Ófremdarástand blasir við hjá
sjúkrahúsinu þar sem 34 læknanem-
ar hafa hótað að mæta ekki til
vinnu nk. mánudagsmorgun eins og
spítalinn gerði ráð fyrir. Lækna-
nemarnir telja að þeim hafi verið
lofað ákveðnum kjörum en spítal-
inn hafi svikið þau loforð. Alls ber
um 35% af launafjárhæðum á miUi
aðila.
Engar líkur eru á að hægt verði
að fá fólk í stað þessa 34 nema í
sumar og því er staðan mjög alvar-
leg. „Við erum ekki undir það búin
að setja annan mannskap i þetta.
Sumarleyfm fara brátt að ná há-
marki og þetta gæti því þýtt að við
yrðum að minnka starfsemina," seg-
ir Jóhannes
- Er það ekki mjög óþægileg staða
að starfsemi spítalans sé nánast í
gíslingu vegna þessarar deilu?
„Jú, það er ákaflega óþægilegt að
stofnun sem veitir svona mikilvæga
stofnun sé tekin í gislingu." -BÞ
Samherjaveldið vex og vex:
Eiga hlut í tveim
tugum fyrirtækja
- fá stóraukin ítök með kaupum á hlut í SR-mjöli
Samherjaveldið heldur
stöðugt áfram að vaxa. Það má
því með sanni segja að for-
stjóri Samherja, Þorsteinn
Már Baldvinsson, hafi komið
ár fyrirtækisins vel fyrir borð
með gríðarlegum fjárfesting-
um í sjávarútvegi víða um
land og erlendis í fiskvinnsl-
um, útgerð, rækjuvinnslu,
fiskeldi, kjúklingaeldi,
mjölvinnslum og eignarhalds-
félögum. Samkvæmt ársreikningi
síðasta árs átti félagið stóra hluti í
um tveim tugum fyrirtækja auk
minni eignarhluta í fleiri óskil-
greindum félögum.
Stór hluti í SR-mjöli
Einn liður í auknu veldi Samherj-
amanna varð þegar eignarhlutir i
SR-mjöli skiptu að stórum hluta um
eigendur í fyrradag í um tveggja
milljarða viðskiptum. Þá keypti
Síldarvinnslan í Neskaupstað ráð-
andi hlut í fyrirtækinu og á nú 29%
hlut. Var það að nafnvirði tæplega
300 miljónir króna að verðmæti um
1,6 milljarðar króna. Þá keypti Sam-
herji einnig hluti í SR-mjöli sama
dag fyrir nærri 100 milljónir króna
að nafnverði, eða sem svarar um
hálfum milljarði króna. Eignarhlut-
ur Samherja í SR-mjöli er nú um
13%. Samherji á fyrir nærri fjórð-
ungshlut í Síldarvinnslunni. Sam-
anlagður hlutur Samherja og Síldar-
vinnslunnar í SR-mjöli eftir kaupin
í fyrradag er um 42%. SR-mjöl á og
rekur fimm fiskimjölsverksmiðjur í
þremur landsfjórðungum. Þær eru á
Siglufirði, Raufarhöfn, Seyðisfirði,
Reyðarfirði og í Helguvík.
Gríðarlegar eignir
í upphafi árs var skráð í eigu Sam-
herja dótturfélagið Onward Fishing
Company Ltd. Mikið tap var á þvi fé-
lagi á árinu, en það fjárfesti eigi að
síður 33,3% hlut í fyrirtækinu Ullori-
aq. Þá stofnaði Samherji á síðasta
ári útgerðarfyrirtækið Hjalteyrina
sem er í 100% eigu Samherja.
Þrettán hlutdeildarfélög
Þá átti Samherji eignar-
hluti i 13 hlutdeildarfélögum
í árslok. Var á árinu einnig
keyptur 45,3% hlutur í Silf-
urstjörnunni hf., 18% hlutur
í Sæsilfri hf., 14,7% hlutur í
íslandslaxi hf., 8% hlutur í
Snaéfugli ehf. og 50% hlutur
í Sæblikanum ehf.
í eigu móðurfélagsins var
því samkvæmt ársreikningi
2001, 35% hlutur í FBA GmbH í
Þýskalandi, 30% hlutur í Framherja
Sp/f í Færeyjum, 27,6% hlutur í
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf., 49%
hlutur í Rifi ehf. í Hrísey, 50% hlut-
ur í Segahold Ltd. í Bretlandi, 64,7%
hlutur í íslandslaxi hf. í Grindavík,
48,4% hlutur í Silfurstjömunni hf. í
Öxarfirði, 55% hlutur í Sæfugli ehf.
i Fjarðabyggð, 53% hlutur í Sæsilfri
hf. í Fjarðabyggð, 43,2% hlutur í
SNS holding Ltd. í Kanada, 50%
hlutur í Fell Ltd. í Reykjavík, 85%
hlutur í Víkurlaxi ehf. í Grýtu-
bakkahreppi og 50% hlutur í Sæ-
blikanum ehf. á Akureyri.
Minni eignarhlutir í öðrum félög-
um eru 16,5% í Fiskeldi Eyjafjarðar
hf., 18,1% hlutur í Genis hf.,13,3%
hlutur í íslandsfugli ehf.,1,2% hlut-
ur í SÍF hf. og óskilgreindur hlutur
í öðrum félögum.
Verksmiðjuhús víða um land
Þá á Samherji miklar eignir víða
um land. Þar má nefna verksmiðjuhús
á Akureyri, Dalvík, Grindavík, Eski-
firði, Árskógssandi, Hrísey, Ólafsvík
og á Stöðvarfirði. Þessi hús eru að
brunabótamati tæpir 3,2 milljarðar.
Tólf skip
Þá voru 12 skip skráð í eigu fé-
lagsins og var bókfært verð þeirra
nærri 5 milljarðar króna, en vá-
tryggingarverð er skráð tæpir 6,5
milljarðar króna. Þetta eru Akur-
eyrin EA 110, Baldvin Þorsteinsson
EA 10, Björgúlfur EA 312, Björgvin
EA 311, Hríseyjan EA 410, Kamba-
röst SU 200, Margrét EA 710, Odd-
eyrin EA 210, Seley SU 210, Vilhelm
Þorsteinsson EA 11, Víðir EA 910 og
Þorsteinn EA 810. -HKr.
Vilhelm Þorsteinsson EA 11
Þetta er nýjasta skipiö í flota Samherja og er nú eitt af 12 skipum félagsins
hér á landi. Upphaf sögu félagsins má hins vegar rekja til hins fræga
aflaskips Akureyrinnar EA 110.
Þorsteinn Már
Baldvinsson.
Þotuflugklúbbur Aviace:
Aðild kostar frá 7-92
milljónir króna á ári
- flugtíminn með einkaþotu er á 56-73 þúsund krónur
Kaup flugfélagsins Aviace AG í
Sviss á 112 Eclipse 500 þotum hafa
vakið mikla athygli. Félagið, sem er
undir framkvæmdastjórn Hilmars
Hilmarssonar, vinnur nú að stofnun
flugklúbba í flestum Evrópulöndum.
Flugklúbbur af þessari stærð-
argráðu er nýtt fyrirbæri í Evrópu
þó að minni flugklúbbar, sérstaklega
innan stórra fyrirtækja, hafi átt vax-
andi fylgi að fagna. Verða flugklúbb-
ar Aviace lykillinn að markaðssetn-
ingu flugs með þessum sex farþega
Eclipse-þotunum. Boðið verður upp
á fimm mismunandi aðildarpakka að
flugklúbbunum, standard, silfur-,
gull-, platínu- og demantsaðild. Fer
aðildarkostnaður eftir því hversu
mikið menn hyggjast fljúga. Er að-
göngugjaldið frá 75.000 dollurum
(tæpar 7 milljónir króna) með venju-
legri (standard) aðild til 1000.000 doll-
arar (ríflega 92 milljónir króna) með
demantsaðild á ári. Ódýrasta gjaldið
miöast við að flogið sé að lágmarki í
50 tíma á ári, en hæsta gjaldið mið-
ast við að lágmarki 700 tíma á ári. Þá
kostar flugtíminn með standard að-
ild um 73 þúsund krónur niður í
tæpar 56 þúsund krónur fyrir klúbb-
félaga með demantsaðild. Mánaðar-
leg umsjónarþóknun er síðan um 85
þúsund krónur. Klúbbfélagar geta
pantað vél með 12 tíma fyrirvara alla
daga ársins.
íslendingurinn á bak viö Aviace
Hilmar Hilmarsson, sonur Hilm-
ars A. Kristjánssonar, hefur komið
viða við í viðskiptalífinu hérlendis
og erlendis. Hann nam rafeindafræði
í Suður-Afríku og vann við þá grein
í Pretoríu. Þá lærði hann flug á ís-
landi og var hann m.a stjórnandi
Flugskólans Lofts. Þá var hann með
Kvótamarkaðinn, var stjómarmaður
í eignarhaldsfélaginu KK hf. og
einnig Gabbró hf. Hilmar komst í
fréttir er hann keypti um áramótin
2000-2001 ásamt hópi fjárfesta i Sviss
(Swiss Investor Group) flugvélaverk-
smiðjumar Pilatus Aircraft Ltd.
Með útibú á íslandi
Aviace AG er þegar komið með
starfsemi á Islandi og telur forsvars-
Einkaþota af Eclipse-gerð
íslendingum sem og öörum Evrópu-
búum gefst nú tækifæri á aö gerast
félagar í flugklúbbi svissneska fé-
lagsins Aviace fyrir litlar 7-92 milljón-
ir króna á ári.
maöur þess hér heima, Kjartan
Jónsson, að flug með vélum félags-
ins verði vel samkeppnisfært við
Business Class sæti stóru flugfélag-
anna. Eclipse-þotumar eru taldar
byltingarkenndar, en þær eru fram-
leiddar hjá bandaríska flugvéla-
framleiöandanum Eclipse Aviation
Corporation. Að mati Vem Rabum,
stjórnarformanns Eclipse Aviation,
stendur engin þota Eclipse-vélunum
á sporði hvað hagkvæmni snertir.
Vélum Aviace er ætlað að fljúga
til allra Evrópulanda og þá ekki síst
á minni flugvelli sem ekki hefur
verið hægt að fljúga til beint með
stóru flugfélögunum. Með þessu
hyggst Aviace geta boðið mun fleiri
en áður að nýta sér kosti ferðalaga
með einkaþotum.
Verð hverrar Eclipse 500 þotu er
ríflega 837 þúsund dollarar, eða um
77 milljónir króna. Er það ekki talið
vera nema einn fjórði til einn þriðji
af verði ódýrustu þotna og skrúfu-
þotna i þessum stærðarflokki til
þessa. Fullt flugþol vélanna er 1.600
mílur eða 2.965 km kílómetrar og há-
marksflughæð 41 þúsund fet. Vélarn-
ar em taldar bæði ódýrari í smíði og
viðhaldi en áður hefur þekkst. Ekki
er heldur þörf á nema einum flug-
manni í Eclipse-þotunum í stað
tveggja í sambærilegum vélum.
Kostnaður á því að vera sá lægsti
sem um getur í slíkum þoturekstri.
-HKr.
Blff
Gagnrýnir tillögur ESB
Sjávarútvegsráð-
herra, Árni
Mathiesen, gagn-
rýnir tillögur fram-
kvæmdastjórnar
Evrópusambandsins
um breytingar á
sjávarútvegsstefn-
unni. Hann telur tfl-
lögumar ekki ganga nógu langt. Þá
gagnrýnir ráðherra tillögur um úr-
eldingu á fiskveiðiflotanum og segir
þær leiða af sér aukna rikisstyrki.
Spilavíti í háloftum
Fyrirtæki í ísrael mun hafa óskað
eftir því að fá leigða eina af 747-þot-
um flugfélagsins Atlanta. TOgangur-
inn var að reka spflavíti í háloftun-
um yfir Mið-Austurlöndum. ísrael-
amir munu hafa sent fyrirspum
um málið tO Atlanta en síðan hefur
ekkert heyrst frá þeim.
Enn í lífshættu
Maðurinn sem brenndist Ola þegar
risíbúð hans við Laugaveg varð eldi
að bráð á laugardag er enn talinn í
lífshættu. Maðurinn sem varð fyrir
likamsárás I miðborginni um helgina
er einnig talinn enn í lífshættu. Báð-
um mönnum er haldið sofandi og eru
þeir í öndunarvél. mbl.is sagði frá.
Vilja nettengingu
ÍE hefur sótt um leyfi Persónu-
verndar tO að fá að nettengja gagna-
gmnn á heObrigðissviði. Persónu-
vernd vísar svari sínu tO ráöuneytis-
ins með vísan í lög um gagnagrunn á
heObrigðissviði þar sem segir að
hann megi ekki flytja úr landi og úr-
vinnsla megi einvörðungu fara fram
hérlendis. RÚV greindi frá.
Vill komast heim
Maður á áttræðisaldri, sem var
hnepptur í varðhald í byrjun janúar
eftir að kona hans féfl fram af svöl-
um á eyjunum og lést, kvað skv.
frétt mbl.is vera orðinn langeygur
eftir að komast heim en hann er í
farbanni. í fyrstu var maðurinn
grunaður um að hafa hrint konu
sinni en íslenskt vitni staðhæfir að
um slys hafi verið að ræða.
Dúxar fá frítt
Verzlunarskólinn hyggst bjóöa
grunnskólanemendum, sem hlutu
hæstu einkunn á grunnskólaprófi,
fría skólavist frá og með næstkom-
andi hausti.
Albaninn í farbanni
Albanskur karlmaöur sem grun-
aður er um að smygla fólki var í
gær úrskurðaður í áframhaldandi
farbann. Það var Héraðsdómur
Reykjaness sem feUdi úrskurðinn
og verður manninum að líkindum
birt ákæra vegna málsins í dag.
Úrslitin kærö?
Framsóknarmenn á Akranesi
hafa hug á að kæra úrslit kosning-
anna í sveitarfélaginu eða óska eftir
því að atkvæði verði talin á ný.
Ástæðan mun sú að aðeins munar
þremur atkvæðum á þriðja manni
Framsóknarflokksins og íjórða
manni Sjálfstæðisflokks. RÚV
greindi frá. -aþ
Leiðrétting
Ranglega var farið með nafn
Nönnu Kristínar Antonsdóttur í TO-
verunni i gær. Nanna Kristín var
sögð HaUdórsdóttir. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
Leiörétting
í smáviðtali við Öldu Ármönnu
myndlistarkonu, sem birtist í síð-
asta föstudagsblaði, kom fram að
hún hefði drifiö sig í Myndlistar-
skóla Reykjavíkur. Það er að sönnu
rétt að þar hefur listakonan komiö
við en sina aðalmenntun sem mynd-
listarkona fékk hún samt í Mynd-
lista- og handíðaskólanum og skal
því hér tO haga haldið.