Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2002, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002
DV
Fréttir
Sveitarstjórnarkosningarnar sagðar gefa litla vísbendingu um þingkosningar:
Óvenjulegt að stjórnar-
flokkar gefi ekki eftir
Nýafstaðnar sveitarstjómarkosn-
ingar gefa takmarkaðar vísbend-
ingar um hugsanlegt gengi flokk-
anna i þingkosningum að ári. Þetta
er samdóma álit þeirra Ólafs Þ.
Harðarsonar og Gunnars Helga
Kristinssonar, sem báðir era pró-
fessorar í stjómmálafræði við Há-
skóla íslands.
Varað við oftúlkun
Athygli áhugamanna um stjórn-
mál hefur ekki síst beinst að gengi
Samfylkingarinnar og Vinstri
hreyflngarinnar - græns framboðs.
Styrkleikahlutföll þeirra í nýaf-
stöðnum kosningum komu mörg-
um á óvart og eru þvert á skoðana-
kannanir um fylgi flokkanna á
landsvísu; Samfylkingin fékk að
jafnaði um þriðjung atkvæða en
vinstri grænir urðu víðast hvar að
sætta sig við innan við 7% fylgi.
Sumir hafa talið þetta til marks um
að vinstri grænir hafi verið stórlega
ofmetnir í skoðanakönnunum um
fylgi flokkanna á landsvísu um leið
og Samfylkingin hafi fest sig í sessi
sem 30% flokkur eða þaðan af stærri.
Gunnar Helgi segir þetta oftúlk-
un; Samfylkingin hafl aðallega boð-
ið fram þar sem fylgi hennar er til-
tölulega mikið. „Ég held að 30% sé
ofmat á Samfylkingunni á lands-
vísu. Hún býður viða ekki fram og
það er væntanlega á stöðum þar
sem hún er - a.m.k. sums staðar -
ekki sérstaklega sterk,“ segir
Gunnar Helgi.
Gunnar Helgi telur ekki að
vinstri grænir þurfi að kvíða þing-
kosningunum. Flokkurinn hafi ver-
ið að bjóða fram í fyrsta sinn til
sveitarstjóma; í þingkosningunum
að ári njóti hann þess væntanlega
að hann hafi sterkum leiðtogum á
að skipa á vettvangi landsmálanna.
Ólafur Þ. Harðarson tekur undir
Fylgi þar sem boðið 1998
var fram í eigin nafni: 2002
Tölurnar eru fengnar úr kosningagrunni
RÚV og Kuggs.
Tölurnar undir listabókstöfunum sýna fjölda allra
greiddra atkvæ&a ó stö&um þar sem viðkomandi
flokkur bauó fram. Samtals voru þannig greidd
ríflega 152.000 atkvæ&i í sveitarfélögum þar
sem Sjólfstæ&isflokkurinn bauó fram o.s.frv.
það að i niðurstöðum helgarinnar
felist ekki vísbendingar rnn að
Samfylkingin fái miklu meira en
vinstri grænir í þingkosningunum;
mjög lítið sé hægt að lesa út úr
þeim um líkleg úrslit að ári.
Stjórnarflokkarnir sterkir
Ólafur segir að úrslitin séu góðs
viti fyrir stjómarflokkana þótt vit-
anlega sé ekkert í hendi þeim efn-
um. „Tilhneigingin hefur frekar ver-
ið í þá áttina aö stiómarflokkarnir
gefi eftir í sveitarstjórnarkosningum
en stjórnarandstaðan vinni á. Þetta
á hins vegar ekki við um núverandi
stjórnarflokka, hvorki í þessum
kosningum né 1998.“
Ólafur rifjar upp að i sveitar-
stjórnarkosningum 1974-1994 hafi
Sjálfstæðisflokkurinn til skiptis
verið í stjórn og stjórnarandstöðu á
Alþingi. Flokknum hafl á þessu
tímabili undantekningalaust geng-
ið verr í sveitarstjómarkosningum
þegar hann var I stjóm. Niðurstað-
an nú og 1998 feli því í sér breyting-
ar hvað þetta varðar.
Gunnar Helgi bendir á að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi fengið góða
kosningu í sveitarstjórnarkosning-
unum 1998. í því ljósi sé merkilegt að
fylgið dali ekki nema örlítið, það sé
til marks um ágæta stöðu flokksins.
„Viövera"
Þótt ekki sé talin ástæða til að
draga víðtækar ályktanir af kosn-
ingunum um komandi þingkosn-
ingar segja þær ákveðna sögu.
Gunnar Helgi segir að árangur
Samfylkingarinnar sýni til dæmis
að flokkurinn virðist hafa yfir að
ráða öflugra skipulagi á mörgum
stöðum á landinu en vinstri græn-
ir, sem eigi líklega lítið skipulag til
að byggja á. „En nú orðið ráðast
kosningar að miklu leyti í sjón-
varpi þannig að það er óvist hve
miklu máli þetta skiptir," segir
Gunnar Helgi. Mikilvægi þess að
hafa yfir öflugri „flokksvél" að
ráöa kunni m.ö.o. að hafa minnkað.
Þrátt fyrir misöflugt skipulag buðu
þessir tveir flokkar hins vegar
nokkmn veginn jafnvíða fram í eigin
nafni. Á stöðum þar sem Samfylking-
in var í framboði voru samtals greidd
28,6% atkvæða og hjá vinstri grænum
er hlutfallið 27,6%. „Viðvera" fram-
boðanna - ef þannig mætti að orði
komast - var þannig jafnmikil.
Um leið er ljóst að fylgið sem þau
fengu - hjá rétt ríflega fjórðungi
kjósenda - er mun minni vísbend-
ing um styrk þeirra á landsvísu en
fylgi Sjálfstæðisflokksins og Fi'am-
sóknarflokksins, sem stóðu annars
vegar 93,3% kjósenda til boða og
hins vegar 48,1%.
Þess ber þó að geta að ýmis
framboð, sem ekki eru tekin með í
þennan reikning, mætti með réttu
kalla Samfylkingarframboð þó að
þau hafi ekki gengið til kosninga
undir því merki. Þetta á t.d. við
um Akraneslistann, Grindavíkur-
listann og fleiri. Sé öllum þessum
hreyfxngum bætt við framboð
Samfylkingarinnar eykst „við-
vera“ hennar upp í 61,5%. Við
þetta minnkar hins vegar fylgi
hennar líka úr 32% í 30,5%.
Könnun marktækari
Ólafur Þ. og Gunnar Helgi eru
sammála um að almennt hafi sveit-
arstjómarkosningar litið forspár-
gildi um næstu þingkosningar á
eftir. „Menn geta velt þessu fyrir
sér og borið saman á alla kanta, en
það getur mikiö breyst og þetta eru
því takmarkaðar vísbendingar,"
segir Ólafur.
Til að meta styrk flokkanna á
landsvísu væri miklu fróðlegra að
fá nýja skoðanakönnun en að rýna
í úrslit sveitarstjórnarkosninga
segir Gxmnar Helgi. „Sveitarstjórn-
arkosningar ráðast ekki síst af
staðbundnum þáttum. Þess vegna
eiga menn ekki að reyna að lesa of
mikið í þær.“
Fréttablaöiö:
Frjáls fjölmiðlun ekki
lengur hluthafi
- stærsti eigandinn er C-L Consulting SA
Hlutaskrá Fréttablaðsins
C-L Consulting SA er stærsti eigandi Fréttablaösins, samkvæmt hlutaskrá
þess, meö 27,5 prósenta hlut, en ekki hefur fengist staöfest hver á þaö
fyrirtæki.
Frjáls fjölmiðlun, sem var aðal-
eigandi Fréttablaðsins, er ekki leng-
ur í hópi hluthafa samkvæmt upp-
lýsingum úr hlutaskrá Fréttablaðs-
ins. Stærsti einstaki eigandinn er C-
L Consulting S.A., með 27,5% hlut,
en ekki hefur fengist staðfest hver á
það fyrirtæki.
Þá hefur Saxhóll ehf. ekki keypt
meirihluta í Fréttablaðinu eins og
þrálátur orðrómur hefur verið um
að undanfómu. Einar öm Jónsson
framkvæmdastjóri staðfesti það í
samtali við DV í gær. Hann sagði að
Saxhóll ætti hlut í Fréttablaðinu en
staða þess eignarhluta hefði ekkert
breyst. Varðandi það hvort Saxhóll
hygðist auka sinn hlut sagði Einar
Öm: „Við eigum í þessu og höfum
ekki bætt við okkur en við útilokum
ekkert." Einar vildi þó ekki stað-
festa hver raunveruleg eign Saxhóls
í Fréttablaðinu væri.
Samkvæmt upplýsingum úr
hlutaskrá Fréttablaðsins þá á Sax-
hóll ehf. 24,5 milljóna króna hlutafé
í fyrirtækinu, eða 24,5%, og er næst-
stærsti einstaki hluthafinn.
Hluthafar í Fréttablaðinu ehf. eru
sex aðilar samkvæmt gögnum fé-
lagsins:
C-L Consulting S.A. er með 27,5%
hlut, Saxhóll ehf. með 24,5% hlut,
Eignarhaldsfélagið Gimli ehf. með
20% hlut, Eignarhaldsfélagiö Reynir
ehf. með 16,8% hlut, Eyjólfur
Sveinsson með 7,5% hlut og
Dægradvöl ehf. með 3,7% hlut í fé-
laginu.
Ekki náðist í Svavar Ásbjöms-
son, fjármálastjóra Fréttablaðsins, í
gær vegna stöðu mála. Ekki hefur
heldur fengist staðfest hverjir raun-
verulegir eigendur C-L Consulting
S.A. eru eða hverjir eiga Gimli ehf.,
sem stofnað var af Eignarhaldsfélag-
inu MBJ ehf. í stjórn þess félags
sitja Sveinn Andri Sveinsson lög-
maður sem formaður og í vara-
stjórn er Hilmar Sigurbjömsson.
Framkvæmdastjóri Gimlis er Helgi
Jóhannesson lögfræðingur. Stjórn-
arformaöur Eignarhaldsfélagsins
Reynis ehf. er Jón Gunnar Zoéga
lögmaöur en enginn framkvæmda-
stjóri er skráður hjá félaginu.
Dægradvöl ehf. er svo í eigu Öldu
Lóu Leifsdóttur, eiginkonu Gurmars
Smára Egilssonar, ritstjóra Frétta-
blaðsins. Hún er jafnframt skráð
framkvæmdastjóri Dægradvalar.
-HKr.
jíl7íi/Í5JJ
REYKJAViK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 23.22 23.07
Sólarupprás á morgun 03.28 03.13
Síódegisflóö 20.38 13.35
Árdegisflóö á morgun 09.02 01.11
Hlýtt yfir daginn
Austlæg átt, 5-10 m/s og skýjað að
mestu og þokusúld eða dálítil
rigning um landið austanvert og við
norðurströndina. Annars skýjað
með köflum og skúrir, einkum
síðdegis. Hiti víða 10 til 17 stig að
deginum
K
Skýjað en áfram hlýtt
NA-átt, 5-10 m/s og skýjað að mestu
og dálítil úrkoma um landið
austanvert og norðamvert. Annars
skýjað með köflum og skúrir. Hiti
víða 10 til 17 stig.
B
Fóstudagur
Hití 6"
til 14*
Laugardagur Sunnudagur
Hití r
tillS”
Vindur: Vindur:
5-10's 3-8“/*
Hiti 0“
tilO*
Vindur:
3-8“/*
H»e breytlleg
ótt, skýjaö aö
mestu og skúrir.
Sums staöar
þokuloft.
Breytileg ótt og
bjart á köflum
en hastt vlö
síödegisskúrum.
Áfram hæg
breytileg átt og
víöa bjart í
veöri. Hlýtt yfir
daginn, einkum
»tH.
mnm -j
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinnlngskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviöri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
AKUREYRI BERGSSTAÐIR BOLUNGARVÍK EGILSSTAÐIR skýjaö skýjaö alskýjað þokumóöa 7 6 6 8
KIRKJUBÆJARKL. KEFLAVÍK RAUFARHÖFN REYKJAVÍK STÓRHÖFÐI BERGEN alskýjaö úrkoma þoka skýjaö rigning skýjaö 8 8 4 9 7 14
HELSINKI heiöskírt 15
KAUPMANNAHÖFN alskýjað 12
ÓSLÓ alskýjaö 11
STOKKHÓLMUR 15
ÞÓRSHÖFN alskýjaö 9
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 16
ALGARVE heiöskírt 18
AMSTERDAM léttskýjaö 12
BARCEL0NA
BERUN þokumóöa 15
CHICAGO þokumóöa 18
DUBUN súld 9
HAUFAX léttskýjaö 9
FRANKFURT rigning 13
HAMBORG léttskýjaö 15
JAN MAYEN súld 4
LONDON skýjaö 12
LÚXEMBORG skýjaö 11
MALLORCA léttskýjaö 14
MONTREAL heiðskírt 18
NARSSARSSUAQ skýjaö 6
NEW YORK þokumóöa 19
0RLAND0 heiöskírt 22
PARÍS léttskýjað 9
VÍN skýjað 15
WASHINGT0N alskýjaö 17
WINNIPEG heiöskírt 14
BYGGT A UPPLYSINGUM FRA VEÐURSTOFU ISLANDS