Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2002, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2002
DV
Fréttir
Mengun í Elliöavatni:
Oftar en ekki ólykt
af úrganginum
- segir íbúi við Vatnsendablett
íbúi við Elliðavatn held-
ur því fram að mengun sé í
vatninu og svo hafi veriö
um nokkurt skeið.
„Ég á bústað sunnanmeg-
in við vatnið og til hliðar
við hann er ræsi sem úr
kemur alls kyns viðbjóð-
ur,“ segir Unnur Guðjóns-
dóttir, formaður Kina-
klúbbsins og íbúi við
Vatnsendablett við Elliða-
vatn. Unnur sagði í samtali við DV
að hún hefði orðið vör við mengun-
ina fyrir löngu. Hún sendi Kópa-
vogsbæ erindi um málið 4. maí síð-
astliðinn þar sem hún óskaði eftir
úrbótum. Hún segist ekki enn hafa
fengið svar við erindinu.
Að sögn Unnar er oftar en ekki
ólykt af úrganginum og segir hún
ástandið slæmt, í raun algerlega
óviðunandi.
„Mér dettur ekki í hug að
sleppa úrgangi í vatnið og
hef ekki trú á öðru en ná-
grannar mínir hér í kring
séu sama sinnis," segir
Unnur.
„Við könnumst ekkert
við þetta,“ sagði Guðmund-
ur Einarsson, framkvæmda-
stjóri heilbrigðiseftirlits
Kópavogsbæjar, þegar DV
spurði hann um meintan
ræsisleka í Elliðavatni.
Guðmundur segir að ekki eigi að
hleypa neinu út í vatnið. Hann
kveðst jafnframt ekki hafa fengið
bréf Unnar í hendur.
Bæjaryfirvöld séu hins vegar
reiðubúin að grípa til ráðstafana ef
ástæða þykir til. „En ef það er eitt-
hvað til í þessu þá munum við
vissulega kanna málið,“ sagði Guð-
mundur. -vig
Unnur
Guðjónsdóttlr.
DVJHYND UNNUR GUÐJÓNSDÓTTIR
Vlð Elliöavatn
íbúar við Elliðavatn könnuðu ástand vatnsins á dögunum. Efgrannt er skoðað má sjá hvernig úrgangsefni liggja á víð
og dreifog hvít slikja er við vatnsbakkann. Unnur segir mengun af þessu tagi, sem oft sé illa lyktandi, hafa veriö
viðvarandi við Elliðavatn um nokkurt skeið. Hún hefur sent yfirvöldum í Kópavogi erindi vegna málsins.
Miövikudaginn 5. júní næstkomandi fylgir DV
blaðaukinn Hús og garðar - glæsilegur blaðauki
um húsið, garðinn, viðhald þeirra og umhirðu.
Auglýsendur, athugið að síðasti skiladagur
auglýsinga er föstudagurinn 31. maí næstkomandi.
Auglýsingadeild
550 5720
Ekið án öryggisbelta:
Sektin 4000 kr. á mann
Nú stendur yfir Norræn umferð-
arvika sem hófst 27. maí og lýkur
næsta mánudag. Meðan á henni
stendur verður lögreglan með sér-
staka áherslu á umferðarmál og þá
sérstaklega á notkun á svokölluðum
vemdarbúnaði, þar með talið örygg-
isbeltum.
„Við verðum sérstaklega grimmir
gagnvart því að fólk noti öryggis-
belti en eins og kunnugt er leiðir
notkunarleysi þeirra til sekta,“ seg-
ir Ragnar Ámason, varðstjóri hjá
lögreglunni í Reykjavík.
Sektin við því að nota ekki belti
er 4000 kr. á hvem einstakling í
bílnum þannig að um nokkrar fjár-
hæðir getur verið að tefla. „Þótt
ökumaður beri alltaf ábyrgð á því
sem fram fer í farartæki því sem
hann stýrir fellur ekki öll sektin á
hann heldur á hvem og einn sem
ekki er í belti. Þetta á við um alla þá
sem orðnir em 15 ára og eldri og
þar með sakhæfir. Ökumaður er síö-
an ábyrgur ef yngri einstaklingar,
og þar með ósakhæfir, eru ekki í
beltum og fellur sekt vegna þeirra á
hann,“ segir Ragnar.
-ÓSB
Spennið beltin!
Lögregla leggur sérstaka áherslu á notkun öryggisbelta um þessar mundir.
Þeir sem ekki spenna beltin geta þurft að greiöa fjögur þúsund króna sekt.
Það gildir um ökumann sem farþega í bílnum.
RYMING
Skrifborðsstólar, skrifborð, skrifborðsskápar, heimaskrifstofur, tölvuborð, fundarborð,
funda- og gestastólar, barnastólar o.fl. o.fl. Einnig skrifstofutæki og skrifstofuvörur.
Opið frá 8-18 virka daga og 10-16 á laugardag.