Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2002, Blaðsíða 2
2 FTMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002 I>v Fréttir í góðum höndum Nemandi í Grandaskóla nýtur nærveru ömmu sinnar eftir aö eldur kom upp í Grandaskóla í gær. Taliö er aö kveikt hafi veriö I klæöningu viö anddyri skólans og hlaust talsvert tjón af. Slökkviliö náöi fljótt tökum á eldinum. Undirbúningur í fullum gangi „Við erum farin af stað á fullu í und- irbúningsvinnu fyr- ir næsta bæjar- stjórnarfund sem verður haldinn 11. júní. Það veröur fé- lagsfundur hjá okk- ur á mánudag og þar verða mótaðar tillögur sem verða lagðar fyrir á þess- um bæjarstjórnarfundi," sagði Lúð- vík Geirsson, oddviti Samfylkingar- innar í Hafnarfirði, inntur eftir því hvemig undirbúningur fyrir valda- töku Samfylkingarinnar þar gengi. Lúðvík sagðist gera ráð fyrir því að tillögumar yrðu í þeim anda sem kynnt hefði verið í kosningabarátt- unni. Þar var m.a. á stefnuskránni að lækka laun bæjarstjóra og fækka í nefndum og ráðum í stjórnkerfi bæjarins. -HI Lúövík Geirsson. Verkaskipting rædd hjá R-listanum Ekki liggur fyrir hver verður for- seti borgarstjómar í nýjum meiri- hluta Reykjavíkurlistans. Árni Þór Sigurðsson, efsti maður listans, seg- ir að viðræður um verkaskiptingu í borgarstjórn séu rétt að hefjast. Margt nýtt fólk komi inn i borgar- stjórnina og kanna þurfi hvert hug- ur þess stefnir. Þá verði skoðað hvort þeir reyndari vilji skipta um vettvang. Fyrir kosningar var rætt um það innan R-listans að hugsanlega yrði stöðu forseta borgarstjórnar ráðstaf- að til tveggja ára í senn en niður- staða liggur ekki fyrir um það. Samningaviðræðum um þetta er ekki markaður annar tímarammi en sá, að niðurstaða fáist fyrir fyrsta borgarstjómarfund nýs meirihluta. Hann tekur formlega við stjórninni á aukafundi borgarstjómar 13. júni. -ÓTG Bullandi svartsýni markaðarins á deCODE: Gengi hlutabréfa aldrei lægra - vatn á myllu efasemdamanna um ríkisábyrgð Hlutabréf i deCODE náðu sögu- legu lágmarki í fyrradag og héldu áfram að falla í gær. Við lokun markaða í fyrradag var gengið skráð á 4,92 dollara í viðskiptum með 65.900 hluti. Opnunargengið í gærmorgun var 5,05 dollarar og um miðjan dag í gær var gengið skráð á 4,5 dollara. í stað þess að stiga á ný, eins og gerðist um miðjan maí í fyrra, þá heldur gengið áfram að falla. Við lokun markaða í gær var gengið svo skráð á 4,65 dollara í viðskiptum dagsins með 128.600 hluti. Hefur gengið fallið nær stöðugt, með fáum undantekningum, frá þvi er það reis hæst á umliðnum misserum um síðustu áramót í um 10,5 dollara. Þegar fyrirtækið var fyrst skráð á Nasdaq-markaði í júlí 2000 var upphafsgengið skráð 18 dollarar. Komst það hæst eftir skráningu í 31,5 dollara en siðan hefur leiðin að mestu legið niður á við, en þó með nokkrum sveiflum. Fyrirtæki Kára Stefánssonar, deCODE Genetics hefur verið Höfuðstöövar Islenskrar erfðagreiningar Þrátt fyrir mikiö tap og mjög slakt gengi deCODE á hlutabréfamarkaöi þá er fyr- irtækinu eigi aö síöur spáö bata á þessu ári og ört batnandi gengi næstu ár. áhættan allt of mikil. Virðast síð- ustu tíðindi af Nasdaq-markaði ekki vera til þess fallin að slá á þær efasemdaraddir. Mikið tap en bata spáð DeCODE hefur tapað 15 millj- örðum króna frá því það var stofn- að og þar af um 10 milljörðum á síðustu þrem árum. Þrátt fyrir þetta slaka gengi spá greiningar- fyrirtæki á borð við Morgan Stanley því að afkoma deCODE eigi að fara batnandi á þessu ári og síðan ört stígandi fram á árið 2005, er það nái að sýna hagnað. Þá er spáð örum áframhaldandi vexti til 2008. Eru þessar spár byggðar á þeim samningum sem gerðir hafa verið við öflug fyrir- tæki í lyfjageiranum á borð við Hoffman La Roche. Vonir manna um að kaup á bandariska lyfjaþró- unarfyrirtækinu MediChem myndu fara að snúa dæminu snar- lega við virðast þó enn ekki farin að skila sér inn í huga hlutafjár- kaupenda. Þar ríkir greinilega bullandi svartsýni á gengi fyrir- tækisins ef marka má viðskipti síðustu daga. -HKr. Gengi deCODE Skagafjörður: Meirihluti D og VG að fæðast mjög í umræðunni á íslandi und- anfarin ár og þá ekki síst er sam- þykkt var á Alþingi að gefa fjár- málaráðherra heimild til að veita fyrirtækinu ríkisábyrgð upp á 20 milljarða króna. Var það m.a. rök- stutt með væntingum um að hægt yrði að koma á fót deild úr hinu nýkeypta MediChem-lyfjaþróunar- fyrirtæki hér á landi. Höfðu marg- ir uppi miklar efasemdir um þá ráðstöfun og jafnvel hörðustu fylg- ismenn ríksstjórnarinnar töldu sértæka ákvörðun í þessa veru ekki samræmast markmiðum stjórnarflokkanna. Auk þess væri „Mér finnst trúlegt að mönnum lítist vel á samningsdrögin og er nokkuð bjartsýnn á myndun meirihluta," sagði Gísli Gunnars- son, sóknarprestur og oddviti D- listans í Skagafirði, við DV í morgun. Allar líkur eru á að meirihluti D-lista Sjálfstæðisflokks og U-lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs verði til í Sveitarfélag- inu Skagafirði. Drög að málefna- skrá listanna verða lögð fyrir fundi í flokkunum í kvöld og að þeim loknum verður gefin út yfir- lýsing. Verði af meirihlutasam- starfi er Skagafjörður eina sveit- arfélag landsins þar sem þessir listar eru í samstarfi. Vinstri grænir unnu góðan sigur í Skaga- firði, fengu tvo menn kjörna. Framboð Vinstri grænna kom annars illa út þar sem flokkurinn bauð fram sérlista. -hlh BB Sýknaöur af ákæru Héraðsdómur Vestfjarða hefur sýknað karlmann á fertugsaldri af ákæru fyrir að hafa ekið ölvaöur á Flateyri í lok síðasta árs. Talið var að maðurinn hefði ekið bíl frá veit- ingahúsi heim til sín seint um nótt en fyrir dómi bar bróðir mannsins að hann hefði ekið bílnum og taldi héraðsdómari að ekkert hefði kom- ið fram sem hnekkti þeim fram- burði. Hringt var til lögreglunnar á ísafirði aðfaranótt laugardagsins 29. desember og sagt að viökomandi maður hefði ekið ölvaður frá veit- ingastaðnum Vagninum á Flateyri. Þjónusta við fatlaða Páll Pétursson fé- lagsmálaráðherra og Kristján Þór Júl- iusson, bæjarstjóri á Akureyri, hafa undirritað samning um framhald á þjónustu Akureyr- arkaupstaðar við fatlaða á Eyjafjarðarsvæðinu. Báðir aðilar eru ánægðir með að samning- ur hafi náðst enda tryggir hann áframhald þeirrar nærþjónustu sem notendur þjónustunnar hafa notið undanfarin ár. Frá árinu 1996 hefur verið í gildi samningur milli félags- málaráðuneytis og Akureyrarkaup- staðar um framkvæmd þjónustu við fatlaða sem er á vegum ríkisins samkvæmt lögum um málefni fatl- aðra. Vorþing í Eyjum Vorþing skólaskrifstofa á landinu verður haldið í Eyjum á fóstudag. Vorþingið sækir starfsfólk hinna ýmsu skóla og fræðsluumdæma. Fjallað verður um ýmis mál sem ber hæst í umræðunni hveiju sinni og brenna hvað mest á starfsfólki skólaskrifstofanna. Að þessu sinni er þingið helgað sérfræðiþjónustu sveitarfélaganna við böm með sér- þarfir eða sem þarfnast stuðnings á einhvem hátt. Um fimmtíu manns sækja þingið. M.a. fjallar Tómas Jónsson sérkennslufúlltrúi um hvaða upplýsingar þarf til að kennsla nýtist nemendum með mis- munandi sérþarfir. Milljón í minnisvarða Hjónin Marías Þ. Guðmundsson og Málfríður Finns- dóttir hafa lagt fram eina milljón króna í sjóð til að koma upp minnis- varða um Jón Sig- urðsson forseta. Minnisvarðinn mun standa á lóð Menntaskólans á ísafirði. Gjöftn er í tilefni af áttræðisafmæli Maríasar fyrr í mánuðimun. Undirbúnings- og framkvæmdanefnd skipa Ólína Þorvarðardóttir skólameistari, Gunnar Jónsson, Gunnlaugur Jón- asson, Jón Páll Halldórsson og Kon- ráð Jakobsson. Mjög óvenjulegt mál tengt yfirheyrslum lögreglu sem nú standa yfir: Vitni í Valgeirsmálinu skyldað til að tjá sig - fer fyrir dóm eftir aö neita lögreglu - lögmanni gert að víkja úr yfirheyrslu Lögmaður vitnis í máli sem lög- reglan rannsakar vegna hvarfs Val- geirs Víðissonar verður að víkja úr dómsal þegar lögreglan yfirheyrir vitnið. Um þetta er genginn dómsúr- skurður. Vitnið kærði hins vegar niöurstöðuna til Hæstaréttar og því mun lögreglan ekki yfirheyra manninn fyrr en eftir að Hæstirétt- ur kveður upp dóm sem búist er viö að verði fyrir helgina. Maðurinn neitar að tjá sig hjá lögreglu en slíkt getur vitni ekki fyrir dómi eins og á stendur. Auk þess er ekkert í lögunum sem kveð- ur á um að vitni skuli hafa lögmann sér við hlið nema um sé að ræða fómarlamb í sakamáli - sakbom- ingar, þaö er grunað fólk, á hins vegar skýlausan rétt á slíku. Hér er um mjög óvenjulegt mál að ræða, ekki síst þar sem vitnið neit- ar að tjá sig án lögmanns. Þaö getur hins vegar ekki neitað að tjá sig fyr- ir dómi þar sem lögreglan hefur sýnt fram á það með rökstuddum hætti að hún telur manninn búa yfir vitneskju um mál Valgeirs Víð- issonar. í síðustu viku var 37 ára íslend- ingur úrskurðaður í gæsluvaröhald til mánudagsins 3. júní eftir að hafa verið framseldur hingað frá Hollandi. Hann er grunaður um að- ild að hvarfí Valgeirs Víðissonar. Lögreglan fékk manninn úrskurðað- an í gæsluvarðhald til að fá svigrúm til að yfirheyra hann og aðra sem taldir eru búa yfir upplýsingum um málið. Á þriðjudag átti að yfirheyra framangreint vitni. Það neitaði hins vegar að tjá sig hjá lögreglu. Var þá farið með manninn fyrir dómara sem taldi að honum væri skylt að tjá sig þar. En vitnið neitaði að gera slíkt nema hafa lögmann sinn sér við hlið. Því mótmælti lögreglan, meðal annars á þeim forsendum að lögmaðurinn vinnur undir sama þaki og verjandi framselda manns- ins - hins grunaða. Einnig er það vegna rannsóknarhagsmuna, það er að vitneskja berist ekki um fram- burð mannsins meðan á rannsókn- inni stendur. Þar sem maðurinn neitaði að vitna nema hafa lögmann úrskurð- aði dómarinn að lögmaðurinn skyldi víkja. Þessi niðurstaða hefur nú verið kærð til Hæstaréttar. Reiknað er með að hann kveði upp dóm í þessu ágreiningsmáli fyrir helgi. -Ótt Ekki í símanum Talningarmenn i sveitarstjómar- kosningunum í Bolungarvík töluðu ekki í farsima meðan á kjörfundi stóð. Anton Helgason, formaður kjörstjómar i Bolungarvík, segir þetta sannreynt. Titrings hefur gætt i Bolungarvík vegna gruns um aö þrír talningarmenn, sem viku úr talningarherbergi meðan á kjör- fundi stóð, hafi reynt að hafa áhrif á kosningamar. Hvalfjarðargöng lokuð Hvalfjarðargöng hafa verið lokuð undanfamar nætur vegna vorhrein- gerningar og nauðsynlegrar við- haldsvinnu. Þeim er lokað á mið- nætti en opnuð aftur klukkan 6 á morgnana. Ökumenn njóta því feg- urðar Hvalfjarðar að næturlagi - til- neyddir. -GG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.