Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2002, Blaðsíða 48
Helqa rblað 13 "V LAUCARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 Islendíngaþættir Umsjón Kjartan Gunnar Kjartansson * Sigríður Á. Snævarr sendiherra verður 50 ára á morgun Sigríður Ásdís Snævarr, sendiherra íslands í París, Starhaga 4, Reykjavík, er fimmtug á morgun, 23. júní. Starfsferill Sigríður fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1972, Diploma í ítölsku frá Universitá per gli Stranieri í Perugia á Ítalíu, B.Sc.Econ.-prófi frá London School of Economics 1977, MA-prófi frá Fletcher School of Law and Diplomacy 1978 og var styrkþegi við Harvard Russian Research Center 1987. Sigríður var leiðsögumaður erlendra ferðamanna á Islandi 1971-78 og íslenskra ferðamanna á Ítalíu 1974 og 1975, fulltrúi í utanríkisþjónustunni 1978, sendi- ráðsritari í Moskvu 1979-81, fulltrúi í utanríkisráðu- neytinu 1981, varafastafulltrúi hjá Evrópuráðinu í Strasbourg 1982-83, blaðafulltrúi utanrikisráðuneytis- ins 1983-86, sendiráðunautur frá 1984, í sendiráði ís- lands í Bonn frá 1987 og sendifulltrúi þar 1988-91, sendiherra íslands í Stokkhólmi og Finnlandi 1991-96 jafnframt sendiherra í Namibíu, Slóveníu, Eistlandi og Lettlandi, prótókollstjóri í utanríkisráðuneytinu 1996-99 jafnframt sendiherra í Namibíu, Mósambik og Suður-Afriku, sendiherra í Frakklandi, Ítalíu, Spáni, Portúgal og Andorra San Marion frá 1999, einnig fastafulltrúi íslands hjá OECD í París, FAO í Róm og UNESCO i París. Sigríður var formaður Grimshaw Club of International Relations i London School of Economics 1976-77, formaður sendinefndar íslands á Kvennaráð- stefnu Sþ í Nairobi i Kenía 1985, ritari nefndar um samskipti Islands og Vestur-íslendinga 1983-86, ritari stjórnar Listvinafélags Hallgrimskirkju 1983-86, frumkvöðull að stofnun Félags kvenna í embættis- störfum í stjómarráðinu og félagi í Rotarýklúbbi Reykjavíkur. Fjölskylda Eiginmaður Sigríðar er Kjartan Gunnarsson, f. 4.10. 1951, lögfræðingur og framkvæmdastjóri Sjálf- stæðisflokksins. Hann er sonur Gunnars Axels Páls- sonar, f. 31.8. 1909, d. 15.4. 1991, hrl., og Guðrúnar Jónsdóttur, f. 9.6. 1922, d. 3.7. 1980, ritara. Systkini Sigríðar eru dr. Stefán Valdemar Snævarr, f. 25.10. 1953, heimspekingur, ljóðskáld og háskóla- kennari í Lillehammer í Noregi; Sigurður Ármann Snævarr, f. 6.4. 1955, M.Sc. í hagfræði og borgarhag- fræðingur en sambýliskona hans er Eydís Svein- bjarnardóttir, sviðstjóri hjúkrunar á geðsviði Land- spitala Háskólasjúkrahúss og eru börn Sigurðar Jó- hannes og Ásdís Snævarr en börn Ásdísar Sveinbjörn og Sigurlaug Thorarensen; Valborg Þóra Snævarr, f. 10.8. 1960, hrl. í Reykjavík, gift Eiríki Thorsteinsson kerfisfræðingi og er sonur Valborgar Ármann Snæv- arr en dóttir Eiríks er Oddný Eva Thorsteinsson; Herborg Hulda Símonardóttir Herborg Hulda Símonar- dóttir húsmóðir, Slétta- hrauni 29, Hafnarfirði, varð sjötug í gær. StarfsferiU Hulda fæddist í Hafnar- firði, var í fóstri að Sól- heimum til sjö ára aldurs, flutti þá með móður sinni til Siglufjarðar. Hún flutti til Hafnarfjarðar er hún var sautján ára og réði sig síðan sem kaupakonu. Auk heimilisstarfa og barnauppeldis hefur Hulda stundaö ýmis almenn störf verkakvenna. Fjölskylda Hulda giftist 16.7. 1977 Lofti Jóhannssyni, f. 16.7. 1920, d. 28.12. 1986. Fyrri maður Huldu var Þorleifur Viggó Ólafsson. Þau skildu. Börn Huldu og Þorleifs eru Guðrún, f. 2.12. 1950, gift Elíasi Kristinssyni og á hún fjögur börn frá fyrra hjónabandi; Snæbjörn Geir, f. 20.1. 1952, kvæntur Helgu Jónasdóttur og eiga þau þrjá syni auk þess sem hann á tvo syni frá því áður; Sigurð- ur, f. 4.5. 1953, kvæntur Önnu Jensdóttur og eiga þau fjögur börn; Þorbjöm, f. 27.1. 1955 og á hann fjögur börn; Símon, f. 23.4. 1956, kvæntur Bimu Benediktsdóttur og eiga þau þrjú börn; Bjarni, f. 8.10. 1958, kvæntur Jóhönnu Þórðardóttur og eiga þau þrjú börn og hann dóttur frá því áður; Kristín, f. 26.1. 1961, gift Hilmari Jónssyni og eiga þau tvö börn auk þess sem hún á son frá því áður. Foreldrar Huldu: Símon Jóhannsson sjómaður, og Guðrún Maria Guömundsdóttir húsmóðir. Árni Þorvaldur Snævarr, f. 4.3. 1962, BA í sagnfræði, fréttamaður á Stöð 2 en börn hans er Ásgerður og Þorgrímur Kári Snævarr. Foreldrar Sigríðar eru Ármann Snævarr, f. 18.9. 1919, fyrrv. prófessor, háskólarektor og hæstaréttar- dómari, og k.h., Valborg Sigurðardóttir, f. 1.2. 1922, uppeldisfræðingur og fyrrv. skólastjóri Fósturskóla íslands. Ætt Ármann er sonur Valdemars, skólastjóra og sálma- skálds á Húsavík, Valvessonar, hákarlaformanns á Þórisstöðum á Svalbarðsströnd, bróður Alberts skip- stjóra, fóður Eiðs, skólastjóra á Búðum, föður Arnar, deildarstjóra og ritstjóra. Valves var sonur Finnboga, b. í Presthvammi, Finnbogasonar. Móðir Valdemars var Guðrún Sigurðardóttir, skipstjóra á Mógili á Svalbarðsströnd, Jónssonar, og Svanhildar Þorvalds- dóttur. Móðir Ármanns var Stefanía Erlendsdóttir, útgerð- arm. í Hellisfirði, Árnasonar. Móðir Stefaníu var Stef- anía Stefánsdóttir, b. í Seldal, Sveinssonar. Valborg er dóttir Sigurðar, skólastjóra á Hvítár- bakka, Þórólfssonar, b. á Skriðnafelli, Einarssonar, skipstjóra á Hreggstöðum, Jónssonar, b. þar, Einars- sonar. Móðir Jóns var Ástríður Sveinsdóttir, systir Guðlaugs, langafa Páls, langafa Ólafs Ólafssonar, for- manns Landssamtaka eldri borgara. Móðir Valborgar var Ásdís, systir Guðrúnar, móð- Rósa Katrín Gunnarsdóttir Rósa Katrín Gunnarsdótt- ir húsmóðir, Tjarnarlundi 19 G, Akureyri, verður fer- tug á morgun. Starfsferill Rósa Katrín fæddist í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. Hún lauk gagnfræða- prófi i Vestmannaeyjum en flutti síðan til Grímseyjar með foreldrum sínum og bróður þar sem hún var búsett í átta ár. Rósa Katrín flutti siðan til Akureyrar og hefur átt þar heima síðan. Hún hefur lengst af stundað heimilis- og uppeldisstörf á Akureyri. Fjölskylda Rósa Katrín giftist 20.4. 2002 Ármanni Sævari Gylfasyni, f. 23.5.1968, matráði. Hann er sonur Gylfa Sævars Einarssonar, bílstjóra á Akureyri, og Hrefnu Óskarsdóttur húsmóður. Börn Rósu Katrínar eru Guðbjörn Þór Sigurðsson, f. 22.5. 1980, starfsmaður við Fiskeldi í Borgarfirði; Helgi Már Hafþórsson, f. 24.12. 1986, nemi; Ragnar Máni Hafþórsson, f. 25.7. 1991, grunnskólanemi; Úlfar Logi Hafþórsson, f. 23.5.1996, grunnskólanemi; Andrea Sól Ármannsdóttir, f. 22.3. 2002. Systkini Rósu Katrínar eru Andrea Berghildur, f. 5.11.1956, tölvufræöingur og bóndi í Ási í Melasveit; Gunnar Halldór, f. 5.7. 1972, stýrimaður á Akureyri. Foreldrar Rósu Katrínar: Ragnar Gunnar Hjelm, f. 1930, d. 1990, sjómaður, og Valgerður Viktoría Valdimarsdóttir, f. 1937, húsmóðir í Stykkishólmi. Rósa Katrín verður að heiman á afmælisdaginn. ur Tómasar Á. Tómassonar sendiherra. Ásdís var dóttir Þorgríms, b. á Kárastöðum á Vatnsnesi, bróður Davíðs, langafa Davíðs Oddssonar forsætisráðherra. Þorgrímur var hálfbróðir Frímanns, fóður Sigur- bjargar, langömmu Guðrúnar Agnarsdóttur, for- manns Krabbameinsfélags íslands, og Ástríðar for- sætisráðherrafrúar. Þorgrímur var sonur Jónatans, b. á Marðarnúpi, Davíðssonar. Móðir Jónatans var Ragnheiður Friðriksdóttir, pr. á Breiðabólstað, Þórar- inssonar, ættfóður Thorarensenættar, Jónssonar. Móðir Friðriks var Sigríður Stefánsdóttir, systir Ólafs stiftamtmanns í Viðey, ættföður Stephensenætt- ar. Móðir Ragnheiðar var Hólmfríður Jónsdóttir, varalögmanns í Víðidalstungu, Ólafssonar, ættfóður Eyrarættar, langafa Jóns forseta. Móðir Ásdisar var Guðrún Guðmundsdóttir, systir Guðbjargar, móður Jóns Ásbjörnssonar hæstaréttardómara. Sigríður tekur á móti vinum og vandamönnum í Viðeyjarstofu í Viðey frá kl. 17.00 og fram eftir kvöldi á morgun, sunnudaginn 23. júni. Laugardagurinn 22. júní 95 ÁRA Eyjólfur Hannesson, Núpsstað, Kirkjubæjarklaustri. 75 ÁRA Eiríkur Eiríksson, Prestbakka 19, Reykjavík. Hallgrímur Jónsson, Hrísateigi 36, Reykjavík. Hólmfríður Ásgeirsdóttir, Hallandi 1, Akureyri. Þóröur Eyjólfsson, Hásæti llb, Sauðárkróki. 70ÁRA ____________________ Ásgrimur Ásgrimsson, Syöra-Mallandi, Sauöárkróki. Björn Björnsson, Aðalstræti 20, ísafiröi. Einar Haraldur Gíslason, Sandgeröi 13, Stokkseyri. Eygló Ólöf Haraldsdóttir, Laufbrekku 25, Kópavogi. Jóhann Sigvaldason, Norðurbyggð 9, Akureyri. Paul Oddgeirsson, Goöheimum 10, Reykjavík. Sigurbjörg Siguröardóttir, Kirkjusandi 3, Reykjavik. 60 ÁRA Bjöm Freyr Lúövíksson, Holtsbúö 50, Garðabæ. Þorbjörg Jónsdóttir, Otrateigi 50, Reykjavík. 50 ÁRA Friöbjöm Bjömsson, Hamrabyggð 32, Hafnarfiröi. Guðmundur Valur Óskarsson, Hagamel 18, Akranesi. Guöni Bjömsson, Krókamýri 14, Garðabæ. Gylfi Jónasson, Þórunnarstræti 97, Akureyri. Helga Sigurborg Jónsdóttir, Hallgeirsstööum, Egilsstöðum. Hjördís Líndal Guðnadóttir, Skagabraut 15, Akranesi. Jóhanna Óskarsdóttir, Gullsmára 2, Kópavogi. Kristinn Jósep Gíslason, Leirutanga 24, Mosfellsbæ. Michael Joh Kissane, Noröurvangi 30, Hafnarfiröi. Oddrún Sverrisdóttir, Hraunbæ 62, Reykjavík. Snorri Magnússon, Laufbrekku 8, Kópavogi. 40 ÁRA CarlErik Olof Sturkell, Blómvallagötu 10, Reykjavik. Eva Mjöll Ingólfsdóttir, Kaplaskjólsvegi 51, Reykjavik. Garöar Karl Grétarsson, Arnarhrauni 16, Hafnarfiröi. Ingimar ísaksson, Eiöismýri 24, Seltjarnamesi. Jóhanna Grétarsdóttir, Mávabraut 2c, Keflavík. Kristinn Einar Pétursson, Fjallalind 91, Kópavogi. Lilja BJörk ívarsdóttir, Leirubakka 3, Seyöisfirði. Michael Jón Ryan, Aöalstræti 22, Akureyri. Sigurbjörn J. Grétarsson, Brákarbraut 11, Borgarnesi. Þórdís Siguröardóttir, Starmýri 3, Neskaupstaö. Sunnudagurínn 23. júní 90 ÁRA María Margrét Siguröardóttir, Rúöabakka 2, Skagaströnd. 80 ÁRA Siguröur Þorkelsson, Hrafnistu, Reykjavík. 75ÁRA Elí Einarsson, Efstasundi 11, Reykjavík. Pétur Mikael Sveinsson, Tjörn, Skagaströnd. Sigrún Guðmurdsdóttir, Hamraborg 26, Kópavogi. Siguröur Jónsson, Rókagötu 16a, Reykjavík. 70 ÁRA___________________ Ásta Valhjálmsdóttir, Vallargerði 4b, Akureyri. Jónatan Arnórsson, Ásgaröi 24a, Reykjavík. Soffia Emelía Ragnarsdóttir, Smiösbúö 1, Garöabæ. Stefán E. Pétursson, Miögaröi 14, Keflavík. 60ÁRA Agnes Karlsdóttir, Túngötu 52, Eyrarbakka. Siguröur Hafsteinn Bjömsson, Lambastaðabraut 10, Seltjarnarnesi. Valgeröur Kristinsdóttir, Túngötu 5, Hvolsvelli. 50 ára Bergsveinn Þorkelsson, Unnarbraut 12, Seltjarnarnesi. Guðlaug H. Hallgrímsdóttir, Melgeröi 13, Kópavogi. Gunnar S.l. Sigurösson, Heiöarási 5, Reykjavík. Haraldur Ágústsson, Háahvammi 8, Hafnarfiröi. Jófríöur Benediktsdóttir, Rfuhjalla 6, Kópavogi. Jóhann Kristján Einarsson, Tungusíðu 30, Akureyri. Jóhanna D. Kristmundsdóttir, Furuási 5, Garöabæ. Reynir Gunnarsson, Austurbraut 12, Höfn. 40ÁRA Arndís Birna Jóhannesdóttir, Maríubakka 20, Reykjavík. Auöur Jónsdóttir, Skútustööum 2a, Reykjahlíö. Axel Kristján Axelsson, Berjarima 63, Reykjavík. Hafsteinn Bjömsson, Vesturbergi 46, Reykjavík. Kristrún Halla Ingólfsdóttir, Jörundarholti 15, Akranesi. Ómar Steinar Rafnsson, Sævariandi 4, Reykjavík. Ragnhelöur Guömundsdóttir, Grundarstig 5a, Reykjavík. Reynir Sturluson, Kjarrhólma 2, Kópavogi. Öm Gunnlaugsson, Galtalind 4, Kópavogi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.