Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2002, Blaðsíða 4
Hvorki Beck né AC/DC á Airwaves
Airwaves-tónlistarhátíðin verður haldin
dagana 16.-20. október eins og áður hefur
komið fram. Dagskrá hátíðarinnar er óðum að
taka á sig mynd og að sögn Kára Sturlusonar
tónleikahaldara má búast við endanlegri upp-
röðun eftir um tvær vikur. Miklar sögusagnir
hafa verið í gangi um hvaða erlendu hljóm-
sveitir komi til með að spila á hátíðinni og und-
anfamar vikur hafa þær magnast verulega.
Þannig hefur nafn Beck Hansen heyrst lengi
og nýlega hafa heyrst kjaftasögur um að rokk-
aramir í AC/DC væru á leiðinni. Aðspurður
sagði Kári þessar sögusagnir ekki réttar, hvorki
er von á Beck eða AC/DC að þessu sinni. Vð
bíðum því spennt eftir endanlegri uppröðun
hátíðarinnar.
Heil appelsína í Eyjum
Þau leiðu mistök urðu í síðasta Fókus að
hljómsveitamafh misritaðist. Hljómsveitin
sem verið var að tala um heitir Whole Orange
en ekki Half Whole Orange eins og stóð í
blaðinu. Hljómsveit þessi mun spila á Þjóðhá-
tíð í Eyjum og er lag frá henni væntanlegt í
spilun á útvarpsstöðvunum á næstunni. Sperr-
ið því eyrun.
SlCUR RÓS AFLÝSIR TÓNLEIKUM
Strákamir í Sigur Rós eru á fúllu við að klára
plötuna sína sem koma á út í október eins og
greint hefur verið frá á síðum blaðsins. A dög-
unum voru þeir í Bath á Englandi þar sem þeir
unnu að því að mixa en nú em þeir aftur komn-
ir til landsins. 1 sumar voru fyrirhugaðir fjöl-
margir tónleikar í Evrópu en nú hefur Sigur
Rós aflýst þeim öllum, að v2002 hátíðinni und-
anskildri, til að einbeita sér að fullu að plöt-
unni. Hætt hefur verið við tónleika í Irlandi,
Portúgal, Þýskalandi og Frakklandi auk þess
sem sveitin kemur ekki til með að spila á stórri
tónlistarhátíð á Spáni þar sem Radiohead spila
meðal annarra. Sigur Rósar-mönnum er þvf
greinilega kappsmál að klára verkið með sæmd
og verður gaman að heyra útkomuna í október.
Rappstrákarnir í Ouarashi eru búnir að vera á flakki um Bandaríkin síðan
í maí. Fyrir um mánuði sagði Ómar Swarez okkur upp og ofan af ferða-
lagi þeirra en þó nokkuð hefur drifið á daga þeirra síðan þá. Þegar Fókus
heyrði í piltunum í vikunni voru þeir á leiðinni til Kanada eftir góða törn
í miðríkjunum og gott spjall við B-Real úr Cypress Hill.
Nalgast 100.000 eintök
í Bandaríkjunum
Það gengur mjög vel hjá Quarashi í Bandaríkjunum þessa dagana,
nærri 100.000 eintök seld og allt að verða vitlaust í Japan.
Quarashi er þessa dagana á Warped-túrnum svokallaða þar sem
hún ferðast um með fjölda hljómsveita og spilar upp á hvern dag.
Þeir búa í rútu sem er vel búin af rúmum, græjum, sjónvörpum og
tölvum svo eitthvað sé nefnt. Það væsir því ekki um piltana þó
vissulega geti verið erfitt að spila á hverjum degi eins og þeir gera
nú, sérstaklega þar sem hitastigið hefur verið óbærilegt í miðríkj-
um Bandaríkjanna undanfarið.
Asíubúarnir áhucasamir
Þegar Fókus heyrði í Höskuldi söngvara í vikunni var hljóm-
sveitarrútan á leiðinni til Kanada þar sem nokkrir tónleikar voru
fyrirhugaðir. Undanfarið hafa þeir íerðast um miðríkin og spilað á
litlu sviði þar sem um og yfir þúsund manns hafa verið að mæta á
hverja tónleika. Segir Höskuldur það fólk aðallega vera fólk sem
hafi heyrt í Quarashi áður. Á næstunni fara þeir aftur yfir á aust-
urströndina og þá verða þeir á stærra sviði sem fleiri gestir sækja.
Sala á plötunni Jinx hefur gengið framar vonum, fer að nálgast
100.000 eintök í Bandaríkjunum. Quarashi hefur hins vegar þeg-
ar selt um 50.000 eintök í Japan þó hún hafi ekki enn spilað þar.
„Það er alveg fúrðulegt hvað þetta gengur vel í Japan. Annars
virðist hljómsveitin af einhverjum orsökum afar vinsæl hjá Asíu-
búum því þeir eru líka mjög duglegir að mæta á tónleikana okkar
héma úti,“ segir Höskuldur.
Með B-Real í LA
Og það gat auðvitað ekki annað verið en að einhver frægur yrði á
vegi strákanna í Quarashi. Á dögunum spiluðu þeir á tvennum
tónleikum f Los Angeles og eftir aðra tónleikana var bankað á
hurðina hjá þeim. Þar á ferðinni enginn annar en B-Real úr Cy-
press Hill sem sagðist vera mikill aðdáandi sveitarinnar. Vel fór á
með honum á bandinu og í kveðjuskyni var smellt nokkrum
myndum af hópnum saman.
Nú er nokkuð liðið síðan fyrsta smáskífa Quarashi, Stick’em up,
kom út í Bandaríkjunum og því fer að líða að útgáfu nýrrar. Það
verður Mr. Jinx og ætti hún að koma út eftir 2-3 vikur. Lagið er þó
þegar komið í spilun á einhverjum útvarpsstöðvum vestanhafs. 1
síðustu viku tók sveitin svo upp myndband við lagið. Höskuldur
vildi sem minnst gefa upp um þemað en sagði að eitthvað væri um
að hlaupið væri í myndbandinu. Líklegt má telja að Islendingar fái
að berja myndbandið augum eftir um mánuð. 1 millitíðinni er besta
leiðin til að fylgjast með ferðum Quarashi að fara inn á heimasíðu
hennar, www.quarashi.net.
FÁANLEGUR I NÆSTÖ M
TÖLUULEIKIAVERSLUN
Fóllk sem vinnur í sjoppu er ekki verra en hvað annað. bað er bara melri lúserar.
f ó k u s
4
19. júlf 2002