Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002 15 I>V Fréttir Lögreglumenn vift rannsókn á vettvangi. Fimm morö hafa veriö framin hér á landi þaö sem af er þessu ári. Tíðni manndrápa fer vaxandi hérlendis: Þrettán morð framin síðan 1999 - þar af fimm á þessu ári Þegar þrír mánuðir eru eftir af þessu ári hafa verið framin 13 morð hér á landi á tæplega fjögurra ára timabili, þar af fimm í ár. Árið 1999 markar viss tímamót í morðsögu íslendinga. Það ár varð sögulegt sökum þess að þá fjórfald- aðist tíðni morðmála hérlendis frá því sem verið hafði að meðaltali síð- ustu áratugi. Tvö morð voru framin 1999 en meðaltal síðustu áratuga sýnir að morð hafa ekki verið fram- in hér á landi „nema“ annað hvert ár. Síðan hefur þróunin verið skelfi- leg og eiturlyfjafikn virðist æ rikari þáttur í mikilli fjölgun alvarlegra af- brota hérlendis. Árið 2000 fjölgaði morðum ískyggilega samkvæmt tölum Ríkis- lögreglustjóra. Það ár féllu fimm einstaklingar fyrir hendi morðingja. Árið 2001 var framið eitt morð og það sem af er ári eru morðin orðin fimm talsins. Þegar þrír mánuðir eru eftir af þessu ári hafa því verð framin 12 morð hér á landi á tæp- lega fjögurra ára tímabili. Inni í þessum tölum eru ekki mál sem flokkast undir manndráp af gáleysi. Þó íslendingar yrðu lausir við frekari morð það sem eftir lifir þessa árs eru þau að meðaltali orð- in 4,3 á ári það sem af er þessum fyrsta áratug aldarinnar. Það er ríflega tvöföldun á tíðni morða mið- að við siðasta áratug. Tíðnin tiltölulega lág Miðað við mörg önnur lönd virð- ast íslendingar sleppa tiltölulega vel við þann ófognuð sem morð annars eru. Á Islandi voru 1,8 manndráp framin á ári síðasta ára- tug nýliðinnar aldar. Það samsvar- ar 0,7 manndrápum á hverja 100 þúsund íbúa. Sama tala á við í Finnlandi en 4,27 manndráp eru framin á hverja 100 þúsund íbúa í Danmörku - sjö sinnum fleiri en hér á landi. í Bretlandi er talan 2,6, 4,11 í Frakklandi, 7,41 í Bandaríkj- unum en 2,64 í Noregi. Kólombía á sennilega metið. Þar voru 59 mann- dráp framin á hverja 100 þúsund íbúa, áttatíu og fjórum sinnum fleiri en á íslandi á síðasta áratug. Líkt og talið er í morðmálinu sem nú er í rannsókn á Leifsgötu hefur fikniefnanotkun æði oft komið við sögu. Þar má t.d. nefna morð fram- in við Espigerði, Öskjuhlíð og Víði- mel. -HKr./Ótt STA' * DV-MYND SARI Eldur f lögreglubílnum á Vesturlandsvegi Eftir aö maöurinn í kókaínmálinu ók harkalega aftan á lögreglubílinn tókst meö naumindum að koma öörum mannanna meövitundarlausum út. Sá lögreglumaöur hefur ekki náö sér af meiöslunum. 1.200 grömm af kókaíni Sakborningurinn var dæmdur fyrir innflutning á efninu / söluskyni, ofsa- akstur þar sem lífi vegfarenda var stofnaö í hættu og tilefnislausa og ofsafengna árás á lögreglumann meö skærum. Klapparstígur 11 Moröiö var framiö í íbúð í rishæö hússins á Klaþparstíg 11. Aö sögn nágranna var talsvert blóö á veggjum og einnig á gangi fyrir framan íbúöina. 35 ára karlmaður grunaður um morð í Reykjavík: Hörð átök og bíóð upp um veggi - farið fram á gæsluvarðhald á hinum grunaða í gær Héraðsdómur Reykjavíkur úr- skurðaði i gærkvöld um gæsluvarðhaldsbeiðni lögreglu yfir 35 ára gömlum karlmanni, Steini Ármanni Stefánsyni. Mað- urinn er grunaður um morð á 65 ára karlmanni, Braga Ólafssyni, á Klapparstig 11 i Reykjavík í fyrra- kvöld. Sá grunaði hefur áður komið við sögu sakamála hér á landi en hann var í yfirheyrslum í gær. Sömu sögu er að segja af þeim sem myrtur var, en hann banaði sambýliskonu sinni í sama húsi á níunda áratugnum. Ljóst virðist að hörð átök hafa átt sér stað í húsinu á Klapparstíg 11 í fyrra- kvöld og var blóð upp um veggi, að sögn nágranna. Maðurinn var alvarlega særður þegar lögregla kom á vettvang en samt með lífs- marki. Gat hann þó gefið lögreglu upplýsingar um hvað gerst hafði. Var hann síðan fluttur á slysa- deild en var látinn þegar þangað var komið. Ekkert hefur verið greint frá orsökum þeirra átaka sem leiddu til þess að Bragi Ólafsson var stunginn til bana á heimili sínu á Klapparstíg 11 í fyrrakvöld. Ná- grannar tilkynntu um líkamsárás í húsinu rúmlega hálftíu um kvöldið en manninum tókst að skreiðast til þeirra og láta vita hvernig komið var. Þegar lögregla og sjúkralið komu á staðinn var hinn grunaði árásarmaður á bak og burt og hóf lögregla strax leit að manninum og morðvopninu. Lögreglan handtók nokkru síðar Stein Ármann Stefánsson sem grunaður var um verknaðinn. Náðist hann í austurbæ Reykja- víkur. Ljóst er, að sögn lögreglu, að hinn handtekni var á staðnum þegar árásin var gerð. Engin vitni voru að árásinni en talið er víst að mennirnir hafi verið einir í íbúðinni, en báðir voru þeir bú- settir í Reykjavík. Morðið var framið í íbúð í rishæð hússins á Klapparstíg 11. Að sögn eiganda íbúðar á sömu hæð var talsvert blóð á veggjum og einnig á gangi fyrir framan íbúðina. Sagði hann að lögregla hefði inn'siglað Ibúð hins myrta. Klapparstígur 11 er tvílyft timb- urhús með risi og háum kjallara og hefur einhvern tíma þótt reisu- legt en er farið að láta talsvert á sjá. Kona sem búið hefur í húsinu í 17 ár segist ekki hafa orðið vör við átökin í fyrrakvöld en varð vör við að maðurinn fór tO dyra um kvöldið. „Það hefur verið svo hljótt í húsinu undanfama mánuði og lít- ið ónæði frá öðrum íbúum. Mað- urinn sem myrtur var drakk mik- ið en hann hélt sig venjulega í íbúðinni og það fór lítið fyrir hon- um. Hann gerði því lítið ónæði svo ég viti til,“ sagði þessi kona. Ibúi í húsinu númer 9, sem er næst innganginum að morðstaðn- um, sagðist lítið hafa orðið var við þennan nágranna sinn sem myrtur var eða aðra íbúa hússins. Hann sagðist heldur ekki hafa orðið var við að nein átök hefðu átt sér stað fyrr en lögregla kom á staðinn í fyrrakvöld. Annar ná- granni sagðist heldur ekki hafa gert sér grein fyrir hvað væri um að vera. Ekki væri þó óalgengt að háreysti væri í götunni. Þar væri talsvert um fólk á rangli á kvöld- in og um nætur sem væri þá oft misjafnlega á sig komið. -HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.