Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2002, Blaðsíða 40
AA HelQorbloö H>V LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 2002 Katrín Júlíusdóttir náði fjórða sæti í flokksuali Samftjlkingarinnar íSuðvestur- kjördæmi. Hún talar um hringorma, hnign- un Alþýðubandalagsins og drauminn um að verða framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. „Ég verð 28 ára eftir viku. Ég er fædd í Reykjavík og flutti níu ára í Kópavoginn með foreldrum mínum og tví- burabræðrum. Ég hef búið nær samfleytt í Kópavogi síðan, fyrir utan háskólaárin en þá varð ég að flytja i miðborgina og kaupa mér hjól - það var stemningin þá. Um leið og son- ur minn fæddist, árið 1999, flutti ég aftur í Kópavoginn. Það var gott að koma aftur í heimahagana," segir Katrín Júlíusdóttir en hún náði fjórða sæti i flokksvali Samfylk- ingarinnar i Suðvesturkjördæminu um síðustu helgi. „Ég „Ég hef búið nær samfleytt í Kópavogi, fyrir utan háskólaárin en þá varð ég að flytja í miðborgina og kaupa mér hjól - það var stemningin þá. Um leið og sonur minn fæddist, árið 1999, flutti ég aftur í Kópavoginn. Það var gott að koma aftur í heimahagana," segir Katrín sem hér er ineð Júl- íusi, syni sínum. DV-mynd E.Ól. „Sjónarhorn ungs fólks hefur vantað inn á þing. Á þingi þarf líka að vera fólk sem finnur fyrir námslánum, er að koma sér upp húsnæði og eignast börn. Það er hollt að þingmenn finni þetta á eigin skinni," segir Katrín Júlíusdóttir. DV-mynd Hari er komin af miklum sjóurum og byrjaði sjálf snemma í fiski. Ég var ekki nema sjö ára þegar ég byrjaði að plokka orma úr fiski. Árið eftir var mér treyst til að taka þátt í al- mennu frystihúslífi. Ég hlakkaði alltaf til að byrja að vinna strax eftir skólann. Það hlýtur að hafa verið uppeldið sem gerði það að verkum." Byrjaðirðu átta ára i fiski? Þetta hljómar eins og frásögn sjötugrar konu af síldarárunum á Sigló! „Já. Ég var mikil pabbastelpa og dáðist alltaf að því sem hann gerði. Mér fannst fiskvinnslan alveg ofboðslega spennandi og hafði suðað lengi í honum að fá að vinna og að lokum varð hann að láta undan vinnusjúkri dóttur sinni. Ég man eftir fyrstu útborgunardögum sumarsins. Það fyrsta sem ég gerði þegar ég hafði fengið launin í hendur var að fara í búð og kaupa sjampó og hárnæringu, helstu nauðsynjar stelpunnar. Þá fannst mér ég agalega sjálfstæð og kom heim ofsalega montin með vörur í poka. Þegar ég var í menntaskóla var ég innkaupastjóri í fyr- irtæki sem flutti inn barnafatnað og rak verslanir. Þegar ég hætti sem framkvæmdastjóri Stúdentaráös tók ég við daglegum rekstri fyrirtækisins og rak það þar til ég tók við verkefnastjórastöðu hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Innn.“ Tommi og Jenni og Albert Var mikil pólitík í kringum þig þegar þú varst lítil? „Ég er alin upp á mjög fréttaþyrstu heimili. Það var ákveðin athöfn að horfa á fréttir; fjölskyldan horfði saman á sjónvarpið. Fyrst í stað var ástæðan fyrir áhuga mínum á fréttum sú að Tommi og Jenni voru strax á eftir frétta- timanum. Svo fór ég að fylgjast öðruvísi með og þegar ég var í kringum tíu ára aldurinn var mikið fjallað um hung- ursneyð í Afríku. Þeir voru ófáir fréttatímarnir sem ég grét yfir. Ég var ellefu eða tólf ára þegar ég ákvað að þessu yrði að breyta. Ég ætlaði að verða framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna. Ég skildi aldrei misskiptinguna, mér fannst hún ósanngjörn og óþörf. Þá var þetta einfaldur heimur í mínum augum, ef einn átti meira en nóg þá ætti hann að geta gefið þeim sem átti of lítiö eða ekkert. Ég man mjög vel eftir þessari tiifinningu." Ertu búin að gefa framkvæmdastjórastarf hjá SÞ upp á bátinn? „Ég er hætt að máta mig í það starf en hins vegar er hug- sjónin enn til staðar. Ég er kannski orðin raunsærri og sé að það er hægt að breyta með öðrum leiðum. Á heimilinu var mikil umræða um pólitík en samt var aldrei einn flokkur sem réði ríkjum hjá fjölskyldunni. For- eldrar mínir kusu persónur. Á tímabilinu þegar Borgara- flokkurinn var að verða til var Albert Guðmundsson mik- il hetja á mínu heimili. Ég var. dálítið hrifin af honum, kannski út af hundinum." Flokkur í kreppu Hvenær byrjaðirðu í pólitík? „í menntaskóla varð ég snemma höll undir Alþýðu- bandalagið. Þegar ég var átján ára stofnaði ég ásamt nokkrum félögum mínum í MK Vakningu, félag ungs al- þýðubandalagsfólks í Kópavogi. Stuttu síðar var ég orð- in ritari flokksins í Kópavogi og komin inn í miðstjóm. Mér varð þó snemma ljóst að ég yrði ekki lengi í Al- þýðubandalaginu." Þú hefur aldrei tekið neina hægri sveiflu? „Nei. Ætli það byggist ekki á því hvemig áhugi minn á pólitík kviknaði; þetta bamslega sjónarhom á mis- skiptinguna í heiminum knúði mig áfram. Mig langaði ekki að finna raunsæja skýringu; mig langaði til að breyta þessu. Ég vil jöfn tækifæri." Það hafa orðið miklar breytingar i pólitísku umhverfi þínu síðan þú gekkst i Alþýðubandalagið. Flokkar hafa sameinast og sundrast og guð má vita hvað. „Það urðu óhjákvæmilega breytingar. Þegar ég gekk i Alþýðubandalagið var ljóst að það var flokkur í kreppu. Lítil hugmyndaendumýjun hafði átt sér stað. Það breyttist margt með tilkomu EES og breyttum tengslum íslands við umheiminn. Áherslur Alþýðu- bandalagsins og lausnir virkuðu ekki. Með nýju fólki koma nýir tímar. Og hreyfmgar eiga að vera það fólk sem í þeim er. Vissulega hefur margt breyst. Mér líður ótrúlega vel i Samfylkingunni. Það er mik- ill kraftur í flokknum, mikil dýnamík og ótrúleg hug- myndaauðgi. Það er vilji til að breyta og gera samfélag- ið betra. Á lokaspretti Alþýðubandalagsins fór mikil orka í innbyrðis karp en lítið var horft út fyrir flokk- inn. Hjá Samfylkingunni er allt annað uppi á teningn- um.“ Það sagði mér einu sinni félagi í Vinstri grænum að það góða við stofnun Samfylkingarinnar hafi verið að leiðinlegu tónlistarmennirnir hefðu allir farið þangað og allir fundir væru því bærilegri hjá Vinstri grænum en i Alþýðubandalaginu gamla. Það hefur ekki verið sérstaklega góður mórall milli þessara fylkinga? „Líklega er það vegna þess að mikið var lagt undir til að sameiningin yrði að veruleika. Þaö urðu sárindi þeg- ar þeir sem höfðu tekið þátt í að búa til stefnu Samfylk- ingarinnar stukku allt í einu af lestinni og stofnuðu eig- in flokk. Þau sárindi eru að hverfa eða eru horfm. En þeir héngu lengi með og það var mikið reynt til að halda í þá sem síðar stofnuðu Vinstri græna. Þessir flokkar eru ólíkir í dag með ólika sýn og nálg- un á viðfangsefni samtimans. Gott dæmi er mismun- andi sýn á Evrópusambandið." Frambjóðandi í umbúðum Það hlýtur að hafa verið stór ákvörðun að hella sér út í prófkjörsslag? „Auðvitað var það stór ákvörðun, sérstaklega fyrir 27 ára einstæða móður. Ég er líka í skemmtilegri vinnu í þekkingariðnaðinum. Fyrir ári síðan var ég síst á þeim buxunum að fara í framboð. En svo kom fólk að máli við mig!“ segir hún og hlær. „Það var kallað eftir ungu fólki meö reynslu í pólitík og mörgum þótti ég passa inn í þá mynd. Ég ákvað þvi að slá til. Og þetta gekk eigin- lega vonum framar. Mér hefur alltaf fundist prófkjör
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.