Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2002, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2002
X>"V
Fréttir
L
Góð kaup!
VW GOLF Comfortline
Nýskr.01.1999,
1600cc vél,
5 dyra, Gyltur,
Sjálfskiptur,
ekinn 89.þ,
->1.090/3.
575 1230
Opid mán-fös 09-18 og lau 10-16
Grjóthálsi 1
bilaland.is
Kv»<JU
íB í(anau&
s Perur og Ijóskastarar
s Boddyhlutir og bílljós
s Bílalakk og fylliefni
Borgartúni, Reykjavik
Bíldshöfða, Reykjavik.
Smiðjuvegl, Kópavogi,
Dalshraun. Hafnarfirði.
Hrismýri, Seltossi.
Dalbraut, Akureyri.
j Grófinni, Keftavik.
; Lyngési, E-gilsstöðum.
i Álaugarvegi, Hornafírði.
www.bilanaust.is
Sími 535 9000
SKUTUSIGLINGAR
Miðjarðarhaf
Kjölbátasamband íslands heldur fræðslufund,sem er
öllum opinn, aö Austurbugt 3, (Varðskipabryggja) ÍOI
Reykjavík mánudaginn 2. des. kl. 20:00
Fundarefni:
Skútusiglingar á Mibjarbarhafí.
Tvenn hjón lýsa siglingum við Grikkland, Tyrkland og
Frakkland og sérstöðu þessara siglingasvæöa með
myndum og frásögn.
Gestir greiöa kr. 800 og félagsmenn kr. 500.
Veitingctr innifaldar.
Stjórnin
p://sigling. tripod.com
íþróttahreyfingin svelt af fjárveitingavaldinu:
Telur ríkið greiða fram-
lög en ekki styrki
Ólafur Rafnsson, formaöur
Körfuknattleikssambands íslands,
segir aö tímabært sé að sjá hugar-
farsbreytingu til íþróttastarfsins og
fjárframlög til hennar séu í engu
samræmi viö ýmis önnur framlög
sem sjá megi í fjárlagafrumvörpum
Alþingis frá ári til árs. Einnig leggi
sveitarfélög mjög misjafnlega mikið
til íþróttastarfseminnar. Nauðsyn
beri til að líta á fjárframlög til
íþróttastarfseminnar sem framlög en
ekki styrki því auðvitað sé m.a. um
endurgjald að ræða fyrir þjónustu.
Af þeim ástæðum haldi margir að
íþróttahreyfmgin sé á framfæri hins
opinbera. Hugarfarið í þjóðfélaginu
er aö þetta eigi að vera sjálfboðastarf
og rekið með kotungshætti.
„En getur íþróttahreyfmgin virki-
lega setið aðgerðalaus gagnvart því
hugarfari að þetta sé 1 reynd byggt
á ölmusu og góðvilja hins opinbera?
Er ekki orðið tímabært að fara að
líta á fjárveitingar til íþróttastarfs
sem framlag fyrir ríkt endurgjald í
formi betra og heilbrigðara samfé-
lags, auk margvíslegs beins og
óbeins sparnaðar fyrir þjóðina í
heild sinni. Hættum að kalla þetta
styrki. Hættum að líta á okkur sem
ölmusuþega, með endaiausu þakk-
læti fyrir hverja krónu sem að okk-
ur er rétt. Sýnum meiri reisn og
virðingu fyrir okkar eigin störfum,"
segir Ólafur Rafnsson.
170 milljón króna framlag
Framlag ríkisins til íþrótta-
hreyflngarinnar í heild á árinu
2000 var 5% og heildarfjárhæðin
til íþróttasambands íslands nemur
um 170 milljónum króna. Á sama
tíma hefur risnu- og ferðakostnað-
ur ríkisins hækkað um sem svarar
270 milljónum króna milli ára og
er nú um 3,5 milljarðar króna.
„Auðvitað geta legið að baki
ferðakostnaði ríkisins gagnlegar
ferðir sem skila rikissjóði tekjum
með öðrum hætti. En er ekki eitt-
hvað að í forgangsröðuninni þegar
þetta er skoðað með þessum hætti
og nauðsyn á breytingum? Það er
veriö að leysa ákveðin mál í
íþróttahreyflngunni með því að
bæta 10 milljónum króna í afreks-
mannasjóð en á sama tíma eru
samþykkt aukaframlög til ís-
lensku óperunnar um 113 milljón-
ir króna á næstu fjórum árum.
Auðvitað er menningarheimurinn
að berjast fyrir sínu og við mund-
um einnig þiggja þessa peninga
væru þeir færðir okkur. Af hverju
eru landsliðsmenn okkar í flokka-
íþróttum ekki á launum eins og
„landsliðið" i óperusöng? NATO-
fundurinn í vor mun hafa kostað
700 milljónir króna en það heyrist
litil gagnrýni á það þó um sömu
upphæð sé að ræða og brúttófram-
lag ríkisins til íþróttahreyfingar-
innar í Fimm ár.
í nágrannaiöndum okkar koma
allt að 70% af veltu sérsamband-
anna frá ríkinu en hérlendis telst
það gott ef hlutfallið er 20%. Þetta
gerir starfsemina t.d. í Noregi
miklu auðveldari."
Aðeins 0,6% af veltunni
Eggert Magn-
ússon, formaður
Knattspyrnu-
sambands ís-
lands, stærsta
sérsambandsins,
segir að íþrótta-
hreyfmgin sé
allt of slök að
tala sínu máli
inni á Alþingi.
„Það æskulýðs-
og forvarnarstarf sem íþróttahreyf-
ingin er að vinna, aðallega með
sjálfboðaliðastarfi, er stórlega van-
metið. Þingmenn hafa hátt um það
hve mikið heilbrigðiskerfið kosti
en hvað mundi það spara mikið að
hafa heilbrigða íþróttahreyfingu?
Þar er einnig bent á að við höfum
tekjur af Lottóinu en það hafa
íþróttahreyfmgar nágrannaþjóð-
anna líka. Knattspyrnusambandið
fær um 1,5 milljónir króna frá rík-
inu gegnum ÍSÍ en við veltum um
250 milljónum króna svo framlagið
er um 0,6% af veltunni. Það er allt
og sumt,“ segir Eggert Magnússon.
-GG
DV-MYND KÖ
Ekki enda allar ökuferðir vel
Fólksbíll skemmdist taisvert þegar honum var ekiö á staur á mótum Fornustrandar og Látrastrandar á laugardaks-
kvöldiö. Einn kvartaöi um meiösli á hálsi eftir áreksturinn en meiösl uröu aö ööru leyti ekki á fólki.
Austur-Hérað:
Endurnýjun tölvukerfis
Austur-Hérað hefur gert samn-
ing við Skyggni h/f um hýsingu og
rekstur tölvukerfis og miðlæga
gagnavistun. Skyggnir hf„ í sam-
stafi viö Tölvusmiðjuna ehf. á Egils-
stöðum, tekur að sér að hýsa og
reka miðlægan búnað þar sem öll
gögn sveitarfélagsins og stofnana
þess verða vistuð og varðveisla
þeirra tryggð sem er mjög mikil-
vægt af skiljanlegum ástæðum.
Þessi ráðstöfun leiðir til þess að
öll upplýsinga- og samskiptamál
sveitarfélagsins verða endurskoðuð
og uppfærð til mikils hagræðis fyrir
bæði starfsfólk og íbúa sveitarfé-
lagsins, að ógleymdum sveitar-
stjórnarmönnunum sjálfum sem nú
fá mun greiðari aögang að þeim
upplýsingum um rekstur sveitarfé-
lagsins og stofnana þess sem þeir
þurfa á að halda. Upplýsingaöflun
öll verður mun fljótlegri og örugg-
ari og miðlun upplýsinga jafnframt
skilvirkari.
Samningur Austur-Héraðs og
Skyggnis um þessi efni var undirrit-
aður með nokkurri viðhöfn á fostu-
dag að viðstöddu flestu starfsfólkinu
á bæjarskrifstofunni, sveitarstjóm-
armönnum o.fl.
Bæjarstjórinn Eiríkur B. Björg-
vinsson undirritaði fyrir hönd bæj-
arins og framkvæmdastjórinn Svav-
ar G. Svavarsson fyrir hönd
Skyggnis hf.
Ekki fékkst upp gefið hver kostnað-
urinn við þetta verkefni er þrátt fyrir
greiðari upplýsingamiðlun. -PG
Bræðumir Ormsson verða 80 ára íþessarí viku.
Komdu og fáðuþérsneið afkökunni.
Fjöldi vörutegunda með 20% afmælisafslætti!
©ORMSSON
LÁGMÚLA 8 • SÍMI 530 2800