Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2002, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2002, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 7 DV Fréttir Formannaráðstefna FFSÍ gagnrýnir stjórnvöld vegna kvótamálsins: Slógu á útrétta hönd hagsmunaaðila - fórnað fyrir ávísun á áframhaldandi brask og óeðlilega viðskiptahætti Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands íslands (FFSÍ) harmar þá ákvörðun stjómvalda að hafna samvinnu við að hrinda í framkvæmd sam- eiginlegum tillög- um allra hags- munaaðila sjó- manna og útvegs- manna í ársbyrjun 2002. Með þeirri ákvörðun köstuðu stjómvöld frá sér möguleika á því að ásættanlegur friður skapaðist um stjórn fiskveiða. Stjóm- völd slógu á útrétta hönd hagsmunaað- ila atvinnugreinarinnar og komu þannig í veg fyrir það sem getað hefði orðið upphaf að sögulegri samvinnu um lausn á einu helsta ágreiningsmáli siðari ára varðandi stjórnun flskveiða. Á grundvelli höfnunar stjórnvalda lýs- ir ráðstefnan fullri ábyrgð á hendur þeim varðandi það ófremdarástand sem ríkt hefur og ríkja mun að óbreyttu innan atvinnugreinarinnar til varanlegs tjóns fyrir íslenskan þjóð- arbúskap. Ávísun á brask í ályktun formannaráðstefnu FFSÍ, sem haldin var í Hvalfirði fyrir helgina, segir einnig að mögu- leika til bættra samskipta aðila hafi verið fómað í skiptum fyrir frum- varp sem er ávísun á áframhald- andi brask og óeðlilega viðskipta- hætti. „Mörg nýleg dæmi um alls kyns misferli kalla á viðbrögð af hálfu hins opinbera. Sá dráttur sem orð- inn er á að uppfylla þau markmið sem kveðið var á um í gerðardómi varðandi verðmyndun helstu botn- fisktegunda hefur leitt .af sér tekju- tap fyrir sjómenn sem nemur ná- lægt fimm hundruö miljónum króna, sem í stað þess að nýtast sjó- mannafjölskyldum til framfærslu höfnuðu í fjárhirslum sægreifanna. Ótækt er að einstaklingar og fyr- irtæki í skjóli gallaðs kerfis geti leigt frá sér kvóta og skip fyrir hundruð miljóna átölulaust og við- haldið þar með því ömurlega leigu- liðakerfi sem er ein aðalmeinsemd sjávarútvegsins. Á því ári sem nú er langt liðið hefur mikið starf ver- ið unnið til að þrengja að þeim sem gera út á leigukvóta. Þar blasir við sú staðreynd að allar rekstrarfor- sendur eru mjög hæpnar ef nokkr- ar. Jafn augljóst er að ástæðan fyrir þessum útgerðarmáta er sú að alltaf finnst nóg af kvótaeigendum sem leigja vilja frá sér. Það eru síðan þessir sömu leigusalar sem sauma vilja að leigjendunum. Þessi lýsing sýnir í hnotuskurn á hvers konar brauðfótum framsal aflaheimilda stendur." Ráðstefnufulltrúar hvetja stjórn- völd til að beita sér nú þegar fyrir fjárhagslegum aðskilnaði veiða og vinnslu og stuðla þannig að því að aðstæður skapist fyrir eðlilegri verðmyndun á sjávarafla í gegnum fiskmarkaði. -HKr. V E I Ð I K L Æ R VEIÐI-MATARGERO-NÁTTÚRA Jólagjöf Veiðimannsins Myndbandsspólan VEIÐIKLÆR Fæst í Hagkaupum, Esso og betri ueiöibúöum. ” Skemmtileg tilbreyting frá venjunni og fróðleg." Sæbjörn Valdimarsson mbl. 31.10.02 Nú eru að verða síðustu möguleikarnir að fá myndatöleu og staekkanir fyrir jól. Ef |aú ætl ar að fá dugar ekki að panta núna keldur STRAX I öllum ofckar myndatökum eru innifaldar fullunnar stæfcfcanir. Ljósmyndastoían Mynd sími 565 4207, www.ljosmynd.is Ljósmyndastofa Kópavogs sími 554 3020 Passamyndir alla daga. Sumarlokanir Leikskólanna í Reykjavík: Upplýsingar um sparnað ekki á reiðum höndum - að mati framkvæmdastjóra atvinnulífsins „Ég tek eftir því að menn hafa ekki á reiðum höndum upplýsingar um hversu mikið eigi að spara. Mér finnst það sérkennilegt ef það er ekki skýr fjárhagslegur grundvöllur fyrir ákvörðuninni," sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, vegna boð- aðra lokana Leik- skóla Reykjavíkur einn mánuð í sum- ar. Tillaga þess efnis liggur nú fyrir borgarstjómarfundi sem haldinn verð- ur nk. fímmtudag. Ari Edwald. Ari sagði að leikskólar væra mikil- vægar þjónustustofhanir, fyrst og fremst fyrir böm og foreldra en einnig fyrir atvinnulíflð. Ekki lægi fyrir hvemig að lokunum leikskólanna yrði staðið eða hvaða tímasetning yrði val- in. Hvort tveggja skipti miklu máli. Einnig væri mikilvægt að fólk ætti eitt- hvert val um hvaða fjórar vikur sam- fellt yrði fri í viðkomandi leikskóla. „Ég er ekki að gera lítið úr því að leikskólamir þurfl að spara,“ sagði Ari. „Mér frnnst eðlilegt að einhver formfesta sé á leyfúm. Einnig að fyrir hvert bam sé tiltekinn tími þar sem ekki er kostur á leikskóla yfir sumarið. Hins vegar hljóta menn að þurfa að gera skýra grein fyrir því hvaða ávinn- ingi er náð með þessum aðferðum og hvort hann tapist við eilítið meiri sveigjanleika í framkvæmdinni. Þess má geta að vetrarfrí og starfsdagar í skólakerfmu almennt og á milli skóla- kerfis og leikskóla hafa verið án sam- ræmis. Það hefúr örugglega valdið fjöl- skyldum og atvinnulífi verulegu óhag- ræði og er jafnframt ömgglega til trafala í jafriréttismálum. Fólk getur þurft að sæta því að komið sé meira skikki á frítökur og lokanir á þjónustu- stöðum eins og leikskólamir em. En ég hef áhyggjur af því að þessi nálgun feli í sér meiri röskun heldur en þyrfti að vera ef einhver sveigjanleiki væri í þessu.“ -JSS Góð kaup! @ Renault Mégane Beriine Nýskr.03.1999, 1600cc vél, 5 dyra, svartur, Sjálfskiptur, ekinn 53.þ, ->990/j. 575 1230 Opið mán-fos 09-18 og Inu 10-16 Grjóthálsi 1 bilaland.is AHtfyfitóherberaið Isturtuklefi 90x90 cm. Rúnnað sturtul BaSkarshlíf, h!40 L85 cm. Sturtuhorn, 80-90 cm. fró kr. 122.650,- 4-6mm öryggisgl., hvítt/króm 4-6mm öryggisgl., hvítt/króm 5mm öryggisgl., hvítt/króm Verð ffrá kr. 35.800,- Verð f rá kr. 19.750,- Verð frá kr. 14.900, Sturtukleft iturtuhorn BaÖkarshlífar , 80-90 cm. iii ii Þrískipt baSkarshlíf, hl40 L125 cm. 5 mm öryggisgl., hvítt Verð kr. 16.900,- Baðkarshlíf milli veggja, hl40 L160-200 cm. 4 mm öryggisgl., hvítt Verð fró kr. 26.850,- »T . ' Hitastýrð blöndunartæki Verðfrákr. 8.900,- Smáatriðin í lag! Fgðlbreytt úHml V. Fellsmúla • S. 588 7332 Opið: Mán. - föst. 9-18, ffylgihluta á ffrábæru verði laugardaga í des. 10-16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.