Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2002, Blaðsíða 14
14
Menning
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2002
DV
Ástarsaga aldamótanna
Snemma í skáldsögunni
Áform eftir franska rithöf-
undinn Michel Houellebecq
spyr aðalsöguhetjan,
Michel, sjálfan sig: „Hvers
vegna hafði ég aldrei, al-
mennt séð, haft ástríðufull-
an áhuga á neinu í lífinu?“
Líf hans hefur verið alger-
lega slétt, fellt og ástríðulaust. Hann er op-
inber starfsmaður i tryggri stöðu, vinnur
við að skipuleggja sýningar á nútímalist
sem hann er þó innilega áhugalaus um.
Hann býr einn, borðar skyndimat og horf-
ir á sjónvarp, kynhvötinni svalar hann
með því að heimsækja gægjusýningar eft-
ir vinnu og einstaka sinnum vændiskon-
ur. Þegar faðir hans deyr erfir hann um-
talsverða fjármuni eftir hann. í kjölfarið
bregður hann sér i ferð til Taílands á vit
ævintýra og fyrirhafnarlauss kynlífs.
Bókmenntir
í Taílandi kynnist Michel ungri konu,
Valérie, og eftir að þau koma aftur til Par-
ísar taka þau upp ástarsamband sem á eft-
ir að hera óvenjulegan ávöxt. Valérie reyn-
ist starfa á ferðaskrifstofu og með Michel
sem ráðgjafa ræðst hún í að skipuleggja
gríðarmikla sókn inn á kynlífsmarkaöinn
í Asíu og viðar. Hugmyndir þeirra eru ein-
faldar en áhrifamiklar. Vesturlönd eru full
af fólki sem þráir kynlíf, Austurlönd full
af fólki sem hefur ekkert að selja nema
sjálft sig. Hér blómstrar síðkapítalisminn
og framboð og eftirspum eru í frábæru
jafnvægi þar til ógæfan dynur yfir.
Heimurinn sem lýst er í Áformum er kald-
ranalegur, útreiknaður og á ýmsan hátt ógeð-
um. Aðalpersónumar tvær, Michel og
Valérie, eru skilgetin afkvæmi þessa tíma,
skynsamar, hagrænar og fremur óham-
ingjusamar manneskjur.
Það sem gerir Áform að jafn frábærri
skáldsögu og raun ber vitni er að Houl-
lebecq tekst að segja ástarsögu þeirra
tveggja þannig að hún verður næstum
hjartnæm, án þess að snúast upp í væmni
og án þess nokkurn tíma að gefa lesandan-
um von um að þau muni breytast eða
heimurinn í kringum þau. Elskendumir
finna hlýju og fullnægju saman og með
öðrum í heimi sem heldur áfram að vera
kaldur og ógnandi - og sem þau halda
áfram að nýta sér. Ástríðuna sem Michel
saknar úr lífi sínu finnur hann kannski
ekki en saman finna hann og Valérie
manneskjulega hlýju sem verður eins og
vin í samtimanum.
Áform er frábær skáldsaga. Ekki ein-
ungis vegna þess að hún gegnumlýsir sam-
tímann af skarpskyggni og jafnvel spá-
dómsgáfu, heldur sérstaklega vegna þess
að í þeim harða heimi sem við byggjum
tekst persónunum að finna hvor aðra og
elskast. Þessi ást mun aldrei breyta heim-
inum, en hún er það eina sem býðst.
Það er þýðandanum og útgefanda til
sóma að Áform og Öreindimar eftir sama
höfund skuli koma út á íslensku jafn
snemma og raun ber vitni. Áform er
skyldulesning fyrir alla sem hafa snefil af
áhuga á nútímabókmenntum heimsins,
og hún fjallar um mál sem ekkert okkar
getur leitt hjá sér.
Jón Yngvi Jóhannsson
Michel Houellebecq: Áform. Friðrik Rafnsson þýddi.
Mál og menning 2002.
Michel Houellebecq
Skyldulesning fyrir alla sem hafa snefil af áhuga á nútímabók-
menntum heimsins.
felldur. Þetta er okkar samtími, tími alþjóða-
væðingar og markaðsvæðingar á öllum svið-
Ljós Evrópu
Lux Europae 2000, útisýning á
ljóslistaverkum, var opnuð í Kaup-
mannahöfn 15. október sl. og mun
standa til 5. janúar 2003. Tilefni
sýningarinnar er að Danir fara nú
með formannsembætti Evrópusam-
bandsins. 19 listamenn frá 17 Evr-
ópulöndum hafa gert 17 listaverk
byggð á hvers konar ljósatækni og
komið þeim fyrir víðs vegar í mið-
borg Kaupmannahafnar.
Aðalsteinn Stefánsson, ljósa- og
leikmyndahönnuður, var fenginn
til að sjá um þátt íslands í þessari
sérstæðu sýningu. Hann valdi
verki sínu stað á Jarmers Plads
skammt frá Ráðhústorginu þar
sem einu sýnilegu leyfar gömlu
borgarmúranna um Kaupmanna-
höfn eru. Verk hans er skírskotun
til varðtums úr tré sem sagður er
hafa staðið á þessum stað. Áriðl259
réðust Vindar á Kaupmannahöfn
undir forystu Jaromars fursta,
Þeir eyddu þvi sem þeir komust
yfir með eldi og meðal þess sem þá
var lagt í rúst var varðtuminn sem
stóð þar sem nú heitir Jarmers
Plads - eftir þeim sem fór fyrir
skemmdarverkunum, svo ein-
kennilegt sem það nú er.
Verk Aðalsteins heitir Jarmers
Tárn. Menntamálaráðuneytið og
Menningarsjóður íslandsbanka
studdu gerð verksins.
Jarmers Tárn eftir Aöalsteln Stefánsson
/ minningu turns sem var brenndur fyrir 743 árum.
Bókmenntir
Sögur fyrir Nemo
Sú sjálfsævisaga sem einna
mestum tíðindum sætir í ár er
sjötíu ára gömul. Það er sagan
Heima og heiman sem Húnvetn-
ingurinn Erlendur Guðmundsson
setti saman i ellinni fyrir kvöld-
vökufélagið Nemo í Gimli í Man-
itobafylki í Kanada. í forvitnileg-
um eftirmála ræðir útgefandinn, Kristján B.
Jónasson, skipti Erlends við persónuna Nemo
en kvöldvökufélagið sem saga hans er sögð hef-
ur enga félaga nema hann sjálfan.
Þrátt fyrir það hefur sagan skýran lesenda-
hóp, öfugt við margt útgefíð efni á íslandi sem
er nánast vitundarlaust um lesendur sína. Er-
lendur hefur skýra hugmynd um það hverjum
hann segir frá. í sögu hans eru fáir skallar,
„kvöldvökufélagarnir" þurfa ekki að vita svo
margt til að skilja frásögnina sem er rækileg og
skýr.
Erlendur Guðmundsson var fæddur árið 1863
en lést 1949. Árið 1899 tók hann sig upp og flutti
vestur um haf í kjölfar konu sinnar og dætra.
Það gerði hann nauðugur viljugur, honum þóttu
Vesturferðir feigðarflan og hann gerðist aldrei
handgenginn hinum nýja heimi, þóttist aldrei
geta lært málið og í ævisögu hans eru heimþrá,
söknuður og endurlit áberandi.
Fyrir vikið er fyrri hluti sögu Erlends afar ít-
arlegur og veitir ríka innsýn í líf venjulegra ís-
lendinga á ofanverðri 19. öld. Frásögn Erlends
nýtur þess að hinir meintu söguhlýðendur eru
Erlendur Guömundsson
Saga hans er náma upplýsinga um siöi og venj-
ur á 19. öldinni.
ófróðir um efnið og þess vegna þarf nútímales-
endum ekkert að líða eins og þeir séu að hlusta
á eintal eða að þeir séu vitni að samtali tveggja
kunningja um eitthvað sem þeir skilja ekki.
Þetta á ekki síst við um bls. 41-63 sem er eins
konar þjóðháttalýsing og mun eflaust nýtast
mörgum — til dæmis frásögnin af jólahaldi ís-
lendinga á uppvaxtarskeiði Erlends.
Trúmál eru rauður þráður í sögunni, allt frá
því að söguhetjan fermist í æsku og fer að hug-
leiða kennisetningar kristninnar. Þegar komið
er til Kanada verður hann enn gagnrýnni á lút-
ersku kirkjuna. Erlendur var sjálfur skynsemis-
hyggjumaður en hvorki ósnortinn af frjálslyndi
né sósíalisma. Þá virðast þeir bræður frá æsku
hafa verið íhugulir enda greindarmenn báðir
tveir.
Samband Erlends við bróður sinn, Jón, er
raunar annar þráður í sögunni. Jón lést
skömmu fyrir þrítugt og virðist andlát hans
hafa orkað þungt á Erlend því að hinn látni
bróðir tók að sækja á hann rúmum þremur ára-
tugum eftir andlátið. Sérstætt er hve lengi Er-
lendur dregur að segja frá sjálfum sér. Fyrst
rekur hann sögu foreldra sinna og systkina og
fer ekki að fjalla um sjálfan sig fyrr en Jón er
látinn í frásögninni.
Saga Erlends Guðmundssonar er bitastæð.
Hana má nálgast sem endurminningar, námu
upplýsinga um siði og venjur á 19. öldinni, og
einnig má rekja þræði hennar sem eins konar
þroskasögu. Þó að seint sé bætist hér býsna
snjall sögumaður í röð útgefmna íslenskra höf-
unda.
Ármann Jakobsson
Erlendur Gubmundsson: Heima og heiman. Kristján B.
Jónasson og Þorvaldur Kristinsson bjuggu til prentun-
ar. Mál og menning 2002.
Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir silja@dv.is
Kona fjarskans
Ljóðabókin Kona
fjarskans, konan hér eftir
Normu E. Samúelsdóttur,
hefst á löngum ljóða-
flokki, samnefndum bók-
inni, sem sýnir líf konu á
fjölbreyttu myndmáli. Að
öðru leyti er þetta safn
ljóða frá alllöngum tíma og segir höfund-
urinn að flest þeirra fjalli um tilfinning-
ar. „Þau segja: ég er glöð; ég er sátt; ég
er hrædd; ég er döpur... Ljóðin eru leið
mín til að leita auðæfa og gætu ef til vill
kallast einfold, hversdagsleg, en fyrir
mig eru þau leiðin til að lifa af.“
Norma yrkir m.a. um áhrif Suður-
landsskjálftanna árið 2000 á ljóðmæl-
anda sinn og lýkur því ljóði með þessum
orðum: „Sat / innan við / útidyr / tilbú-
in að hlaupa / Svefninn mátti ekki sigra
/ varð að vera viðbúin / Mátti ekki bug-
ast / barasta / Ekki“ Næsta ljóð á eftir
heitir Jónsmessa og lýsir eftirköstunum.
Það hefst á þessum línum:
Hefur ekki sofiö í rúmi
sínu
síöan þá
allsstaöar
nema í rúmi sínu
í íbúö fiarverandi dóttur
í höfuöborginni
hjá vinafólki í Mosfellsbœ
barnabarni í Hafnarfiröi
litla barninu fríöa
í bifreiö sinni
viö Skálholt
/.../
Ekki sofió í rúmi sínu
síöan þá
Norma hefur áður gefið út skáldsög-
una Næstsíðasti dagur ársins (1979),
ljóðabókina Tréð fyrir utan gluggann
minn (1982) og fleiri bækur. Hún gefur
nýju bókina út sjáif.
Töfrar
Salka hefur geflð út upp-
eldishandbókina Töfrar 1-
2-3 eftir bandaríska sál-
fræðinginn Thomas W.
Phelan sem hefur orðið
þekktur fyrir uppeldisað-
ferðimar sem hann kynnir
í bókinni.
Ekki er alltaf auðvelt
fyrir foreldra að taka á hegðunarvanda
barna sinna af stillingu og sanngirni.
Þessi bók geymir ótal ráð sem uppalend-
ur geta nýtt sér til að aga af mildi börn
á aldrinum 2ja til 12 ára . Meðal annars
er fjallað um athyglisbrest, hvernig
bregðast má við ótækri hegðun, hvernig
auka má sjálfstraust bama, hvernig
kennarar geta haft hæfilega stjóm á
bekk og hvemig hægt er að komast hjá
þrætum svo að bæði börnum og fullorðn-
um líði betur.
Bryndís Víglundsdóttir þýddi bókina.
Sókn og vörn
Skálholtsútgáfan - út-
gáfufélag þjóðkirkjunnar
- hefur geflð út bókina
Sókn og vöm, kristin við-
horf kynnt og skýrð eftir
dr. Sigurbjörn Einarsson
biskup.
Dr. Sigurbjörn lítur til
ýmissa átta I þessari bók.
Hann beinir sjónum sínum að kirkjunni
og vísindunum, skoðar eðli lifsins og til-
gang af skarpskyggni og visku. Ekkert er
honum óviðkomandi. Hann talar hisp-
urslaust um uppeldis- og skólamál og fer
fyrir kristnum gildum og viðhorfum í
hverju einu máli. Sumt hefur birst áöur
í bókum og ritum sem fyrir löngu eru
uppseld, annað efni er nýtt og höfðar
sem fyrr til allra þeirra er unna hag
kristinnar trúar í landinu sem og ís-
lenskri menningu.
Happdrætti
Bókatíðinda 2002
Dregin hafa verið eftirtalin númer í
Happdrætti Bókatíðinda 2002: 1. des.:
4.336, 2. des.: 61.698, 3. des.: 62.921, 4. des.:
23.624.