Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2002, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2002, Blaðsíða 18
18 ___________________________________FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 Tilvera TXST Treflarnir Edda Hrund Harðardóttir syngur í Salnum: t skiluðu jgóð- um ágoða Svindlaði sér inn > Krabbameinsfélaginu og Samhjálp kvenna hefur verið afhentur ágóði af sölu á treflum í tengslum við átak í október gegn brjóstakrabbameini, alls rúmlega 1100 þúsund krónur. í mörgum löndum hefur októbermán- uður ár hvert verið helgaður ár- vekni um brjóstakrabbamein. íslend- ingar tóku nú í þriðja sinn þátt í þessu átaki á þann hátt að Artica, umboðsaðili Estée Lauder, Clinique og Origins, og þrjátíu útsölustaðir fyrirtækisins seldu vandaða ullar- treíla merkta tákni átaksins, bleikri slaufu. Salan gekk mjög vel og hlut- fallslega mun betur en í nálægum löndum. Öllum ágóða af sölunni verður varið til að gera fræðslu- myndband um gildi brjóstaskoðunar og brjóstakrabbameinsleitar. Árveknisátakið fólst einnig í því að vekja athygli á þessum sjúkdómi, sem tíunda hver kona á íslandi greinist með einhvern tíma á lífsleið- inni, fræða um hann og hvetja kon- ur til að nýta sér boð leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins um röntgen- myndatöku. -aþ í Söngskólann Edda Hrund Harðardóttir sópransöngkona vissi snemma hvað hún vildi. Hún var aðeins fjórtán ára þegar hún fór i áheym- arpróf í Söngskólanum í Reykja- vík og átján ára í Royal Academy of Music í London og komst inn í báðum tilfellum. Nú ætlar hún að halda einsöngstónleika í Salnum á morgun klukkan 16. Undirleikari er Richard Simm píanóleikari og yfirskriftin er Tónar Evrópu. Edda útskrifaðist á liðnu vori úr Royal Academy of Music í London með B.Mus.-gráðu i tón- list, ásamt söngkennaraprófi, með ágætiseinkunn. Nú vinnur hún að Postgraduate diploma í söng í sama skóla sem lýkur með út- skriftartónleikum næsta sumar. En aftur að upphafí söngnámsins sem Edda Hrund lýsir svo: „Ég var sísyngjandi sem bam og systir mín sem hafði heyrt um áheymarpróf hjá Söngskólanum í Reykjavik hvatti mig til að prófa. Þar var þá sextán ára aldurstak- mark þannig að í prófmu sagði ég ósatt um aldur minn og bætti því við að ég væri i fjölbraut! Mér leið þvi mjög asnalega þegar ég komst inn og fékk þann vitnisburð að ég hefði sérlega þroskaða rödd af 16 ára stúlku að vera. Það endaði með því að ég bað mömmu að hringja og útskýra málið.“ Edda Hrund kveðst hafa verið undir handleiðslu fjögurra ágætra kvenna, þeirra Þuríðar Pálsdótt- ur, Ásrúnar Davíðsdóttur og Jór- unnar Viðar í Söngskólanum í Reykjavík, og eftir að til London kom, Elísabethar Ritchie prófess- ors. En hvemig kann hún við sig í London? „Mér líður vel í London og leigi húsnæði ekki svo langt frá skólan- um en það kostar heilmikið hark að halda sér uppi,“ svarar Edda Hrund. Hún kveðst víða hafa kom- ið fram á tónleikum, unnið í Royal Albert Hall og sungið hlut- verk Barbarinu í Le Nozze di Fig- aro síðasta sumar í Litla leikhús- inu í Suður-Frakklandi. Fram undan er meðal annars söngur í Requiem eftir Mozart auk þess sem hún ætlar að kynna íslensk sönglög í Englandi, ásamt þremur öðmm íslendingum. Hvað við tek- ur svo að námi loknu er óráðið DV-MYND SIG. JOKULL Sópransöngkonan Edda Hrund ætlar aö kynna íslensk sönglög í Englandi á næstu mánuö- um, ásamt þremur öörum. enn en óperusöngurinn heillar. „Hann hæfir rödd minni best,“ segir söngkonan unga. -Gun. Ágóðinn afhentur Eva Garöarsdóttir Kristmanns og Þóra Hrönn Njálsdóttir, frá Estée Lauder, afhenda Guörúnu Sigurjónsdóttur, formanni Samhjálpar kvenna, og Siguröi Björnssyni, for- manni Krabbameinsfélags íslands, ágóöa afsölu á treflum meö bleiku slaufunni. Einnig Vídd: Njarðarnes 9 -Akureyri Bæjarlind 4— Sími 554 6800 og Ágentia ehf. - Boídursgöfu 14 - Keflavik www.vidd.is — vidd^^vidd.ís Gód kaup! (P Renault Laguna Berline RT 1.6 Nýskr.04.2002, 1600cc vél, 5 dyra, 5 gíra grár, ekinn 6.þ, ->1.890/7. 575 1230 Opió mán-fös 09-18 og lau 10-16 Grjóthálsi 1 bilaland.is 7-SJ í Setbergsskóla í heimsókn á DV Aöalgeir Sigurösson, Andrea Sól Kristjánsdóttir, Arnar Bjarki Jónsson, Arndís Sara Þórsdóttir, Árni Grétar Finnsson, Benedikt Reynir Kristinsson, Daníel Freyr Þorsteinsson, Erna Oddný Gísladóttir, Freydís Helgadóttir, Guðrún Al- bertína Einarsdóttir, Gunnar Emil Sigurösson, Hafsteinn Hafnfjörö Jónsson, Hafsteinn Þór Guðjónsson, Helena Karlsdóttir, Hólmfríöur Stefánsdóttir, Jó- hann Helgi Ólafsson, Jónas Karl Jónasson, Katrín Huld Vignisdóttir, Klara Ingvarsdóttir, Kristrún Gunnarsdóttir, Signý L. Siguröardóttir, Steinunn Eiríks- dóttir, Sunna Jóhannsdóttir, Sveinn Ragnar Sigurösson, Tryggvi Jónsson. Kennari er Sandra Jónasdóttir. Skapandi fangar í upphafi Green- flngers er sagt að byggt sé á sönnum atburðum. Þetta er staðreynd sem gleymist mjög fljótt, enda held ég að sannleikurinn í þessari ágætu gam- anmynd sé ein- göngu sá að einhvem tímann tóku fangar þátt í blómasýningu. Allt annað hlýtur að vera skáldskapur þar sem yf- irbragð myndarinnar hefúr þennan skemmtilega blæ bresks húmors sem byggist á persónum, sem eiga sér litla stoð í raunveruleikanum. Aðalpersónan er fanginn Coiin Briggs (Clive Owen), sem er einn út- valdra fanga sem fá að dvelja í opnu fangelsi. Briggs er bitur maður og viil helst fá að vera í friði. Með honum í klefa er gamall maður, sem hefur áhuga á blómum. Sá nánast treður þessum áhuga sínum á Briggs, sem fær lífsviijann á ný við það að gróðursetja. Kemur í ljós að hann er gæddur mikl- um hæfileikum í garðyrkju. Á vegi fangans verður fræg sjónvarpskona (Helen Mirren) sem gefúr út bækur um garðyrkju og tekur hún fangana upp á sina arma og kemur þeim í sviðsljósið. Greenfingers er uppfull af skemmti- legum húmor og eins og Bretum er ein- um lagið þá er góðlátleg þjóðfélags- ádeila í húmomum. Leikarar eru flnir. Clive Owen fer sjáifsagt bráðlega að teljast tii kvikmyndastjama, Helen Mirren bregst ekki ffekar en fyrri dag- inn. Svo er það senuþjófurinn, David Kelly, sem heiilar okkur jafn mikið og hann gerði í Waking Ned Divine. -HK Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Joel Herschman. England, 2001. Lengd: 91 mín. Leikarar: Clive Owen, Helen Mirren, David Kelly og Warren Clarke. Bönnuö börnum innan 12 ára. Oíher Voices ★★ Framhjáhald Other Voices er dæmigerð kvik- mynd metnaðarfulls leikstjóra, sem er að hefja feril sinn, en fer fram úr sjáif- um sér og skilur áhorfendann með eitt spumingarmerki í augum. Leikstjórinn og handritshöfund- urinn Dan McCor- mack fékk víst ein- hver leikstjómar- verðlaun fyrir þessa kvikmynd. Ekki veit ég fyrir hvað þvi ef eitthvað er þá miss- ir hann tökin á myndinni þegar líða fer á hana. Other Voices byrjar sem drama. PhO (David Aaron Baker) og Anna (Mary McCormack) em komin að endapunkt- inum í hjónabandinu og telja að hvort um sig standi í framhjáhaldi. Anna gengur til sálfræðings, sem virðist vera verri á taugum en Anna og Phil trúir vini sínum fyrir hjónabandsvandamál- um sínum. Vinurinn mælir með því að hann fái sér einkalöggu sem þekktur er fyrir það að redda hlutunum. Á meðan fer Anna í heimsókn til bróður síns, sem býður henni í hádegisverð á eftir- sóttasta hádegisverðarstaðnum í New York. Sá staður er á opnu götuhomi. Hér fer textinn smátt og smátt að breyt- ast í húmor, sem er í dekkri kantinum. Um leið missir leikstjórinn tökin á sög- unni svo úr verður óskiljanleg enda- leysa þar sem aukinn hraði í atburða- rásinni gerir það að verkum að erfitt er að horfa á myndina og öll skemmtun sem í upphafi var boðuð er fokin út í veður og vind. Einstaka atriði em vel gerð og vonandi kemst Dan McCor- mack niður á jörðina, hann hefur hæfi- leikana. -HK Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Dan McCormack. Bandarikin 2000. Lengd: 104 mín. Leikarar: Mary McCormack, David Aaron Baker, Campbell Scott, Stockard Channing, Rob Morrow og Peter Gallagher. Bönnuö börnum innan 16 ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.