Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2002, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2002, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 27 DV Sport Intersport-deildin í körfubolta: KRáto - eftir auðveldan sigur á Blikum í gær Eftir þijá tapleiki í röö skelltu KR-ingar áhugalitlum Blikum í DHL-höllinni í gærkvöld, 99-81, og eru í efsta sæti deildarinnar sem stendur. Ingi Þór Steinþórsson, þjálf- ari KR, var sáttur við stigin tvö. „Ég er ekki sáttur við hversu kaflaskipt þetta var hjá okkur en ég er sáttur við stigin tvö. Ég er ánægð- ur með vörnina í heild en hefði viljað klára leikinn með meiri mun. Við gáfum aðeins eftir í lokin eftir að hafa verið 24 stigum yfir um tíma. Átti von á þeim sterkari Ég átti von á Blikum sterkari og var með hnút í maganum þar sem við vorum ekki með Óðin Ásgeirs- son og Amar Kárason í leikmanna- hópnum. Ég verð að viðurkenna það að þetta var auðveldara en ég átti von á. Mér fannst Blikamir ekki spila sannfærandi að þessu sinni og vanta alla leikgleði hjá þeim. Leikurinn sjálfur var frekar þungur og leiðinlegur. Það var mik- ið dæmt og því gekk leikurinn ekki KR-Breiðablik 99-81 2-0, 7-6, 16-17, 20-19, (23-23), 28-23, 33-29, 41-31, 45-33, (46-39), 51-39, 56-iO, 62^1, 64—49, 72-52, (72-60), 78-60, 86-62, 90-71, 95-75, 99-81. Stig KR: Darrell Flake 36, Magni Haf- steinsson 17, Skarphéðinn Ingason 16, Bald- ur Ólafsson 11, Jóhannes Ámason 9, Stein- ar Kaldal 6, Jóel Sæmundsson 4. Stig Breióabliks: Pálmi Sigurgeirsson 26, Kenneth Tate 19, Mirko Virijevic 19, Jón Arnar Ingvarsson 9, Eggert Baldvinsson 6, Ágúst Angantýsson 1, Þórarinn Andrésson 1. Dómarar (1-10): Jón Bender og Rögnvaídur Hreiðarsson (7) Gœói leiks (1-10): 5. Áhorfendur: Um 140. Maður leiksins: Darreli Flake, KR. Fráköst: KR 43 (11 í sókn, 32 í vöm, Fla- ke 13), Breiðablik 37 (17 I sókn, 20 i vörn, Tate 15). Stoðsendingar: KR 26 (Steinar 7), Breiöablik 15(Pálmi5). Stolnir botíar: KR 7 (Flake 3), Breiða- blik 13 (Pálmi 4). Tapaðir boltar: KR 24, Breiöablik 15. Varin skot: KR 15 (Magni 5), Breiðablik 9 (Mirko 4). 3ja stiga: KR 14/7, Breiöablik 15/6. Vlti: KR 33/26, Breiðablik 28/21. NBA-DEILDIN Urslit í nótt Atlanta-Milwaukee.........98-80 Robinson 23 (7 frák.), Terry 19 (12 stoðs.), Newble 14, Rahim 14 - Thom- as 17, Allen 16, Redd 14 (7 frák.) Golden State-Minnesota ..98-114 Jamison 32 (10 frák.), Richardson 22, Murphy (13 frák.) 12 - Gamett 21 (15 frák., 9 stoðs.), Gill 19, Peeler 17 sem skyldi. Sigurinn er engu að sið- ur góður og heldur okkur á toppn- um. Eftir þrjá tapleiki í röð fórum við vel yfír okkar mál og það vora allir sammála um að við getum gert mun betur. Við getum unnið betur saman en við vissum fyrir tímabilið að það tæki tíma áður en við færum að spila eins og smurð vél,“ sagði Ingi. Leikurinn var jafn eftir fyrsta leikhluta og heimamenn leiddu með sjö stigum í hálfleik. KR náði síðan góðum kafla í þriðja leikhluta og komst 20 stigum yfir, 72-52, en gest- imir náðu að rétta sinn hlut í lok leikhlutans með átta stigum í röð. þriðji leikhluti fór mikið fram á vítalínunni þar sem 17 villur voru dæmdar. Blikar urðu síðan fyrir blóðtöku þegar Kenny Tate fékk sína fimmtu villu í upphafi fjórða og síðasta leik- hluta. Tate dekkaði Darrell Fiake allan leikinn og fór mikil orka hjá honum í það. Það kom þó á óvart að hann skyldi halda áfram að dekka hann þrátt fyrir aö vera með fjórar villur á bakinu. Leystist upp í vitleysu Fjórði leikhluti leystist síðan upp í vitleysu enda úrslitin orðin ráðin þegar átta mínútur voru eftir. Hjá KR átti Flake mjög góðan leik þrátt fyrir að vera nánast á annarri löppinni allan leikinn. Ingi Þór sagði eftir leikinn aö vamarmenn hefðu fengið að lemja mikið á Flake án þess að dómarar sæju ástæðu til þess að dæma. „Flake er eitraður leikmaöur sem er að nýtast okkur gríðarlega vel. Hann var meiddur á hné en lét það ekki á sig fá. Ég er óánægður með að hann fær enga virðingu frá dómurunum. Hann kvartar aldrei þó að vamarmenn haldi honum og þess vegna er ekki verið að dæma á neitt. Menn fá að lemja á honum inni i teig.“ VINTERSP&Rr DEILDIN Staöan í deildinni: KR 9 7 2 810-700 14 Njarðvík 8 6 2 653-628 12 Grindavík 8 6 2 726-639 12 Keflavík 8 6 2 819-649 12 Haukar 8 5 3 680-640 10 ÍR 8 5 3 707-701 10 Tindastóll 8 4 4 688-698 8 Breiöablik 9 3 6 813-840 6 Hamar 8 3 5 743-835 6 Snæfell 8 3 5 612-637 4 Skallagrímur 8 1 7 597-708 2 Valur 8 1 7 582-755 2 Næstu leikir: 1 kvöld Grindavík-Njarövík..........19.15 ÍR-Keflavlk.................19.15 Tindastóll-Hamar 19.15 (frestaö í gær) Snæfell-Valur .. 19.15 (frestað í gær) Sunnudaginn 8. desember Skallagrímur-Haukar ........19.15 Fimmtudaginn 12. desember Haukar-Grindavík............19.15 Valur-TindastóU.............19al5 Friðrik Ingi stjórnar 400. leiknum í kvöld Landsliðsþjálfarinn Friðrik Ingi Rúnarsson nær merkum áfanga á þjálfaraferli sínum í kvöld. Friðrik Ingi fær þá ásamt lærisveinum sínum í Grindavík sitt gamla lið, Njarðvík, í heimsókn í Röstina í Grindavík en þetta verður 400. leikurinn sem Friðrik Ingi stjórnar í móti á vegum KKÍ. Friðrik Ingi, sem er aðeins 34 ára, hefur stjórnað þremur liðum á sínum þjálfaraferli auk íslenska landsliðsins og það er skemmtileg tilviljun að í hans 400. leik skuli þau tvö lið mætast sem hann hefur stjómað i 372 af þessum 399 leikjum. Friðrik Ingi þjálfaði fyrst meistarflokk hjá Njarðvik tímabilið 1990 til 1991, þá aðeins 22 ára, og undir hans stjóm varð Njarðvík meistari vorið 1991. Síðan þá hefur hann gert Grindavík að meisturum 1996 og svo Njarðvík aftur tveim.ur ámm seinna. Undir stjóm Friðriks Inga hafa liðin unnið 278 af þessum 399 leikjum eða 70%. Alls hefur Friðrik Ingi stjómað sínum liðum í 260 úrvalsdeildarleikjum og þar státar hann af 71% sigurhlutfalli. -ÓÓJ Magni Hafsteinsson og Skarphéð- inn Ingason voru ágætir. Baldur Ólafsson og Jóhannes Ámason komust ágætlega frá sínu. Baldur er vaxandi og veröur kominn í fma leikæfingi eftir áramót. Skortir á áhuga Blika virtist skorta áhuga á verk- efninu og reyndi Jón Amar Ingvars- son, þjálfari liðsins, að hrista upp í sínum mönnum nokkrum sinnum í leiknum en fékk lítil viðbrögð. Egg- ert Baldvinsson kom með smá neista inn á völlinn og Ágúst Ang- antýsson barðist einnig vel. -Ben I Jón Arnar bætti met Jóns Kr. Jón Amar Ingvarsson, spilandi þjálfari Breiðabliks, til vinstri, bætti í gærkvöldi stoösendinga- met Jóns Kr. Gíslasonar í tapleik gegn KR og er hann eftir leikinn sá sem hefur oftast spilaö félaga sina fría. Alls hefur Jón Arnar geflð 1362 stoðsendingar í þeim 323 leikjum sem hann hefur spilað en Jón Kr. hafði sent 1359 stoðsendingar á þeim tima sem stoðsendingar voru skráöar á hans ferli. Jón Kr. lék fimm fyrstu timabilin án þess að tölfræði væri tekin saman. Jón Arnar hefur gefið 34 stoðsendingar í níu leikjum Breiðabliks I vetur en fyrir tíma- bilið var hann sá sem haföi geflð flestar stoðsendingar fyrir eitt fé- lag. -ÓÓJ Flestar stoösendingar í úrvalsdeild: 1. Jón Amar Ingvarsson......1362 2. Jón Kr. Gíslason.........1359 3. Teitur örlygsson.........1105 4. Friðrik Ragnarsson.......1101 5. Tómas Holton.............1086 6. Falur Haröarson...........861 7. Guöjón Skúlason ..........725 8. Ómar Sigmarsson.......... 713 9. Eiríkur Önundarson........676 10. Alexander Ermolinskij...668 Pálmi Freyr Sigurgeirsson, leikmaður Breiðabliks, sækir hér á körfu heimamanna og eru þeir Skarphéðinn Ingason og Baldur Ólafsson til varnar. DV-mynd Sigurður Jökull Bræður í Skallagrím Samkvæmt heimúdum DV-Sport hafa Borgnes- ingar samið við tvo Júgóslava fyrir komandi átök í Intersport-deúdinni. Leikmennirnir sem um ræðir heita Múosh og Darko Ristic og léku báðir í Frakklandi síðasta vetur. Darko er eldri bróðir- inn og er 27 ára framherji og 204 cm á hæð. Hann lék með Saint Bieuc sem leikur í neðri deúdum Frakklands. Yngri bróðirinn er 20 ára bakvörður, 193 cm á hæð og lék einnig í neðri deúdum Frakk- lands Ben msm í < i*~ < i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.