Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Blaðsíða 30
30 H<3iQarblað 3DV LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002 Hefnd í huga Man. Utd. Sylvain Wiltord tryggði Arsenal sigur gegn Man. Utd. á Old Trafford í fyrra og hann sést hér fagna sigurinarkinu sem tryggði Arsenal jafnframt enska meistaratitilinn. Reuter Heil umferð fer fram í enska boltanum um helgina og eru margar athyglisverðar viðureignir á dagskránni enda orðið ansi heitt undir nokkrum framkvæmdastjór- um í deildinni. Engu að síður er óhætt að segja að leik- ur helgarinnar sé viðureign Englandsmeistara Arsenal og Man. Utd. á Old Trafford. Slæmar minningar Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd., verður væntan- lega ekki í miklum vandræðum með að ná upp stemn- ingu hjá sínum mönnum fyrir leikinn enda eiga þeir harma að hefna frá því liðin mættust síðast á Old Traf- ford í maí síðastliðnum en þá vann Arsenal, 0-1, með marki frá Frakkanum Sylvain Wiltord og tryggði Arsenal sér um leið enska meistaratitilinn sem er hlut- ur sem gleymist ekki svo glatt hjá United-mönnum en að sama skapi fannst Arsenal afar sætt að landa titlinum á heimavelli erkióvinarins. Fyrir vikið vann Man. Utd. engan titil á síðasta ári og var það í fyrsta skipti í fjög- ur ár sem þeir standa uppi tómhentir þannig að síðasta tímabil svíður enn þá hjá Rauðu Djöflunum. Liðin mætt- ust alls þrisvar sinnum á síðustu leiktíð og vann Arsenal í öll skiptin. Heimaleikinn í deildinni unnu þeir 3-1 og einnig mættust liðin á Highbury í deildarbikarn- um þar sem Arsenal vann 4-0 og svo að sjálfsögðu 0-1 leikurinn á Old Trafford sem áður er minnst á hér að of- an. Árinu áður fór aftur á móti fram einn eftirminnileg- asti leikur síðari ára á Old Trafford milli þessara liða er United fór með 6-1 sigur af hólmi í hreint ótrúlegum leik. Meiðsli báðum niegiu Góðu fréttirnar í herbúðum Man. Utd. fyrir leikinn eru þær að Fabien Barthez, Laurent Blanc, Gary Neville, Quinton Fortune og Juan Sebastian Veron eru allir klár- ir í slaginn en menn á borð við Beckham, Keane og Ferdinand eru enn meiddir. Hjá Arsenal gæti David Seaman snúið á nýjan leik í liðið en Svíinn Rami Shaaban hefur leyst hann af hólmi undanfarið með ágætum árangri. Ray Parlour, Lauren og Kanu léku allir með Arsenal í deildarbikarnum í vik- unni og verða væntanlega í hópnum og svo er fastlega búist við því að Martin Keown, sem er nýstiginn upp úr meiðslum, taki stöðu Sol Campbell í vörninni sem er í banni. í fínu formi Bæði lið hafa átt góðu gengi að fagna að undanförnu en Man. Utd. hefur unnið síðustu fjóra leiki sína og þeir hafa ekki tapað í síðustu sex. Þeir hafa heldur ekki tap- að á heimavelli siðan 11. september er Bolton Wanderers gerði sér lítið fyrir og lagði United, 0-1. Arsenal er búið að vinna tvo leiki í röð, annar þeirra í deildinni en hinn í Meistaradeildinni. Liðið hefur unn- ið 11 leiki í deildinni sem er mest allra liða en þeir hafa einnig unnið skorað mest allra það sem af er eða 36 mörk. Arsenal hefur skorað í 56 leikjum í röð í deildinni sem er met sem þeir bættu fyrir nokkrum misserum síð- an en síðast mistókst þeim að skora í deildinni 15. maí 2001 er þeir léku gegn Newcastle á útivelli. Heitir framheijar Sóknarmenn liðanna hafa verið í feiknaformi það sem af er leiktíðar en Ruud Van Nistelrooy, framherji Man. Utd., hefur gert átta mörk í deildinni en Thierry Henry, framherji Arsenal, hefur gert níu. Henry hefur skorað grimmt undanfarið og setti fimm mörk í síðustu viku og Úrúgvæinn Diego Forlan hjá Man. Utd. hefur einnig ver- ið heitur undanfarið en hann skoraði þrjú mörk í síð- ustu viku. Sá þeirra sem verður á skotskónum í dag gæti orðið örlagavaldurinn í leiknum. Erfitt hjá Liverpool Liverpool hefur gengið allt i óhag á síðustu vikum og tapað síðustu tveim leikjum í deildinni. Þeir fá það verð- uga verkefni að ferðast á The Valley þar sem þeir mæta sjóðheitu liði Charlton sem hefur unnið síðustu þrjá leiki sína í deildinni. Helsta breytingin á liði Liverpool i leiknum verður sú að hinn efnilegi markvörður, Chris Kirkland, tekur sæti Pólverjans Jerzy Dudek á milli stanganna hjá Rauða Hernum en Dudek hefur verið afar mistækur undanfar- ið og mistök hans gegn Man. Utd. um síðustu helgi eru flestum enn í fersku minni. Charlton verður með sitt sterkasta lið í leiknum þar sem allir leikmenn liðsins eru heilir og fyrirliðinn Richard Rufus snýr til baka eft- ir að hafa tekið út leikbann. Endurtekur Chelsea leikinn? Eiður Smári og félagar í Chelsea höfðu mikla yfir- burði gegn Everton í deildarbikarnum í vikunni er þeir sigrðuðu 4-1 og liðin mætast á nýjan leik í dag. Bæði lið hafa verið á miklu skriði undanfarnar vikur og er þetta viðureign sem margir bíða spenntir eftir. Heimamenn í Everton verða án Mark Pembridge en heilsa leikmanna Chelsea er góð og má fastlega búast við því að Gian- franco Zola og Jimmy Floyd Hasselbaink verði í fram- línu liðsins sem þýðir að Eiður Smári verður að sætta sig við sæti á bekknum. Hasselbaink skoraði tvö mörk í leik liðanna í vikunni og er óðum að finna sitt fyrra form og Zola hefur verið heitur allan veturinn en hann er markahæstur í deildinni ásamt Thierry Henry, Alan Shearer og James Beattie með níu mörk. Framherjar Man. Utd. liafa verið á skotskónum undanfarið og hér sjáum við þá fagna marki fyrr í vetur og í bakgrunni er Sir Alex Ferguson, stjóri liðsins. Reuter Ætlar að spUa fótbrotinn Það er bjartara framundan hjá Guðna Bergssyni og fé- lögum í Bolton en þeir mæta Blackburn í dag. Guðni er að verða klár eftir nokkurra vikna fjarveru vegna meiðsla og hann verður hugsanlega með Bolton í dag. Per Frandsen, Gareth Farrelly og Mike Whitlow eru einnig að braggast og danska hörkutólið Stig Töfting ætlar að spila í dag þrátt fyrir að hann sé fótbrotinn. Töfting, sem er annálaður fyrir mikla keppnishörku, lék fótbrotinn um daginn og hann hefur ákveðið að láta sprauta sig fyrir leikinn svo hann geti spilað og hann vill ekkert spá í neinar aðgerðir fyrr en eftir helgi. Það er óhætt að segja að Daninn eigi fáa sína líka. Bolton hefur aðeins unnið einn af síðustu ellefu leikj- um sínum í deildinni og síðustu fjórir leikir þeirra hafa endað með jafntefli. Pressa á Roeder og Venables Þeir framkvæmdastjórar sem eru undir hvað mestri pressu fyrir leiki helgarinnar eru Glenn Roeder, stjóri West Ham, og Terry Venables, stjóri Leeds, en gengi liða þeirra í vetur hefur verið langt undir væntingum. Hamrarnir ferðast á Riverside þar sem þeir mæta Middlesbrough sem hefur verið að gefa talsvert eftir undanfarið. Þeir verða án fyrirliða síns, Paolo Di Canio, sem gekkst undir aðgerð á fimmtudaginn og verður ekki leikfær fyrr í febrúar. Freddie Kanoute er enn meiddur þannig að Jermaine Defoe og Ian Pearce verða í fram- línu Hamranna í dag. Leeds mætir Fulham á Loftus Road en þessi lið eiga það sameiginlegt að hafa tapað síðustu þrem leikjum sínum. Leeds hefur verið í miklum vandræðum vegna meiðsla lykilmanna í vetur en þeir geta þó glaðst yfir því að Suður-Afríkumaðurinn Lucas Radebe er orðinn leikfær en hann er mikill leiðtogi og ætti því að nýtast liðinu vel um helgina. -HBG » \ % W M \ \ \ \ A > \ \ V
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.