Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2002, Blaðsíða 24
48
J
Aðeins vara frá
viðurkendustu
framleiðendum
Tellefsdal - Trygg - OFA
Gunnebo - Weed
ELLUR. Gflm
Smiðjuvegur 8 - Kóp
Simi: 577 6400
Glæsikerra
BMW 318i Touring
Nýskr.06.2000,
1900cc vél,
5 dyra, silfurgrár,
Sjálfskiptur,
ekinn 41.þ,
->2.6001
575 1230 Opið mán-fös 09-18 og lau 10-16
Grjóthálsi 1
bilaland.is
________________________________________________MÁNUDAGUR 9. DESEMBER 2002
Tilvera I>V
Hljómplötur
Páll Rósinkranz - Nobody Knows ★★*
Agaöur flutningur
Útgáfufyrirtækið 1001 nótt er
greinilega óhrætt við að leggja
áherslu á „ábreiður" ef svo má
kalla „cover“ músík. Þessi nýi
geisladiskur frá Páli Rósinkranz
er, líkt og áður hjá honum, með
ýmsum þekktum lögum úr sögu
rokksins. Hann hefst á lagi Bobs
Dylans, All Along the
Watchtower. Þar fer flnn texti við
lítt eftirminnilegt lag nema horft
sé til flutnings Jimi Hendrix frá
árum áður en sú tæra snilld er
náttúrlega einstök. Hér tekst ekki
að glæða þetta lag lífi svo neinu
nemi. Það minnir á Commitments
og samanburðurinn við Hendrix
er einstaklega óhagstæður. Því
miður á þetta við um fleiri lög á
diskinum. Útsetningar eru nota-
legar og flutningurinn góður en
lítið um neistaflug eins og maður
ímyndar sér að gæti gerst þegar
margt hæfileikafólk er saman
komið.
Vissulega eru mörg lögin ágæt-
ar lagasmíðar sem njóta sin vel í
smekkvísum og öguðum flutningi
Páls og hljómsveitarinnar enda
ekki spurning að hér er að verki
einhver besti söngvari landsins í
þessum geira. Má nefna You Are
So Beautiful þar sem Páll sýnir
sínar bestu hliðar og til viðbótar
Still Crazy after All These Years,
You’ve Got a Friend og síðustu
þrjú lögin; Glass Onion, People
Get Ready og The First Time Ever
I See Your Face. Önnur lög eru
svona og svona, hafa lifað þokka-
legu lifi af ýmsum ástæðum,
kannski vegna sérstöðu uppruna-
legu flytjendanna og höfundanna
sjálfra, en hafa ekkert sérstakt við
sig þegar allt kemur til alls. Marg-
ir hafa t.d. glímt við hið leiði-
gjarna lag Nights in White Satin
og hér mistekst enn og aftur að
gera það spennandi. Dock of the
Bay og Jealous Guy hljóma líka
eins og gamlar fréttir.
Hér er sem sé glaðningur handa
þeim sem vilja hlýða á góðan söng
en vilja fátt nýtt og hafa þær kröf-
ur helstar að músíkin hijómi
kunnuglega. Þetta lýsir nokkru
metnaðarleysi af hálfu aðstand-
enda útgáfunnar en auðvitað er
allt „æðislega pró“ eins og áður er
minnst á og að nokkru leyti skilj-
aniegt að söngvarar og hljóðfæra-
leikarar vilji stundum máta sig
við það sem áður hefur verið gert.
Bjami Arason gerir það líka i ár
en ræðst í ívið meira krefjandi
verkefni sem dægurlagasöngvari
auk þess að koma með frumsamið
efni. Páll er þó vissulega jafn góð-
ur ef ekki betri túlkandi þegar
honum tekst best upp og hrífur
hlustendur oft með sér, að því er
virðist, fyrirhafnarlaust.
Óskar Einarsson stjómar upp-
tökum og leikur á píanó af al-
kunnri leikni og honum til aðstoð-
ar eru meðal annarra Jóhann Ás-
mundsson, Gunnlaugur Briem og
Guðmundur Pétursson. Tvær og
háif stjama er gefm fyrir atvinnu-
mennskuna sem einkennir þessa
vöru. Auk þakklátra aðdáenda
Páls munu stórmarkaðir og lyftur
hugsanlega geta notið þessa inn-
leggs í íslenska rokksögu.
Ingvi Þór Kormáksson
Hera - Not Your Type ★★<
s
A framtiðina
Árið sem senn er á enda er ár
fjallsins og DV-jólasveinninn
því forvitinn um heiti fjalla
vítt og breitt um landið. Hann
er ekki alveg viss hvað fjöllin
heita þannig að hann ætlar að
biðja ykkur að hjálpa sér.
Til að auðvelda ykkur
þrautina gefum við þrjá
svarmöguleika. Ef þið vitið
svarið krossið þið við nafnið
á hlutnum, klippið seðlana út
úr blaðinu og geymið þá á
vísum stað. Safnið saman
öllum tíu hlutum getraunarinnar en þeir birtast einn af öðrum fram að jólum.
Munið að senda ekki inn lausnirnar fyrr en allar þrautirnar hafa birst.
jólagetraun
Hvað heitir fjallib semjólasveinninn er að skoða?
1 •j.
i. mutii
Fyrsti vinningur er fullkomið heimabíó frá Sjónvarpsmiðstöðinni. MW82150, 32
tommu Super Flat breiðtjaldssjónvarp frá Grundig, með 100Hz myndtækni, comb
filter, dynamic focus, Space velocity modulation, CTI litakerfi, Perfect clear og picture
sharpness adjustment, Rykfrír Clear color screen, 2x40w Nicam stereo Hljóðkerfi,
valmyndakerfi, Textavarp með 512 síðna minni, 3xscart tengi og rca tengi, fjarstýring.
Skápur fylgir. THA30 JVC heimabíókerfi Dolby Digital og DTS með DVD spilara sem
spilar CD-R/RW, SVCD og MP3, RDS útvarpi, geislaspilara og 5 hátölurum 5x25 wött
auk 110 watta bassaboxi. Samtals að verðmæti: 249.970 krónur. ^
jólagetraun >
Ee
□ Fljalaolb □ Bolafjall □ Blloaafjl
Nafn:__________________________________________
Heimilisfang:______________________
Staður:
Sími:.
Sendisttil: DV, Skaftahlíö 24, 105 Reykjavík
Merkt: Jólagetraun DV
fyrir sér
Svo virðist sem söngkonan
unga, Hera, hafi náð að heiila
landann enda fengið gott tækifæri
til þess á tónleikaferðalagi með
Bubba Morthens. Það eru nú
kannski ekki allir svo heppnir.
Hera á það þó vissulega skilið að
eftir henni sé tekið. Rödd hennar
ber að vísu það með sér að eigand-
inn er ungur að árum en hún er þó
nægilega þroskuð til að hlustand-
inn taki mark á því sem hún syng-
ur um, öfugt við barnastjörnur að
syngja texta ætlaða fullorðnum en
það er líklega eitthvert leiðinleg-
asta fyrirbæri í músik sem um get-
ur. Textar Heru eru lika alls engin
krakkakvæði og er Suits Me gott
dæmi um það. Þeir bera vott um
talsverða skáldlega hæflleika í
besta falli, orðin leika henni á
tungu. Umflöllunarefnið er stund-
um ekki merkilegt, ungæðislegt ef
svo má segja, en nær örugglega vel
til stúlkna og ungra kvenna frem-
ur en karla á miðjum aldri, skyldi
maður ætla. Suffer from You er
þannig texti, skáldagyðjan flar-
stödd og lagið ekkert sérstakt held-
ur.
Sem lagasmiður á Hera lengra í
land en sem textasmiður ef marka
má lögin sem hér eru. Ekkert er
þó beinlínis aðfinnsluvert nema
nokkur þeirra hljóma eins og
hundruð annarra af ætt rokktón-
listar. Nokkrum hljómum er raðað
saman á fyrirsjáanlegan hátt og
ekkert í laglínunni grípur athygl-
Jennifer lét
rcikarann fjúka
Latínubomban Jennifer Lopez
gerði sér lítið fyrir um daginn og
rak hárgreiðslumeistarann sinn.
Ekki var það þó fyrir hörmulega
greiðsluna á makka hennar fyrir
óskarsverðlaunahátíðina í vor er
leið, þótt það eitt og sér hefði verið
ærið tilefni brottrekstrar.
Nei, það sem fór svona fyrir
bijóstið á leik- og söngkonunni var
að rakarinn var með stjömustæla í
tengslum við blaðamannafund þar
sem nýjasta mynd Jennifer var
kynnt. Gæinn vildi fá að fara i lim-
ina. Á þeim nótum eru Forbidden
Fruit, Sleepyhead, Precious Girl
og áður nefnt Suffer from You og
helst textamir sem ná að bera þau
uppi. í Naugths and Crosses,
Makebelieve, I Wanna Run og
Itchy Palms sýnir Hera hins vegar
sterk höfundareinkenni og kemur
hlustandanum það rækilega á
óvart að nokkuð ljóst þykir að hún
á framtíðina fyrir sér eins og það
er gjaman orðað.
Þetta er enn ein platan í ár þar
sem sá ágæti gítarleikari Guð-
mundur Pétursson er í stóru hlut-
verki. Að þessu sinni er hann
einnig upptökustjóri. Hann og Jak-
ob Magnússon bassaleikari skila
sinu með sóma. Amar G. Ómars-
son trommar og einnig koma við
sögu Eyþór Gunnarsson, Jóhann
Hjörleifsson, Brent Dawson á pí-
anó, Helen Webby á hörpu og
Bryndís Halla Gylfadóttir á selló.
Ingvi Þór Kormáksson
mósínu á hótel stjömunnar og það
var komiö sem fyllti mælinn.