Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2002, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002
Fréttir
DV
Áhrif verðbólgu ekki endurskoðuð frá því staðgreiðsla var tekin upp:
Skattbyrðin ívið meiri
en við setningu laganna
Áriö 1988 var
tekin upp stað-
greiðsla skatta á
íslandi og tekið
upp eitt skatt-
hlutfall í stað
fjögurra áður, að
meðtöldu útsvari
til sveitarfélaga.
Skattstofn tekju-
skatts var breikk-
aður með því að
felldir voru niður ýmsir frádráttar-
liðir, eins og iðgjaldagreiðslur í líf-
eyrissjóði, stéttarfélagsgjöld, náms-
frádráttur o.fl. Útsvarshlutfallið var
lækkað og útsvarsafslættir felldir
niður.
Skattleysismörk einstaklinga
hækkuðu verulega, eða úr 197.000
krónum árið 1986 í 530.000 krónur
árið 1988, lægsti jaðarskatturinn
hækkaði um 7% og hæsta skattþrep-
ið lækkaði um þriðjung, eða úr 56%
í 35%. Afleiðing breytinganna var
m.a. sú að jaðarskattar hinna hærra
launuðu lækkuðu en jaðarskattar
hinna lægra launuðu hækkuðu. Því
var gripið til þess ráðs að hækka
skattleysismörkin sem dró úr áhrif-
um hærra skatthlutfalls og leiddi til
þess að skattbyrði hinna lægra
launuðu minnkaði. Allar þessar
breytingar miðuðu við það að skatt-
byrðin yrði svipuð fyrir og eftir að
staðgreiðsla skatta var tekin upp.
Tillit tekið tii verðbólgu
„Þegar lögunum var breytt árið
1987 og tekin var upp staðgreiðsla
skatta í stað eftirágreiddra skatta
var tekið tillit til verðbólgu og þess
að greiðslan gat rýmað í verðbólgu
vegna þess að það gat dregist nokk-
uð að hún skilaði sér. Við ákvörðun
á prósentunni var stílað upp á það
að halda óbreyttri raunverulegri
skattbyrði og þvi m.a. tekiö tillit til
verðbólgu og sett inn ákveðin leið-
rétting á þeim greiðslum sem kæmu
í eftirágreiðslu. I dag er greitt 2,5%
álag á þann skatt sem ekki greiðist
í staðgreiðslu. Siðan þá, eða í 15 ár,
hefur þetta þó ekki verið endur-
skoðað þótt verðbólga hafi hjaðnað
verulega. Það var því reynt að láta
menn borga sama skatt eftir breyt-
ingar miðað við þá verðbólgu sem
var á þeim tíma. Þá var verðbólga
býsna drjúg, eða á bilinu 15 til
20%,“ segir Indriði H. Þorláksson
ríkisskattstjóri.
Ekki afturvirkt
í dag mælist verðbólgan 2,5% og
hefur hækkað um 2,4% síðustu 12
mánuði og spáð er svipaðri verðbólgu
í árslok 2003. Vegna þessa er varlega
ályktað aö skattbyrði sé ívið meiri nú
en lögin frá 1987 gerðu ráð fyrir, mið-
að við eftirágreidda skatta.
Nú er Alþingi að hækka persónuaf-
sláttinn um 0,4% og sú tekjurýmum
fyrir ríkissjóð er um 240 milljónir
króna. Um áramótin átti að koma til
framkvæmda 2,75% hækkun á per-
sónuafslætti sem hefði hækkað hann
upp í 320.616 krónur á ári, eða í 26.718
krónur á mánuði, en fer við breyting-
amar upp í 321.900 á staðgreiðsluárinu
2003, eða í 26.825 krónur á mánuði.
Breytingamar em ekki afturvirkar en
koma strax inn í staðgreiðsluna í jan-
úar 2003 og við álagninguna 2004. -GG
Tökur á Kaldaljósi í fullum gangi á Seyðisfirði:
Verðum órólegir ef ekki fer að snjóa
- segir Hilmar Oddsson leikstjóri
Tökur úti í rigningunni
Hér er kvikmyndalióiö aö störfum, snjólaust meö öllu, viö hina voldugu elds-
neytistanka Seyöisfjaröar. Og enn rignir hann.
„Ég á ekki orð yfir þá hjálpsemi
og vinsemd sem við höfum fundið
fyrir hér, án þessa hefði þetta
ekki verið hægt,“ segir Hilmar
Oddsson, framleiðandi myndar-
innar Kaldaljós, í stuttu spjalli
við fréttaritara DV á Seyðisflrði.
Tökur á kvikmyndinni hófust 18.
nóvember og á að ljúka á Seyðis-
flrði 18. desember. Myndin er tek-
in eftir samnefndri sögu Vigdisar
Grímsdóttur.
Sagan gerist á Seyðisflrði og
segir frá Grími, dreng sem missir
allt sitt fólk í stóru snjóflóði. Hún
lýsir því hvemig hann er allt sitt
líf að takast á við þessa skelfllegu
reynslu. Kristbjörg Kjeld leikur
Álfrúnu einsetukonu sem Grímur
leitar mikið til í æsku. Hún er
eins og amma, vitur og hefiu-
næman skilning á þroska drengs-
ins en hún er farin þegar snjóflóð-
ið skellur á.
Framleiðandi myndarinnar er
Kaldaljós ehf., sem er í íslensku
kvikmyndasamsteypunni. Áætl-
aður kostnaður við framleiðslu
myndarinnar er 180 milljónir
króna. Kvikmyndahandritið
skrifa Hilmar Oddsson og Freyr
Þormóðsson og það eru valdir
leikarar í hverju hlutverki.
Hilmar segir afar spennandi að
kvikmynda söguna í sínu rétta
umhverfl. Metúrkoma hefur verið
frá því tökur hófust. „Það hefur
haft sín áhrif og við höfum þurft
að endurskipuleggja tökur dag-
lega,“ segir Hilmar.
- Nú gerist sagan mikinn snjóa-
vetur - veldur snjóleysiö ekki erf-
iðleikum?
„Jú, það gerir það, flestir verða
órólegir ef ekki fer að snjóa. Við
förum trúlega að búa til snjó - en
okkur vantar snævi þakin fjöll."
Kvikmyndagerðarfólkið hefur
aðstöðu í Skaftfelli þar sem amma
Vigdísar Grímsdóttur bjó. Hilmar
segir það skapa vissa stemningu.
„Vigdís á ættir að rekja til Seyðis-
fjarðar, amma hennar bjó hérna i
Skaftfelli og ég veit að Vigdís er
undir sterkum áhrifum frá ömmu
sinni þegar hún kemur hingað.“
- Eru nokkrar líkur á því að
hún komi hingað meðan á tökum
stendur?
„Það verður þá alveg óvænt."
Síðari hluti myndarinnar verður
tekinn í Reykjavík og segir frá
Grími sem fullorðnum manni, en
kvikmyndafólkið á eftir að koma
aftur og sjá byggðina í snjó. -KÞ
DV-MYNDIR MAGNÚS REYNIR JÓNSSON
Afrakstur dagsins
Hilmar Oddsson leikstjóri aö grúska
í töku myndarinnar, afrakstur dags-
ins reyndist ekki sem verstur.
Panasonic sony Panasonic sony
Sérfræðingar í viðgerðum og viðhaldi á Sony og Panasonic tækjum
Sonn
éhf.
Einholtí 2 • sími 552 3150 ( 25 skrefum fyrir ofan DV húsið)
Hús ráðherrans
Hraun, hús Eysteins Jónssonar, fjár-
málaráðherra landsins um langt
skeiö, er virkilega fallegt, ekki síst
þegar hallar aö jólum.
Loksins
styttir upp
Loksins stytti upp á Austurlandi
og laugardagurinn var einn sá feg-
ursti í langan tíma, logn og blíða án
sólar. Hús, garðar og klettar eru
skreytt jólaljósum og bærinn í heild
er orðinn virkilega jólalegur.
Hraun, fyrrum íbúðarhús Ey-
steins Jónssonar ráðherra, er komið
í jólabúning og jólaljós sett í kletta-
vegginn bak við húsið.
Það er fagurt að horfa ofan af klett-
unum yfir byggðina við voginn á
Djúpavogi, ekki síst þegar búið er að
setja skreytingar á nærri öll hús. -JI
Bónus á ísafirði:
Fjórir dæmdir
fýrir fjárdrátt
Fjórir fyrrum starfsmenn verslun-
arinnar Bónuss á ísafirði hafa verið
fundnir sekir í Héraðsdómi Vest-
fjarða. Fjórmenningarnir, sem eru á
aldrinum 18 til 22 ára, voru fundnir
sekir um að hafa dregið sér fé úr
sjóðsvélum verslunarinnar með því
m.a. að nota starfsmannakort og skrá
með þeim rafrænar peningafærslur í
bókhald fyrirtækisins. Peningaupp-
hæðimar voru síðan skuldfærðar á
fólkið og síðan dregnar af launum
þess. í heildina mun fólkið hafa dreg-
ið sér um 154 þúsund krónur með
þessum hætti.
Fólkið játaði skýlaust brot sín og að
teknu tilliti til þess þótti dómara rétt
að fresta ákvörðun refsingar og fellur
refsingin niður að tveimur árum liðn-
um - haldi fólkið skilorð. Einn sak-
borninganna þarf þó að greiða 14 þús-
und krónur í skaðabætur. -aþ
Akureyri:
Kittý, kittý,
bang, bang
Skothvellir vöktu athygli vegfarenda
á Akureyri um helgina. Bárust all-
nokkrar tiikynningar um skothvelli
neðan af Eyri og uppi á Brekku - auk
þess sem einn hvellurinn heyrðist inn
á lögreglustöö. Við eftirgrennslan lög-
reglu bárust böndin að bifreið einni
sem er í eigu góðkunningja lögreglunn-
ar á Akureyri. Kannaðist bíleigandinn
ekki við skothvelli en í bifreið hans
fannst ýmis smávamingur - þýfi sem
lögregla hefur leitað að undanfomu,
svo sem búnt af vinnuvettlingum, bens-
ínbrúsar og trekt.
Lögregla telur skýringuna á skot-
hvellunum vera þá að útblásturshverfi
bifreiðarinnar sé áfátt auk þess sem
bensínið í brúsunum mun hafa verið
blandað olíu. „Var þar með kominn
grundvöllur fýrir akstri eins og margir
kannast við úr bíómyndinni „Kitty,
kitty, bang, bang,“ segir m.a. í dagbók
lögreglunnar. -aþ
úipssjja jétoíiíRi©
Sígrænt eðaftré í heesta gæðaflokki frá
skátunum prýðir nú þúsundir íslenskra heimila.
it.' 10áraábyrgð
t*. 12 stærðir, 90 - 500 cm
Stótfótur fyigir
» Ekkert barr að ryksuga
í* Truflar ekki stofublómin
Hi Etdtraust
Þarf ekki að vökva
*•> ístenskar ietöbeiningar
» Traustur söluaðili
í» Skynsamleg Qárfesting
1 c fam& wi® Pæfee-jalnQffa®
Bondalag islenskro skáto
T
Fiskútflutningur til Japans:
Aðeins um 1,8% heildar-
innflutnings Japana
íslendingar flytja út til Japans
um 37.000 tonn af sjávarafurðum,
aðallega karfa, grálúðu og rækju, og
er útflutningur íslendinga aðeins
um 1,8% af heildarinnflutningi Jap-
ana á sjávarafurðum en alls flytja
þeir inn um 1,9 milljónir tonna.
Mest af innflutningnum kemur frá
nágrönnum þeirra, Kínveijum, eða
443 þúsund tonn, aðallega rækja og
túnfiskur, 357 þúsund tonn frá
Bandaríkjunum, aðallega lax og
ýmsar tegundir flatfisks, og 198 þús-
und tonn frá Rússum, aðallega flat-
fiskur, sUd og þorskur úr Barents-
hafi.
Japanar eru einnig mjög stórvirkir
veiðimenn, veiddu 6,6 mUljónir tonna
á síðasta ári, aðeins Kínverjar og Per-
úmenn eru stórvirkari. HeUdarneysla
Japana á fiskafurðum er því um 8,5
mUljónir tonna. -GG