Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2002, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2002, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 > íslendingaþættir_______________________________________________________________________________________________________13 V Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 85 ára____________________________ Benedikt Stefánsson, Hafnarbraut 47, Höfn. Unnur Þorsteinsdóttir, Tjarnarbóli 14, Seltjarnarnesi. 80 grg____________________________ Maja J.B. Jónsson, Skipasundi 75, Reykjavík. 75 ára____________________________ Brynhildur Eggertsdóttlr, Funalind 7, Kópavogi. Elísabet G. Jósefsdóttir, Suðurgötu 80, Hafnarfirði. •* Sigtryggur Valdemarsson, Lerkilundi 12, Akureyri. 70 ára____________________________ Aldís Elísabeth Friöriksdóttir, Höföabrekku 17, Húsavík. Guðmundur Jónsson, Lækjarási 2, Garðabæ. Ingibjörg G. Jónsdóttir, Kjarnholtum 2, Selfossi. Jóhanna Sigurðardóttir, Boðagerði 2, Kópaskeri. Sigríður Sveinsdóttir, Kirkjuvegi 31, Selfossi. Siguróli Magni Sigurðsson, Hlíöarlundi 2, Akureyri. 00 ára____________________________ Ragnhildur Kristjana Fjeldsted, Hafnargötu 82, Keflavík. > 50 ára______________________________ Alexandre Dmitriev, Lækjarvegi 1, Þórshöfn. Borghildur Jósúadóttir, Vesturgötu 85, Akranesi. Jóhanna Stefánsdóttir, Hraunbæ 22, Reykjavík. Leifur Brynjólfsson, Melateigi 13, Akureyri. Oddný Sólvelg Jónsdóttlr, Túngötu 16, Hvanneyri, Borgarnes. Ólöf Jóna Þorgeirsdóttir, Grundartanga 31, Mosfellsbæ. Páll Sigurgeirsson, ■%. Sunnuhlíö 3, Akureyri. Wilailux Lumpha, Klapparbergi 23, Reykjavík. Þór Magnús Kapor, Frakkastíg 12a, Reykjavík. 40ára_____________________________ Einar Þór Bjarnason, Sigurhæð 5, Garöabæ. Guðlaug Júlía Sturludóttir, Huldubraut 20, Kópavogi. Hjalti Sölvason, Sævargörðum 16, Seltjarnarnesi. Jóhann H. Sigurgeirsson, Háageröi 57, Reykjavík. Jónas Rosi Rnnbjörnsson, Frakkastíg 13, Reykjavík. Kristín Björg Guðmundsdóttir, Reykjavegi 86, Mosfellsbæ. Ragnheiður Víkingsdóttir, ^ Kjalarlandi 26, Reykjavík. Sindri Sveinsson, Flúðaseli 75, Reykjavík. Svala Leifsdóttir, Norðurbraut 22, Hafnarfirði. Valþór Valentínusson, Reykási 24, Reykjavík. Jónheiður Níelsdóttir, Njálsgötu 1, and- aðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund fimmtud. 5.12. Jónas Jónassson, Stóragerði 29, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sól- , túni fimmtud. 5.12. Ellert Jón Jónsson, Fífuseli 11, Reykja- vík, lést á líknardeild Landspítalans I Kópavogi fimmtud. 5.12. Kristján Slgurður Gunnlaugsson, fyrrv. bóndi Mlðfelli I, Hrunamannahreppi, lést á Ljósheimum, Selfossi, fimmtud. 5.12. Guðbjörg Jóhannesdóttir, Birkivöllum 5, Selfossi, lést á Ljósheimum, Selfossi, mánud. 2.12. Svava Guðrún Guölaugsdóttlr, Garö- vangi, Garði, áður Klapparstíg 6, Sand- gerði, andaðist á Garðvangi mánud. 25.11. Útförin hefur farið fram t kyrrþey. Bragi Hannesson fyrrv. bankastjóri Bragi Hannesson, fyrrv. banka- stjóri, Bakkavör 26, Seltjamamesi, er sjötugur í dag. Starfsferill Bragi fæddist í Reykjavik. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1953, embættisprófi i lögfræöi frá HÍ1958 og öðlaðist hdl.-réttindi 1959. Bragi var framkvæmdastjóri Landssambands iðnaðarmanna 1958-63 og jafnframt framkvæmda- stjóri Meistarafélags bygginga- manna 1961-63, var bankastjóri Iðn- aðarbanka íslands hf. 1963-90 og for- stjóri Iðnlánasjóðs 1990-98. Bragi sat í stjóm Orators 1954-55, var ritstjóri Úlfljóts á sama tíma, ritstjóri Tímarits iðnaðarmanna 1958-63, varaformaður Heimdallar 1955-56, sat í stjóm SUS 1956-61, í stjórn Varðar 1966-71, var borgar- fulltrúi sjálfstæðismanna í Reykja- vik 1966-70, i stjóm Veitustofnana Reykjavíkur, Innkaupastofnunar Reykjavikur og hafnarstjóm Reykjavíkur 1966-70, endurskoð- andi Iðnaðarbanka íslands hf. 1960-63, í framkvæmdastjórn Nor- ræna iðnþróunarsjóðsins 1970-95 og formaður 1970-79 og 1982-85, í stjóm Iðnrekstrarsjóðs 1975-79, í stjórn Út- flutningslánasjóðs 1971-93, i stjórn Sambands íslenskra viðskiptabanka 1974-77 og 1988-90, formaður Iðn- tæknistofnunar íslands 1978-80, í stjóm Hlutabréfamarkaðarins, HMARM, 1990-92, í stjóm Draupnis- sjóðsins 1991-93, formaður Sam- bands lánastofnana frá stofnun 1994-98, í stjóm Hampiðjunnar hf. frá 1973 og formaður þar frá 1985 og í stjórn Granda hf. frá 1999. Bragi naut tilsagnar í myndlist hjá Hringi Jóhannessyni um árabil og tók þátt í haustsýningum Félags íslenskra myndlistarmanna 1975, 1977 og 1980. Hann hélt einkasýn- ingu í Gallerí Háhóli á Akureyri 1977, í Norræna húsinu, 1984 og Gal- lerí Borg 1987, 1989 og 1993, tók þátt í samsýningum myndlistarmanna undir nafninu Vetrarmyndir 1977, 1979, 1981 og 1983, auk þátttöku i samsýningu í Werkhof Bissendorf í Hannover 1982. Bragi tók saman rit um fundar- sköp sem gefið var út af SUS 1962 og af Framtíðinni í MR 1965. Fjölskylda Bragi kvæntist 10.3. 1956 Ragn- heiði Gunnarsdóttur, f. 1.9. 1933, bankaritara og húsmóður. Hún er dóttir Ragnheiðar Bogadóttur, f. 27.8. 1901, d. 20.2.1985, tannsmiðs og húsmóður, og Gunnars Ólafssonar, f. 18.2. 1891, d. 23.2. 1988, trésmíða- meistara og bifreiðarstjóra. Dætur Braga og Ragnheiðar era Ragnheiður, f. 10.5. 1956, lög- fræðingur og prófessor við lagadeild HÍ, gift Bjarna Kristjánssyni, f. 28.3.1956, við- skiptafræðingi og eru dætur þeirra Ragn- heiður, f. 28.6. 1983, nemi við tónlistardeild Listaháskóla ís- lands, og Unn- ur, f. 16.12.1994; Ásdís, f. 30.5. 1958, kennari, gift Grétari Halldórssyni, f. 28.7. 1954, bygg- ingaverkfræð- ingi og eru börn þeirar Kristín, f. 11.3. 1985, nemi í MH, og Halldór, f. 20.6.1988; Bryndís, f. 9.7.1968, píanó- kennari og eru börn hennar Hann- es, f. 1.1. 1991, og Halldóra, f. 19.4. 1993. Systur Braga eru Guðlaug Ágústa Hannesdóttir, f. 4.3.1926, hjúkrunar- fræðingur í Reykjavík, gift Sigurði Jónssyni, f. 4.1. 1925, lyfjafræðingi; Ásgerður Hannesdóttir, f. 15.9. 1939, d. 23.12. 1983, húsmóðir í Reykjavík, var gift John Benedikz, f. 30.4. 1934, lækni. Foreldrar Braga voru Ásdis Þor- steinsdóttir, f. á Sólmundarhöfða í Innri-Akraneshreppi 6.7.1901, d. 1.6. 1986, húsmóðir, og Hannes Pálsson, f. 27.1. 1903, d. 4.12. 1996, skipstjóri og síðar forstjóri Hampiðjunnar hf. í Reykjavík. Bragi er í útlöndum. Ágústa Jóhannsdóttir húsmóðir á Seltjarnarnesi Ágústa Jóhannsdóttir, Melabraut 7, Seltjamamesi, er áttræð í dag. Starfsferill Ágústa fæddist í Fagurlyst í Vest- mannaeyjum og ólst þar upp til tólf ára aldurs er hún flutti til Reykja- víkur með foreldrum sínum. Hún stundað nám í pianóleik við Tónlist- arskólann í Reykjavík, m.a. hjá Victor Urbanicic. Hún stundaði nám í tungumálum og bókmenntum við Kalifomíuháskóla í Los Angeles (UCLA) 1944-46 og lauk prófi frá Leiðsögumannaskólanum 1975. Ágústa stundaði um árabil versl- unarstörf í ferðamannaverslunum í Reykjavík. Hún starfrækti um skeið gistiheimili í heimahúsi fyrir er- lenda ferðamenn. Ágústa hefur starfað í kvenfélag- inu Hringnum um áratugaskeið. Fjölskylda Ágústa giftist 23.11. 1946 ísleifi A. Pálssyni, f. 27.2. 1922, d. 14.12. 1996, verslunarmanni. Hann var sonur Páls Oddgeirssonar, útgerðarmanns í Vestmannaeyjum, og k.h„ Matt- hildar ísleifsdóttur húsmóður. Ágústa og ísleifur slitu samvistir. Synir Ágústu og Isleifs em Jó- 1955, hagfræðingur, kvæntur Dögg Pálsdóttur hrl. og er sonur þeirra Páll Ágúst, f. 26.2. 1983; Örn, f. 7.8. 1956, flugmaður, kvæntur Guðrúnu Þóru Magnúsdóttur skólaritara og eru synir þeirra Ólafur Örn, f. 13.7. 1976, og Magnús Gísli, f. 10.12. 1980. Systkini Ágústu: Unnur, f. 27.6. 1911, d. 4.11. 1931 (hálfsystir, sam- feðra); Svana Guðrún, f. 20.2.1921, d. 12.11. 1992, var búsett í Bandaríkj- unum; Ólafur, f. 20.9. 1928, d. 31.1. 1951, flugstjóri. Foreldrar Ágústu: Jóhann Þ. Jós- efsson, f. 17.6. 1886, d. 15.5. 1961, kaupmaður og útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, alþm. og ráð- herra, og k.h., Magnea D. Þórðar- dóttir, f. 10.10. 1901, d. 2.7. 1990, hús- móðir. Ætt Jóhann Þorkell var sonur Jósefs, skipstjóra í Vestmannaeyjum, bróð- ur Skúla, alþm. á Berghyl, langafa Ólafs Skúlasonar biskups, föður Guðrúnar Ebbu borgarráðsmanns. Annar bróðir Jósefs var Jón, langafi Önnu, móður Ragnheiðar, fyrrv. rektors MR og Hjartar hæstaréttar- dómara Torfabama. Jósef var laun- sonur Jóns, pr. í Reykholti, Þor- varðssonar, pr. í Holt undir Eyja- fjöllum, bróður Friðriks, langafa Ólafs Hjartar, afa Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta íslands. Þor- varður var sonur Jóns, pr. á Breiða- bólstað, Þorvarðarsonar. Móðir Jóhanns Þ. var Guðrún Þorkelsdóttir, af ætt Bergs hrepp- stjóra Gíslasonar í Sölvaholti i Flóa. Móðurætt Guðrúnar verður rakin í Vestmannaeyjum svo langt sem kirkjubækur ná, aftur á miðja 18du öld. Magnea var dóttir Þóröar Helga, sjómanns í Reykjavík, bróður Guð- rúnar, ömmu Trausta Einarssonar prófessors. Þórður Helgi var sonur Þórðar, b. á Króki í Holtum, Þórðar- sonar. Móðir Þórðar Helga var Steinunn Stefánsdóttir, b. i Vestri- Kirkjubæ, bróður Guðmundar á Keldum, langafa Jóns Helgasonar, skálds og prófessors. Guðmundur var langafi Sigurðar, afa Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Kauphallar íslands. Þá var Guðmundur afi Helga Ingvarssonar, yfirlæknis á Vífilsstöðum. Stefán var sonur Brynjólfs i Vestri-Kirkjubæ, Stef- ánssonar, hreppstjóra í Árbæ, Bjamasonar, ættföður Víkingslækj- arættar, Halldórssonar. Móðir Magneu var Verónika, systir Katrínar, móður Einars Ás- mundssonar í Sindra. Verónika var dóttir Einars, b. á Skrauthólum, Magnússonar. Móðir Einars var Steinvör Jónsdóttir, b. í Hábæ, Oddssonar. Móðir Jóns var Steinvör Jónsdóttir, systir Guðrúnar i Árbæ. Móðir Steinvarar var Þóra Þórðar- dóttir, systir Jódísar, langömmu Magnúsar, afa Sigurgeirs Þorgríms- sonar, ættfræðings og blaðamanns. Móðir Veróniku var Guðrún Jóns- dóttir, b. á Miðengi í Grímsnesi, Er- lendssonar og Ingibjargar Sæ- mundsdóttur, systur Gróu, ömmu Einars ráðherra Amórssonar, föður Loga hæstaréttardómara. Fertugur Guðmundur H. Þorsteinsson framkvæmdastjóri á Seltjarnarnesi Guðmundur Helgi Þorsteinsson framkvæmdastjóri, Eiðismýri 4, Seltjarnamesi, er fertugur í dag. Starfsferill Guðmundur fæddist í Reykjavík og ólst upp í Vesturbænum. Hann lauk verslunarskólarprófi VÍ 1982, varð verslunarmenntakandídat 1988 og stundaði nám í viðskiptafræði við HÍ 1990-94, auk ýmissa nám- skeiða. Guðmundur Helgi starfaði hjá Heimilistækjum hf. 1981-88, var framkvæmdastjóri Blaksambands íslands 1989-91 og 1995-2002, hefur verið með eigin rekstur frá 1996 og jafnframt verið íþróttafréttari í lausamennsku á Morgunblaðinu 1988-99 Og á DV 2000-2002. Guðmundur Helgi er einn af innri endurskoðendum Alþjóöa- blaksambandsins, FIVB, frá 1999, var varaformaður Blaksambands ís- lands 1995-2002, situr í stjóm sam- bandsins, hefur stýrt helstu nefnd- um sambandsins, mótanefnd um árabil, sat landsliðsnefnd og var for- maður smáþjóðaleikanefndar sam- bandsins 1995-97, var fulltrúi sam- bandsins í Ólympíunefnd íslands 1995-98 og sat í framkvæmdastjóm Ólympíunefndar íslands 1997. Guðmundur Helgi lék knattspyrnu með yngri flokkum KR, með meistaraflokki KR 1 körfuknattleik, er margfaldur ís- lands- og bikarmeistari í blaki með íþróttafélagi Stúdenta en hann hef- ur verið fyrirliði liðsins um árabil og hefur leikið óslitið með félaginu frá 1988, hefur verið formaður blak- deildar þess og er jafnframt ritari aðalstjórnar félagsins en keppnis- ferill Guðmundar Helga í efstu deild í blaki hófst með Víkingi 1983. Fjölskylda Kona Guðmunda Helga frá 1991 er Bima Einarsdóttir, f. 13.1. 1964, skrifstofumaður hjá Jónum Tran- sport hf. Foreldrar hennar eru Ein- ar Halldórsson, f. 2.6. 1923, fyrrv. skrifstofustjóri hjá Björgun hf„ og Sigrún Bjamadóttir, f. 11.4. 1928, húsmóðir. Böm Guðmundar Helga eru Lára Líf Guðmundsdóttir, f. 12.7. 1995, og Einar Lár Guðmundsson, f. 16.5. 1999. Systkini Guðmundar Helga eru Þuríður, f. 9.4. 1951, sjúkraliði; Lára Sigurlaug, f. 9.9. 1952, húsmóðir; Guðrún, f. 15.4. 1954, bókari; Bryn- dís, f. 3.10. 1955, skólafulltrúi; Brynjólfur Már, f. 2.7. 1957, starfs- maður hjá Hafrannsóknastofnun; Dagbjört, f. 13.1. 1960, skrifstofu- maður; Geir, f. 9.9. 1964, fram- kvæmdastjóri; Rúna Björg, f. 8.4. 1966, snyrtifræðingur; Sigrún, f. 30.9. 1967, húsmóðir. Systkinaböm- in eru tuttugu og tvö talsins. Foreldrar Guðmundar Helga: Þorsteinn Brynjólfsson, f. 27.9. 1918, d. 9.9. 1995, fyrrv. fulltrúi hjá Raf- magnsveitu Reykjavíkur, og k.h„ Lára Lárusdóttir, f. 12.7. 1928, d. 17.1. 1989, húsmóðir, frá Krossnesi úr Grundarfirði. Þau bjuggu í Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.