Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 21 JOV Tilvera ifmælisbarniö Jennifer Connelly 32 ára Jennifer Connelly á af- mæli í dag. ConneUy var aðeins 0órtán ára gömul þegar Sergio Leone fekk henni hlutverk í stórmynd sinni, Once upon a Time in America. Hef- ur hún leikið aliar götur síðan og oft sýnt góðan leik í erflðum hlutvérkum. Það var þó ekki fyrr en með A Beautiful Mind sem hún skaust upp á stjömuhimininn. Hlaut hún óskarsverðlaunin sem besta leikkona í aðalhlutverki fyrr á þessu ári. Um sama leyti var Requiem for a Dream sýnd en leikur hennar er ein af þunga- miðjum myndarinnar. Connelly á einn son, Kai, sem er flmm ára. Gildlr fyrlr föstudaglnn 13. desember Vatnsberínn (20. ian.-18. febr.): . Þú átt skemmtilegan dag fram undan og hver veit nema að ástin leynist á næstu grösum. Náinn vinur þinn þarfnast þín. Fiskarnlni9. febr.-20. marsl: \ Þér gengur vel að ráða Ifram úr minni háttar vanda og hlýtur ' ( mikið lol fyrir. Þu gengur í gegnum erfitt tímabil í ástarmálum. Hrúturinn (21. mars-19. aoríl): . Deilur í fjölskyldunni 'hafa mikil áhrif á þig. Deilurnar eru þó ekki eins alvarlegar og á horfðist og í kvöld verður aUt fallið í ljúfa löð. Nautlð (20. apríl-20. maíl: Ekki vera að reyna að sýna fram á yfirburði þína í tima og ótíma, litillæti er liklegra til að vekja aðdáun. Ekki er ólíklegt að þú farir í óvænt ferðalag. Tvíburarnir (21. mai-21. iúní): V Þú gætir þurft að //*'fresta einhverju vegna — / i breyttrar áætlunar á síðustu stundu. Það verðiu- létt yfir deginum, þó að þú lendir í smávægilegum illdeilum. Krabbinn (22. iúni-22. iúiíl: Það er litið að gera í i félagslífinu um þessar ' mimdir og það er gott þar sem er kominn tími til að þú takir þig á i námi eða starfi. Forðastu kæruleysi. Liónið (23. iúlí- 22. áaúsú: ^ Það er mikið að gera ' hjá þér um þessar mundir. Þér gengur þó vel með allt sem þú tekur þér fyrir hendur og hefur gaman af því sem þú ert að gera. Mevian (23. áeúst-22. seot.): Þú ert í góðu skapi í dag og færð góðar ^^^ÍLhugmyndir. Hresstu ^ r upp á minnið varðandi ákveðin atriði sem eru að líða úr minni þér. Vogin (23. sept.-23. okt.): Ekki vera of fljótur að dæma fólk og felldu allan vafa um ágæti einhvers, manneskj- xrnni í hag. Kvöldið verður rólegt. Happatölur þínar eru 5,14 og 33. Sporðdreklnn (24. okt.-2i. nóv.l: Það er gott að eiga góða vini og þú pþarft mikið á þeim að halda um þessar mundir. Ekki vera feiminn við að leita til þeirra. Bogmaðurinn 122. nóv.-21. des.): i Gerðu eitthvað sem veit- r ir þér útrás, þá á þér eft- ir að líða betur. Kýldu á það sem þú þarft að gera í stað þess að eyða orkunni í það að vera með áhyggjur yfir því. Steingeitln (22. des.-19. ian,): Þér hættir til að vera of fús til að fórna þér fyrir aðra og í dag ættir þú að hugsa meira um i þig. Reyndu að klára hluti sem þú hefur verið að draga lengi. Háskólabió - Hlemmur ★★★ Bíógagnrýni Jaðar Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. samfélagsins Þegar ég var að alast upp nálægt miðbænum í Reykjavík var Amar- hóll aðsetur útigangsmanna bæjar- ins. Eftir að þeim var úthýst frá styttu Ingólfs Amarsonar áttu þeir engan fastan samstað og voru víðs vegar um bæinn. Þegar byggð var miðstöð fyrir Strætisvagna Reykja- víkur á Hlemmi varð hún fljótt sam- komustaður útigangsmanna þótt einnig væri þá að fmna þar sem styttra var í brennivínið, til að mynda á ýmsum búllum sem hafa orðið frægar einmitt fyrir það að hýsa róna bæjarins. Hlemmur var góð stoppistöð fyr- ir þá. Á Hlemm fóru einnig aðrir sem minna mega sín í þjgðfélaginu að venja komu sín- ar og fljótt barst það um bæinn að á Hlemmi væri „alls konar fólk“, auk farþega á leið í strætó. Það eru- sýnis- hom af fólki sem sækir Hlemm sem Ólafur Sveinsson er að flalla um í góðri heimilda- mynd sinni, Hlemmur. Hann tekur fyrir nokkra einstaklinga sem hefur verið útskúf- að úr samfélaginu og aðra sem eiga við geðræn vanda- mál að stríða - fólk sem á það sameig- inlegt að stór hluti af veröld þess er Hlemmur. Við kynnumst harðri og erfiðri lífsbar- áttu fólksins. Sum- ir eiga afturkvæmt í samfélagið, aðrir ekki. Myndin byrjar á viðtali við fyrrver- andi útigangs- mann, mann sem búinn er að komast yfir sín vandamál, er strætóbílstjóri og búinn að eignast eigið húsnæði. í honum kemur kannski í ljós að þrátt fyrir allan vilja þá verður maöur sem hefur verið háður brennivíninu á þann hátt sem rónar eru aldrei samur maður aftur. Það er eitthvað í heilabúinu sem bregst. Hjá honum kemur það fram í mót- sagnakenndum og öfgafullum skoð- unum. Frá honum förum við yfir í eitt besta atriði myndarinnar og kynnumst tveimur aðalpersónun- um, Ómari og Hannesi, þar sem þeir eru að leysa út bætur Ómars og drekka á skipulagðan hátt vín og meðul til að koma sér í gang. Sam- töl Ómars og Hannesar eru þess eðl- is að við getum skyggnst á bak við tjöldin - séð fjölskyldumenn sem gáfust upp á lífsleiðinni. Saga þeirra Ómars og Hannesar er ekki uppbyggjandi og því síður brosleg. Ekki er þó annað hægt en að brosa þegar þeir eru að ræðast við. Þeir eru báðir miklir karakter- ar og spekúlera á sinn hátt í veröld- inni - til að mynda þegar þeir eru myndaðir morgun einn eftir að hafa dvalið í Hverfissteini um nóttina. Þeir muna ekkert af hverju þeir voru settir inn en ná í sameiningu að púsla í götin á þann hátt að góð- ir gamanleikarar gætu ekki gert betur. Þetta atriði er fyndið á sinn sorglega hátt. Hinn hópurinn af viðmælendum Ólafs eru þeir sem haldnir eru þunglyndi og eiga við geðræn vandamál að stríða, hafa yfirleitt flosnað frá heimilum og vinnu og hafa engan annan dvalarstað en Hlemm. Einn slíkur, sem fáir koma til með að eyða orðum á vegna sjúk- dómsins, „hefur það ágætt“, að eig- in sögn, peningalega séð. Það eru þó örlög hans að enginn vill tala við hann þó „allt sé í lagi á milli eym- anna“ og hans eina skemmtun á löngum einmanalegum dögum er að ferðast með strætó. Hlemmur er gerð á löngum tíma. Ein aðalpersónan er látin þegar lokakaflinn er myndaður. Önnur er orðin nýnasisti og sú þriðja, Ómar, sem er eftirminnilegastur, er edrú og starfar í Byrginu - er þar í sjálf- boðavinnu en langar að breyta til. Hann er sá sem átti heima undir trjárunna og var kippt upp úr snjón- um á jólunum og tókst að rétta úr kútnum. Hvað verður um aðra sem eftir lifa og þá sem ekki geta hjálp- að sér sjálfir er ekki vitað meðan þjóðfélagið tekur ekki á málinu. Ólafur Sveinsson hefur í tveimur fyrri heimildamyndum sínum, Non- stop og Braggabúum, forvitnast um mannlíf, yfirleitt þeirra sem eru út undan eihhverra hluta vegna. Hefur honum farið fram með hverri mynd og Hlemmur er tvímælalaust best. Það fer enginn út í gerð heimilda- kvikmyndar á borð við Hlemm nema búa yfir mikilli þolinmæði. Ólafur hefur slíka þolinmæði. Hann hefur sagt að áður en hann tók til við kvikmyndatökuna hafi hann verið tímunum saman á Hlemmi og kynnst „fastagestum". Þannig myndaði hann samband sem skilar sér í myndinni sem fyrir vikið skil- ur mikið eftir sig og er ein áhrifa- mesta íslenska heimildamynd sem gerð hefur verið. Ólafur ætlar að halda áfram á sömu braut og klára trílógíu, þar sem Braggabúar og Hlemmur eru fyrstu tvær myndim- ar, og aðra þar sem Nonstop er fyrsta kvikmyndin. Er ekki hægt annað, miðað við þær þrjár sem til- búnar eru, en að bíða með tilhlökk- un eftir þeim. Hilmar Karlsson Ólafur Sveinsson. Kvikmyndataka: Hall- dór Gunnarsson. Hljóö og hljóöhönnun: Þorbjörn Á. Erlingsson. Klipping: Ólafur Jóhannesson. Tónlist: Sigur Rós. Kinq ^ Koil Qfífi Bílastæðasjóður ''--J * I r ...svo f borg sé leggjandi Gott skjól fýrír bílinn þinn *) Ef þú kaupir 6 mánuði borgarðu aðeins fyrir 5. Bílastæðahúsið við Vitatorg er ódýrt skjól á góðum stað fyrir þá sem eiga erindi á Laugaveginn og næsta nágrenni. Fyrsta klukkustundin kostar aðeins 80 kr. eða 1,33 kr. mfnútan, síðan greiðir þú 10 kr. fyrir hverjar 12 mínútur sem þú notar. Fyrir þá sem starfa eða búa í miðborginni er í boði mánaðarkort á aðeins 4.000 kr. *) Það fæst varla betra skjól en þetta fyrir Vitatorg bílinn þinn. á homi Vitastígs og Hverfisgötu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.