Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 Tilvera DV Jólablað Húsa og hibýla er komið! -frumlegar, hefðbundnar og mínímalískar jólaskreytingar DV-MVND GARÐAR HARÐARSON Sigurvegarinn Alda Rut Garðarsdóttir tekur viö sig- urveröiaununum. Sönglagakeppni: 19 ára stúlka sigraði Sönglagakeppni fór fram á veit- ingahúsinu Kútternum á Stöðvar- firði á laugardaginn. Flytjendur ell- efu laga voru þar í úrslitakeppninni frammi fyrir troðfullum sal af fólki. Nítján ára stúlka, Alda Rut Garðars- dóttir, var sigurvegari með laginu Falling into the same sem hún söng sjálf. í öðru sæti var lag Þorsteins Mýrmanns Björnssonar, Undir Stór- hól, við texta Björns Friðgeirssonar, og í þriðja sæti var lag Hilmars Arnar Garðarssonar, Myrkur. Var það fólkið í salnum sem valdi lögin sem öll voru eftir Stöðfirðinga. Út- setningar allra laganna gerði Garð- ar Harðarson og stjórnaði hann hljómsveitinn sem lék undir. -GH Guðrún Eva og Hrafn í Faktorshúsi Lesið verður úr nýút- komnum bókum í Fakt- orshúsinu á ísafirði í dag, 12. desember, kl. 20.30. Guðrún Eva Mínervudóttir les úr skáldsögu sinni, Sagan af sjóreknu píanóunum, og Hrafn Jökulsson úr ljóðabók Jóns Thoroddsens, Flugur, sem kom fyrst út áriö 1922. Sagan af sjóreknu píanóunum er fiórða skáldsaga Guðrúnar Evu og Flugur voru fyrsta íslenska bókin sem einvörðungu hafði að geyma prósaljóð. V/ Wr ^ v 4* 1* '■ v ;VrU 7 JOLASKREYTT heimili MÍNÍMALÍSK JÓL í miðbænum í JÓLAHÚSINUvið Suðurgötu Búðaróp - EÐALKAFFIVÉLAR MEÐ KVÖRN MIÐJARÐARHAFSVEISLA milli jóla og nýórs S Jkreytum hús með ... ..gráfíkjum og gaddavír, eplum og ananas ómissandi leiðarvísir að nútímalegu heimili. íslensku jólasveinarnir í Ráðhúsinu: Forvitnir pörupiltar Hinir einu sönnu íslensku jóla- sveinar koma til byggða þrettán dögum fyrir jól og þá einn í einu. Þeir eru forvitnir pörupiltar sem eiga dálítið erfitt með að átta sig í tækni- væddri nútímaveröld. Fötin þeirra eru ís- lensk yst sem innst. Eins og undanfarin ár munu jólasveinarn- ir koma við í Ráð- húsi Reykjavíkur í boði Þjóðminjasafns íslands. Stekkjarstaur kemur fyrstur, fimmtudaginn tólfta desember kl. 10.30 og svo einn af öðrum klukkan 10.30 á virkum dögum en kl. 14 um helgar. Sunnudaginn 15. desember kl. 14 koma Grýla og Leppalúði við í ráð- húsinu til að líta eftir Þvörusleiki. Aðgangur að jólasveinadagskránni er ókeypis og allir eru velkomnir. Nýlistasafnið Ásláttar- konsertskúlptúr Steve Hubback ásláttarleikari heldur konsert á sérsmíðuð hljóð- færi sín á 3. hæð Nýlistasafnsins, kl. 20 á laugardagskvöld. Steve Hubback hefur haldið tónleika um alla Evrópu, og víðar, til dæmis í Suður-Kóreu, og hefur gefið út fiölda geisladiska, ýmist einn eða með hljómsveitum. Tónlistarnálgun hans er fiöl- breytt en á laugardaginn leikur hann einn síns liðs á ásláttarskúlp- túr sem hann hefur smíðað sjálfur. Steve hefur smíðað ásláttarskúlpt- úra fyrir fiölmarga listamenn, s.s. Evelyn Glennie, Paolo Vinaccia og Paal Nielsen Love. Steve Hubback hefur dvalið hér á landi um skeið og hélt meðal annars tónleika ásamt Sigurði Hrelli og Agli Jóhannessyni í Iðnó en þegar þeir þrir leika saman þá kalla þeir sig Jörð bifast.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.