Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 Fréttir I>V DV-MYNDIR GVA Bragðgæðingar DV Sigmar B. Hauksson, Dröfn Farestveit og Úlfar Eysteinssön hafa veriö bragögæöingar DV um árabil. Hér skoöa þau diska meö vænum sneiöum afhangikjöti og hamborgarhrygg áöur en bragöprófunin hófst á veitingastaönum Þrír Frakkar hjá Úlfari í gærmorgun. Árleg bragðprófun DV á úrbeinuðum hangikjötslærum og hamborgarhryggjum: sagði: „Mjög góður hryggur, safarík- ur og bragðgóður." Dröfn sagði hann meyran og bragðgóðan og Sigmar hrósaði fallegri sneið með hæfilegri fitu en fannst eftirbragðið „gervi- legt“. Búrfellshryggurinn og SS-hryggur- inn höfnuðu í 3.^4. sæti með 11 stjörnur hvor. Dröfn gaf SS-hryggn- um hæstu einkunn og sagði: „Mjög fallegt kjöt sem lítur vel út. Gott sam- ræmi milli reyk- og saltbragðs." „Fal- leg sneið og góð holdfylling. Safarík- ur en eftirbragðið leiðinlegt,“ sagði Sigmar. Búrfellshryggurinn þótti að- eins of feitur en fitan góð sem og reykbragðið af kjötinu. Of salt eða þurrt Dröfn og Sigmari fannst hamborg- arhryggurinn frá Bautabúrinu of saltur en kjötið fallegt. Úlfar var hrifnari, talaði um holdfylltan, safa- ríkan og bragðgóðan hrygg og gaf honum 4 stjörnur. Skiptar skoðanir voru um Ali- hrygginn sem var í 6.-7. sæti ásamt Óðals-hryggnum. Dröfn sagði hann helst til þurran, Sigmari fannst að hann mætti vera saltari og bað um meira reykbragð en Úlfar hrósaði góðu jafnvægi milli fitu og kjöts og góðu bragði en fannst hann aðeins of þurr. Sigmari fannst Óðals-hryggurinn með frábæru reykbragði og gaf hon- um 4 stjörnur en bæði honum og Úlf- ari fannst kjötið of þurrt. Hryggurinn frá Bezt lenti í 8. sæti. Dröfn og Úlfari fannst hann heldur þurr en Sigmari fannst gott jafnvægi milli salts og reykbragðs. Hamborgarhryggurinn frá Kjama- fæði fékk samtals 6 stjörnur. Hann þótti heldur bragðlítill og í þurrari kantinum og fitan helst til of mikil fyrir smekk bragðgæðinga. Noatunshryggur og KEA-hangikjöt - er besta kjötid að mati bragðgæðinga DV Breytilegur smekkur Ljóst er af framansögðu og ein- kunnagjöf þremenninganna að sitt sýnist hverjum. Kjöt sem lendir neð- arlega í samanlagðri einkunnagjöf getur samt verið að fá 4 stjörnur frá einum bragðgæðinganna. En kjöt sem fékk 5 stjörnur lenti þó ekki neð- ar en í 3.-4. sæti. Hafa verður í huga að hér eru þrir einstaklingar á ferð, hver með sinn smekk fyrir kjöti og ólikt bragðskyn. Það sem einum þykir gott þykir öðr- um sæmilegt. Þannig er þessu einnig farið hjá fólki hvar sem er á landinu. Á það ber einnig að líta að ef sam- bærileg bragðprófun yrði gerð eftir Norðlenska kemur mjög vel út úr bragðprófun DV á hangikjöti og ham- borgarhrygg, framleiðir þrjú efstu vörumerkin í hangikjöti og tvö efstu í hamborgarhrygg. Um það vitnar samanlögð einkunnagjöf bragðgæð- inga DV sem sjá má í meöfylgjandi töflum. Eins og fyrir mörg undanfarin jól gekkst DV fyrir bragðprófun á hangi- kjöti og hamborgarhrygg. Keypt voru helstu vörumerki af úrbeinuðu hangilæri og hamborgarhrygg, sam- tals 8 hangilæri og 9 hamborgar- hryggir. Þess var gætt í hvívetna að lærin og hryggirnir væru myndarleg- ir, valin voru „góð“ stykki frá hverj- um framleiðanda. Keypt var inn í Nóatúni í Austurveri, Hagkaupum í Kringlunni og Skeifunni og í Bónusi í Skútuvogi. Að venju voru margreyndir bragð- gæðingar fengnir til að bragða á kjöt- inu. Það voru þau Dröfn Farestveit, Sigmar B. Hauksson og Úlfar Ey- steinsson. Bragöprófunin fór fram í gærmorgun á veitingastaðnum Þrír Frakkar hjá Úlfari. Tveir gamal- reyndir kokkar staðarins, Sigurður Karlsson og Gunnlaugur Guðmunds- son, suðu kjötið daginn áður að Úlf- ari fjarverandi. Kjötið var merkt þeg- ar þaö var sett í pottana og síðan merkt með tölustöfum frá 1-9 og 1-8 um leið og það var skorið í sneiðar. Bragðgæðingarnir höfðu enga hug- mynd um frá hverjum hver kjötsneið var. Þeirra hlutverk var að gefa hverjum bita frá einni og upp í fimm stjörnur og gera viðeigandi athuga- semdir. Húrra fyrir KEA Samanlögð einkunnagjöf bragð- gæðinganna þriggja skipar hangi- kjötinu frá KEA í efsta sæti með 12 stjörnur. Um þetta kjöt sagði Sigmar: „Safaríkt kjöt með góðu reykbragði. Fallegur vöövi. Ljómandi hangikjöt. Hangikjöt ársins að minu mati.“ Sambandshangikjötið og Fjalla- hangikjötið (sem einungis fæst í Bón- us) voru jöfn í 2.-3. sæti, fengu sam- tals 11 stjörnur hvort. „Falleg sneið og bragðgott kjöt,“ sagði Úlfar um Sambandshangikjötið en Sigmar sagði: „Já, já. Gamaldags hangikjöt með góðu reykbragði." Um Fjalla- hangikjötið sagði Dröfn: „Of lítil fita í kjötinu og var því aðeins of þurrt en annars ágætt.“ Úlfar bætti hins vegar um betur og gaf því fimm stjörnur: „Þetta er gott hangikjöt, sneiðin er falleg og bragðið mjög gott.“ Gott reykbragö í 4.-5. sæti var SS birkreykta hangikjötið og Skagfirska hangikjöt- ið frá KS. Úlfar gaf SS-kjötinu fiórar stjörnur og sagði: „Falleg sneið og bragðgott kjöt.“ Sigmar, sem gaf þvi 3 stjörnur, sagði: „Gott reykbragð og hæfilega salt.“ Um Skagfirska hangi- kjötið sagði Sigmar að það væri safa- rikt en af því væri heldur lítið reyk- bragð. Úlfari fannst fituröndin falleg og kjötið safaríkt en bragðið milt. Þurrt eða salt Saman í 6.-8. sæti var hangikjötið frá Kjarnafæði, Hólsfiallahangikjötið og Húsavíkurhangikjötið. Um kjötið frá Kjarnafæði sögðu öll að það væri fallegt að sjá og bragðið þokkalegt en of salt. Um Hólsfiallakjötiö sagði Sig- mar að liturinn væri ágætur en kjöt- ið of þurrt og eftirbragðið leiðinlegt. Úlfar tók undir að kjötið væri of þurrt. Um Húsavíkurhangikjötið voru Sigmar og Úlfar sammála að það væri þokkalegt á bragðið en of þurrt. Safaríkur frá Nóatúni Nóatúns-hamborgarhryggurinn fékk samanlagt ílestar stjörnur eða 13 og er því besti hamborgarhryggur- inn að mati bragðgæðinga DV. Um hann sagði Dröfn: „Kjötið er meyrt og hæfilega salt.“ Og Sigmar, sem gaf honum 5 stjörnur: „Safaríkur og góð- ur hamborgarhryggur, hæfilega salt- ur með góðu reykbragði." Úlfar tók undir það álit að Nóatúnshryggurinn væri safaríkur og bragðgóður og vel holdfylltur að auki. 2.-4. sæti KEA-hamborgarhryggurinn er í öðru sæti með 12 stjörnur samanlagt. Úlfar gaf þessum hrygg 5 stjörnur og helgina gætum við lent á kjötstykkjum sem mundu breyta röð vörumerkjanna á listanum. DV keypti allt kjötið í verslunum, stóð í sömu sporum og hver annar neytandi. Ekkert kjöt var sent frá framleiðanda. DV tekur enga ábyrgð á þáttum eins og geymslu kjötsins hjá birgjum eða smásölum. Farið var í einu og öll eftir leiðbeiningum um suðu, þar sem þeim var til að dreifa, en kjöthitamælir notaður til að tryggja að kjamhiti færi ekki upp fyrir 68 gráöur. En hvað varð um kjötið sem ekki rataði ofan í bragðgæðingana? Mikið var eftir af kjöti að lokinni smökkun og var það allt gefið í Rauðakrosshús- ið við Hverfisgötu. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.