Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 24
24
Tilvera
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002
DV
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
I I BORGARTÚN 3-105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um deiliskipulag
í Reykjavík
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til
kynningar tillögur að deiliskipulagsáætlunum og breyting-
um á deiliskipulagsáætlunum fyrir eftirtalin svæði í
Reykjavík:
Reitur 1.172.1
Tillagan tekur til reits sem afmarkast af Laugavegi, Vatns-
stíg, Hverfisgötu og Frakkastíg. Um er að ræða tillögu að
deiliskipulagi sem samþykkt var til auglýsingar í borgar-
ráði 3. desember 2002.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir því að reiturinn verði fyrst og
fremst styrktur með nýbyggingum, heimilt verði að fjar-
lægja hús og ný byggð í staðinn. Heimilt verður að byggja
verslunarhæðir á baklóðir frá Laugavegi og Hverfisgötu
og tengja saman eftir þörfum. Á Laugavegi er lagt til aö
heimilt verði að rífa hús nr. 33, 35, 41 og 45.
Þá gerir tillagan ráð fyrir að heimilt verði að byggja í
skarðið á lóðinni nr. 60 við Hverfisgötu og jafnframt verði
heimilt að rífa nr. 58 og byggja nýtt í staðinn.
í tillögunni er m.a. áréttað aó á götuhæð jarðhæða húsa á
Laugaveginum gildi skilmálar um landnotkun sem sam-
þykktir voru með breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur
1996-2016, sem staðfest var í júlí 2000. Jafnfram að
óheimilt verði að reka næturklúbba á reitnum.
Reitur 1.172.2
Tillagan tekur til reits sem afmarkast af Laugavegi,
Frakkastíg, Grettisgötu og Klapparstíg. Um er að ræða
tillögu að deiliskipulagi sem samþykkt var til auglýsingar í
borgarráði 3. desember 2002.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að áfram verði blönduð byggð
og götumynd verði styrkt með m.a. að heimilt verði að rífa
hús nr. 22a, 28b og 38 við Laugaveg og reisa þar ný-
byggingar, einnig á auðri lóð nr. 40. Á Laugavegi 28, 28b,
30, 38, 40 og 40a verður leyfilegt að byggja jarðhæð og
kjallara að lóðarmörkum.
Þá gerir tillagan einnig ráð fyrir hækkun á Laugavegi 32b,
bakhúsi, í 3 hæðir, á Laugavegi 34a og 36 heimild til ný-
byggingar á baklóð og 38b heimild til niðurrifs og nýbygg-
ingar. Bílastæði milli Grettisgötu 9 og 11 haldast óbreytt.
í tillögunni er m.a. áréttað að á götuhæð jarðhæða húsa á
Laugaveginum gildi skilmálar um landnotkun sem sam-
þykktir voru með breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur
1996-2016, sem staðfest var í júlí 2000. Jafnframt að
óheimilt veröi að reka næturklúbba á reitnum.
Reitur 1.180.2
Tillagan tekur til reits sem afmarkast af Hallveigarstíg,
Bergstaðastræti, Spítalastíg og Ingólfsstræti. Um er að
ræða tillögu að deiliskipulagi sem samþykkt var til
auglýsingar í borgarráði 3. desember 2002.
Öll hús á reitnum njóta verndar (VB) að undanskildu
Bergstaðastræti 10a og Hallveigarstíg 10, þ.e. þeim hluta
sem byggður var 1962.
Þá gerir tillagan einnig ráð fyrir að byggja megi eina hæð
ásamt risi ofan á Hallveigarstíg 10, Bergstaðastræti 10 og
10b og stórri viðbyggingu við Bergstaðastræti 12 og á
Spítalastíg 1 er heimilt að byggja einnar hæðar hús með
kjallara á baklóð, einnig er heimilt að fjarlægja skúrbygg-
ingu á norðurhluta lóðar Ingólfsstrætis 23.
Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og byggingar-
sviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00
frá 13.12. 2002 - til 24.01.2003. Eru þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar.
Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skrif-
lega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 24.01. 2003.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 13.12. 2002.
Skipulagsfulltrúi
I Kanada
Sönghópurinn ásamt Hjálmari VJ. Hannessyni sendiherra.
MYND SIGURÐUR SIGMUNDSSON
Gunnar á Hlíðarenda kominn út á geisladiskum:
Með söng í stað vopna
r
Gunnarshólmi
Myndin á diskinum er málverk
Ásgríms Jónssonar af Gunnari
og Kolskegg.
„Rangæingar eru svo áhugasam-
ir um Njáls sögu aö þeir leggja hvað
sem er á sig til að útbreiða hana,“
segir Arthúr Björgvin Bollason, for-
stöðumaður Sögu-
setursins á Hvols-
velli. Tilefni orð-
anna er nýútkom-
inn diskur með
söngleiknum
„Gunnar á Hlíðar-
enda“ sem fluttur
hefur verið á Sögu-
setrinu tvö undan-
farin sumur og
byggður er á ljóða-
bálki Guðmundar
Guðmundssonar,
skólaskálds, Gunn-
ar og Njáll og tón-
list Jóns Laxdals.
Að sögn Arthúrs
Björgvins er disk-
urinn gefinn út að
frumkvæði flytj-
endanna sem allir búa í Rangár-
þingi. Reyndar er um þrjá mismun-
andi diska að ræða, íslenskan, ensk-
an og þýskan. í hefti sem fylgir með
er texti eftir Arthúr Björgvin um ís-
lendingasögurnar, Njálu, söngleik-
inn og höfunda hans. „Við lögðum
mikla vinnu á okkur til að fólk vissi
hvað það væri með í höndunum
þegar það fengi diskinn," segir
hann.
I flottasta leikhúsi
Ottawa
Ævintýrið hófst fyrir
tveimur árum þegar
söngleikurinn var frum-
fluttur í Sögusetrinu,
upphaflega hugsaður
fyrir enskumælandi
ferðamenn. Fljótlega
var orðið við beiðni
Þjóðverja um að fá
textann líka á sinu
tungumáli og í fram-
haldinu var flytj-
endunum boðið til
Þýskalands. „Þeir
vöktu gríðarlega
athygli, þessir
syngjandi bændur
og í þýsku blöðun-
um stóð að nú
væru víkingarnir
komnir úr norðri
með söng í stað
vopna,“ segir
Arthúr Björgvin
brosandi. í kjölfarið
kom boð frá Gimli sem
ákveðið var að þiggja og
Hjálmar W. Hannesson,
sendiherra í Ottawa,
spurði hvort ekki væri
hægt að koma til Ottawa
í leiðinni.
„Hjálmar er þvílíkur
eldhugi að hann tekur
ekki nei gilt sem svar og
er óþreytandi að kynna
sögu okkar og menn-
TMfc SACA SINtifcHS rKfcSfcNT
ingu,“ segir Arthúr Björgvin og
heldur áfram. „Við áttum von á góð-
um viðtökum frænda okkar í
Winnipeg en í Ottawa bjuggumst
________________ við ekki við að
eiga neitt bak-
land. Þó sýndum
við tvö kvöld í
flottasta leikhúsi
borgarinnar,
nánast fyrir
fullu húsi.“
Með alvæpni
í flugvél
Arthúr Björg-
vin segir leik-
myndina þægi-
lega I
meðförum
og vopna-
safninu
hafi tekist
að koma í
gegn, þrátt
fyrir
strangt eftir-
lit. „Við
sendum Gunnar á Hlíðarenda í öll-
um herklæðum með vopnin til varð-
anna, rýtinga, sverð, atgeira og
spjót. Þeir spurðu hvort hann ætlaði
með þetta í flugvélina. Já, hann
sagðist þurfa að nota þetta. Þeir
spurðu til hvers. „Við notum þetta
til að drepa menn,“ svaraði Gunnar
og setti upp sína frægu ygglibrún.
Ég tel okkur vera einu mennina í
heiminum sem höfum fengið að fara
um borð í flugvél með alvæpni eftir
11. september," segir Arthúr Björg-
vin og hlær „og hef enga aðra skýr-
ingu á því en að verðirnir hafi orð-
ið svona hræddir."
Sungið á vöktum
í haust hélt hópurinn til írlands
og söng þar meðal annars á götu-
homum. „Fólk flykktist að og það er
mjög auðvelt að fá fjölmiðla til að
Qalla um svona viðburði því það er
ekki á hverjum degi sem bændur
fara syngjandi um heiminn. Svo eru
þetta hörku söngvarar," segir Arth-
úr Björgvin. Hann bætir við að mik-
il blessun sé líka fyrir Rangæinga
að hafa tónlistarmann eins og Hall-
dór Óskarsson undirleikara sem sé
bæði flinkur og áhugasamur.
Einnig upplýsir hann að skömmu
eftir áramót sé fyrirhuguð ferð til
Þýskalands í samvinnu við Flug-
leiðir og jafnvel önnur til
Minneapolis.
- En standa
kýr og kindur
ekki málþola
heima meðan
bændur eru á
þessu flippi?
spyr blaðamað-
ur. „Þar höf-
um við slegið
varnagla,"
segir Arthúr
Björgvin
hróðugur.
„Aðalleikar-
arnir, sem
eru í hlut-
verkum
Gunnars,
Njáls og Kol-
skeggs, eru
reyndar ekki
með hefð-
bundinn bú-
skap en aftur á
móti nokkrir í
kórnum og til að
gera þetta mögu-
legt erum við
með tvo hópa í
gangi þannig að
það er eiginlega
sungið á vökturn!"
-Gun
DV-MYND HAR
Arthúr Björgvin
„ Viö lögöum mikia vinnu á okkut
til aö fólk vissi hvað þaö væri
meö í höndunum, “ segir hann.