Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 28
28
Tilvera
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002
DV
Heimur rúmenskra
barna hræðilegur
- segir Kristján Friðbergsson sem byggir yfir munaðarleysingja
Landslag
í sundlaug
i
„Mitt hjartans mál er að koma
upp heimili í Rúmeníu fyrir tiu
munaðarlaus böm og fósturforeldra
þeirra. Það kostar fimm milljónir
og ég þarf að fá fleiri íslendinga í
lið með mér til að fjármagna eöiis-
kaup,“ segir Kristján Friðbergsson,
fyrrverandi forstöðumaður Kumb-
aravogs á Stokkseyri. Hann og
kona hans, Unnur Halldórsdóttir,
hafa fylgst með uppbyggingu í
Rúmeníu á vegum alþjóðlegu
bamahjálparinnar (ICC). Heimili er
risið fyrir 40 böm sem vita ekki
hverjir foreldrar þeirra em. Flest
hafa fúndist á tröppum lögreglu-
stöðva og sjúkrahúsa eða við rusla-
tunnur en einnig hafa foreldrar
sjálfir komið með þau vegna erfiðra
aðstæðna. Skólabygging er langt
komin á sömu lóð og í kringum
þessar stofhanir segir Kristján að
eigi að rísa bamaþorp með tíu hús-
um, hvert ætlað tíu bömum og fóst-
urforeldrum. Þar eiga þeir að dvelja
þar til þeir em búnir með stúdents-
próf, þá tekur bandarískur sjóður
við þeim og kostar háskólanám
hvar sem er í heiminum. Hollend-
ingar hafa þegar látið byggja og
merkja sér eitt hús. íslenska húsið
verður merkt íslandi.
Hátíöanámskeið
Kolbrún Karlsdóttir, formaður
líknar-og vinafélagsins Bergmáls er
bcmdamaður Kristjáns og Unnar í
baráttunni fyrir betri högum þess-
ara munaðarlausu bama. Hún ætl-
ar að halda námskeið til ágóða fyr-
ir málefnið.
„Mér þykir þetta afskaplega
áhugavert verkefni og er svo gæfu-
söm að eiga átta bamaböm sem öfl
eiga heimili, em heilbrigð og hafa
nóg að borða og mér finnst ég ekk-
ert of góð til að leggja þeim lið sem
era ekki jafli lánssamir. Mér datt i
hug að halda nokkur námskeið til
að styrkja þetta þarfa mál. Ég hef
oft haldið slík námskeið áður, með-
al annars til ágóða fyrir Bergmál.
Þar leiðbeini ég fólki við að búa til
ýmislegt til skreytinga og gjafa, eig-
inlega úr engu og fyrir afskaplega
litla peninga. Sker út ávexti og
grænmeti, kenni fólki að borða jóla-
tréð sitt og nýta ýmsar töfrajurtir
sem landið gefur. Þetta eru þriggja
tíma námskeið, kosta þúsund kafl
og ég get tekið þrjátiu manns í einu.
Þar er lika selt rúmenskt, handmál-
að postulín.
Boraði fyrir vatni
Kristján kveðst hafa tekiö þátt í
að bora eftir vatni á svæði bama-
hjálparinnar í Rúmeníu. „Heima-
menn vom á móti samtökunum
fyrst í stað og þegar einungis var yf-
irborðsvatn í brunninum átti að
nota það gegn þeim. En þegar okk-
ur tókst að finna gott vatn var hægt
að bjóða næsta þorpi það líka og
þar meö var bjöminn unninn," seg-
ir hann.
Kristján nefnir annað happ.
Belgískur prestur byggði sér hús á
næstu lóð og gaf samtökunum leyfi
til að nota þaö þegar hann væri
ekki í því og eiga það eftir hans
dag. Þau þijú ár sem liðin era frá
húsbyggingunni hefur hann ein-
ungis dvalið í því í þijá daga svo
það hefúr nýst starfsfólki bama-
heimilisins.
Krabbameinslyfjunum
stoliö
Eitt af þvi sem ICC safhar fyrir er
krabbameinslyf fyrir böm. Lyfm
era framleidd í Bandaríkjunum og
sendur er maður með þau á áfanga-
stað svo þeim verði ekki stolið.
„Heimur bama i Rúmeníu er
hræöilegur," segir Kristján og nefn-
ir dæmi. „Sjö ára strákur bað mig
um peninga fyrir mat. Ég tók hann
með mér á veitingahús og spurði
hann síöan hvað hann hefði gert
við aurinn ef hann hefði fengið
hann. Þá sýndi hann mér undarlegt
efiii og sagði. „Ég hefði keypt mér
svona. Það er ódýrara en matur og
ef ég tek það inn finn ég ekki fyrir
svengd í þrjá daga.“ Þetta efiii er
framleitt í einhveijum skúr og geta
má nærri hvemig líkami barns
verður við neyslu þess,“ segir Krist-
ján. Greinilegt er að honum rennur
neyðin í Rúmeníu til rifja. Sjálfur
hlúði hann að mörgum íslenskum
bömum í Kumbaravogi á árum
áður og síðan að eldra fólki sem
þangað leitaði. Nú berst hann fyrir
stofnun íslandsdeildar alþjóðlegu
bamahjálparinnar (ICC) og fjár-
söfnun fyrir foreldralaus böm.
-Gun.
Það er ekki á hverjum degi sem
málverk era sett upp í sundlaug en
i anddyri Laugardalslaugarinnar
hefur Ólafur Elíasson hengt upp
landslagsmyndir sem hann hefur
málað.
Grjót
Elva Hreiðarsdóttir sýnir graf-
íkverk í Listhúsi Ófeigs á Skóla-
vörðustíg 5. Sýninguna nefnir Elva
„Grjót“ og sækir hún efnivið mynd-
verka sinna til náttúrannar eins og
nafn sýningarinnar gefur til kynna.
Elva útskrifaöist úr Listaháskóla ís-
lands vorið 2000. Sýningin verður
opin á verslunartíma og stendur til
18. desember.
Olíumálverk á
Mílanó
Ingvar Þorvaldsson er með mál-
verkasýningu á Kaffi Mílanó í Faxa-
feni. Ingvar er Húsvíkingur að upp-
runa og sækir myndefni sitt fyrst og
fremst í náttúruna. Hann notar olíu-
liti og hefur gaman af að spreyta sig
á þröngum mótifum, að eigin sögn.
Hann hefur málað frá því upp úr
1970 og haldið margar sýningar.
Þessi stendur út desember og aflar
myndimar eru til sölu.
Nýtt gallerí
Álfheiður Ólafsdóttir og Helga
Sigurðardóttir eru með landslags-
og náttúrulífsmyndir á samsýningu
í tilefni af opnun Gaflerýs nr. 5, sem
er á Skólavörðustíg 5. Álfheiður
málar með olíu á striga en vatnslit-
ir hafa verið aðalviðfangsefni
Helgu. Opnunin er á morgun, 14.
desember, kl. 17-20 og sýningin
stendur út mánuðinn. Að Gallerý
nr. 5 standa 6 listakonur auk Álf-
heiðar og Helgu. Ástrós Þorsteins-
dóttir og Auður Inga Ingvarsdóttir
eru með leir, Matthildur Skúladótt-
ir með steint gler og Ingunn Eydal
með gler.
List starfsfólks
SHA
í Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akra-
nesi, stendur yfir listsýning í tilefni
50 ára afmælis sjúkrahússins og
heilsugæslustöðvarinnar á staðn-
um. Þar sýnir 21 starfsmaður þess-
ara stofnana ýmiss konar verk, svo
sem leir- og glerverk, postulínsmál-
un, bútasaum, prjónles, olíu- og
akrýlverk, tiffany-lampagerð, körfu-
gerð, útsaum o.fl. Sýningin stendur
til 22. desember og er Listasetrið
opið alla daga nema mánudaga, frá
kl. 15-18. Kaffi er á boðstólum fyrir
sýningargesti.
df5
mwsgi
Verð frá
68.500-
m. grind
Queen 153 x 203
X* +
(• Good Houmeeping V)
i Kinq
t Koil
Rekkjan
Skipholti 35 • Sími 588 1955
Hollenska húslð að rísa
Rúmensk börn sem foreldrar hafa yfirgefiö ásamt starfsfólki alþjóölegu
barnahjálparinnar.