Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 35
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 35 Guðmundur í 10. sæti Borðtenniskappinn Guðmundur Stephensen er í tíunda sæti yfir þá borð- tenniskappa í heiminum sem eru með besta vinningshlutfall í leikjum utan heimalandsins á þessu ári á lista sem Alþjóða borðtennissambandið gaf út í lok nóvember. Guðmundur hefur unnið 80% leikja sinna en hann er jafnframt í 295. sæti á heimslistanum. Guðmundi hefur gengið vel með liði sínu, B-72 frá Noregi, og á að öllum líkindum eftir að hækka á heimslistanum á næstunni ef framhald verður á góðu gengi. -ósk í í Valur-Tindastóll 90-120 0-2, 3-9, 12-9, 12-24, (10-30), 23-35, 31^5, 37-54, (42-56), 44-56, 53-70, 59-78, (63-67), 67-92, 72-96, 76-1003, 83-111, 90-120. Síig Vals: Laveme Smith 28, Bjarki Gústafsson 18, Ægir Jónsson 15, Alexander Dungal 9, Ragnar Steinsson 8, Ágúst Jensson 4, Gylfi Geirsson 4, Högni Egilsson 4. Stig Tindastóls: Clifton Cook 25, Michail Andropov 19, Kristinn Friðriksson 18, Óli Barðdal 16, Sigurður Sigurðsson 13, Einar Öm Aöalsteinsson 12, Helgi Rafh Viggósson 9, Maurice Carter 8. Dómarar (1-10): Kristinn Albertsson og Einar Einarsson, (9). Gœdi leiks (1-10): 6. Áhorfendur:l20. Maður leiksins: Ciifton Cook, Tindastóli Fráköst: Valur 27 (12 í sókn, 15 í vöm, Smith 6), TindastóU 58 (22 í sókn, 36 í vöm, Cook 11, Helgi 10) Stodsendingar: Valur 16 (Ragnar 6), Tindastóll 28 (Öli 8). Stolnir boltar: Valur 11 (Ragnar 3, Ægir Hrafn 3), Tindastóll 11 (Kristinn 3). Tapaóir boltar: Valur 17, Tindastóll 23. Varin skot: Valur 3 (Högni 2), Tindastóll 4 (Antropov 3). 3ja stiga: Valur 14/2 (14%), Tindastóll 21/8 (38%). Víti: Valur 23/14 (61%), Tindastóll 32/24 (75%). Haukar-Grindavík 95-105 0-2, 6-5, 16-15, 21-23, (24-26), 24-28, 26-36, 32-43, 41-43, (41-55), 44-55, 47-63, 50-70, 59-72, (69-76), 71-76, 76-82, 79-92, 86-95, 95-105. Stig Hauka: Stevie Johnson 39, Halldór Kristmannsson 17, Predrag Bojovic 11, Sævar Ingi Haraldsson 10, Þórður Gunnþórsson 7, Ingvar Þór Guðjónsson 4, Ottó Þórsson 3, Davíö Ásgrímsson 2, Lúövík Bjarnason 2 Stig Grindavikur: Darrel Lewis 33, Helgi Jónas Guðfmnsson 26, Guðlaugur Eyjólfsson 16, Páll Axel Vilbergsson 14, Guðmundur Bragason 8, Jóhann Þór Ólafsson 4, Nökkvi Már Jónsson 2, Pétur Guömundsson 2. Dómarar (1-10): Jón Bender og Bjami Gaukur Þórmundsson (8). Gœöi leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 145. Maður leiksins: Stevie Johnson, Haukum Fráköst: Haukar 27 (10 í sókn, 17 í vöm, Johnson 15), Grindavík 38 (18 í sókn, 20 í vöm, Lewis 15). Stoósendingar: Haukar 20 (Johnson 10), Grindavík 21 (Helgi Jónas 5, Lewis 5). Stolnir boltar: Haukar 10 (Óttó 3, Bojovic 3), Grindavík 11 (Helgi Jónas 7). Tapaóir boltar: Haukar 13, Grindavik 12. Varin skot: Haukar 4 (Davíð 1, Þórður 1, Johnson 1, Lúövík 1), Grindavík 2 (Lewis 2). 3ja stiga: Haukar 20/5 (25%), Grindavík 25/13 (52%). Víti: Haukar 18/10 (56%), Grindavík * 19/12 (63%). viNTERSPenr DEILDiN Staöan í deildinni: Grindavík 10 8 2 919-804 16 KR 9 7 2 810-700 14 Njarðvík 9 6 3 723-716 12 Keflavík 9 6 3 897-730 12 Haukar 10 6 4 879-821 12 Tindastóll 10 6 4 910-884 12 ÍR 9 6 3 788-779 12 Breiðablik 9 3 6 813-840 6 Snæfell 9 3 6 702-715 6 Hamar 9 3 6 839-937 6 Skailagrimur 9 1 8 673-812 2 Valur 10 1 9 750-965 2 Næstu leikir: Hamar-Skallagrímur ... fos. 13. des. Keflavík-Breiðablik ... fós. 13. des. Njarðvík-KR ..........fos. 13. des. ÍR-Snæfell.......fös. 13. des. KR-Haukar........fim. 19 des. Tindastóll-fR...fim. 19 des. Snæfell-Keflavík.fim. 19 des. Goðir Grindvikingar - komust á toppinn meö tíu stiga sigri á Haukum á Ásvöllum Águst Björgvínsson. sem stjornaöi Vals- mönnum i fyrsta sinn í gærkvöld, fer yfir gang mála meö sinum mönnum í leiknum í gær en tjóst er aö hann a ærinn starfa fyrir höndum viö aö koma Valsliöinu úr falisæti i urvalsdeildinni. DV-mynd E. Ol. HM fatlaðra í sundi: Grindvikingar komu, sáu og sigr- uðu þegar þeir mættu á Ásvelli í gærkvöld. Þeir lögðu þá gestgjafana úr Haukum, 95-105, í Intersportdeild karla i körfuknattleik. Leikurinn var í heildina séð bráð- fjörugur og nokkuð sveiflukenndur. Gestimir voru þó nánast afltaf með frumkvæðið, sé fyrsti leikhluti und- anskilinn en þá var jafnræði með liðunum og þeir létu þetta frum- kvæði ekki af hendi þrátt fyrir nokkrar harðar atlögur heima- manna. Skömmu fyrir leikhlé voru þeir rauðklæddu búnir að minnka mun- inn úr 32-43 í 41-43 en þá skoruðu gestimir tólf síðustu stig hálfleiks- ins og þessi kafli var erfiður biti fyr- ir heimamenn að kyngja. Mestur varð munurinn tuttugu stig í þriðja leikhluta en góður sprettur Haukanna gerði það að verkum að þegar leikhlutinn var aflur munaði sjö stigum og allt var galopiö. Þegar tæpar tvær mínútur vom eftir var munurinn fimm stig, 90-95, og Haukarnir saumuðu af krafti að Grindvíkingum, kom Guðlaugur Eyjólfsson til skjalanna og skoraði þriggja stiga körfu úr virkilega erf- iðu færi og hann geröi endanlega út um leikinn með ágætri körfu tutt- ugu sekúndum siðar. Restin af leiknum var lengi að líða enda bmtu Haukamir af kappi en það dugði ekki tfl. Darrell Keith Lewis átti að venju finan leik og hér er á ferð af- ar stöðugur leikmaður sem spilar nánast afltaf á sama hraða og lætur ekkert slá sig út af laginu. Helgi Jónas Guðfinnsson var mjög góður og tók leikinn í sínarhendur á kafla. Áðumefndur Guðlaugur átti frábæra spretti. Guðmundur Braga- son og Páfl Axel Vilbergsson vom traustir. Hjá Haukum átti Stevie Johnson skínandi leik og var með þrefalda tvennu, skoraði 38 stig, tók 14 fráköst og gaf tíu stoðsendingar. Það eina sem hægt er að setja út á þennan frábæra leikmann er víta- nýtingin en Haukaliðið nýtti ekki nema helming víta sinna, og það tel- ur drjúgt. Hafldór Kristmannsson sýndiað hann er ekki dauður úr öll- um æðum, langt í frá. Predrag Bojovic var ágætur og Þórður Gunnþórsson átti fina inn- komu og hefði gjaman mátt koma fyrr inn. Talsvert munaði um að Sævar I. Haraldsson fann sig ekki nógu vel, og Ingvar Guðjónsson eig- inlega alls ekki. -SMS Kristín Rós Hákonardóttir Gull og brons í Argentínu Kristin Rós Hákonardóttir og Bjarki Birgisson, sem taka þátt í heimsmeistaramóti fatlaðra í sundi í Argentínu, unnu bæði til verðlauna í gær þegar þau kepptu í 100 metra bringusundi. Kristín Rós vann gufl í sínu sundi og synti á 1:36,63 mínútum sem er rétt tæpri sekúndu frá hennar eigin heimsmeti. Bjarki, sem er að keppa á sínu fyrsta móti og í sínu fyrsta sundi í gær, náöi bronsi í sínu sundi. Hann synti á 1:37,52 mínútum sem er rúmum þremur sekúnd- um lakari tími heldur en hann á best. Kristín Guðmundsdóttir, þjálf- ari íslenska liðsins, sagði í sam- tali við DV-Sport í gærkvöld að það hefðu verið pínulítil von- brigði að vinna ekki til tvennra guflverðlauna. „Kristín Rós synti vel en Bjarki var mjög stressaður fyrir sitt fyrsta sund á stórmóti, fór eiginlega á taugum og synti því nokkuð undir getu. Hann náði samt þriðja sæti sem er frábært en ef hann hefði synt á sínum besta tíma þá hefði hann fengið gullið. Þau standa sig frábærlega vel og það er eiginlega ótrúlegt að Kristin Rós skuli enn véra að bæta sig miðað viö hvað hún er búinn að vera lengi í þessu,“ sagði Kristín. -ósk Bjarkl Birgisson Hinrik hættur og Ólafur handleggsbrotinn Það hefur gengið mikið á í herbúð- um Valsmanna í Intersportdeildinni, þjálfaraskipti og svo hefur Valsliðið að auki misst þrjá leikmenn. Bergur Már Emilsson og Hinrik Gunnarsson eru hættir og Ólafur Már Ægisson varð síðan fyrir því óláni að handleggsbrotna á dögunum. Ágúst Björgvinsson, nýráðinn þjálf- ari liðsins, tefldi í framhaldinu fram þremur 16 og 17 ára strákum sem fengu sínar fyrstu mínútur í úrvals- deild i tapinu gegn Tindastól i gær. Valsmenn tóku aðeins 32% frákasta í boði í leiknum (27 af 85) og þar sökn- uðu þeir mikið Hinriks sem hafði tek- ið 8,0 fráköst að meðaltali eða mest allra í Valsliðinu. -ÓÓJ Mikið verk óunnið - Valsmenn töpuðu með 30 stigum í fyrsta Ipiknum undir stjórn Ágústs Björgvinssonar , Tindastófl frá Sauðárkróki var ekki í vandræðum með heimamenn þegar þeir sóttu Val heim í gærkvöld og sigruðu með 30 stiga mun, 90-120. Ágúst Björgvinsson, sem tók við Valsliðinu í vikunni af Bergi Emils- syni, stjórnaði sinum fyrsta leik og á mikið verk óunnið, sérstaklega varn- arlega. Stólarnir fengu mikið af auð- veldum körfum í sókninni þar sem leikmenn Vals voru oft á tíðum út á þekju í vöminni. Gestimir juku for- skotið jafnt og þétt allan leikinn og gátu leyft sér að láta afla leikmenn liðsins spila mikið. Leikur Stólanna var drifinn áfram af leikstjórnandan- um Clifton Cook og sá hann um að halda góðu flæði í sóknarleiknum. Hann gerðist samt sekur um að tapa boltanum klaufalega á köflum. Rúss- in Michail Andropov átti fínan leik en þó hefúr hann átt marga betri leiki og Óli Barðdal lék einnig ágæt- lega. Kristinn Friðriksson hitti vel fyrir utan 3ja stiga linuna en átti til að vera full kæralaus þegar forskotið var orðið 20-30 stig. Þórsararnir Ein- ar Örn Aðalasteinsson og Sigurður Sigurðsson léku vel þær mínútur sem þeir spiluðu og væri ekki verra fyrir Stólana ef Sigurður væri búinn að finna sitt gamla form. Valsliðið barðist vel allan tímann og var góð stemning í liðinu frá fyrstu mínútu. Varnarleikurinn verður þó að vera miklu betri ef leik- ir eiga að vinnast og hlýtur það að vera forgangsverkefni hjá Ágústi. Alexander Dungal er ungur leik- maður sem vakti athygli í gærkvöld með góðum leik og virtist óhræddur við að reyna hlutina. Lavarne Smith var ágætur og er góður að fara einn á einn. Margar sóknir Vals enduðu þó á einstaklingsframtaki og þá tap- aði liðið baráttunni um fráköstin 27-58 sem er ekki vænlegt til árang urs. Leikmenn geröu sig ansi oft seka um að stiga ekki manninn sinn út. Bjarki Gústafsson átti fínan leik en Ægir Jónsson var misjafn. Hann gerði oft frábæra hluti en þess á milli var hann klaufskur. Þá kom Högni Egilsson inn á með góða baráttu af bekknum. -Ben

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.