Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 40
Demantar^ °9 skínandi Viðbötarlífeyrissparnaður Allianz m Loforð er loforð FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 Sími: 533 5040 - www.allianz.is íslensk stúlka: Fulltrúar íslenska rikisins mættu til fundar við Aicoa-menn í morgun Til vinstri á myndinni eru fulltrúar bandaríska álrisans Alcoa og hægra megin viö boröiö sitja fulltrúar íslenska ríkisins. Þeir ræöa nú fjármögnunarþátt verkefnisins. Stíft fundað með Alcoa-mönnum um álversframkvæmdir: DV-MYND GVA Fallegust í Luxemborg Islensk stúlka, Rúna Egilsdóttir, bar sigur úr být- um í stærstu feg- urðarsamkeppni Lúxemborgar, Spidergirl 2003, sem haldin var í borginni um síð- Rúna Egilsdóttir. «stu helf Rúna byr í borgmni ásamt hölskyldu sinni, hefur áhuga á hestum og stundar nám í grafiskri hönnun. Þessi fallegasta stúlka Lúxemborgar segir frá keppninni og ýmsu öðru í viðtali í Fókus í dag. -snæ Búist við áritun í dag Fundur samninganefnda Lands- virkjunar, ríkisins og bandaríska álrisans Alcoa hófst að nýju í morg- un eftir að hafa staðið fram á nótt. Fulltrúar ríkisins mættu til fundar á skrifstofu Alcoa-manna á Hall- veigarstig 1 klukkan níu í morgun þar sem ræða átti um fjárfestingar- þátt fyrirhugaðra framkvæmda við álver í Reyðarfirði. Stefnt er að því að ljúka viðræðum í dag þannig að samningamenn geti áritað papp- írana. Samninganefnd Alcoa hefur verið meö 3 hópa í gangi. Einn ræðir við Landsvirkjun um orkukaup, annar við ríkisstjómina um fjárfestingar og þriðji hefur rætt við samninga- menn frá Fjarðabyggð um hafnarað- stöðu og lóð undir álverksmiðju við Reyðarfjörð. Undirritunin í dag er endahnút- urinn á samningaferlinu en samt ekki bindandi fyrir stjómir fyrir- tækjanna. Stjórn Alcoa verður með fund 9.-10. janúar og þar er stefnt að sam- þykkt samninga. Samkvæmt upp- lýsingum frá Landsvirkjun í morg- un er búist við að stjórn Landsvirkj- unar samþykki þessa samninga um svipað leyti. í framhaldi af því verð- ur væntanlega gengið til samninga við lægstbjóðanda í framkvæmdir við stíflu og aðrennslisgöng Kára- hnjúkavirkjunar, ítalska verktaka- fyrirtækið Impreglio S.p.a. Impreglio bauð 19,9 milljarða í stífl- una við Kárahnjúka en 24,5 millj- arða í göngin. Alls eru þetta 44,4 milljarðar króna. Kostnaðaráætlun Landsvirkjunar var upp á 50 millj- arða, - 23,8 í stífluna og 26,2 í að- rennslisgöngin. Hávær mótmæli hafa verið gegn fyr- irhuguðum virkjunaráformum að und- anfómu, m.a. á Alþingi, í blöðum og jafnvel erlendis. Á morgun em m.a. fyrirhugaðar friðsamlegar mótmælað- gerðir gegn Kárahnjúkavirkjun í Laus- anne í Sviss klukkan 14.00 að staðar- tíma. Miðað við gang mála undanfama daga virðast hins vegar yfirgnæfandi líkur á að af framkvæmdum verði. Nokkur titringur hefur þó verið varð- andi hugsanlega andstöðu í borgar- stjóm við málið. Reykjavíkurborg er stór eigandi í Landsvirkjun sem er sameignarfyrirtæki, einnig í eigu ríkis- ins og Akureyrarbæjar. Til undirritun- ar samninga þarf samþykki allra eig- enda. Þrátt fyrir andstöðu innan R-list- ans er ekki talið að hún verði til þess að borgarstjóm felli samningsgerðina. -HKr. Eitt ár frá yfirlýsingu um jöfnun réttinda opinberra starfsmanna: Raðherra sakaður um vanefndir dagartil jóla Vfir 1 50 fyrirtæki Krtt\qC CsJ\ ír heg/rllt fvrir jólin Efling-stéttarfélag spyr í heilsíðuaug- lýsingu í Morgunblaðinu í dag hvenær fjármálaráðherra ætli að efna fyrirheit, sem gefið hafi verið fyrir nákvæmlega einu ári, um að jöfhuð yrðu réttindi og kjör opinberra starfsmanna sem ann- ars vegar era í stéttarfélögum ríkis- starfsmanna og hins vegar í aðildarfé- lögum ASÍ. Um er að ræða veikinda-, slysa- og orlofsrétt og lífeyrissjóðsrétt- indi, sem era umtalsvert meiri í opin- bera kerfinu. í yfirlýsingu fiármálaráðherra frá 13. desember í fyrra segir m.a. að „fullur vilji“ sé til þess af hálfu ráðuneytisins að „freista þess að ná ásættanlegri nið- urstöðu“ í málinu. Siguröur Bessason. Geir Haarde. Sigurður Bessason, formaður Efling- ar, segir að þeir sem gengu frá sam- komulagi aðila vinnumarkaðarins í fyrra hafi haft efasemdir um að orðalag yfirlýsingarinnar væri nægilega sterkt. „Til að taka af allan vafa var haldinn fundur sem fiórir fúlltrúar ASÍ sátu ásamt ráðherra. Við teljum að hann hafi ekki staðið við þær væntingar sem samtöl við hann gáfu tilefni til. Við erum að tala um grundvallar- mannréttindi og teljum algjörlega óá- sættanlegt að ríkið telji ekki hlutverk sitt að svara því á nokkum hátt - og einu ári seinna komi ráðherra fram og segir að ekki hafi verið gefin fyrirheit. Við höfðum þá ekkert við þessa yfirlýs- ingu að gera!“ segir Sigurður. Ekki náðist í Geir Haarde fiármála- ráðherra í morgun. -ÓTG Reyna að fanga storkinn Styrmi Storkurinn í Breiðdal, sem hefur fengið nafnið Styrmir, var við bestu heilsu í gær þegar þeir Ólafur K. Nielsen og Þorvaldur Björnsson frá Náttúrufræðistofnun komu að Ásunnarstöðum í Breiödal í gær. Þeir ætla að reyna að fanga stork- inn sem þar hefur haldið sig í haust og færa hann til Reykjavíkur þar sem hann mun eiga vetursetu ef að líkum lætur. „Við komum talsvert nálægt fugl- inum í gær þegar við loksins fund- um hann við læk þar sem hann var að ná sér í æti,“ sagði Þorvaldur í morgun. Þeir félagar eru með ýmis- legt æti, dagsgamla kjúklinga og fisk. Reynt verður að lokka fuglinn í sérhannað búr. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra tók af skarið í fyrradag og ákvað að freista skyldi þess að ná storkinum og koma honum í öruggt skjól fyrir veturinn. -JBP Sjá nánar bls 6 Mistök í vinnslu Vegna óskiljanlegra mistaka við vinnslu DV í prentsmiðju Morgun- blaðsins í gær, fimmtudag, birtist ritstjórnaropna blaðsins síðastliö- inn miðvikudag aftur. Um leið og þetta er harmað biður ritstjóm DV lesendur afsökunar. -ritstj. JpURFA ÞEIR ALCOASELTZER? Bæjarstjórn Eyja fellir tillögu um rannsókn efnahagsbrotadeildar: V-listi íhugar kæru til lögreglu Tillaga V-listans, samfylkingar- manna í bæjarstjórn Vestmanna- eyja, þess efnis að bæjarstjórn óskaði eftir því að efnahagsbrota- deild ríkislögreglustjóra rannsak- aði bókhald og rekstur Þróunarfé- lags Vestmannaeyja undanfarin tvö ár, var felld með 4 atkvæðum gegn 3. Bæjarstjórnarfundinum lauk laust eftir miðnætti í nótt. Tillögunni fylgdi greinargerð þar sem dregin voru fram nokkur atriði sem fulltrúar V-lista töldu nauðsynlegt að kanna frekar og ekki hafa fengist viðhlítandi svör við. Stjórnarformaður félagsins, Lúðvík Bergvinsson. Guðjón Hjörleifsson. Guðjón Hjörleifsson, vék af fundi þegar málefni Þróunarfélagsins komu á dagskrá. Helgi Bragason hdl., varabæjarfulltrúi og fyrrver- andi stjórnarmaður í félaginu, tók þá sæti Guðjóns, en Helgi lét af því starfi nú á vordögum eftir kosningar. „Nú liggur fyrir afstaða meiri- hlutans til málsins. Minnihlutinn verður núna að gera það upp við sig hvort hann muni kæra til lög- reglu. Ákvörðun um það verður tekin í janúar, en þá verður næsti almenni félagsfundur V-listans haldinn þar sem málið verður tekið á dagskrá,“ sagði Lúðvík Bergvins- son, alþingismaður og bæjarfulltrúi V-listans, í morgun en hann sat ekki fundinn í gærkvöld. -JBP VELDU ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU! Sími 580 7000 | www.securitas.is 112 EINN EINN TVEIR NEYÐARLÍNAN LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRAUÐ 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 : / í í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.