Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Blaðsíða 35
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 pv___________________________________________________________Sport Landsliðshópurinn til undirbúnings fyrir HM tilkynntur: Bestu mennirnir sem mér stendur til boða - Roland Eradze löglegur í fyrsta leik í Portúgal Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, til- kynnti í gær 26 manna landsliðshóp til undirbúnings fyrir heimsmeist- aramótið i handknattleik í Portúgal sem hefst 20. janúar. Guðmundur mun síðan 30. desember skera hóp- inn niður en eftir vináttuleikinn við Slóvena 7. janúar verður valinn endanlegur 16 manna hópur sem keppa mun á heimsmeistaramótinu. Fyrsta æfing liðsins verður á Þor- láksmessu en ailur hópúrinn verður ekki samankomin fyrr en á Gaml- ársdag en þá kemur til landsins þorri þeirra leikmanna sem leika erlendis. Hópurinn sem Guðmundur valdi í gær er þannig skipaður. Markverðir eru Guðmundur Hrafnkelsson, Pallamano Conversa- no, Elvar Guðmundsson, Ajax/For- um, Roland Eradze, Val, Birkir ívar Guðmundsson, Haukum. Homa- og línumenn eru Guðjón Valur Sigurðsson, Essen, Gústaf Bjarnason, Minden, Einar Öm Jónsson, Wallau Massenheim, Sig- fús Jónsson, Magdeburg, Róbert Sig- hvatsson, Wetzlar, Róbert Gunnars- son, Aarhus GF, Logi Geirsson, FH, Bjarki Sigurðsson, Val, Alexander Amarson, HK, og Bjami Fritzson, ÍR. Útileikmenn era Gunnar Berg Viktorsson, Paris Saint Germain, Rúnar Sigtryggsson, Ciudad Real, Heiðmar Felixsson, Bidasoa, Snorri Steinn Guðjónsson, Val, Aron Krist- jánsson, Haukum, Sigurður Bjama- son, Wetzlar, Patrekur Jóhannes- son, Essen, Ólafur Stefánsson, Mag- deburg, Dagur Sigurðsson, Wakunaga, Markús Máni Mikaels- son, Val, Einar Hólmgeirsson, ÍR, og Jónatan Magnússon, KA. Alþjóða handknattleikssambandiö hefur staðfest að Roiand Eradze sé löglegur með íslendingum á HM. Guðmundur Guðmundsson lands- liösþjálfari sagði í samtali við DV eftir valið að þetta væru sterkustu leikmennimir sem honum stæði til boð. Aðspurður hvort hann gæti lagt mat sitt á liðið þegar röskur mánuður er þangað til heimsmeist- arakeppnin hæfist sagði Guðmund- ur eftirfarandi. „Ég get ekki lagt mat á mann- skapinn fyrr en ég hef fengið hann allan í hendurnar og það veröur ekki fyrr en um áramótin. Eftir leik- ina við Slóvena á ég að geta lagt mat á stöðuna," sagði Guðmundur. Hann sagðist vera orðinn spennt- ur að takast á við þetta verkefni sem blasti við liðinu. Á fundinum í gær var lögð fram staðfesting frá alþjóða handknatt- leikssambandinu þess efnis að Rol- and Eradze væri heimilt að leika með islenska landsliðinu frá fyrsta degi heimsmeistaramótsins í Portú- gal svo fremi að hann hefði íslenskt vegabréf undir höndum. Honum væri einnig ekkert að vanbúnaði að taka þátt i æfingaleikjum liðsins fyrir HM í Portúgal. Stjóm HSÍ ætlar í framhaldi af þessari staðfestingu að leita ráða hjá lögfræðingum og ganga úr skugga um að þetta leyfi hefði verið gefið eftir settum reglum. -JKS Keflavík og KR leika til úrslita í Kjörísbikarnum: Vanmetum ekki KR-liðið - segir Anna María Sveinsdóttir, þjálfari Keflvíkinga KR og Keflavík mætast í úrslita- leik Kjörísbikarsins í körfuknatt- leik kvenna í Smáranum í Kópavogi á morgun. Þetta er í þriðja skiptið sem úrslitaleikur í þessari keppni er háður. KR-stúlkur urðu fyrstu meistararnir i keppninni en Grind- víkingar fóra með sigur af hólmi í fyrra. Keflvíkingar voru í úrslitum i bæði skiptin en lutu í lægra haldi fyrir framantöldum liðum. Keflvík- ingar og KR-ingar hafa mæst tvisvar í deildinni i vetur og unnu Keflvíkingar stóra sigra í bæöi skiptin. Anna María Sveinsdóttir, þjálfari og leikmaður Keflvíkinga, sagði í gær að þær væru ákveðnar í að ’snúa við blaðinu og vinna loksins sigur í þessari keppni. - Staða okkar í deildinni hjálpar okkur ekkert í leiknum við KR á morgun. Dagsformið skiptir mestu máli og við megum alls ekki falla í þá gryfju að vanmeta KR-liðið. Hins vegar er það ekki nein launung að við mætum til leik með því hugar- fari að vinna bikarinn," sagði Anna María í samtalinu. Hún sagði að liðið hefði leikið vel til þessa í vetur og Sonja Ortega féUi sérlega vel inn í leik liðsins. Hún væri ekki að skora mikið en styrkti liðið óhemjumikið. Anna María sagði að Ortega væri góð vöm, ætti margar stoðsendingar og þær væru mjög sáttar með hana. „Keflvíkingar eru sterkara liðið í þessari viðureign. Það væri ósann- gjamt að segja annað en ég veit að mínar stelpur munu gera sitt besta. Keflvíkingar era með breiðan hóp en hjá okkur er breiddin ekki eins mikfl. Þama er um einn leik að ræða og fortíðin er engin ávísun á einhver klár úrslit í þessum," sagði Ósvaldur Knudsen, þjálfari KR-liðs- ins, á fundinum í gær. Á leið sinni í úrslitaleikinn lögðu Keflvíkingar lið ÍS og Hauka en KR- ingar sigruðu Grindavík og ÍR. Dómarar leiksins verða Kristinn Al- hertsson og Bjami G. Þórmundsson. Á undan leiknum leika Breiðablik og Njarðvík í úrvalsdeUdinni en að- gangseyri er enginn á úrslitaleik- inn. -JKS Þaö fór vel á með Önnu Maríu Sveinsdóttur og Helgu Þorvaldsdóttur á blaðamannafundi sem haldinn var í tengslum viö úrslitaleik Keflavíkur og KR í Kjörísbikarnum í körfuknattleik kvenna á morgun. DV-mynd Hari Munið að slökkva á kertunum Kertaljós á að lýsa upp skammdegið - ekki allt hverfið. ORYGGISNET SECNET Rikisiögreglustjórinn LÖGGILDIHGARSIOFA Rauði kross íslands /TST' SLÖKKYILIÐ HÖFUDBORGARWytÐISINS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.