Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002
HelQarblacf DV
5
f
Jólasveinar
um gólf
- klofnir upp í háls með klær
fyrir fingrum, kringlótta fæt-
ur og engar tær
Jólasveinninn er
„vinur” barnanna
og færir þeiin gjafir
í skóinn síðustu
dagana fyrir jól og
er ómissandi á
jólaskemnitun
Síðasti jóla-
sveinninn kemur
til byggða á að-
fangadag og á jóla-
dag leggur sá
fyrsti af stað aftur
til síns heima.
Einu sinni á ári
gera þessir skrýtnu kallar sér ferð í bæinn með til-
heyrandi hlátrasköllum, hurðaskellum og fíflalátum.
Síðustu áratugi hafa þeir fært börnunum eitthvað í
skóinn og geflð þeim sælgæti á jólaskemmtunum.
Imynd jólasveinsins hefur breyst mikið með árunum
en áður voru þeir tröll og mannætur.
Sigfús Sigfússon, sem einkum safnaði þjóðsögum á
Austurlandi, sagði að jólasveinamir væru í manns-
mynd, klofnir upp i háls, með klær fyrir fingrum,
kringlótta fætur og engar tær. „Þeir eru illir að eðlis-
fari og líkastir púkum og lifa mest á blótsyrðum
manna og óvönduðum munnsöfnuði og eru rógsamir
og rángjarnir, einkum á börn.“
í dag líkjast þeir fremur fiflalegum miðaldra
offitusjúklingum, hallærislegum trúðum eða búð-
arfíflum en ógnvekjandi tröllum.
Litlipungur og Örvadruinbur
Jólasveinarnir eru synir Grýlu og Leppalúði
er að öllum líkindum faðir þeirra, en Grýla var
ekki við eina fjölina felld því áður en hún kynnt-
ist Lúða átti hún vingott við Bola og Gust og átti
með þeim fjölda tröllabarna. í dag eru flestir sam-
mála um að jólasveinarnir séu þrettán og heiti
Stekkjarstaur, Giljagaur, Stúfur, Þvörusleikir,
Pottasleikir, Askasleikir, Hurðaskellir,
Skyrgámur, Bjúgnakrækir, Gluggagægir,
Gáttaþefur, Ketkrókur og Kertasníkir.
Áður gengu þeir undir ýmsum nöfnum sem oft og
tíðum voru staðbundin, eins og til dæmis í Fljótunum
þar sem nöfnin Pönnuskuggi, Guttormur, Bandaleys-
ir, Lampaskuggi og Klettaskora koma fyrir, og í Mý-
vatnssveit þekktust nöfn eins og Flórsleikir og
Móamangi. Á Ströndum voru þeir þrettán eða fjórtán
og báru önnur nöfn sem koma fram í eftirfarandi
nafnaþulum: .
Tífall, Tútur
Baggi, Lútur
Rauður, Redda
Steingrímur, Sledda
Lœkjarœsir, Bláminn
sjálfur Blámans barnið
Litlipungur,
Örvadrumbur.
Tífall og Tútur,
Baggi og Hrútur,
Rauöur og Redda,
Steingrímur og
i Sledda,
sjálfur Bjálfinn og
Bjálfans barnió,
Bitahœngir,
Froðusleikir,
Gluggagœgir
og Styrjus-
leikir.
Jóla-
sveinarnir
á Strönd-
um höfðu
líka þá
sérstöðu
að vera
giftir
páskadís-
unum sem
koma til byggða fyrir
norðan um páskaleytið.
Kauðhvíti jóla-
sveinninn líkist
fremur fíflaleg-
um trúð eða
búðarfífli en
ógnvekjandi
trölli. Þar að
auki er einn þekktur
gluggagægir.
Fara um með ránum og
V hreldíjum
f Skömmu eftir að kristni var lögtekin
1 hér á landi bjó maður sem hét Steinn fyr-
ir austan. Kona hans hét Guðrún og þau
áttu tvö börn, Illuga og Sigríði. Guðrún
var guðhrædd og kirkjusækin en Steinn
fremur gefinn fyrir forneskju. Einu sinni
þegar Guðrún var á leið til messu á jólun-
um biður hún Stein að fylgja sér. Hann tók
því illa, segist þó munu gera það en ekki
vera við tíðir.
Steinn fylgir.
konu
í dag eru flestir sammála um að
jólasveinarnir séu þrettán. Áður
fvrr voru þeir þekktir undir ýmsum
staðbundnum nöfnum. eins og Flórsleikir,
Móamangi, Bandalevsir og Lampaskuggi.
á áfangastað en heldur svo heim. Þegar kona
hans kemur heim daginn eftir lá Steinn í rúminu og
var fámáll en segir: „eigi veit ég hvort ég hefði svo
fljótt aftur horfið í gærkveldi ef ég hefði þá vitað það
sem ég veit nú“.
Leið nú fram að næstu jólum og biður Guðrún
bónda sinn aftur að fylgja sér til kirkju og gerir hann
það ásamt Illuga syni þeirra. Þegar þau koma að
kirkjunni biður Steinn Illuga að fylgja sér aftur heim
og segir að hann þurfi að sýna honum nokkuð.
Feðgamir halda heim og þegar þangað er komið
ganga þeir í skemmuna og bíða þar um stund.
Skömmu seinna sýnist Illuga að stafninn á skemm-
unni hverfi og inn gangi tveir hvítklæddir menn með
líkkistu og fjöldi anda i humátt á eftir þeim. Andarn-
ir spyrja hvítklæddu mennina frétta af mönnum,
bæði góðum og vondum, en aðallega voru þeir for-
vitnir um börn. Illuga fannst standa kaldur gustur af
öndunum og heyrði á tali þeirra að þeim geðjaðist
einkum að illum mönnum og guðlausum.
Seinna þegar Illugi sagði frá atburðinum könnuð-
ust menn við andana og kölluðu þá jólasveina og
sögðu þá illa og ganga um byggðir um jólin með rán-
um og hrekkjum, einkum við börn.
Koina á selskinnsbátum
Að sögn Sigfúsar Sigfússonar koma jólasveinarnir
til landsins í byrjun jólaföstunnar á „selskinnsbátum
vestan frá Grænlandsóbyggðum eða, að sumra sögn,
austan frá Finnmörk og kalla sumir byggðarlag
þeirra Fimnam. Þeir leggja að landi í leynivogum
undir ófærum og geyma báta sína í hellum og halda
huldu yfir þeim uns þeir fara aftur nærri þrettánda."
Að sögn Sigfúsar skipta jólasveinarnir sér á bæina
þegar þeir koma að landi og „hér þekkjast þeir oft
varla frá púkum og árum af verknaði sínum og eru
ill-kaldir sem hafís og heljur. [. . .] Jólasveinar eiga
kistur sem þeir bera menn á brott í.“ s^
Kattarvali
í þjóðsagnasafni Sigfúsar er meðal annars að finna
eftirfarandi sögu um viðureign jólasveinsins og
manns á bænum þar sem jólasveinninn hélt til um
jólin.
„Einu sinni var maður á ferð og kom að læk eða á.
Sá hann að þar sátu margir menn í röð við ána og
héldu allir á sömu þurrkunni og þurrkuðu sér allir í
einu á henni þegar þeir höfðu þvegið sér. Sá maður-
inn, þegar hann gætti betur að, að þetta voru allt jóla-
sveinar og bjuggu sig undir vistarverur sínar. Einn
þeirra lenti auðvitað á heimili hans. Maðurinn var
íjósamaður. Hann var orðgætinn og stilltur maður og
því ekki neinn vinur jólasveinsins. Einu
sinni mættust þeir í íjósdyrum og
ræður jólasveinninn á fjósakarl.
Eigast þeir lengi við allt þangað til
fjósakarl hefur hann undir og kaf-
færir hann í fjóshaugnum. Þá æpir
jólasveinninn hátt og kvað við:
Kattarvali, kom þú hér,
kæri bróðir, hjálpa mér.
Heyrist fjósakarli tekið
undir. Kom þá jóla-
sveinninn sem var á
hinu búinu og varð
fjósamaður að
flýja. En aldrei
áttust þeir oftar
við svo getið sé.“
Að draga
jólasveina
og jólameyjar
Jónas Jónsson frá
Hrafnagili segir frá ein-
kennilegri jólaskemmt-
un i bók sinni, íslenzk-
ir þjóðhættir, en leik-
urinn virðist til þess
gerður að para ungt
fólk um jólin, svipað
því og gert var í leik-
brúðkaupum sem
tengdust við viki-
vakaleiki.
„[. . .] víða tiðkast,
að rita upp á miða
alla þá, sem koma á
jólaföstunni og fram
á aðfangadag. Þetta
heita jólasveinar
og jólameyjar.
_____ Svo er dregið
um miðana á jóla-
nóttina, konur draga
drengi, en piltar stúlkur. Ef margir hafa kom-
ið, fallá mörg nöfn í hlut, og dregur þá hver einn
miða úr sínum hóp, og verður þaö, sem hann eða hún
hlýtur, hans eða hennar jólamey eða jólasveinn um
jólin. Stundum gefur þá einn heimamanna, sem til
þess er kjörinn, allar persónurnar saman með því að
lesa upp vísu úr einhverri ljóðabók, sem hann ílettir
upp í blindni."
Þekktur gluggagægir
Um miðja síðustu öld fara jólasveinarnir að mild-
ast og taka á sig alþjóðlega mynd rauðhvíta jóla-
sveinsins. Þeir verða „vinir" barnanna og færa þeim
gjafir í skóinn siðustu dagana fyrir jól og eru
ómissandi á jólaskemmtunum. íslensku jólasveinarn-
ir halda þó þeim sið að vera hávaðasamir og hrekkj-
óttir og ekki er laust við að börnin séu enn hrædd við
þá. Hræösla barnanna er fullkomlega eðlileg. Fullorð-'
ið fólk hikar ekki við segja börnunum að þessir
ókunnugu miðaldra offitusjúklingar, sem ganga um í
skrýtnum fötum, komi í herbergið til þeirra á nótt-
inni og taki óþekk börn og þau sem ekki vilja fara
snemma í rúmið. Og einn þeirra er meira aö segja
þekktur gluggagægir.
Gleðileg jól.
-Kip ,