Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Blaðsíða 50
H & Iga rb iað 3D»V
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002
Snjókeðjur fyrir
öil farartæki....
Aðeins vara frá
viðurkendustu
framleiðendum
Tellefsdal - Trygg - OFA
Gunnebo- Weed
^iMEUUUfLttm
einum grænum
04
Smiöjuvegur 8 - Kóp §
Sími: 577 6400 1
Skuggaleg jól
Jólin eiga sínar skugga-
hliðar þi/íþau eru ekki
bara hátíð Ijóss og friðar.
Jólin eru hátíð ljóss og friðar. Þetta vita
menn. En alls staðar þar sem er ljós þar eru
skuggar og andhverfa friðar er ófriður. Við
skulum skyggnast bak við bjarta og friðsæla
framhlið jólanna og sjá hvað leynist í skúma-
skotum aðventunnar, hverjar eru skuggahliðar
jólanna.
Jólin grafa undan skógrækt
Á hverju ári eru 6-10 ára gömul grenitré
höggvin upp í stórum stíl og þar lýkur þeirra
háleita hlutverki við að klæða landið. Þeim er
rótslitnum komið fyrir í áhaldi sem heitir jóla-
trésfótur og litur út eins og pyntingartæki frá
miðöldum. Tré eru lifandi verur sem liggja í
dvaia á köldum vetri en rumska í stofuhitanum
örkumluð, klemmd í járnþvingur og þar er
murkað hægt úr þeim lífið með stopulli vatns-
gjöf. Undir áramót er tréð örent og því er hent
á öskuhaugana á þrettándanum. Það er síðan
kurlað niður í trjámusl sem er dreift á skógar-
stíga til skrauts.
í ljósi þeirrar áherslu sem lögð er á skógrækt
og starf gegn landeyðingu á íslandi er þetta
einkennilegt framferði. Sennilega væri betra
að vernda landið með því að neita sér um jóla-
tré og bjarga þannig einu rofabarði um hver
jól. Líklega gengi starf skógræktarmanna hraö-
ar ef jólahald tefði ekki fyrir þeim í þeim mæli
sem nú er.
Jólin brjóta sjálfsmyndina
Á jólum borða sennilega flestir meira en þeir
ætluðu að gera. Hærra hlutfall dýrafitu og syk-
urs í fæði okkar samfara hreyfingarleysi við
bóklestur vinna gegn yfirlýstum manneldis-
markmiðum og gera þrotlaust starf fjölda fólks
á þrekhjólum mánuðum saman að engu.
Það hlýtur að vera til þess fallið að brjóta
niður sjálfsmynd þeirra sem berjast við
aukakílóin og fara á
sérstakt átaksnámskeið
á aðventunni að standa
þrútin og bólgin á ann-
an í jólum og komast
ekki í jólakjólinn
vegna vökasöfnunar
• eftir allan salta og
reykta matinn. Sá sem
er dapur leitar huggun-
ar og hvar finnst hún
nema í smákökuboxun-
um og jólakonfekts-
bingnum sem var gerð-
ur í örvæntingarkasti
til þess að þjappa fjöl-
skyldunni saman því
jólin eru hátíð fjöl-
skyldunnar.
Það elur á beiskju og
depurð að þurfa að ganga um verslanir á að-
ventunni og neita sér um alla sælgætismolana
og gómsætu sýnishornin sem frávita sölumenn
ota að vegfarendum. í hverju umframkílói af
fituvef eru átta þúsund kaloríur sem eru ígildi
þriggja daga samfellds sveltis svo þarna þarf
mikið starf og óeigingjarnt. Allt þetta brjóta
jólin niður og þjóðin fitnar jafnt og þétt.
Jólin gera ganialt fólk dapnrt
Samkvæmt nýlegum fregnum Ólafs áður
landlæknis eru 75% gamals fólks sem dvelur á
stofnunum á þunglyndislyfjum. Fátt talar gam-
alt fólk meira um en peninga og sérstaklega
nískulegar bætur og ellilaun. Það fær engan
þrettánda mánuð og verður því að neita sér um
að gefa flestum sem því finnst vænt um eitt-
hvað í jólagjöf. Slíkt eykur engum gleði og
þeim hlýtur að fjölga á aðventunni sem auka
við sig lyfjaskammtinn eða ganga í raðir pillu-
ætanna.
Á aðventunni má enginn vera að því að
heimsækja gamla fólkið og hjálpa því við að
umbera jólin. Það húkir aleitt á rúmi sínu und-
ir flóði auglýsinga um aðventukvöld, skemmt-
anir og jólatilboð.
Þegar jólaboðið árlega rennur svo upp er
gamalmenni fjölskyldunnar sótt á fjórhjóla-
drifnu bílaláni frá Glitni og drifið í fjölskyldu-
boðið til að lina sektarkennd ættarinnar yfir
vanrækslu ársins. Þar er flaumósa, illa baðað
gamalmenni kynnt fyrir helstu afkomendum
sínum í þrjá eða fjóra ættliði og reynt að
stappa í hann eða hana sem mestu af hangi-
kjöti, smákökum og konfekti og æpt á hann
nýjum fréttum af atvinnu, gjaldþrotum og
hjónaskilnuðum hópsins.
Svo er trillað með afa aftur á Grund þar sem
hann verður næstu 11,9 mánuði. Þannig minna
jólin þá öldruðu á það hvernig þeir hafa verið
settir til hliðar og eru öllum gleymdir að
mestu. Jólin valda þannig depurð og uppnámi
hjá flestu gömlu fólki og auka þörf þess fyrir
þunglyndislyf.
PÁÁ/sm
Fyrst og fremst
nmmm
9.900
Magnús Ver Magnússon
Sterkasti maður heims, fjórum sinnum
Ég vei Sekonda
af því að þau
eru sterk, traust
og á fínu verði.
Varist dýrarl e f t i r I í k i n g a r
Útsölustaðir:
Helgi Sigurðsson, Skólavörðustíg 3.
Gullsmiðja Óla, Smáralind.
Jens, Kringlunni.
Georg Hannah, úrsmiður, Keflavík.
'---~ —4fl*
tStæsMmar z GjstWir : Hladborö
Jólasveinar : Jólasöngvar
Kvikmyndir = : Messur
f>lc>,l:«L*«'fSáiilinnisa»r : Sk|ámyndir
Sc»gi«jir ; TTók»Til«>ilc4ar ; TTó«r»lis*
Uppskriftir
JoIí:*)gijí»-*:£'»t»«*r»cifc»c»lc DV
www.j ol.i s
SUÐURNESJAMENN
SAGA SJAVARUTVEGS
1
„Saga Jóns Þ. Þór er afar vel unnin og skipuleg ...
Lesandinn er svo óendanlega miklu nær eftir
lesturinn ... Það er hreinlega eins og ný Islandssaga
hafi verið skrifuð ..."
Hjörtur Gislason Mbl. 18. des. 2002
PIXEL PLU S
Ótrúlegt
^satt
Nýja Pixel Pius
tæknin frá Philips kallar fram mun
betri myndgæði en áður hefur þekkst.
(jý Heimilistæki
32" Philips Pixel Plus tækið hefur sópað að sér verðlaunum og
fékk nýverið EISA verðlaunin sem besta sjónvarp Evrópu 2002-2003.
UMBODSMENN
UMLANDALLT