Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2002, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2002, Blaðsíða 13
13 FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002 Menning Brauð og leikar Sviðsútfærslur kvikmynda virðast njóta mikiUar hylli hérlendis um þessar mundir, samanber Veislima sem sýnd er á Smíða- verkstæði Þjóðleikhússins og Kryddlegin hjörtu sem Borgarleikhúsið er nýhætt að sýna. Nú hefur enn ein kvikmyndin ratað á svið, að þessu sinni í formi söngleiks. Um er að ræða íslenska þýðingu og staðfærslu Karls Ágústs Úlfssonar á The Full Monty sem hefur hlotið heitið Með fullri reisn. Eins og þeir muna sem sáu myndina fjallar hún um nokkra atvinnulausa breska stálsmiði sem grípa til þess örþrifaráðs að sýna nekt- ardans til að ná sér í aura. Kvikmyndin var bráðskemmtileg en tókst líka að koma til skila örvæntingunni og vonleysinu sem at- vinnuleysi hefur óhjákvæmilega í fór með sér. Því miður fer sá þáttur að mestu for- görðum í söngleikjaútfærslunni sem er eftir Bandaríkjamanninn Terrence McNally. Vissulega er „showið“ sem þeir félagar setja á svið aðeins endapunktur samstarfs sem tengir þá vináttuböndum og styrkir sjálfsí- myndina en engu að síður þarf maður að skynja að á bak við gamanið sé dauðans al- vara. Þegar við bætist að persónur eru yfir- borðskenndar og vekja takmarkaða samúð gefur augaleið að sýningin ristir ekki djúpt. Leiklist Óþarft er að kynna leikstjórann og dans- höfundinn Kenn Oldfield fyrir íslenskum leikhúsgestum. Síðasta verkefni hans hér var vel heppnuð uppsetning á Syngjandi í rigningunni (sem einnig byggir á kvikmynd) og þvi eðlilegt að væntingamar hafi verið miklar fyrir sýninguna á Með fullri reisn. Það verður að viðurkennast að þessar tvær sýningar eru ekki sambærilegar, hvorki hvað varðar skemmtanagildi né fag- mennsku. Þar skiptir miklu að tónlist Dav- ids Yazbek er einfaldlega ekki nógu grípandi og á frumsýningu var hljóðblönduninni áfátt því hljómsveitin yfirgnæfði oft söng- inn. Fleiri tæknileg vandamál mætti nefna DV-MYND SIG. JÖKULL Hann kom þessu öllu af stað Guðmundur Ingi Þorvaldsson sem stripparinn að sunnan og Brynhiidur Guðjónsdóttir sem Gogga í Kaupfélaginu. auk þess sem stundum skorti á samhæf- ingu í söngnum. Mér finnst líka sem Karli Ágústi hafi oft tekist betur upp því stað- færslan virkaði ekki sannfærandi. Það eru þeir Rúnar Freyr Gíslason, Ólaf- ur Darri Ólafsson, Baldur Trausti Hreins- son, Atli Rafn Sigurðarson, Kjartan Guð- jónsson og Amar Jónsson sem leika stripp- arana sex. Þeir stóðu ágætlega fyrir sínu en eins og áður segir eru persónur yfirborðs- kenndar og því eðlilegt að túlkunarmögu- leikar séu takmarkaðir. Með fullri reisn er ágætis afþreying og mörg skemmtileg atriði í sýningunni. Þar má nefna atriðið í dansskólanum þar sem Edda Heiðrún Backmann syngur með sveiflu óð til eiginmannsins, óborganlegt dansatriði Arnars Jónssonar, samsöng karla og kvenna þar sem útlitið er helsta umfjöllunarefnið að ógleymdu lokaatrið- inu. Atli Rafn Sigurðsson túlkaði líka afar fallega lagið Þú fylgir mér og þær Brynhild- ur Guðjónsdóttir og Edda Heiðrún voru heUlandi í samsöngnum Þú ert mér allt. Þær voru í bitastæðustu kvenhlutverkun- um ásamt Halldóru Björnsdóttur og skil- uðu allar sínu af öryggi. Þetta er viðamikil uppfærsla því alls taka tuttugu leikarar og níu manna hljóm- sveit þátt í sýningunni. Öll umgjörð þjónar sínu hlutverki vel sem telst varla til tíðinda í elsta atvinnuleikhúsi landsins. Þrátt fyrir heiti sýningarinnar verður að viðurkenn- ast að oft hefur verið meiri reisn yfir jóla- frumsýningu Þjóðleikhússins. Halldóra Friðjónsdóttir Þjóöleikhúsið sýnir á Stóra sviöinu: Meö fullri reisn eftir Terrence McNally og David Yazbek. Þýö- ing og staöfærsla: Karl Ágúst Úlfsson. Tónlistar- stjórn: Jóhann G. Jóhannsson. Hljóöstjórn: Sig- urður Bjóla. Lýsing: Björn B. Guðmundsson og Páll Ragnarsson. Búningar: Filippía I. Elísdóttir. Leikmynd: Vytautas Narbutas. Aöstoöarleikstjóri: Tinna Gunnlaugsdóttir. Leikstjóri og danshöfund- ur: Kenn Oldfield. Vængjaþytur vorsins Félag ljóðaunn- enda á Austurlandi hefur gefið út Ijóða- bókina Vængjaþyt- ur vorsins eftir Ás- dísi Jóhannsdóttur. Ásdís var fædd árið 1933 og lést 1959, að- eins 26 ára, og varð öllum harmdauði sem til hennar þekktu. Nú hefur Helgi Hallgrímsson valið úr eftirlátnum ljóðum hennar í þessa útgáfu og ritað eftirmála um Ás- dísi og ljóðagerð hennar. Eitt af ljóðunum í síðasta hluta bókar- innar, sem ortur er á námsárum Ásdísar í Þýskalandi, er „Vetrarþokan", ort í desember 1956: Vetrarþokan vefur borg, vökul Ijósin stara. Mjóar götur, mannlaus torg, myrkriö fyllir líkt og sorg. Á öllu hvílir minninganna mara. Kvæðabrot Andrés Guðnason hefur gefið út Kvæða- brot úr ferðum er- lendis þar sem hann birtir vísur sem urðu til á ferðum hans víða um heim, til Kalifomíu, Noregs, Kanada, Grikklands, Parísar, Prag, Ítalíu, Barcelona, Alpanna, Tyrklands, Möltu og Gozo, Helsinki, St. Pétursborgar og Tallinn. Eftirfarandi vísa varð til eftir nótt á hóteli í Navplion i Grikklandi: Kakkalakkar kirja söng á kodda mínum. Þeirra er ekki leiöin löng aö legstaö sínum. Andrés gefur bókina út sjálfur. Kmðabnu BORGARLEIKHÚSIÐ Leikfélag Reykjavikur SKJALLBANDALAGIÐ KYNNIR BEYGbiR í IÐNÓ Jólasýning Lau. 28.12. kl. 21. Fös. 3.1. kl. 21. Uppselt Lau. 11.1. kl. 21. Nokkursæti Miðasalan í lönó er opin frá 10-16 alla virka daga, 14-17 um helgar og frá kl. 19 sýningardaga. Pantanir i s. 562 9700. Ósóttar pantanir eru seldar 4 dögum fyrir sýningar. Söngleikurinn • sól&máni * eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson k Frumsýning 11. janúar Leíkfélag Reykjavíkur < Íslenskí dansflokkurinn < Miðaveró í forsölu 2.800 kr. MUNIÐ GJAFAKORTIN! DADGADI CII/LJl'lCIC\ MeikfélagfteyK^vtkur • listabraut 3-103 Reykja.ir D vy KuAK L Ll l\r1Uu It/ »iðasala 5b8^-3ð00 • \A-ww.boigatleikhus.is Sól & Máni - Nýr íslenskur söngleikur eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Águst Úlfsson FORSALA AÐGÖNGUMIÐA STENDUR YFIR. GJAFAKORT Á TILBOÐSBERÐI TIL JÓLA Frumsýning 11. janúar ALLIR í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA! Borgarleikhúsið erfjölskylduvænt leikhús: Börn, 12 ára og yngri, fá frítt í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum. (Gildir ekki á söngleiki og barnasýningar.) STÓRA SVIÐ SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI eftir Sálina og KarlAgúst Úlfsson Frumsýning lau. 11/1. UPPSELT 2. sýn. su. 12/1, gul kort 3. sýn. fö. 17/1, rauð kort 4. sýn. lau. 18/1, græn kort SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller Lau. 28/12 kl. 20 Su. 29/12 kl. 20 SÝNINGUM FER FÆKKANDI HONK! UÓTIANDARUNGINN e. George Stiles ogAnthony Drewe Gamansöng/eihurfyrir allafjölskylduna. Su 29/12 kl. 14 Su. 12/1 kl. 14 NÝJA SVIÐ JÓN OG HÓLMFRÍÐUR Frekar erótiskt leiktrit íprem þáttum e. Gabor Rassóv Su. 29/12 kl. 20 Fö. 3/1 kl. 20 JÓLAGAMAN BORGARLEIKHÚSSINS Jólasvei nakvœði Jóhannesar úr Kötlum í leikbúningi o.fl. Su. 5/1 kl. 14 og 15 - Kr. 500 ÞRIÐJA HÆÐIN HERPINGUR eftirAuðiHaralds HINN FULLKOMNI MAÐUR eftir Mikael Torfason í samstarfi vio DRAUMASMIÐJUNA Lau. 28/12 kl. 20, Fö. 10/1 kl. 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR Hátíðarsýning á Gretti sterka Sérstök hátíðarsýning er á Grettissögu - sögu Grettis eftir Hilmar Jónsson í HafnarQarðarleikhúsinu á sunnudagskvöldiö, 29. desember. En næsta sýning þar á eftir er ekki fyrr en 10. janúar. "Töfrar sögunnar felast meðal anpars í skáldskapnum sem er oröinn alltorræður nútíma íslendingum. í stað þess að foröast kveðskapinn gerir Hilmar hann að eðlilegum og skiljanlegum hluta textans sem allur er fenginn beint úr Grettissögu. Það er magnað að verða vitni að því að mál sem er ekki lengur talað öðlist líf og ég er ekki í nokkrum vafa um að sú ákvörðun að nota upprunalega textann ráði miklu urti farsæld leikgerðarinnar. Að vanda er öll umgjörö hugvitssamlega útfærð og sem fýrr er það Finnur Arnar Arnarson sem á heiðurinn af leikmyndinni, en þar er aðalstefið rammíslenskt stuðla- berg. Lýsing Björns Bergsteins Guð- mundssonar er lista- verk ut af fyrir sig og sama má segja um tónlist Hilmars Arnar Hilmarssonar, þótt hvort tveggja sé skapað til að þjóna því sem er að gerast á sviðinu." HF, DV LITLA SVIÐ RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Sbakespeare í SAMSTARFI VIÐ VESTURPORT Má. 30/12 kl. 20. UPPSELT Fö. 3/1 kl. 20

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.