Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003 I>v íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 75 ára Jóhannes Gestsson, Giljum, Reykholti. 70 ára_______________________________ Arnhildur Hólmfríöur Reynis, Ljósheimum 14, Reykjavík. Krlstján Slgurðsson, Otrateigi 22, Reykjavík. Kristleifur Einarsson, Lækjarfit 2, Garðabæ. Óli Jörundsson, Sólvöllum 11, Selfossi. 60 ára_______________________________ Alma Hákonardóttir, Lyngmóum 14, Garðabæ. Elín Gíslína Árnadóttir, Skaftárvöllum 13, Kirkjubæjarklaustri. Jón Alfreö Ólafsson, Hringbraut 50, Reykjavík. Mario Conti, Lindargötu 21, Reykjavík. Víöir Valgeirsson, Blönduhlið 2, Reykjavík. 50 ára_______________________________ Davíö Gíslason, Berghóli 2, Akureyri. Esther Judit Steinsson, Bræðraborgarstig 19, Reykjavik. Eybjörg Ásta Guðnadóttir, Bjarnahóli 2, Höfn. Guörún L Kristmundsdóttir, Engjaseli 52, Reykjavík. Jóhann Sævar Kristinsson, Dalhúsum 75, Reykjavík. Jónína Guðjónsdóttir, Stakkhömrum 17, Reykjavík. Ragnheiöur Guörún Þórðardóttir, Seiðakvísl 35, Reykjavík. Særún Björnsdóttir, Jórufelli 10, Reykjavik. 40 ára_______________________________ Höröur Kristinn Haröarson, Presthúsabraut 32, Akranesi. Ingi Guðmundur Ingason, Birkihæö 18, Garðabæ. Jóhanna Ólafsdóttir, Álftahólum 4, Reykjavík. Jóna Þuríöur Ingvarsdóttir, Galtalind 19, Kópavogi. Kristján V. Kristinsson, Engihjalla 11, Kópavogi. Lorgia L.D. C. Sepulveda Benner, Hraunöldu 2c, Hellu. Ólöf Benedlktsdóttir, Kringlumýri 20, Akureyri. Tryggvi Kristinn Ólafsson, Áshamri 51, Vestmannaeyjum. Smáauglýsingar DV Þjónustu- augtýsingar ►I550 5000 Valgerður Laufey Einarsdóttir, Álftamýri 36, Reykjavík, lést á Landspítala Foss- vogi þriöjud. 20.5. Guöbjörg Óskarsdóttir Ijósmóðir, frá Eyri, Gufudalssveit, til heimilis í Bæjar- túni 12, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítala í Kópavogi að kvöldi laug- ard. 10.5. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Guörún Elíasdóttir, Sunnubraut 50, Keflavík, lést á hjartadeild Landspítal- ans við Hringbraut þriðjud. 20.5. Björn Tómas Kjaran skipstjóri lést á heimili sínu þriðjud. 20.5. eftir langvar- andi veikindi. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Margrethe Gísiason, Víðivangi 10, Hafn- arfirði, áður Skólavörðustíg 5, Reykjavík, lést á Sólvangi 13.5. Útförin hefur farið fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Sigupöup Kári Kristjánsson nýkjörinn alþingismaður Reykjavíkur noröur Sigurður Kári Kristjánsson hdl. er nýkjörinn alþingismaður í Reykjavíkurkjördæmi norður og yngstur í þingliði sjálfstæðis- manna. Starfsferill Sigurður Kári fæddist í Reykja- vík 9.5. 1973 og ólst upp í Reykja- vík. Hann gekk í Hólabrekkuskóla í Breiðholti og útskrifaðist þaöan 1989, lauk stúdentsprófi frá VÍ 1993, lauk embættisprófi í lögfræði við HÍ 1998, stundaði laganám við Kaþólska háskólann í Leuven í Belgíu 1997 og hlaut málflutnings- réttindi fyrir héraðsdómi 1999. Á unglingsárum starfaði Sigurð- ur Kári með skóla í Sundlaugun- um í Laugardal en jafnframt há- skólanámi starfaði hann á lög- mannsstofu Jóns Steinars Gunn- laugssonar, Lögmönnum Skóla- vörðustíg 6B sf. Hann hóf störf hjá Lögmannsstofunni Lex ehf. í Reykjavík 1.9. 1998 og hefur starf- að þar síðan. Sigurður Kári átti sæti í stjórn málfundafélags Verzlunarskólans 1990-91, var jafnframt í sigurliði Verzlunarskólans i MORFÍS, Mælsku- og rökræðukeppni fram- haldsskólanna á íslandi, var for- seti Nemendafélags VÍ 1992-93, var formaður Orators, félags laga- nema, 1995-96, sat í ritstjóm Ulf- ljóts 1996-97, var framkvæmda- stjóri lögfræðiaðstoðar Orators 1997-98, fulltrúi nemenda í há- skólaráði 1995-97, fyrir Vöku fé- lags lýðræðissinnaðra stúdenta. í stjórn Heimdallar 1995-97, sat í stjórn SUS 1997-99, var formaður SUS frá 1999-2001, sat í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1999-2001, sat í framkvæmdastjórn Sjáifstæðis- flokksins 1999-2001 og hefur setið í stjórn Heimsýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum, frá stofnun þeirra 2002. Fjölskylda Systir Sigurðar Kára er Hafrún Kristjánsdóttir, f. 20.11. 1979, há- skólanemi. Foreldrar Sigurðar Kára eru Kristján Ágúst Ögmundsson, f. 28.8.1943, forstöðumaður í Reykja- vík, og Elín Þórjónsdóttir, f. 17.7. 1946, sjúkraliði. Ætt Kristján Ágúst er sonur Ög- mundar, verkamanns í Reykjavík Þorsteinssonar. Móðir Ögmundar var Sólborg, systir Áslaugar, móð- ur Guðjóns Oddssonar, fyrrv. for- manns Kaupmannasamtaka ís- lands. Bróðir Sólborgar var Sigur- gestur, faðir Harðar, fyrrv. for- stjóra Eimskips. Sólborg var dótt- ir Guðjóns, verkamanns í Reykja- vík Jónssonar, b. í Hafliðakoti Jónssonar, b. á Ormsvelli í Hvol- hreppi, bróður Valgerðar, langömmu Grétars Fells, rithöf- undar. Jón var sonur Erlends, b. á Þúfu á Landi Jónssonar. Móðir Erlends var Halldóra Halldórs- dóttir, b. á Rauðnefsstöðum, bróð- ur Ólafs á Fossi, langafa Odds á Sámsstöðum, langafa Davíðs Oddssonar forsætisráðherra. Hall- dór var sonur Bjarna, ættfoður Víkingslækjarættar Halldórsson- ar. Móðir Guðjóns var Hólmfríður Sveinsdóttir, sem reri tólf vertíðir frá Landeyjasandi. Móðir Sólborgar var Jóhanna Jónsdóttir, b. í Hreiðarskoti á Stokkseyri Jónssonar, bróður Þor- steins, langafa Berthu, móður Markúsar Amar Antonssonar út- varpsstjóra. Þorsteinn var einnig langafi Harðar Ágústssonar, list- málara og langafi Þorsteins, föður Víglundar, stjórnarformanns Vallár. Móðir Jóns í Hreiðarskoti var Steinunn Jónsdóttir. Móðir Steinunnar var Halla Gísladóttir. Móðir Höllu var Sigriður Ólafs- dóttir, systir Margrétar, lang- ömmu Ágústs, afa Ólafs Skúlason- ar biskups, foður Guðrúnar Ebbu borgarfulltrúa. Sigríður var dóttir Marínar Guðmundsdóttur, ættfoð- ur Kópsvatnsættar Þorsteinsson- ar, langafa Jóns, langafa Páls ís- ólfssonar, tónskálds. Móðir Kristjáns Ágústs er Bjarney Sigríður, verkakona í Reykjavík, systir Kjartans, föður Guðna knattspyrnuþjálfara ung- lingalandsliðsins 19 ára og eldri, föður Hauks Inga landsliðsmanns í knattspyrnu. Bjamey er dóttir Guðmundar, b. í Hlöðuvík á Hom- ströndum, bróöur Stefaníu Hall- dóru, ömmu Guðna Kolbeinssonar íslenskufræðings, föður Hilmis Snæs leikara. Guðmundur var einnig bróðir Sigmundar í Hæla- vík sem gaf út ljóðabókina Brim- hljóð, 1955. Guðmundur var sonur Guðna, b. í Hælavík Kjartansson- ar, b. í Atlavík, Ólafssonar, b. í Atlavík Jónssonar, b. í Atlavík Þorkelssonar. Móðir Kjartans var Þóra Snorradóttir. Móðir Guðna var Ingbjörg Sakaríasdóttir. Móð- ir Guðmimdar var Hjálmfríður ís- leifsdóttir. Móðir Bjarneyjar Sig- ríðar var Jóhanna, dóttir Bjarna Þorsteinssonar og Sigríðar Krist- jánsdóttur í Miðvík í Aðalvík. Elín er dóttir Þórjóns, verka- manns í Ólafsvík Jónassonar, verkamanns og sjómanns í Ólafs- vík Egilssonar, sjómanns á Búð- um. Móðir Þórjóns var Elín Jónas- dóttir frá Fáskrúðsfirði. Móðir Elínar var Lovísa Magn- úsdóttir, smiðs og meðhjálpara i Ólafsvík, bróður Sigurðar, hrepp- stjóra í Syðra-Skógarnesi, föður Magnúsar, oddvita í Miklaholti og Elísabetar á Stóra-Hrauni, ömmu myndlistarmannanna Sigurðar og Kristjáns Guðmundssona, og langömmu Hjálmars W. Hannes- sonar sendiherra, Hjálmars Árna- sonar alþm. og Þórólfs Árnasonar borgarstjóra. Magnús var sonur Kristjáns, b. í Ytra-Skógarnesi Gíslasonar. Móöir Kristjáns var Katrín Bárðardóttir, systir Hall- dóru, langömmu Daða, föður Sig- fúsar Daðasonar skálds. Móðir Lovísu var Kristín Þórðardóttir frá Rauðkollsstöðum. Sjötíu og fimm ára Guðrún Haraldsdóttir húsmóöir og fyrrv. verslunarmaöur í Reykjavík Guðrún Haraldsdóttir húsmóð- ir, Bólstaðarhlíð 54, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferill Guðrún fæddist á Gróttu á Sel- tjarnarnesi og ólst þar upp. Hún stundaði nám við Mýrar- húsaskóla, lauk gagnfræðaprófi, stundaði nám við Verslunarskóla íslands og lauk þaðan verslunar- prófi og stundaði nám við Hús- mæðraskólann að Sólvallagötu. Guðrún stundaði verslunarstörf í hartnær tuttugu ár, lengst af í versluninni Rímu í Austurstræti. Fjölskylda Guðrún giftist 28.10. 1949 Gunn- laugi Pálma Steindórssyni, f. 22.10. 1925, vélfræðingi og forstjóra. Hann er sonur Steindórs Gunn- laugssonar, f. 25.9. 1889, d. 17.3. 1971, lögfræðings og sýslumanns, og Sigriðar Bryndísar Pálmadótt- ur Gunnlaugsson, f. 1.3. 1897, d. 4.1. 1988, húsmóður. Börn Guðrúnar og Gunnlaugs eru Steindór, f. 11.10. 1961, fram- kvæmdastjóri en börn hans eru Bryndís Dögg, f. 22.9. 1986, og Gunnlaugur Egill, f. 19.5. 1994; Haraldur Páll, f. 9.6.1967, dr. í eðl- isfræði, búsettur í Árósum í Dan- mörku og er í sambúð með Bolette Christensen. Systkini Guðrúnar eru Þorvarð- ur Helgi Haraldsson, f. 21.5. 1931, vélstjóri; Nanna Haraldsdóttir, f. 21.1.1935, hárgreiðslumeistari, gift Einari Sigurössyni, kjötiðnaðar- meistara og eiga þau þrjá syni: Harald, Sigurð og Kristján. Foreldrar Guðrúnar voru Har- aldur Jónsson, skipstjóri og út- gerðarmaður, og k.h., Ásta Særós Þorvarðardóttir húsmóðir. Þau bjuggu lengst af á Sólvangi á Sel- tjarnarnesi. Ólafur Jónsson, Hrafnistu, Reykjavík, áö- ur Bræöraborgarstlg 13, veröur jarö- sunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstud. 23.5. kl. 13.30. Útför Brynju Hermannsdóttur, Klappar- stíg 1, Akureyri, fer fram frá Akureyrar- kirkju föstud. 23.5. kl. 13.30. Erna Karlsdóttir, Stekkjarhvammi 54, Hafnarfiröi, veröur jarðsungin frá Grafar- vogskirkju föstud. 23.5. kl. 15. Ester Hjálmarsdóttlr Hansen verður jarösungin frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, 24.5. kl. 14. Bóel Kristjánsdóttir, fýrrum húsfreyja, Miöhjáleigu, Austur-Landeyjum, verður jarðsungin frá Voðmúlastaðakapellu laugard. 24.5. kl. 14. Sigríður Árnadóttir, Skagfiröingabraut 43, Sauöárkróki, veröur jarösungin frá Sauöárkrókskirkju 24.5. kl. 14. Laugavegi 176 Sími 588 5403 HAMBOnSAIUH, SAMIOKUR. KJÖKi-iríSUR. NACTASTEIK. SVÍIIAT5IF OFI.. OFI.. VIS SRJLUJM Á StRSTÖKC CRILLI SSM SEFCR FETTA SÉRSTAKA SRASS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.