Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2003, Blaðsíða 26
26
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2003
Tilvera DV
lífiö
F 1 I R V I N. N U
Drottningin krýnd
Fegurðardrottning íslands 2003
verður valin úr hópi 21 keppanda
á Broadway í kvöld. Tekið verður
á móti gestum kl. 19.30 með
fordrykk og síðan verður
snæddur fjögurra rétta veislu-
kvöldverður. Ýmis skemmtiatriöi
verða í boði en stúlkurnar sjáifar
eru að sjálfsögðu í
aðalhlutverkinu og koma fram
fjórum sinnum áður en
krýningin hefst.
Söngur og saxólónn
Kirkjukór Háteigskirkju heldur
tónleika í Selfosskirkju í kvöld
kl. 20, í tilefni menningardaga
Árborgar. Kórinn flytur verk
eftir breska tónskáldið James
Whitboum en einnig verða flutt
verk eftir Elgar, Mendelssohn og
fleiri. Saxófónleikari í verki
Whitboum er Jóel Pálsson og
stjórnandi kórsins er Douglas A.
Brotchie
Myndaðir málshættir
Utskriftarnemar í ljósmyndun
við Iðnskólann í Reykjavík hafa
opnað sýningu á afrakstri
vetrarins í Caffé Kúiture,
Hverfisgötu 18. Þemað er túlkvm
á íslenskum málsháttum og
orðtökum.
B3tríó fylgir eftir nýrri plötu meö útgáfutónleikum:
Orgeliö í hávegum haft
„Við köllum B3tríóið, orgeltríó,
sem er gamaldags tríóuppskrift,
orgel, gítar og trommur. Við höf-
um verið að leika saman í tvö ár
þegar tækifæri gefst. Það var sam-
eiginlegur áhugi á þeirri tónlist
sem við flytjum sem leiddi okkur
saman. Ég og Agnar Már Magnús-
son höfðum þekkst lengi, fyrst í
gegnum FÍH-skólann og svo í
framhaldsnámi í Hollandi og vor-
um á sömu línu í tónlistinni. Við
fengum síðan til liðs við okkur
Erik Quick, trommuleikara frá
Svíþjóð, tii að fylla upp í tríóið,"
segir Ásgeir Jón Ásgeirsson gítar-
leikari en B3 hefur nýverið gefið
út plötuna Fals og fylgir plötunni
eftir með útgáfutónleikum í Nor-
ræna húsinu á sunnudaginn kl.
17.00.
B3tríó var stofnað í september
2001. Tríóið spilaði strax mikið á
tónleikum og veitingastöðum og í
kokkteilboðum í Reykjavík um
haustið enda voru allir meðlimir
tríósins búnir að geta sér gott orð
fyrir hljóðfæraleik, en fyrstu al-
vöru tónleikarnir voru á Múlan-
um 6. desember 2001 þar sem tríó-
ið lék lög úr smiðju Wes
Montgomerys, annaöhvort lög eft-
B3tríó
Orgeltríó sem leikur frumsaminn jass á tónleikum í Norræna húsinu á sunnudaginn.
ir hann sjálfan eða standarda í út-
setningum hans. í maí flutti tríóið
frumsamið efni eftir Ásgeir og
Agnar og þar sem tónlistin og tríó-
ið hlutu góða dóma í blöðum var
það hvatning til að taka upp plötu
og var það gert í ágúst. Tríóið hef-
ur einu sinni áður spilaö efnið af
Fals. Það var á Jazzhátíö Reykja-
víkur í fyrra.
Þegar Ásgeir er spurður hver
hafi haft mest áhrif á tónlist tríós-
ins sagði hann það vera Larry
Goldings tríóið. „Viö erum allir
miklir aðdáendur Larrys Goldings
og tríós hans sem hann hefur ver-
ið meö i ein tólf ár og er ekki laust
við að tríóið hafi hafið orgelið aft-
ur til vegs og virðingar. Agnar
Már lærði hjá Goldings í New
York og við höfum frekar verið að
leika í hans stíl heldur en Jimmys
Smiths, svo annar frægur jassorg-
elleikari sé nefndur."
Tríóið hefur leikið víða á land-
inu og stefnir út fyrir landstein-
ana: „Tríóið fer að öllum líkindum
til Svíþjóðar í haust en plötunni
okkar verður dreift þar í landi og
við fylgjum henni að sjálfsögðu
eftir.“ -HK
DV-MYND HAFDIS ERLA BOGADÓTTIR
Úr vöndu aö ráöa
Starfsmenn Arnarfells frá Akureyri sitja viö matarboröiö. Herra Kára-
hnjúkur sjálfur er fremstur til vinstri á myndinni. Þaö má þó Ijóst vera aö
dómnefndin hefur átt erfitt meö aö gera upp á milli þessara frísklegu
noröanmanna.
Herra Kárahnjúkur 2003 kjörinn:
Fékk áletrað
Það er oft glatt á hjalla í kaffi- og
matartímum og ýmislegt til gamans
gert. Karlmennimir í vinnubúðum
Amarfellsmanna eru sennilega
hverri ráðskonu afar hugljúfir þar
sem matvendninni er ekki fyrir að
fara hjá þeim. Þeir taka hraustlega
til matar síns og mikið þarf því að
elda ofan í þessa duglegu menn.
Ekki lét ráðskonan sem var þama á
dögunum duga að gefa þeim að
borða - nei, hún blés til keppni um
titilinn Herra Kárahnjúk 2003 og
var honum veittur titillinn með
pomp og prakt í matartímanum
einn daginn. Hinn eftirsótta titil
hlaut Heiðar Björnsson og fékk
hann að launum áletrað hreindýrs-
hom sem á án efa eftir að verða dýr-
mætt með tíð og tíma. -HEB
BÓNUSUÍDEÓ
i fjórar vídeóspólur og keyptu
ir Coke flöskur 7 Bónusvfdeó
Á Broadway]
■ , Þrostur 3000
Heiðar Austrnann
Kiddi Bigfoot:'
DJ Ding Dong
og þá faarðu miða á Sumardjamm Coca Cola, Bónusvideé og FM957
DV-MYND GVA
Austurbakkl hf. styrkir Mæörastyrksnefnd
Ásgeröur Jóna Flosadóttir, formaöur nefndarinnar, þakkar Ágústi Þóröar-
syni, aöstoöarframkvæmdastjóra Austurbakka, fyrir rausnarlega gjöf.
Meö á myndinni eru Auöur Guömundsdóttir, deildarstjóri hjá Austur-
bakka, Bryndís Guömundsdóttir, varaformaöur nefndarinnar, og Guörún
Magnúsdóttir og Anna Auöunsdóttir nefndarkonur.
Barnamatur og
súkkulaði fyrir sykursjúka
Austurbakki hf. hefur styrkt
Mæðrastyrksnefnd með því að
færa henni mikið magn af Hipp
barnamauki í krukkum og Hipp
barnamjöli. Einnig fékk nefhdin
Estee súkkulaði og kex fyrir syk-
ursjúka. Að sögn Ásgerðar Jónu
Flosadóttur, formanns Mæðra-
styrksnefndar, er mikl þörf á mat-
vælum til nefndarinnar og hafa
aldrei fleiri leitað aðstoðar hennar
en nú. -EKÁ
Matthew Barney í Nýló
Einn virtasti
myndlistarmaður
samtímans, Matt-
hew Barney, opn-
ar sýningu í Ný-
listasafninu á
morgun. Hann
skapar persónu-
lega og sérstæða
veröld með ímyndunum og tákn-
irni sem skarast og vinnur frjáls-
lega úr fomum goðsögnum,
Hollywoodmyndum, læknavísind-
um, harðkjamatónlist og andleg-
um pælingum. CREMASTER-
myndirnar fimm verða einnig
sýndar á stórum flötum skjám.
Úrval úr eigu safnsins
Sumarsýning
Listasafns ís-
lands tengir nú-
tíð og fortíð
saman með því
að sýna verk
frá helstu um-
brotatímum íslenskrar listasögu.
Gestum gefst færi á að skoða
hver hafa verið helstu viðfangs-
efni listamanna, frá frumherjun-
um í byrjun 20. aldarinnar eins
og Ásgrími Jónssyni, Jóni Stef-
ánssyni og Kjarval og fram til ný-
liðins tíma.
Frumefnin fimm
Ljósmyndasýn-
ing, sem ber nafn-
ið Frumefnin
fimm - Ferðadag-
bækur Claire
Xuan, verður opn-
uð á morgun í
Ljósmyndasafni
Reykjavíkur á 6.
hæð í Grófarhúsinu í Tryggva-
götu. Hún er byggð á ferðadag-
bókum frönsk-víetnömsku lista-
konunnar Claire Xuan og spann-
ar starfsferil hennar síðastliðin
sex ár. Á ferðum sínum leitar
hún að birtingarmyndum hinna
fimm náttúrulegu frumefna: trés,
elds, jarðar, málma og vatns, og
festir þau á filmu. Aðgangur að
sýningunni er ókeypis.
-
Hvert fóru allir?
Hatty Lee er ung myndlistar-
kona búsett í London. Hún opn-
aði ljósmyndasýningar á tveimur
stöðum í Reykjavík í gær, í Gall-
erí Skugga og á Mokka. Myndir
hennar fjalla um yfirgefna staði
og byggingar þar sem hún heill-
ast af andrúmslofti þess sem var.
Á Mokka sýnir Hatty Lee myndir
sem hún tók á staðnum fyrr á ár-
inu þar sem hún skrásetti yfirgef-
in borð áður en hreinsað var af
þeim.
Likto Fegurðarsamkeppnmi
við kúomat Búnaðarfélogsm
Afbrigði af fegurö
Afbrigði af fegurð er sýning
um sögu mótmælaaðgerða gegn
fegurðarsamkeppnum. Hún verð-
ur opnuð í húsakynnum kvik-
myndagerðarinnar Cut’n Paste,
íslandi að Síðumúla 12 í kvöld,
kl. 20.30. Þar verða sýnd sögubrot
allt ffá árinu 1970 þegar slagorðið
„Manneskja, ekki markaðsvara"
kom fram. Sýningin heldur áfram
á veitingahúsinu Prikinu, Banka-
stræti 12, frá og með næsta
sunnudegi.