Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2003, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2003, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2003 DV 9 Fréttir sá um ársreikninga fyrir Nathan & Olsen hf. árum saman. Gjaldkerinn, sem var kona, var vinsæl og virk í félagslífi í fyrirtækinu. Hún viður- kenndi brot sín greiðlega og var síð- an dæmd í tveggja ára fangelsi. Henni var jafnframt gert að greiða 25 milljónir króna, eða þá fjármuni sem ekki hafði þá tekist að ná til baka. Álit óvilhallra endurskoðenda þann 9. febrúar 1998 var á þá leið að konan hafl notið nær ótakmarkaðs trausts, bæði Nathans & Olsens og endurskoðenda þess en innra eftir- lit hefði verið veikt í ýmsum atriö- um. Aðhald og eftirlit með gjaldker- anum hefði verið ofmetið. Nathan & Olsen ákvað að stefna Pricewater- houseCoopers ehf. til fébótaábyrgð- ar. Skrifstofan hefði ekki staðið í stykkinu varðandi endurskoðun með hliðsjón af fjárdrættinum. Nathan & Olsen tapaði þó málinu í héraði sumarið 1999. Héraðsdómur Reykjavíkur taldi þó að leitt hefði verið í ljós að innra eftirliti hjá Nathan & Olsen hefði verið ábóta- vant hvað varðar umsjón og eftirlit með störfum konunnar - þrátt fyrir að hún hefði ítrekað skilað afstemn- ingum bæði seint og illa og aðeins hluta þeirra við hvert uppgjör. Samt hefði það verið látið gott heita, ekkert hefði verið brugðist við þar sem konan var „störfum hlaðin". Var málinu áfrýjað til Hæstarétt- ar sem sneri niðurstöðunni við með dómi sem kveðinn upp 9. desember 1999. Var PricewaterhouseCoopers ehf. dæmt til aö greiða áfrýjendum málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti samtals 600.000 krónur. Einnig var PWC og endurskoðand- anum gert að greiða in solidum áfrýjanda, Nathan & Olsen hf., 4 miÚjónir króna með dráttarvöxtum frá 26. mars 1998 til greiðsludags. Fyrirmyndarsnillingar íslendingar hafa mjög litið upp til svokallaðra fjármálasnillinga í gegn- um tíðina og ekki ónýtt ef nöfnin hafa verið útlensk. Einn slíkur er danskur og heitir Peter Brixtofte. Maðurinn var bæjarstjóri í Farum sem er vinabær Hafnarfjarðar og með álíka mörgum íbúum og Kópa- vogur. Brixtofte var álitinn sjarmör sem átti einkar gott með að fá fólk til að vinna með sér enda var hann eins konar fyrirmynd einkavæðingar í Danmörku og þó víðar væri leitað. Spurðist þetta til íslands og fóru full- trúar íslenskra sveitarfélaga m.a. utan til að kynna sér hin „farúm- sku“ fræði. Brixtofte þessi varð bæj- arstjóri í Farum árið 1985 en var einnig skattamálaráðherra Dan- merkur árin 1992-1993. Einn góðan veðurdag komst hins vegar upp um þennan fyrirmyndarfjármálasnilling vegna gruns um tuga milljóna króna skjalafals og fjárdrátt. Grunur lék þá á að bæjarstjórinn hefði látið útbúa falska reikninga, meðal annars til að greiða fyrir eigin lúxuslíf, og látið bæjarfélagið greiða þá. Glæpaamman Ekki hafa allir fjársvikamenn beint spjótum sínum að fyrirtækj- um, þess í stað má jafnvel segja að virt fyrirtæki hafi óafvitandi haft hag af afbrotum sem einfeldningar hafa síðan mátt líða fyrir. Frægt varð t.d. er 65 ára gömul reykvísk kona var handtekin á haustdögum árið 2000 vegna skipulagðra fjársvika. Var hún sökuð um að hafi haft tugi milljóna króna af um 10 einstaklingum sem hún hafði tekið upp á sína arma. Hafði hún áður hlotið dóma fyrir fjársvik, m.a. 1987 og 1991 fyrir aö hafa misnotað „ein- feldni og bágindi" öryrkja sem var undir handleiðslu geðlækna. Undir því yfirskini að vera frænka manns- ins hafði hún af honum aleiguna, rúmar tvær milljónir króna, og fékk hann til að ábyrgjast þijú veðskulda- bréf að upphæð 632.734 kr. Pening- ana notaði hún til þess að fara með fjölskyldu sína í utanlandsferð, gera upp skuldir við banka, lögmenn og matvöruverslanir og kaupa sér gler- augu og gervitennur. Konan var dæmd í október 2001 í tveggja ára fangelsi fyrir fjársvik upp á 29,9 milljónir króna, en skaða- bótakröfum upp á 51,5 milljónir króna var hins vegar vísað frá dómi. Þar á meðal var 25,3 milljóna kröfu 72 ára karlmanns í Vesturbæ Reykjavíkur sem var áttimdi maður- inn í málinu. Líka lögmenn í fyrrasumar var lögmaður í Reykjavík ákærður fyrir fjárdrátt upp á rúmar 4 milljónir króna og 2,5 miiljóna króna fjársvik. Hann er einnig ákærður fyrir bókhaldsbrot. Hann hafi haldið eftir innheimtufé af 19 kröfum sem haldið var fram fyrir ýmsa aðila, húsfélög, bifreiða- þjónustufyrirtæki, skóla, stéttarfé- lag, fyrirtæki og einstaklinga. Voru brot rakin allt til ársins 1993. Annar lögmaður, sem var samstarfsmaður hins á stofu, var einnig ákærður fyr- ir fjársvik upp á 663 þúsund krónur. Bankarán úr fangelsi Grandalausir starfsmenn banka urðu meira að segja fyrir barðinu á innilokuðum fanga á Litla-Hrauni. Sveik hann á þriðju milljón króna með því að hringja úr fangelsinu í ýmsa banka og fá þar í gegn milli- færslur af reikningum ýmiss fólks - allt frá samfóngum hans upp í for- stjóra stórfyrirtækis á höfuðborgar- svæðinu. Hafði maðurinn náð sér í kennitölur viðkomandi, fundið út viðskiptabanka og síðan komist að reikningsnúmerunum jafnvel með því að segjast þurfa að fá þau uppgef- in þar sem hann hefði þurft að greiða inn á viðkomandi reikninga. Var fýrsta brotið framiö í maí 1999 en það síðasta í júní 2000. í fram- haldinu voru tveir fangar og sambýl- iskona annars þeirra ákærð fyrir svikin. Landsíminn enn miill tannana á fólki Gjaldkera Landssímans viröist meö ótrúlegum hætti hafa tekist aö biekkja fjölda aöila sem önnuöust endurskoöun reikninga fyrirtækisins árum saman án þess aö upp kæmist. Milljarðar Mál kaupsýslumannsins Jóns Ólafssonar eru enn í rannsókn en það er margfalt umfangsmeira en önnur mál sem embætti Skattrann- sóknarstjóra hefur nokkru sinni fengist við. Varðaði það meint und- anskot frá skatti og vantaldar tekj- ur Jóns á árunum 1996-2001, 208 milljónir króna. Jafnframt van- framtalin hlunnindi, um 15 milljón- ir, vanframtaldar eignir upp á 500 milljónir og vanframtalinn sölu- hagnað Jóns og félagsins Jóns Ólafssonar & Co, samtals um 2.500 milljónir króna. Alls eru þetta um 3.200 milljónir króna. Engin niður- staða liggur þó fyrir í þessu máli. Fyrir utan þetta mál er mál Þórð- ar Þ. Þórðarsonar og Bifreiðastöðv- arinnar ÞÞÞ á Akranesi það mál sem felur í sér umsvifamestu und- anskot frá skatti sem dómur hefur fallið um til þessa. Um var að ræða vantaldar tekjur upp á 133 milljón- ir króna á árunum 1990 til 1994. Þá er enn beðið niðurstöðu í rannsókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á Baugi í kjöl- far húsrannsóknar hjá fyrirtækinu í haust. Víða komið við Meðal umfangsmikilla sakamála er eitt sem byggt var á atburðum sem gerðust á árunum 1991 og 1992 og var flutt í Héraðsdómi Reykja- víkur í mars 2001. Þar var tæplega sextugur Kópavogsbúi ákærður fyr- ir fjárdrátt, skjalafals, fjársvik og tollsvik, tengd tugmilljóna innflutn- ingi á vinnuvélum. Þá eru einnig dæmi um fólk sem sveik út gistingu og þjónustu á hótelum í Reykjavík auk ýmissar vöru úr verslunum. Tryggingasvik koma líka töluvert við sögu, m.a. á bótum frá Trygg- ingastofnun ríkisins, svo fátt eitt sé talið. Auglýsingadeild 550 5720 Meðal efnis: FerSir fyrir fjölskylduna • Tjaldvagnar - fellihýsi - hjólhýsi - húsbílar • Afþreying og skemmtun • Hápunktar • HvaS er að gerast í sumar? • Útivist • Gönguferðir • Leiðsögn • Hestaferðir - bátsferðir - fjalla- og jeppaferðir og margt annað fróðlegt og skemmtilegt. Skilafrestur auglýsinga er 2. júní w:a *:|búin að aðstoða ykkur: . s. 550-5734, inga@dv.is □, b. s. 550-5733, kata@dv.is Áargrét, b. s. 550-5730, margret@dv.is Ransý, b. s. 550-5725, ransy@dv.is Sigrún, b. s. 550-5722, sigruns@dv.is Auglýsendur athugið Sérblað um ferðir innanlands fylgir Magasíni fimmtu- daginn 5. júní - 82 þús. eintök. i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.