Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2003, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2003, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2003 DV Feröaþjónusta á Suöurlandi er í örum vexti og fjölbreytnin er mikil Seltoss er hiarta Suflurtands Sveitarfélagið Árborg hefur verið í miklum vexti allt frá því að það var stofnað við samein- ingu nokkurra sveitarfélaga árið 1998. Að sameiningunni stóðu Stokkseyrar-, Eyrarbakka- og Sandvíkurhreppur auk Selfoss- bæjar sem er stærsti þéttbýl- iskjarni svæðisins. íbúum á þessu svæði hefur, öfugt við flesta aðra landsbyggðarhluta, fiölgað á undanförnum árum og eru íbúar Árborgar nú á sjöunda þúsund miðað viö um 5500 árið 1998. íbúunum hefur á þessum tíma tekist að byggja upp öfluga og fjölbreytta atvinnustarfsemi í bænum og sérstaklega hefur ferðamannaþjónustan tekið mik- inn kipp á síðustu misserum. Auknir möguleikar með nýju hóteli Með lagningu brúar yfir Ölf- usá og byggingu Tryggvaskála um áriö 1890 var grunnurinn að ferðamannaþjónustu lagður á Seifossi. Frá þeim tíma hefur ferðamannaþjónustan vaxið jafnt og þétt og síðustu ár hefur fjölbreytnin í afþreyingu, sem í boði er fyrir ferðamenn, verið mjög mikil. Með opnun Hótel Selfoss á síðasta ári opnuðust síðan nýjar dyr fyrir ferða- mannabransann á Suðurlandi. „Hótelið var opnað síðasta sumar og er það allt hið glæsi- legasta en við bjóðum upp á 99 herbergi þannig að við getum hæglega tekið á móti um 200 manns í einu. Svo erum við með fundar- og ráðstefnusali fyrir allt að 350 manns sem eru vel tækjum búnir auk þess sem nettengingar eru á öllum her- bergjum. Þannig að við erum með allt til alls fyrir þá sem vilja halda ráðstefnur, fundi eða eitt- hvað í þeim dúr,“ segir Sigurður Skúli Bárðarson, hótelstjóri Hót- el Selfoss. Talsvert hefur verið um ráðstefnur á Hótel Selfossi á liðnum vetri auk þess sem eitthvað af fyrirtækjum hefur haldið árshátíðir sínar þar. Sig- urður segir það mjög ánægjulegt hversu vel hafi gengið á fyrstu mánuðunum en bendir á að stutt sé síðan hótelið var opnað og því sé eins konar reynslutími enn yfirstandandi. „Undanfarið höfum við svo verið aö bjóða upp á gistingu og kvöldverð héma á hótelinu ásamt því að menn fá aðgang á golfvöllinn og í sund. Þetta höf- um við verið með á sérstöku kynningarverði, 8 þúsund á manninn, og hefur það mælst ágætlega fyrir,“ segir Sigurður Skúli sem lítur björtum augum á sumarið. Gönguleiðir og lengri ferðir Á Selfossi er auk þess rekinn fjöldi annarra veitingahúsa, skyndibitastaða og bjórstofa. Reglulega eru svo haldin sveita- böll að hætti heimamanna en margar af vinsælustu sveita- ballahljómsveitum landsins koma einmitt frá bænum. Auk þess er tilvalið að fara í göngu- ferðir með fram Ölfusá eða ganga á Ingólfsfjall. Þaðan er mjög gott útsýni yfir sléttur Suð- urlands og eru fjallahringirnir bæði í austri og vestri mjög til- komumikil sjón auk þess sem vel sést til Vestmannaeyja í suðri. Selfoss er einnig aðalsam- göngumiðstöð Suðurlands og Glæsilegt hótel Hótel Selfoss var opnað síöasta sumar og er aöbúnaöur þar allur hinn glæsilegasti. Þar eru m.a. ráöstefnu- og fundarsalir auk veitingastaöar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.