Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2003, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2003, Blaðsíða 12
12 Útlönd ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2003 J3V REUTERSMYND Ummerki skjálftans Japanskir háskólanemar viröa fyrir sér sprungur í malbiki eftir jarö- skjálftann mikla í gær. Eftirskjálftar skóku Japan í morgun Fjöldi eftirskjálfta skók norð- austanvert Japan í morgun, dag- inn eftir að skjálfti upp á 7 stig á Richter reið þar yfir. Embættis- menn sögðu þó að það hefði ekki verið stóri skjálftinn sem búist er við innan fárra ára. Stjórnvöld sögðu að 104 menn heföu slasast í skjálftanum í gær en ekki er vitað til að neinn hafi farist af hans völdum. Skjálftinn fannst vel í höfuðborginni Tokyo, þar sem byggingar léku á reiði- skjálfi, um 450 kílómetra suður af upptökunum. „Þetta var mjög öflugur skjálfti en miðað við stærð hans urðu skemmdir litlar og fáir slösuðust. Fyrir það ber að þakka,“ sagði Shiro Assano, héraðsstjóri í Mi- yagi, skammt frá skjálftaupptök- unum. Skemmdir urðu á bæði vegum og byggingum í skjálftanum. Enn agneiningur innan Evrópusambandsins Nefndinni sem ætlað er að semja fyrstu stjómarskrá Evrópu- sambandsins hefur ekki enn tek- ist að jafna ágreining aðildarland- anna um valdahlutfóllin innan ESB eftir að það verður stækkað. Ef nefndinni á að takast það fyrir leiðtogafundinn á Grikklandi eft- ir tæpan mánuð verður hún að hafa hraðar hendur. Valéry Giscard d’Estaing, for- maður stjórnarskrámefndarinn- ar, birti í gær uppfærð drög að fyrsta kafla stjómarskrárinnar þar sem fjallað er um markmið og stofnanir ESB. Umdeildar tillögur um vald og skipan stofnana ESB eru hins vegar óbreyttar. Það þykir til marks um það mikla ósætti sem um þær ríkir innan sambandsins. Fulltrúi Breta í nefndinni, Pet- er Hain, ráðherra málefna Wales, sagði að Bretar heföu náð fram mikilvægum breytingum, eins og þeirri aö orðið „sambands-" var tekið út. Uppboð Eftirtaldir munir verða boðnir upp að Suðurlandsbraut 6, Reykjavík, þriðjudaginn 3. júni 2003 kl.14.00: Gerðaþoli: Orkubóndinn ehf. Gerðabeiðandi: Sjóvá -Almennar hf. Ýmsar tegundir líkamsræktartækja. Öflug hljómflutningstæki. Peningakassi. 2 stk. Samsung sjónvörp. 1 stk. Trust tölva. Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp- boðshaldara. Greiðsla við hamarshögg. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK ísraelsstjórn undirbýr viöræöur vegna Vegvísis: Sharon segir hernámið í Palestmu slæmt fyrir alla - gefur til kynna aö ísraelum sé full alvara meö friðarferliö í landinu Forsætisráðherra ísraels, Ariel Sharon, hefur gefið til kynna að honum sé full alvara að komast að friðarsamkomulagi við Palestínu- menn. Hann gaf ýmis merki þess efnis að hann sé fús að kalla heri sína til baka frá Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu og kallaði veru þeirra þar „hernám" sem er heldur óvenjulegt orðalag fyrir forsætisráð- herra ísraels. „Ég held að sú hugmynd að halda 3,5 milljónum Palestínumanna í hernámi sé hið versta mál fyrir ísr- ael, fyrir Palestínumenn og fyrir ísraelska efnahaginn," mun Sharon hafa sagt í viðtali við heimasíðu ísraelsks dagblaðs. Búist er við að æðstu embættis- menn landsins hittist á morgun til að undirbúa fund Sharons og Ge- orge W. Bush Bandaríkjaforseta, sem og fund forsætisráðherra land- anna tveggja, Sharons og Mahmoud REUTERSMYND Ariel Sharon Viröist jákvæöur en efasemdaraddir heyrast um hrifningu hans á Vegvísi. Abbas, nýskipaðs forsætisráðherra Palestínu. Talið er að þeir muni hittast á miðvikudag, þó engin tíma- setning hafi enn verið fastsett. Það yrði annar fundur þeirra síðan Abbas tók við embættinu fyrir tæp- um mánuði. Bush verður á ferð um Miðaustur- lönd í næstu viku og er ekki útilokað að hann muni einnig hitta Abbas, auk annarra leiðtoga Arabalanda. Á fundi Likud-bandalagsins í gær mætti Sharon andstöðu nokkurra félaga sinna í flokknum vegna Veg- vísis. Margir gagnrýnenda Sharons vilja meina að þetta sé aðeins póli- tískt útspil Sharons og hann búist við að aldrei komi til þess að hann muni fylgja orðum sínum eftir með athöfnum. Ofbeldi á svæðinu hefur ekki linnt og var 11 ára palestínskur drengur skotinn til bana á Vestur- bakkanum í gær. REUTERS Líflnu tekið með ró Mikil gleöi hefur ríkt í dýragaröinum i Schönbrunn í Vín, höfuöborg Austurríkis, undanfariö eftir aö fílsunginn Mongu fæddist þar í fyrradag. Mongu er aöeins annar fílsunginn sem fæöst hefur í Austurriki en eldri bróöir hans var sá fyrsti. Faöir þeirra, Pambo, fæddist í dýragaröinum í Basel í Sviss en hefur búiö í Schönbrunn síöan 1997. Á myndinni, sem tekin var í gær, sést Mongu hvíla sig eftir langan dag. Tveir bandarískir hermenn látnir eftir skyndiárásir í írak Þó svo að Bandaríkjamenn hafa komið stjómvöldum í írak frá völd- um og hertekið landið eru enn aðil- ar í landinu sem vilja vinna banda- rískum hermönnum mein. Tvær at- lögur hafa verið gerðar gegn Banda- rikjamönnum í írak undanfarið og hafa þær kostað lif tveggja her- manna auk þess sem aðrir særðust. Þá herma fregnir að Bandaríkja- her hafí einnig fangað mág Saddams Husseins, að nafni Mulhana Hamood Abdul Jabar. Hann var handtekinn í Tikrit, heimabæ Sadd- ams, þar sem á honum fundust 300 þúsund Bandaríkjadalir, þrjár vél- byssur og handsprengja. Fall bandarísku hermannanna er eitt af fáu sem hefur verið rakið til óvinveittra aðgerða gegn Banda- ríkjaher síðan Bush Bandaríkjafor- Hermaður við störf í Bagdad. seti lýsti því yfir að öllum stærstu innrásaraðgerðum í landið væri lok- ið, þann 1. maí síðastliðinn. Þá voru þijár vikur liðnar frá því að banda- rískir hermenn felldu styttu af Saddam Hussein í Bagdad. í fyrri árás gærdagsins skutu byssumenp af hríðskotabyssum að skipalest bandarískrar herdeildar um 180 kílómetra norður af Bagdad auk þess sem þeir vörpuðu handsprengj- um að þeim. Nokkrum klukkustund- um síðar sprakk sprengja í annarri skipalest Bandaríkjahers, nú rétt ut- an borgarmarka Bagdad, þar sem einn lést og þrír slösuðust. „Þeir áttu þetta skilið og meira til,“ sagði Ali Abbas, íbúi Amiriyah- hverflsins I Bagdad. „Þeir frelsuðu ekki landið, þeir hemámu það.“ Stuttar fréttir Tap hjá Berlusconi Stjórnarflokkur Silvios Berluscon- is, forsætisráð- herra Ítalíu, tap- aði í héraðskosn- ingunum í Róm, að því er fyrstu tölur frá því í gær bentu til. Annars staðar á ítaliu virðist sem stjórn- arflokkarnir hafi haldi sínu. íranar taka al-Qaeda liða írönsk yfirvöld hafa handtekið nokkra liðsmenn al-Qaeda en eru ekki viss um hversu háttsettir þeir eru innan samtakanna. íran- ar eru undir miklum þrýstingi að vestan um að berjast gegn hryðjuverkamönnum. Leitað að orsökum flugslyss Rannsóknarmenn skoða nú brak úkraínsku flugvélarinnar sem fórst í Tyrklandi í gærmorg- un í leit að orsökum slyssins. Sjö- tíu og fimm fórust. Kanar sakaðir um stríðsglæpi Bandarískir hermenn í Afganistan hafa verið sakaðir um stríðsglæpi í nýrri heimildarkvik- mynd. Þeim er gefið að sök að hafa drepið þrjú þúsund talíbana. Bush minníst tallinna dáta George W. Bush Bandaríkjaforseti vottaði í gær virð- ingu sína hundr- uðum þúsunda Bandaríkjamanna sem hafa látið líf- ið í styrjöldum. Hann minntist sérstaklega þeirra sem féllu í ný- afstöðnu stríði í írak. Athöfnin fór fram við gröf óþekkta her- mannsins í Arlington, þjóðargraf- reitnum við Washington. Tóku fullan bíl at gulli Bandarískir hermenn lögðu hald á vöruflutningabíl hlaðinn gulli nærri borginni Kirkuk í Irak á sunnudag. Gullið er metið á allt að átta milljarða króna. Tilfellum tjölgar á Taívan Heilbrigðisyfir- völd á Taívan til- kynntu í morgun að ellefu ný tilfelli bráðalungnabólg- unnar hefðu kom- ið upp í landinu og að fjórir til við- bótar hefðu látist af völdum sjúkdómsins. Taívan er í þriðja sæti þeirra landa þar sem flest tilfelli hafa komið upp. Biðja Serba um undanþágu Bandarísk stjórnvöld hafa farið fram á það við Serha að þeir und- anþiggi Bandaríkjamenn frá lög- sögu nýja alþjóðaglæpadómstóls- ins. Það gæti reynst Serbum erf- iður biti að kyngja þar sem þeir hafa látið undan þrýstingi að vestan um að afhenda stríðs- glæpamenn úr eigin röðum. Breskir dátar íhuga málsókn Fjórir breskir hermenn sem segjast þjást af einkennum sem likjast Persaflóaheilkenninu eru að undirbúa málsókn á hendur breska landvarnaráðuneytinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.