Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2003, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2003, Blaðsíða 13
13 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2003 PV__________________________________________________________________ Útlönd Edmund Hillary fagnað á götum Kathmandu líkt og fyrir 50 árum Á fimmtudag verða liðin 50 ár síðan að nýsjálenski endurskoð- andinn Edmund Hillary kleif Ev- erest-fjall, fyrstur manna. Líkt og þá var hann í gær dreginn um götur Kathmandu á hestvagni þar sem þúsundir manna komu sam- an til að fagna honum. Þetta litla ríki, sem hefur að geyma hæsta fjallstind í heimi og liggur í miðjum Himalaya- fjallgarðinum, heiðrar nú Hill- ary á þessum tímamótum. Ganga hans á Everest kom af stað túristasprengju sem er í gangi enn í dag. Hillary 'ávarpaði heimamenn við Hanuman Dhoka, hlið apa- guðsins, þar sem honum var vel fagnað. „í dag fógnum við hlý- leika fólksins í Nepal og þeim æv- intýramönnum sem hafa klifið hið stórkostlega Everest-fjall,“ sagði Hilary. Mikið fjölmenni var um hið ævafoma Hanuman Dhoka-torg og fylgdust íbúar borgarinnar með hátíðarhöldunum hvar sem REUTERSMYND Viöurkenning Hinum 83 ára Edmund Hillary er hér veitt viöurkenning fyrir framlag sitt til Nepals, 50 árum eftir aö hann kleif Everest-fjall, fyrstur manna. þeir gátu, hvort sem var út um glugga íbúða sinna eða af hús- þökum. Skólabörn fógnuðu einnig Hillary og höfðu búið til skilti þar sem hann er lofaður í hvívetna. „Ég er hingað kominn til að fagna Edmund Hillary,“ sagði hinn 11 ára gamli Ruben Bajracharya sem hafði beðið í einn og hálfan tíma til að berja hetju sína augum. Um 450 Everest-farar eru staddir i Nepal í tilefni af hátíð- arhöldunum, þeirra á meðal er fyrsta konan sem kleif fjallið, hin japanska Junko Tabei, og fyrsti maðurinn til að komast á toppinn hjálparlaust og án auka- birgða af súrefni, Reinhold Messner. Einn þeirra sem var saknað í hátíðarhöldunum var Nepalinn sem fylgdi Hillary á toppinn, Tenzing Norgay, en hann dó árið 1986. Sonur hans og barnabarn, sem báðir hafa klifið fjallið, voru þó með í hátíðarhöldunum í hans stað. írar og Spánverjar deila um fiskveiðar Spánverjar og írar höfnuðu í gær sáttatillögu í deilu þeirra um fiskveiðar innan írsku lögsögunn- ar og óttast margir að átök milli sjómanna kunni að vera í upp- siglingu. Málamiðlunartillaga Evrópu- sambandsins gerði ráð fyrir að spænskir togarar fengju að veiða á hluta bannsvæðis undan ströndum írlands. Stjórnvöld í Madríd vilja fá fullan veiðirétt á umræddu svæði eftir að samningur um takmörk- un veiða þar rann út um síðast- liðin áramót. írar segja að fiski- stofnarnir þar þoli ekki meiri veiði en þegar er stunduð. Stnokuboli skotínn í forngripaversluninni Skyttur úr bresku lögreglunni skutu í gær til bana strokubola sem gekk berserksgang í fom- gripaverslun í norðvestanverðu Englandi. Tuddinn hafði strokið frá nautgripauppboði skammt frá. Bolinn særði eina konu á flótt- anum áður en hann komst inn í forngripaverslunina í Lancaster þar sem hann eyðilagði fjölda dýrgripa. REUTERSMYND Pavarotti og Bono stinga saman nefjum ítalski stórtenórinn Luciano Pavarotti og írski stórpopparinn Bono stinga saman nefjum á æfingu fyrir tónieika Pavarottis og vina hans í ítölsku borginni Modena. Afrakstur tónleikanna styrkir böm í írak. Áfram deilt í Frakklandi Vinnudeilur halda áfram í Frakklandi í dag. Aö þessu sinni eru þaö flug- umferöarstjórar og starfsmenn flug- valla sem legga niöur vinnu. Verkföll raska flugum- ferð 01 Frakklands Miklar truflanir verða á flug- umferð til og frá Frakklandi í dag vegna verkfalls flugumferðar- stjóra og annarra flugvallarstarfs- manna. Gert er ráð fyrir að af- lýsa verði um áttatíu prósentum alls áætlunarflugs. Verkfallið í dag kemur í kjölfar gifurlegra mótmælaaðgerða kenn- ara í þjónustu ríkisins vegna boð- aðra breytinga á eftirlaunakerf- inu. „Þjónustan verður í lágmarki. Það þýðir að tryggt er að um tutt- ugu prósent flugvéla fara í loft- ið,“ sagði Jean-Marie Piduch, talsmaður frönsku flugmála- stjómarinnar. Flugfarþegum hefur verið boðið að fá miða sína endurgreidda eða þá að þeim hefur verið boðið flug á einhverjum öðrum degi. Enn agreíníngur um ratsjárstöðina í Thule Danska þingið felldi í gær til- lögu fulltrúa Grænlands á þing- inu um að frestað yrði að ákveða framtíðarnotkun bandaríska hers- ins á ratsjárstöðinni í Thule. Bandaríkjamenn vilja að hún verði hluti fyrirhugaðs eldflauga- varnarkerfis síns. Grænlensku þingmennirnir Kupik Kleist frá vinstriflokkinum IA og Lars Emil Johansen frá stjórnarflokkinum Siumut lögðu til, með stuðningi tveggja lítilla flokka á danska þinginu, að Bandaríkjamönnum verði ekki gefið endanlegt svar um notkun Thule-stöðvarinnar fyrr en gerður hefði verið nýr varnar- samningur við Grænlendinga. Meirihluti danska þingsins lagðist gegn þessari tillögu og studdi aðra þar sem segir að samninganefndirnar eigi að kom- ast að sameiginlegri niðurstöðu áður en farið verður að uppfæra ratsjárstöðina. Erlendar björgunarsveitir heim frá Alsír: ftkert lát á martröð- iimi fypip herniameim Erlendar björgunar- sveitir, þar á meðal al- þjóðleg sveit Lands- bjargar, pökkuðu sam- an tækjum sínum og tólum og héldu burt frá Alsír í gær. Martröð þeirra sem lifðu af jarð- skjálftann ógurlega í síðustu viku heldur hins vegar áfram, þar sem þúsundir manna búa við illan kost í búð- um sem komið var upp. Allri leit að lifandi fólki í rústum húsa hefur verið hætt. „Við getum ekki gert meira. Það er enginn lifandi undir þessu,“ sagði einn björgunarsveitarmaður þar sem hann var að pakka saman á hóteli í Algeirsborg. Um leið og björgunar- sveitamennirnir héldu á brott komu starfs- menn erlendra hjálpar- stofnana með með mat- væli, lyf og ýmislegt fleira. Samkvæmt síðustu tölum yflrvalda létust 2.217 manns í skjálftan- um á miðvikudag sem mældist 6,7 stig á Richt- er. Rúmlega níu þúsund manns slösuöust. Taliö er að tugir manna séu enn grafnir undir húsarústun- um en engin von er um aö fleiri finnist á lífl. Á skjálftaslóöum Myndir af látnum eftir Alsírskjálftann. AÐEINS DAG: 1/2 L. ÍSLENSK: McSjeik Listaverð 299,- lcr. ^■McDo iISL Smárati.! oöoö "^SuðuúmMb iáSSSliiUr/iUiír;=íii /V\ gMCDonald's ýiiœölrrm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.